Susan Lewis-Beeching skrifaði:
Could you please advise the best/ correct way to block a jumper made with Drops Snow? Should I wash in cold water and then reshape whilst damp? Or better to lightly mist or use steam iron?
24.01.2023 - 17:47DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lewis-Beeching, some knitters are used to block some others don't - but in all cases, remember to follow thoroughly the washing instructions from label/shadecard + extra infos there. Your DROPS Store might have even more advices & tips for you they will share per mail or telephone. Enjoy!
25.01.2023 - 11:33
Emmi skrifaði:
Hej! När man stickar fram och tillbaka på armen, börjar man i mitten utav de två understa pinnarna, med samma tråd som man använt tidigare. När jag sen maskar av så maskar jag av alla fyra tillsammans, det blev ju då ett stort hål i maskorna mellan fram och baksidan. Har jag gjort fel, eller ska det vara så?
16.01.2022 - 23:37DROPS Design svaraði:
Hei Emmi. Litt usikker på spørsmålet ditt, men du starter å strikke ermet rundt på settpinner der det økes på ca hver 4.-3½.-3½.-3.-2½.-2½.cm totalt 9-10-10-11-12-12 ganger = 42-44-46-48-50-52 masker. Når økningene er ferdig og ermet er strikket til det måler 47-46-45-43-41-39 cm skal det nå strikkes frem og tilbake (nå kan det strikkes med 2 pinner). Så snu arbeidet og strikk (fremdeles etter A.2) pinnen ut og snu. Strikk til ermet måler 51-50-50-48-49-47 cm, fell nå av over alle masker. mvh DROPS Design
18.01.2022 - 11:24
Berit skrifaði:
Hejsa. Jeg er igang med ærmet og læser, at når arbejdet måler 45 cm strikkes der Frem og Tilbage - godt 5cm? Betyder det at jeg kan erstatte de 4 strømpepinde med 2 pinde? Jeg vil bare være sikker på jeg gør det rigtige og ikke misforstår opskriften. På forhånd tak..
16.11.2020 - 15:38DROPS Design svaraði:
Hej Berit. Ja när du stickar fram och tillbaka på ärmen så kan du byta till 2 pinde om du vill det. Mvh DROPS Design
17.11.2020 - 07:52
Berit skrifaði:
Hejsa. Jeg er igang med ærmet og læser, at når arbejdet måler 45 cm strikkes der Frem og Tilbage - godt 5cm? Betyder det at jeg kan erstatte de 4 strømpepinde med 2 pinde? Jeg vil bare være sikker på jeg gør det rigtige og ikke misforstår opskriften. På forhånd tak..
12.11.2020 - 22:57
Ella skrifaði:
Halløj. Kan denne strikkes uden halskanten, der er beskrevet til sidst?
05.11.2020 - 14:24DROPS Design svaraði:
Hei Ella. Ja, det kan den. Men om du stopper å strikke før halskanten, vil den bli ganske vid i halsen. Om du ikke ønsker det, kan du felle masker før en evnt halskant i vrangbord eller riller. God Gornøyelse!
09.11.2020 - 11:10
Cynthia skrifaði:
Hallo, C+C ist auch als Möglichkeit angegeben. Wäre auch A+A+A+A möglich bzw. 4 Fäden Alpaca?
21.08.2020 - 10:29DROPS Design svaraði:
Liebe Cynthia, ja genau, hier lesen Sie mehr über Garnalternative. Viel Spaß beim stricken!
21.08.2020 - 13:09
Lea skrifaði:
Bonjour, ne faut il pas changer d'aiguille pour les manches ? (8>9 après les côtes)? Merci
18.02.2020 - 08:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Lea, fort probablement, nos stylistes vont vérifier les manches, mais après les côtes, vous pouvez continuer avec les aiguilles doubles pointes 9. Bon tricot!
18.02.2020 - 10:26
Winter Sunset#wintersunsetsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað með röndum og marglitu mynstri. Stærð S – XXXL.
DROPS 206-42 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 5,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: RÖND 1: Haldið áfram með litnum sjávarblár þar til stykkið mælist alls 7-7-8-8-9-9 cm frá uppfitjunarkanti (meðtalið stroff). RÖND 2: Prjónið 2 umferðir með kopar. RÖND 3: Prjónið 4 umferðir með sjávarblár. RÖND 4: Prjónið 1 umferð með kopar. RÖND 5: Prjónið mynstur A.1. RÖND 6: Prjónið 3 umferðir með bleikur. RÖND 7: Prjónið 6 umferðir með malva. RÖND 8: Prjónið 2 umferðir með sjávarblár. RÖND 9: Prjónið 4 umferðir með malva. RÖND 10: Prjónið 1 umferð með sjávarblár. RÖND 11: Prjónið 5 umferðir með natur. RÖND 12: Prjónið 3 umferðir með kopar. RÖND 13: Prjónið 1 umferð með bleikur. RÖND 14: Prjónið 4 umferðir með sjávarblár. RÖND 15: Prjónið mynstur A.1. RENDUR ERMI: RÖND 1: Haldið áfram með litnum sjávarblár þar til stykkið mælist 6 cm frá uppfitjunarkanti (meðtalið stroff neðst niðri). RÖND 2: Prjónið 2 umferðir með kopar. RÖND 3: Prjónið 2 umferðir með sjávarblár. RÖND 4: Prjónið 4 umferðir með malva. RÖND 5: Prjónið 1 umferð með sjávarblár. RÖND 6: Prjónið 5 umferðir með natur. RÖND 7: Prjónið 3 umferðir með kopar. RÖND 8: Prjónið 1 umferð með bleikur. RÖND 9: Prjónið 4 umferðir með sjávarblár. RÖND 10: Prjónið mynstur A.2. Prjónið eins margar lykkjur í mynstri og pláss er fyrir í umferð (þ.e.a.s. það er ekki víst að mynstrið gangi jafnt upp undir ermi). RÖND 11: Prjónið mynstur A.2 til loka. Prjónið eins margar lykkjur í mynstri og pláss er fyrir í umferð (þ.e.a.s. það er ekki víst að mynstrið gangi jafnt upp undir ermi). ATH: Punktarnir eiga að passa yfir hvern annan á hæðina í annarð hvert skipti og þar sem nýjar lykkjur eru auknar út undir ermi, prjónið nýjar lykkjur inn í mynstur. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 3 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 136-144-156-168-184-196 lykkjur á hringprjón 8 með litnum sjávarblár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-24-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 112-120-128-140-152-164 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið nú sléttprjón og RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 3-3-5-5-7-7 lykkjur fyrir handveg, prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 49-53-55-61-61-67 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= bakstykki), fellið af næstu 7-7-9-9-15-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 49-53-55-61-61-67 lykkjur (= framstykki), fellið af síðustu 4-4-4-4-8-8 lykkjur í umferð. Klippið frá. Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 49-53-55-61-61-67 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með A.2 eins og áður og prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Ef það kemur punktur innan við kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, prjónið þessa lykkju í natur. Þegar stykkið mælist 53-55-56-58-59-61 cm, setjið miðju 9-9-9-11-11-11 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 16-18-19-21-21-24 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 61-63-65-67-69-71 cm (handvegur mælist ca 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af) – stillið af að endað sé eftir umferð með natur í mynsturteikningu. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Setjið til baka 49-53-55-61-61-67 lykkjur af þræði á hringprjón 9. Haldið áfram fram og til baka með A.2 eins og áður og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Ef það kemur punktur innan við kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, prjónið þessa lykkju í litnum natur. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm, fellið af miðju 15-15-15-17-17-17 lykkjurnar í umferð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 16-18-19-21-21-24 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 61-63-65-67-69-71 cm (handvegur mælist ca 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af) – stillið af að endað sé eftir umferð með natur í mynsturteikningu. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 28-28-32-32-32-36 lykkjur á sokkaprjón 8 með litnum sjávarblár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-4-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir = 24-24-26-26-26-28 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 9 og setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 11-10-9-9-9-7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 9-10-10-11-12-12 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 47-46-45-43-41-39 cm. Prjónið síðan ermi fram og til baka frá miðju undir ermi þannig: Prjónið mynstur A.2 eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Ef það kemur punktur innan við kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, prjónið þessa lykkju í litnum natur. Þegar ermin mælist 51-50-50-48-49-47 cm fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkant. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 52-52-56-56-60-60 lykkjur í kringum kant í hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 8 með litnum natur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Skiptið yfir í litinn sjávarblár. Prjónið 1 umferð með litnum sjávarblár. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintersunsetsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.