Egle skrifaði:
I would like to knit this pattern with yarn 100g - 140 m (knitting tension 16rows x 12sts). Is there a way to calculate how many stitches I should cast on? Should I use two strands of this yarn? What size of needles should I use? Or it is not possible to knit this with yarn other than your suggested?
29.01.2023 - 09:42DROPS Design svaraði:
Dear Egle, you can use this yarn if you get a gauge similar to the pattern; otherwise you need to calculate the amount of stitches necessary. You can read the following lesson for more information: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=19. Happy knitting!
29.01.2023 - 20:32
Mandy skrifaði:
Have thought about it tuning this into a app I love your website though if you could get into a app
16.11.2022 - 05:32
Terry skrifaði:
I would love to crochet this. Is there a pattern in crochet? Please advise. Thanks much
21.09.2022 - 01:47DROPS Design svaraði:
Hi Terry, All the crochet patterns we have are found by clicking 'crochet' and 'neck warmer/hat'. Hope you find something you like!
21.09.2022 - 08:11
Monique skrifaði:
Merci pour votre réponse concernant la laine drop polaris, les détaillants au Québec n’ont pas la polaris de couleur blanche je vais fouiller plus, quelqu’un m’a répondu sur une page Facebook,de tricoteuses ,que Madolaine à Québec aurait possiblement cette laine. Je poursuis ma recherche.
22.02.2022 - 18:55
Ymonique skrifaði:
S.v.p,me répondre en français, je suis au Québec, donc j’utilise les instructions de France mais je dois changer pour commander la laine. Voilà ma question: Alors pour commander juste pour le bonnet est ce bien 300g Merci de votre réponse
22.02.2022 - 05:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Ymonique, tout à fait, pour le bonnet, il vous faut 300 g DROPS Polaris, autremnent dit, 3 pelotes. Retrouvez ici la liste des magasins expédiant au Canada; contactez Nordic Yarn pour la liste des magasins DROPS au Canada. Bon tricot!
22.02.2022 - 09:37
Rie Cohen skrifaði:
The symbols at the patterns are not always easy to understand. Is there a list of symbols and explanations? If yes where is it? If not I would appreciate it a lot if you could make one. Best regards Rie Cohen
23.02.2020 - 18:46DROPS Design svaraði:
Hi Rie, The symbol explanations are right above the diagrams. Happy knitting!
24.02.2020 - 07:14
France Gaudreau skrifaði:
Donne une impression de chaleur et de confort. Encore plus en blanc.
21.02.2020 - 15:21
France Gaudreau skrifaði:
Patron pour adulte svp
21.02.2020 - 15:19
Polar Snow#polarsnowset |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð húfa og hálsskjól í perluprjóni úr DROPS Polaris.
DROPS 204-9 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 40-42 lykkjur á hringprjón 12 með Polaris. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) fram og til baka í 9 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið nú A.1 fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist alls 26-28 cm – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu A.1 á hæðina, prjónið mynstur þannig: Prjónið A.2 alls 4 sinnum á breidd, A.1 0-1 sinni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 16-18 lykkjur í umferð. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 8-9 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Saumið húfuna saman í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Húfan mælist ca 32-34 cm. Brjótið uppá kantinn neðst ca 7 cm. DÚSKUR: Gerið einn stóran og einn lítinn dúsk ca 14 cm að þvermáli með Polaris og festið efst uppi á húfunni. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 22-24 lykkjur á hringprjón 15 með Polaris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur A.1 fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-15 cm – stillið af að endað sé eftir umferð frá röngu, meðfram stykki á hlið. Klippið frá. Prjónið annað stykki alveg eins, en nú er þráðurinn ekki klipptur frá. Setjið bæði stykkin á sama hringprjón þannig að þau snúi með réttuna út í sömu hlið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjaðu síðan að prjóna mynstur eins og áður yfir stykkið sem þú klipptir ekki þráðinn frá, prjónaðu síðan áfram mynstur yfir hitt stykkið (= 44-48 lykkjur). Snúið og prjónið mynstur fram og til baka svona þar til stykkið mælist ca 12-14 cm – stillið af að endað sé eftir umferð frá réttu. Fellið af frá röngu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 26-30 cm á hæð. Saumið hálsskjólið saman í ystu lykkjubogana frá affellingarkantinum og 13-15 cm niður (= ca 13-15 cm op neðst á stykkinu). Klippið frá og festið enda. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #polarsnowset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.