DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 161-37
DROPS Design: Mynstur nr ee-524
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/39 - 40/42 - 43/44
Lengd tátilju: 24 - 27- 29 - 32 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
100-150-150-150 gr litur nr 31, pastelblár
100-100-100-150 gr litur nr 47, ljós beige

DROPS PRJÓNAR NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni með Snow verði 10 x 10 cm fyrir þæfingu.
Eftir þæfingu 10 x 10 cm = 13,5 l x 28 umf
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 540: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka)
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í einu lagi með saum við miðju að framan og við miðju að aftan, byrjað er efst, beint ofan á rist – SJÁ TEIKNINGU!
Fyrst er prjónaður spæll, hann er prjónaður saman við tátiljuna jafnóðum.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN TÁTILJAN ER PRJÓNUÐ!

SPÆLL:
Fitjið upp 10 l á prjóna nr 8 með litnum pastelblár í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 17-17-18-18 cm. Setjið l á auka prjón eða þráð.

Fitjið upp 3-3-5-5 l á prjóna nr 8 með litnum pastelblár. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp lykkjur í lok hverrar umf frá réttu þannig: 3 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm eru fitjaðar upp 21-25-25-29 l í lok umf frá röngu. Eftir alla útaukningu eru 33-37-39-43 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 21-25-25-29 l, snúið við og prjónið til baka. Þegar stykkið mælist 10-11-11-11 ½ cm prjónið næstu umf þannig: Prjónið 18-22-22-26 l, leggið stykkið með l frá spæl framan við stykkið og prjónið saman spælinn með 10 næstu l (1 l frá spæl er prjónuð slétt lykkja saman við 1 lykkju frá tátilju), prjónið síðustu 5-5-7-7 l frá tátilju. Prjónið nú yfir allar l eins og áður. Þegar stykkið mælist 10½-11½-11½-12 ½ cm skiptið yfir í litninn ljós beige. Prjónið stuttar umf alveg eins þegar tátiljan mælist 14-15-15-17, 22-23-23-27- og 30-32-32-38 cm. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-20-20-22 cm er sett eitt prjónamerki = miðja undir fæti. Þegar prjónað hefur verið jafn langt á eftir prjónamerki eins og á undan prjónamerki með litnum ljós beige er skipt yfir í litinn pastelblár. Prjónið nú í hinni hliðinni á tátiljunni með úrtöku í stað útaukningu. Byrjið að fækka lykkjum þegar það eru jafn margir cm frá prjónamerki og er frá síðustu útaukningu og fram að prjónamerki.
Fækkið lykkjum í byrjun á hverri umf frá röngu þannig: 1 l 3 sinnum, 3 l 2 sinnum. Fækkið lykkjum í byrjun á umf frá réttu þannig (eftir að lykkjum hefur verið fækkað 3 sinnum frá röngu): 21-25-25-29 l 1 sinni = 3-3-5-5 l eftir. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Brjótið tátiljuna saman við miðju undir fæti og saumið saman mitt framan á tá og yfir neðstu 12-12-14-14 l sem fitjaðar voru upp. Í kringum opið efst eru teknar upp ca 60 l með litnum pastelblár (það er mikilvægt að taka upp nægilega margar l svo að stykkið dragist ekki saman). Prjónið 2 umf slétt fram og til baka. Fellið af.
Saumið sauminn að aftan (A+B) yst í lykkjubogann.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt, nema festið spælinn þegar það eru 10-11-11-11½ cm eftir á tátilju, þ.e.a.s. á eftir prjónamerki og strax eftir að skipt er yfir í litinn pastelblár (miðið við fyrri tátilju).

ÞÆFING:
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

Saumið tölu í gegnum spælinn og tátiljuna – sjá mynd.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.08.2015
Nýtt efnismagn í stærð: 38/39-40/42, pastelblár. Efni: DROPS SNOW frá Garnstudio 100-150-150-150 gr litur nr 31, pastelblár

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Shirley wrote:

How do I make the knitting patterns into a pdf file so I can save it in Knit Companion. A folder where I keep my knitting patterns.

23.10.2020 - 22:51

DROPS Design answered:

Dear Shirley, just below the pattern, there is a small printer icon. Click on the roll down menue, select print tthis pattern, and yo go from there. At the print-page select "save as pdf". Happy Knitting!

24.10.2020 - 03:42

country flag Debbie wrote:

I had to shrink this twice to get the right size. I would much have preferred the result on the first shrinkage. It would have taken less wool as well.

27.12.2019 - 01:46

country flag Daniel wrote:

The toes in the video are MUCH shorter than the one on the photo

23.12.2019 - 14:48

DROPS Design answered:

Dear Daniel, In the videos we usually use different yarns, and / or different stitch / row numbers. They are only to show you the principles of how to do things, not a step by step video on how to do each pieces from the beginning to the end. Happy Crafting!

24.12.2019 - 17:47

country flag Doris Klein wrote:

Die Pantoffeln sind wunderschön geworden. Und dank der exakten Anleitung sehr leicht zu stricken. Toll!

18.10.2016 - 13:10

country flag Marion Bouthoorn wrote:

Zou graag willen weten vanaf welk punt jullie elke keer de behaalde cm meten?

09.07.2016 - 18:42

DROPS Design answered:

Hoi Marion. Vanaf de opzetnaald tenzij anders wordt vermeld in het patroon.

11.07.2016 - 13:49

country flag Marion Bouthoorn wrote:

Als ik na 6 cm, met 25 steken aan de verkorte toeren ga beginnen, wat doe ik dan met de overige 14 steken?

27.06.2016 - 22:15

DROPS Design answered:

Hoi Marion. Je breit een keer heen en weer over de eerste 25 st, daarna ga je verder over alle st.

29.06.2016 - 12:47

country flag EmmaLee wrote:

I made a pair of these for my daughter and she loved them

06.02.2016 - 15:14

country flag Mme Janvier T wrote:

Car je ne vois pas combien de mailles il faut que je fasse sur mes rangs raccourci (je suis débutante et ne comprend pas encore très bien les tutoriels). je suppose qu'a 14 cm il me faut 21m raccourcie, qu'a 22 il m'en faut 18 mais je ne vois pas combien il en faut à 30cm. je ne sais pas si je me suis bien exprimer. et entre mes rangs raccourcie, dois je tricoté la totalité de mes mailles c'est a dire les 33? merci de l'aide que vous m'apporterez

01.11.2015 - 11:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Janvier, à 14, 22 et 30 cm, tricotez les rangs raccourcis comme vous avez fait à 6 cm: tricotez 21 m, tournez et tricotez le rang retour - continuez ensuite comme avant . Bon tricot!

02.11.2015 - 08:26

country flag Janvier wrote:

Bonjour, je suis bloquée au passage qui demande à 10.5cm de hauteur total de continuer en beige clair. il nous ai demandé de tricoter des rangs raccourci comme avant quand le chausson mesure 14 puis 22 et enfin 30cm. pouvez vous m'éclairez?

01.11.2015 - 11:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Janvier, à 10.5 cm, continuez en beige clair et tricotez les rangs raccourcis comme avant à 14 cm - à 18 cm, placez 1 marqueur = milieu du chausson - tricotez ensuite autant de rangs beige clair après le marqueur que vous en aviez tricoté avant le marqueur - et tricotez des rangs raccourcis encore à 22 et 30 cm. Quand vous avez repris le fil bleu, commencez à diminuer - pliez le chausson au marqueur pour vérifier la hauteur sur la 1ère partie et commencez à diminuer. Bon tricot!

02.11.2015 - 08:19

country flag BIANCO Odile wrote:

J'ai un problème pour les coutures. Pour celle de derrière, on coud un peu de bleu et puis le reste de bleu en l'écartant avec le marron, mais on ne couds pas du haut en bas bleu et puis marron ?

23.06.2015 - 16:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bianco, l'assemblage au milieu dos se fait du haut en bas, d'abord en bleu, puis en beige clair. Bon tricot!

23.06.2015 - 19:35