DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 190-39
DROPS Design: Mynstur fa-403
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Lengd efst: ca 143 cm.
Hæð fyrir miðju: ca 25 cm.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 161, bleikur draumur
100 g litur 910, þokumistur

DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 45 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
* 2 umferðir með litnum bleikur draumur, 2 umerðir með litnum þokumistur *, prjónið frá *-* til loka.

LEIÐBEININGAR:
Ysta lykkjan meðfram slétta kantinum á sjalinu (í byrjun á umferð frá réttu og í lok umferðar frá röngu) er prjónuð með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir) til loka.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og prjónað er frá hlið að hlið.
Allt sjalið er prjónað í GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

SJAL:
Fitjið upp 6 lykkjur á prjón 3,5 með litnum bleikur draumur DROPS Fabel.
Setjið 1 prjónamerki eftir 2 fyrstu lykkjur í umferð (séð frá réttu) og prjónið þannig: - lesið LEIÐBEININGAR og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu innan við picot kant:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3 (= rétta): Skiptið um lit og prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 2 sinnum uppá prjóninn og prjónið síðan 2 lykkjur í hvora af 2 síðustu lykkjum á prjóni (prjónið 2 lykkjur í sömu lykkju með því að prjóna framan í og aftan í sömu lykkju) = 2 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 4 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkjunni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið öftustu lykkjunni á hægri prjóni yfir fremstu lykkjuna (= 2 lykkjur færri), prjónið 1 lykkju slétt, sleppið öðrum uppslættinum niður, prjónið hinn uppsláttinn slétt og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Skiptið um lit í næstu umferð.
Endurtakið umferð 1 til 4.
JAFNFRAMT í 9. umferð er aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Endurtakið útaukningu í 6. hverri umferð – aukið alltaf út á undan prjónamerki þannig að það verða fleiri og fleiri lykkjur með garðaprjóni hægra megin við prjónamerki (séð frá réttu).
Þegar alls 54 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (þ.e.a.s. alls 58-60 lykkjur háð picot kanti), mælist stykkið ca 70 cm meðfram slétta kantinum.
Prjónið 8 umferðir án útaukninga, en í 5. umferð er prjónað á undan prjónamerki þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn – þetta er gert til að halda gataumferðinni meðfram kanti jafnvel þó að útaukningin haldið ekki áfram. Í næstu umferð frá réttu eftir 8 umferðir án útaukninga, fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið útaukningu í 6. hverri umferð þar til einungis 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (séð frá réttu). Prjónið 8 umferðir eins og áður án úrtöku og fellið síðan af allar lykkjur.
Sjalið mælist ca 143 frá horni að horni. Klippið frá og festið enda.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Pure Joy

Christine Rivière, France

Pure Joy

Susi, Austria

Pure Joy

Virginie, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Iuliia wrote:

Dear Drops Team, in row 3 after the double yarn over we have 4 stitches. In row 4 those 4 stitches again become 2. But in the description of row 4, it seems that after those 4 there should be one more before double yarn over because it says: "Slip the first stitch as if to knit, knit 1, pass the slipped stitch over, knit 1, pass the back stitch on the right needle over the front stitch (= 2 stitches decreased), knit 1". Or am I missing something? Thank you!

26.11.2023 - 14:47

DROPS Design answered:

Dear Iuliia, there are 4 stitches before the yarn overs in row 4. Slip the first stitch, knit the 2nd stitch, pass the first stitch over the 2nd stitch. Now knit the 3rd stitch, and pass the 2nd stitch over the 3rd stitch. Now knit the 4th stitch and then drop the yarn over. Happy knitting!

27.11.2023 - 00:01

country flag Chantal Laframboise wrote:

Bonjour! Pour les diminutions . Vous dites trois mailles ensemble et une jetée avant le fil marqueur . Donc on fait à chaque 6 rangs deux diminutions et non une seule diminution comme vous le dites sur l’instruction.

20.04.2023 - 17:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Laframboise, on tricote effectivement 3 mailles ensemble à l'endroit (on diminue 2 mailles), mais on fait 1 jeté; autrement dit, une des deux diminutions est compensée, on ne va diminuer qu'une seule maille sur ce rang. Bon tricot!

05.05.2023 - 09:08

country flag Lucia wrote:

Nel punto in cui si dice di lavorare 8 ferri senza aumentare, ma al ferro 5, lavorare 2 maglie insieme a diritto, 1 maglia gettata per proseguire la linea traforata lungo il bordo. Per mantenere 6 ferri di distanza occorrerebbe fare la prima diminuzione durante il ferro successivo sul diritto del lavoro dopo 10 ferri senza aumenti. Così come descritto tra i due fori ci sono 4 ferri invece di 6.

14.02.2022 - 20:14

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, non ci sono segnalazioni di errori nelle spiegazioni. Buon lavoro!

05.03.2022 - 22:36

country flag Sony wrote:

Hello, To start with I Knit 1 - 4 rows, repeat 1 - 4 rows and on the 9th row make an increase. I don't understand this part : "Repeat the increase every 6th row upwards". Appreciate your guidance. Kind regards, Sony

30.07.2021 - 11:43

DROPS Design answered:

Dear Sony, this increase will be worked every 6th row, ie work 5 rows as before, and increase one more time on next row. Repeat until there is a total of 54 sts and piece measures 70 cm. Happy knitting!

30.07.2021 - 13:17

country flag Lene Schmidt wrote:

Spørgsmål vedr. 4. pind: Hvordan strikkes: "slip det ene omslag ned, strik det andet omslag ret" Håber I kan hjælpe.

11.02.2021 - 21:18

DROPS Design answered:

Hei Lena. Du har 2 kast på pinnen, slipp det ene kastet ned og strikk neste kast. Du får da en stor hull, se evnt videoen: Hvordan strikke et dobbelt kast slik at du får et stort hull. mvh DROPS design

15.02.2021 - 15:09

country flag REINE MARIE wrote:

BONJOUR COMMENT TRICOTER AVEC 2FILS AU DEBUT ET A LA FIN DU RANG COMME LE CHALE SE FAIT QU AVEC 1FIL MERCI DE VOTRE REPONSE

29.10.2020 - 13:38

DROPS Design answered:

Bonjour Reine Marie, cette vidéo montre comment tricoter les mailles du bord avec 2 fils, dans le châle, on va utiliser un de chaque couleur. Bon tricot!

29.10.2020 - 13:59

country flag REINE MARIE wrote:

ES CE QUE CE MODELE SE TRICOTE ENTIEREMENT AVEC 2FILS ENSEMBLE OU UN SEUL? MERCI DE VOTRE REPONSE

07.10.2020 - 14:21

DROPS Design answered:

Bonjour Reine Marie, ce châle se tricote avec 1 seul fil DROPS Fabel . Bon tricot!

07.10.2020 - 15:27

country flag Sigurveig wrote:

Í munstri fa-403 er í 3.umf talað um að slá tvisvar uppá prjóninn en ekkert um hvað á að gera við uppsláttinn í 4.umf hvort það eigi að verða tvær lykkjur úr uppslættinum eða engin é er í vandræðum með þetta Kveðja Sigurveig

13.02.2020 - 14:14

DROPS Design answered:

Takk fyrir ábendinguna, búið er að laga það sem vantaði inn í texta.

13.02.2020 - 20:11

country flag Valentina wrote:

Buongiorno,quando inizia la seconda parte dello scialle, calo i punti prima del marcapunto. Volevo chiedere,la parte dove ci sono i picot invece continua ad espandersi,o si eseguono dei cali anche dopo il marca punto? Grazie

18.12.2019 - 13:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Valentina. Deve diminuire solo prima del segno; dopo il segno rimangono le maglie del bordo picot. Buon lavoro!

19.12.2019 - 09:28

country flag Chantal wrote:

J’aimerais savoir la diminution au 6 rang est-il toujours sur le même rang ou sur deux rangs différents. Je tricote avec une seul balle est ce que mon côté droit devrait être tricoter différemment. Merci ā l’avance et bonne journée Chantal

08.05.2019 - 00:55

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, quand vous diminuez tous les 6 rangs, ce rang de diminutions sera toujours du même côté: diminuez 1 rang, tricotez 5 rangs sans diminuer et répéter ces 6 rangs. Bon tricot!

08.05.2019 - 08:05