Polished Marble#polishedmarblewrap |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað sjal úr DROPS Delight. Stykkið er heklað ofan frá og niður með kúlum og gatamynstri.
DROPS 214-43 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.15. Mynsturteikning A.1 sýnir alla byrjun á stykkinu. Mynsturteikning A.3, A.5, A.7, A.9, A.11, A.13 og A.15 sýnir miðju á sjali. Loftlykkjubogar í miðju á þessari mynsturteikningu = miðjubogi. Mynsturteikning A.2, A.4, A.6, A.8, A.10, A.12 og A.14 sýnir helming af sjali. Mynsturteikningin er þess vegna fyrst lesin frá hægri til vinstri fram að miðju á sjali, síðan er heklað miðjan á sjalinu, síðan er mynsturteikningin lesin frá vinstri til hægri út umferðina. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðli í byrjun á umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Fyrsta tvíbrugðna stuðli í byrjun á umferð er skipt út fyrir 4 loftlykkjur. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Sjá MYNSTUR. SJAL: Notið heklunál 3,5 og Delight. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR og LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. Heklið A.1, þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 11 lykkjur hvoru megin við miðjuboga (= alls 22 lykkjur + miðjubogi). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið A.2 og A.3 frá röngu þannig: Heklið A.2a yfir fyrsta stuðul, heklið A.2b yfir næstu 14 lykkjur, heklið A.2c, heklið A.3 yfir miðjuboga, heklið A.2c, heklið A.2b yfir næstu 14 lykkjur og endið með A.2a yfir síðasta stuðul. Þegar allt A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 37 stuðlar hvoru megin við miðjuboga (= alls 74 stuðlar + miðjubogi). Heklið A.4 og A.5 frá röngu þannig: Heklið A.4a yfir fyrsta stuðul, heklið A.4b yfir næstu 36 lykkjur (= 3 einingar með 12 stuðlum), heklið A.4c, heklið A.5 yfir miðjuboga, heklið A.4c, heklið A.4b yfir næstu 36 stuðla (= 3 einingar með 12 stuðlum) og endið með A.4a yfir síðasta stuðul. Þegar allt A.4 og A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 71 stuðlar hvoru megin við miðjuboga (= alls 142 stuðlar + miðjubogi). Heklið A.6 og A.7 frá röngu þannig: Heklið A.6a yfir fyrsta stuðul, heklið A.6b yfir næstu 70 stuðla (= 5 einingar með 14 stuðlum), heklið A.6c, heklið A.7 yfir miðjuboga, heklið A.6c, heklið A.6b yfir næstu 70 stuðla (= 5 einingar með 14 stuðlum) og endið með A.6a yfir síðasta stuðul. Þegar allt A.6 og A.7 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 28 loftlykkjubogar hvoru megin við miðjuboga (= alls 56 loftlykkjubogar + miðjubogi). Heklið A.8 og A.9 frá réttu þannig: Heklið A.8a yfir fyrsta tvíbrugðna stuðul, heklið A.8b yfir næstu 28 loftlykkjuboga (= 7 einingar með 4 loftlykkjubogum), heklið A.8c, heklið A.9 yfir miðjuboga, heklið A.8c, heklið A.8b yfir næstu 28 loftlykkjuboga (= 7 einingar með 4 stuðlum) og endið með A.8a yfir síðasta tvíbrugðna stuðul. Þegar allt A.8 og A.9 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 37 loftlykkjubogar hvoru megin við miðjuboga (= alls 74 loftlykkjubogar + miðjubogi). Heklið A.10 og A.11 frá röngu þannig: Heklið A.10a yfir fyrsta stuðul, heklið A.10b yfir næstu 36 loftlykkjuboga (= 9 einingar með 4 loftlykkjubogum), heklið A.10c yfir næsta loftlykkjuboga, heklið A.11 yfir miðjuboga, heklið A.10c yfir næsta loftlykkjuboga, heklið A.10b yfir næstu 36 loftlykkjuboga (= 9 einingar með 4 loftlykkjubogum) og endið með A.10a yfir síðasta stuðul. Þegar allt A.10 og A.11 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 155 stuðlar hvoru megin við miðjuboga (= alls 310 stuðlar + miðjubogi). Heklið A.12 og A.13 frá röngu: Heklið A.12a yfir fyrsta stuðul, heklið A.12b yfir næstu 154 stuðla (= 11 einingar með 14 stuðlum), heklið A.12c, heklið A.13 yfir miðjuboga, heklið A.12c, heklið A.12b yfir næstu 154 stuðla (= 11 einingar með 14 stuðlum) og endið með A.12a yfir síðasta stuðul. Þegar allt A.12 og A.13 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 198 stuðlar hvoru megin við miðjuboga (= alls 396 stuðlar + miðjubogi). Heklið A.14 og A.15 frá röngu: Heklið A.14a yfir fyrstu 8 stuðla, heklið A.14b yfir næstu 182 stuðla (= 13 einingar með 14 stuðlum), heklið A.14c yfir næstu 8 stuðla, heklið A.15 yfir miðjuboga, heklið A.14c yfir næstu 8 stuðla, heklið A.14b yfir næstu 182 stuðla (= 13 einingar með 14 stuðlum) og endið með A.1a yfir síðustu 8 stuðla. Þegar allt A.14 og A.15 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 219 stuðlar hvoru megin við miðjuboga (= alls 438 stuðlar + miðjubogi). Klippið frá og festið enda. Sjalið mælist ca 80 cm mælt meðfram miðjuboga. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #polishedmarblewrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.