DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 178-11
DROPS Design: Mynstur db-079
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-300-400 g litur 01, rósarrunni

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 stuðlar og 7 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð og 4 loftlykkjubogar (1 loftlykkjubogi = 1 stuðull + 3 loftlykkjur) verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um kant í kringum op á bolero):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju, heklið síðan keðjulykkjur fram að miðju á næsta loftlykkjuboga.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2.

ÚTAUKNING (á við um kant í kringum op á bolero):
Aukið út um 4 loftlykkjuboga í umferð með því að hekla 1 auka loftlykkjuboga (= 1 stuðull + 3 loftlykkjur) um loftlykkjuboga á undan og á eftir loftlykkjuboga með prjónamerki í.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er heklaður einn ferningur (heklaður í hring) frá miðju að aftan, síðan er heklað áfram fram og til baka á tveimur hliðum á ferningi til að gera ermar. Að lokum er heklaður kantur í kringum opið á bolero.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Byrjið með Big Delight með heklunál 6 og heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina er síðasta umferðin endurtekin. Í hverri nýrri umferð verða 4 loftlykkjubogar. JAFNFRAMT í hverri 6. umferð er aukið aukalega út um 8 loftlykkjuboga – sjá stjörnur í mynsturteikningu (= 8 auka útaukningar í 6. hverri umferð). Haldið svona áfram þar til ferningurinn mælist ca 48-52-52-56 x 48-52-52-56 cm.
Heklið fram og til baka í hvorri hlið þannig: Heklið eins og áður fram að fyrsta horni og heklið 1 fastalykkju um loftlykkjubogann í horni. SETJIÐ EITT PRJÓNAMERKI HÉR. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu (= umferð merkt með ör) þannig: Heklið A.2a, heklið A.2b fram að næsta horni, heklið A.2c. Þegar A.2a til A.2c hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 12-12-16-16 cm, en passið uppá að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu. Klippið frá.
Heklið alveg eins í gagnstæðri hlið á ferningi.

Brjótið stykkið saman á lengdina þannig að horn A og B mætast og horn C og D mætast – sjá teikningu. Heklið stuttan ermasaum meðfram skammhlið á stykkinu í gegnum bæði stykkin þannig: Heklið 1 fastalykkju um ysta lykkjuboga í horni A og B. Heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja um bæði lögin *, endurtakið frá *-* í 6-6-4-4 cm. Klippið ekki frá. Handvegurinn er nú ca 36-40-44-48 cm í ummáli. Heklið síðan kant í kringum handveg þannig:
Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull). Heklið 3 stuðla um hvern og einn af loftbogum í kringum handveg. Endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í umferð. Endurtakið í hinni hliðinni þar sem horn C og D mætast.

KANTUR Í KRINGUM OP Á BOLERO:
Heklið nú kant í kringum allt opið á bolero þannig:
UMFERÐ 1: Festið endann með 1 fastalykkju um fyrsta loftlykkjuboga á eftir horni A/B þar sem það var heklað saman. Heklið 6 loftlykkjur (= 1 stuðull + 3 loftlykkjur) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið * 1 stuðul um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* hringinn alla umferðina. Setjið eitt prjónamerki í loftlykkjubogann við horn A/B þar sem það var heklað saman og eitt prjónamerki þar sem C/D var heklað saman = 2 prjónamerki.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og aukið út um 1 loftlykkjuboga hvoru megin við loftlykkjubogana með prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING = 4 loftlykkjubogar fleiri.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.

Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kanturinn mælist ca 14 cm. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 6 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju

symbols = 1 loftlykkja
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = hér er aukið út um 1 stuðul + 3 loftlykkjur um loftlykkjuboga í 6. hverri umferð – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = heklstefna
symbols = byrjið á þessari umferð í mynsturteikningu (= 2. umferð)
symbols = hér byrjar síðasta umferðin
symbols = svona er flíkin notuð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Häkeli wrote:

Hallo zusammen, muss man beim Rand um die Öffnung des Boleros nur einmal die vier Bögen zunehmen oder bei jeder Wiederholung der 2. Runde? Vielen Dank!

24.05.2021 - 15:50

DROPS Design answered:

Liebe Häkeli, es wird bie jeder Wiederholung der 2. und 3. Runde dh in jeder 2. Runde zugenonmmen bis der Rand ca 14 cm misst. Viel Spaß beim häkeln!

25.05.2021 - 08:34

country flag Nina wrote:

Waarschuwing: de maten van dit patroon kloppen niet.

28.02.2021 - 19:08

country flag Nina wrote:

Ik heb de maten voor S/M aangehouden, maar als ik hoek A en B en hoek C en D op elkaar leg ziet het er heel gek uit. Er is aan beide kanten een opening van 33cm. moet daar de mouwen komen? En de opening van 48cm daarvan loopt dus één kant op de hals en één kant op de rug? Dit is veel kleiner dan maat S/M. Het hele vierkant komt zo niet eens netjes op de rug te vallen. Of ik heb helemaal de verkeerder kanten aan elkaar gezet. Hoe zit het?

24.02.2021 - 23:04

DROPS Design answered:

Dag Nina,

Je haakt eerst een vierkant en daarna haakje aan beide zijden van het vierkant naar buiten toe. Vervolgens vouw je het werk dubbel. De openingen aan de korte einden vormen de armsgaten. Je haakt hier ook nog een rand omheen De opening aan de lange kant is de opening langs beide voorpanden, de onderkant van de rug en langs de hals achter. Hier wordt ook een rand omheen gehaakt.

26.02.2021 - 11:49

country flag Wendy wrote:

Voor hoek A naar hoek b te vouwen Hoe moet het werk liggen Met patroon a b boven ennonder of links en rechts En waar moet ik dan precies haken

29.12.2020 - 14:19

DROPS Design answered:

Dag Wendy,

Je hebt eerst het vierkant gehaakt (gestreepte lijntjes in de tekening en daarna naar beide zijkanten toe gehaakt (pijltjes). Je hebt dan dus een rechthoek die je in de lengte dubbel vouwt. De kort uiteinden worden de mouwen, waar je eerst en rand lang haakt. Daarna haak je een rand rondom de opening, dus lans de voorpanden, de hals achter en de onderkant achter.

17.01.2021 - 14:48

country flag Constance wrote:

Constance barcelona tröja messi barn,usa tröja,neimar brasilien,man u sverige ore,fotbollskläder tjej Matchtröjor-Fotboll. Andyr

25.03.2020 - 18:45

country flag Libellule wrote:

Bonjour, quand j'ai cousu A-B et C-D qui deviennent donc des manches...qu'est ce que je fais des pointes de chaque cotés?

22.01.2020 - 03:18

DROPS Design answered:

Bonjour Libellule, les manches sont la longueur entre A et B d'un côté et C et D de l'autre. L'assemblage se fait le long des 12-16 cm crochetés en haut et en bas (14 cm indiqués dans le schéma, y compris la bordure finale), en remontant sur 4-6 cm le long du côté A-B (ou C-D), pour que l'emmanchure fasse bien 36-40-44-48 cm de circonférence comme indiqué dans le schéma. Bonne continuation!

22.01.2020 - 09:48

country flag Chanvi wrote:

Bonjour combien de pelotes big delight dois je acheter pour une taille L, du modèle chauffe épaule, garden paradise, merci beaucoup. 😊

25.05.2019 - 08:40

DROPS Design answered:

Bonjour Chanvi. Vous avez besoin de 3 pelotes (= 300 g) de Big Delight. Bon tricot!

25.05.2019 - 22:26

country flag Penny wrote:

Is this just a big granny square because the instructions are hard to follow

25.01.2019 - 21:10

DROPS Design answered:

Dear Penny, the square is not the traditional granny square and should look as in the diagram. Each symbol in diagram represent 1 stitch/group of sts. Start in the middle with the ring of chains, then beg of round is the black dot on the circle and read every round from the right towards the left joining at the end of every round. Happy crocheting!

28.01.2019 - 09:24

country flag Cévalte Emilie wrote:

Bonjour, j'ai réalisé ce modèle et j'en suis très satisfaite. J'ai trouvé les explications et les diagrammes très clairs. Merci pour ce joli modèle!

21.05.2018 - 10:15

Tracy wrote:

I don't understand this pattern either.the pictures and text ver confusing . Do I turn the sq into a rectangle by crochet g each end for sleeve then fold and st corners together? Can't figure out where I stitch the 6vm sleeve seam?

24.03.2018 - 10:15