Debs White skrifaði:
I can’t get the knitting gauge right on 6 mm needles I get 21 stitches and 16 rows for 10cm square on 10mm needles I get 12 stitches and 17 rows on 10 Cm square? What am I doing wrong?
08.05.2020 - 18:30DROPS Design svaraði:
Dear Mrs White, are you working English rib (= also called brioche) - see video here - try to make sure you get the right tension, this is the best way to get the correct measurements (read more here). Your Store might have some tricks and tips for you, do not hesitate to contact them even per mail or telephone. Happy knitting!
11.05.2020 - 08:19
Deb skrifaði:
I can’t get the knitting gauge right on 6 mm needles I get 21 stitches and 16 rows for 10cm square on 10mm needles I get 12 stitches and 17 rows on 10 Cm square? What am I doing wrong?
08.05.2020 - 18:27
Yoy skrifaði:
Hola , ¿quisiera saber para qué se colocan marca puntos a los extremos?
26.03.2020 - 17:30DROPS Design svaraði:
Hola Yoy. Los marcapuntos en los lados se utilizan cuando estemos finalizando la labor. Marcan hasta donde tienes que coser los lados para dejar las aberturas laterales.
31.03.2020 - 23:43
Sey skrifaði:
Overall, i think the pattern will be easier to look at if the instructions were separated per row instead of a bulky paragraph. For this particular pattern, I don't know what a ridge exactly means and how (in size large) 63 stitches became 67 stitches all of a sudden after ridge over 7 stitches... there is no tutorial video for it and it's also not found in the dictionary :S please help me understand! P.s. Thanks you so much for thousands of beautiful and free designs :)
25.02.2020 - 17:50DROPS Design svaraði:
Dear Sey, 1 ridge = 2 rows in garter stitch - see at the very beginning of the pattern. In size L you start with 71 sts and after 25 cm you cast off 2 sts at the beg of next 2 rows = 67 sts remain. When piece measures 26 cm you work 2 ridge over the middle 7 sts, this means you have to knit the middle 7 stitches both from RS and from WS for 4 rows; then you will divide piece for neck as explained (dec 1 stitch on mid front) = 33 sts on needle and 33 sts on a thread. Hope this can help. Happy knitting!
26.02.2020 - 09:16
Ann-Sofie skrifaði:
Superfin, anderledes sommerstrik :-)
28.01.2020 - 11:16
Lievens Conny skrifaði:
Heel mooi.
27.01.2020 - 22:36
Ruth skrifaði:
It's beautiful, I would love the pattern
23.01.2020 - 01:28
Irene skrifaði:
Smuk bluse- den vil jeg gerne strikke
11.01.2020 - 14:12
Carole skrifaði:
Modèle préféré de la collection!
08.01.2020 - 18:55
Niina skrifaði:
Kaunis ja elegantti!
06.01.2020 - 22:27
Avriel#avrielsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa í klukkuprjóni með v-hálsmáli úr DROPS Air. Stærð S – XXXL.
DROPS 210-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN: 2 umferðir í klukkuprjóni gera 1 sýnilega lykkju á hæðina. UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið* , endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju (lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju (lykkjum), prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (uppslátturinn er ekki talinn sem ein lykkja og er prjónaður snúinn saman við 2 lykkjurnar = 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur brugðið saman (uppslátturinn er ekki talinn sem ein lykkja og er prjónaður saman með 2 lykkjum = 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 63-67-71-77-83-91 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram í klukkuprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin merkja klauf í hliðum. Þegar stykkið mælist 13 cm, prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 59-63-67-73-79-87 lykkjur. Haldið áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-26-26-28-28-30 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 7 lykkjur í umferð (uppslátturinn er ekki talinn sem lykkja og er prjónaður saman við hverja lausa lykkju í fyrstu umferð, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðir garðaprjón er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 25-27-29-32-35-39 lykkjur klukkuprjón, prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið 4. lykkju sem var prjónuð yfir 5. lykkju sem var prjónuð (= 1 lykkja færri mitt að framan), prjónið 2 lykkjur slétt, 25-27-29-32-35-39 lykkjur klukkuprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Setjið 29-31-33-36-39-43 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á 1 þráð. Haldið áfram fram og til baka yfir þær 29-31-33-36-39-43 lykkjur sem eftir eru í klukkuprjóni, 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-3-3-4-4 sinnum og síðan í 8. hverri umferð alls 3 sinnum í öllum stærðum = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lausum sléttum lykkjum þegar fellt er af). Prjónið síðan yfir lykkjur í hægri hlið á stykki á sama hátt og vinstri hlið, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: Setjið lykkju sem felld var af mitt að framan á vinstri prjón og prjónið þessa lykkju slétt saman með næstu lykkju á vinstri prjóni (þetta er gert til að koma í veg fyrir að það myndist “hak” neðst í v-hálsmáli), prjónið 2 lykkjur slétt, 25-27-29-32-35-39 lykkjur klukkuprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir 29-31-33-36-39-43 lykkjur með klukkuprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni mitt að framan. Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli mitt að framan. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-3-3-4-4 sinnum og síðan í 8. hverri umferð alls 3 sinnum í öllum stærðum = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lausum sléttum lykkjum þegar fellt er af). BAKSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 63-67-71-77-83-91 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið klukkuprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram í klukkuprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin merkja klauf í hliðum. Þegar stykkið mælist 13 cm, prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 59-63-67-73-79-87 lykkjur. Haldið áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur í umferð (uppslátturinn er ekki talinn sem lykkja og er prjónaður saman við hverja lausa lykkju í fyrstu umferð, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Í fyrstu umferð frá réttu eftir 4 umferðir garðaprjón, eru felldar af miðju 9-9-11-11-13-13 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 25-27-28-31-33-37 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær hvíla á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir þær 25-27-28-31-33-37 lykkjur í klukkuprjóni, 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við hálsmál að aftan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lausum sléttum lykkjum þegar fellt er af). Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið aðeins laust upp 23-25-25-27-27-29 lykkjur á prjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu í garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið klukkuprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í klukkuprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hið. Þegar stykkið mælist 8 cm aukið út 1 lykkju í hvorri hlið -sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4½-4½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 9-9-11-11-12-12 sinnum = 41-43-47-49-51-53 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-47-46-45-43-41 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja hvar eigi að sauma ermi við handveg. Prjónið áfram þar til ermin mælist 1 cm frá prjónamerki (öll ermin mælist ca 49-48-47-46-44-42 cm – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lausum sléttum lykkjum þegar fellt er af). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju og saumið botninn á handveg (prjónamerki á ermi á að passa með hliðarsaum á fram- og bakstykki). Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir ca 12 cm neðst fyrir klauf. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #avrielsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.