Monika Wurster skrifaði:
Hallo zusammen, Eure Anleitungen sind ganz super genau wie euer Service. Darum habe ich eine Bitte : gibt es für den Ärmel zu diesem Pullover einen Schnitt? Vorder und Rückenteil sind klar aber für den Ärmel bräuchte ich ein Schnittmuster . Vielen Dank und liebe Grüße Monika
25.10.2020 - 18:16DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Wurster, dafür haben wir kein Schnittmuster, aber schauen Sie die Maßskizze: die Ärmel werden zuerst wie "normal" gestrickt, aber dann wird es für den Schulter über die mittleren 32 Maschen weitergestrickt, dann wird es für Halsausschnitt abgkettet. Die letzte Reihe der Ärmel sind dann zusammengenäht (mitte Rückenteil) und Vorder- /Rückenteil werden genäht wie in der Maßskizze gezeigt. Hoffentlich kann es Ihnen weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
26.10.2020 - 08:54
Kate skrifaði:
Hello, I’m sorry but how do I distribute 56 increases evenly? I’m making a small size, how many stitches should I do before every increase? It would help a lot to see something like "increase every x sts" I think
09.09.2020 - 10:18DROPS Design svaraði:
Hi Kate, You divide the total number of stitches by the number of increases to be made and that gives you the number of stitches between each increase. So 192/56= 3.4, which means you increase alternately after each 3rd and each 4th stitch. Happy knitting!
09.09.2020 - 13:00
Hilary skrifaði:
I have reached the armhole decreases but I’m unsure how to work back and front separately when I am working in the round. Please help
16.02.2020 - 16:58DROPS Design svaraði:
Hi Hilary, After you have cast off for the armholes, the front and back pieces are separated by the gaps left by the cast-off stitches . You then work back and forth to finish first the front piece and then the back piece. Happy knitting!
17.02.2020 - 07:16
Lodriguez skrifaði:
J'aimerai réaliser ce pull,seulement je ne sais pas tricoter avec des aiguilles circulaire.Avez vous les explications pour des aiguilles normal.Merçi beaucoup
11.01.2020 - 21:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lodriguez, vous trouverez ici quelques informations sur l'adaptation d'un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
13.01.2020 - 09:20
Inma skrifaði:
Hello! I would like to ask if it's possible to make this garment with just lima and not to use Drops kids silk, without modifications in the pattern. Thank you!
07.12.2019 - 23:02DROPS Design svaraði:
Dear Inma, if you like to work with only 1 strand of yarn, what about working with 1 strand Nepal? If you want to work with Lima, you have then to add 1 strand Kid-Silk and work with the both yarns together. Happy knitting!
09.12.2019 - 09:10
Solveig Magnusdottir skrifaði:
Góðan daginn Ég er að fara að setja ermarnar í peysu 58-6 og er að spá hvort ég eigi að byrja að sauma ermarnar við búkinn undir, þe í armkrika, eða uppi á öxl? Kveðja Solveig
29.07.2019 - 15:08DROPS Design svaraði:
Saumið ermar í. Saumið niður axlarlykkjur frá búk að hvorri hlið á ermi í ystu lykkju (garðaprjón). Saumið saman lykkjur af bandi efst á báðum ermum mitt aftan í hnakka á búk með lykkjuspori.
30.07.2019 - 12:27
Solveig Magnusdottir skrifaði:
Ég er að prjóna ermarnar á kaðlapeysu 58-6 og er búin að fella af 4 undir ermi. Þá kemur “fellið síðan af á hvorri hlið fyrir öxl” Er það ekki áfram undir erminni? Ég á að fella af 3L 8 sinnum og síðan 13L 1sinni, hvoru megin á öxlinni er þetta 1 sinni þá?
11.07.2019 - 12:44DROPS Design svaraði:
Blessuð. Þú ert með 106 (110-110) lykkjur á prjóni, síðan eru felldar af 4 lykkjur mitt undir ermi (= 102 (106-106) lykkjur á prjóni) og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Síðan eru felldar af í hvorri hlið 4 (3-3) lykkjur x 6 (8-10) sinnum = 48 (48-60) lykkjur felldar af og 54 (58-46) lykkjur eftir á prjóni. Síðan eru felldar af 11 ( 13-7) lykkjur 1 sinni í hvori hlið = 22 (26-14) lykkjur felldar af og 32 (32-32) lykkjur eftir á prjóni. Gangi þér vel.
12.07.2019 - 11:30
Solveig Magnúsdóttir skrifaði:
Varðandi það að byrja við pílu M/L á munstri M2 í uppskrift DROPS 58-6 þá telur munstrið bara 22 lykkjur í staðin fyrir 28 og þá stemmir ekki lykkju fjöldinn á peysunni. Aftur á móti ef ég byrja frá byrjun á M 2 þá stemmir lykkju fjöldinn eða 264
12.04.2019 - 11:49DROPS Design svaraði:
Blessuð ég er búin að fá svar frá DROPS um að á fram- og bakstykki er öll mynsturteikningin prjónuð, en á ermi þá stendur að prjóna eigi 21-22-22 lykkjur M.2 (byrjið við ör í réttri stærð). Þ.e.a.s. bara þegar stendur eitthvað um að byrja við örina þá á að fylgja því. Vona að þetta hjálpi :)
12.04.2019 - 13:29
Solveig Magnúsdóttir skrifaði:
Ég er að prjóna peysu DROPS 58-6 í stærð M/L og er að spá í munstur M.2. Á ég að byrja þar sem pílan M+L bendir eða á ég að byrja frá byrjun á munstri?
11.04.2019 - 22:40DROPS Design svaraði:
Blessuð Sólveig. Þú byrjar á mynstri við ör og heldur áfram með mynstrið út, en í hvert skipti sem þú byrjar aftur á M.2 í næstu umferð þá byrjar þú aftur við örina.
12.04.2019 - 00:24
Natalie Urlings skrifaði:
Ich würde dieses Modell gerne mit einem dickeren Garn stricken. Haben sie eine Alternative?
13.01.2019 - 19:43DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ulrings, hier lesen Sie mehr über Garnalternativen, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden andere Garne weiterempfehlen. Viel Spaß beim stricken!
14.01.2019 - 12:07
Frosted Vines |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og áferðamynstri úr DROPS Karisma og DROPS Cotton Viscose eða DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stærð S-XL.
DROPS 58-6 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. STUTT PEYSA: Ef óskað er eftir styttri peysu er prjónað þannig: Málin við handveg, hálsmál og úrtöku eru stytt um 14 (15-16) cm. Loka mál = 60 (62-64) cm. Efnismagn er minnkað um ca 50 gr af Alaska og ca 50 gr af Cotton Viscose. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð með 2 þráðum = 1 þræði Karisma + 1 þræði Cotton Viscose eða 1 þræði Lima og 1 þræði Kid-Silk í hring á hringprjón upp að handveg, frá handveg og uppúr er peysan prjónuð fram og til baka. Ef óskað er eftir styttri peysu, sjá – STUTT PEYSA- að ofan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192 (208-224) l á hringprjón nr 4 með 1 þræði DROP Karisma + 1 þræði DROPS Cotton Viscose (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN (prjónað í hring) - sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 10 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 56 (56-56) l jafnt yfir í síðustu umf = 248 (264-280) l. Skiptið yfir á hringprjón nr 5 og prjónið mynstur uppúr þannig: * 16 (20-24) l af M.3, M.2, M.4, M.2, 16 (20-24) l af M.3 *, endurtakið frá *-* yfir bakstykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 49 (51-54) cm prjónið næstu umf þannig: Fellið af 2 l fyrir handvegi, prjónið 120 (128-136) lykkjur á framstykki eins og áður, fellið af 4 l fyrir handvegi, prjónið 120 (128-136) lykkjur á bakstykki eins og áður, fellið af 2 l fyrir handvegi. Prjónið nú fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 120 (128-136) l. Fellið nú af fyrir handveg í annarri hveri umf: 3 l 0 (1-1) sinni, 2 l 1 (1-3) sinni, 1 l 3 sinnum = 110 (112-112) l. Í umf áður en stykkið mælist 65 (68-71) cm fækkið um 15 l jafnt yfir miðju 38 (40-40) l. Þegar stykkið mælist 65 (68-71) cm fellið af miðju 23 (25-25) l fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við hálsmáli í annarri hverri umf: 2 l 1 sinni, 1 l 1 sinni = 33 (33-33) l á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 67 (70-73) cm fækkið um 6 l jafnt yfir þær l sem eftir eru í hverju M.2 = 27 (27-27) l á öxl. Prjónið 2 umf garðaprjón (fyrir saum), fellið af. BAKSTYKKI: = 120 (128-136) l. Fellið nú af fyrir handvegi á sama hátt og á framstykki = 110 (112-112) l. Þegar stykkið mælist 67 (70-73) cm fækkið nú um 6 l jafnt yfir miðju 12 l í hverju M.2 og 15 l jafnt yfir 36 l M.4 = 83 (85-85) l. Prjónið 2 umf garðaprjón (fyrir saum), fellið af. HÆGRI ERMI: Fitjið upp 40 (44-44) l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði DROPS Karisma + 1 þræði DROP Cotton Visose (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk og prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 10 cm. Brjóta á uppá stroffið þess vegna mælist það eins og 5 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 26 (24-24) l jafnt yfir í síðustu umf = 66 (68-68) l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið mynstur þannig: 21 (22-22) l af M.2 (byrjið við ör í mynstri), M.1, M.6, 21 (22-22) l af M.2. JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út um 2 l mitt undir ermi 20 (21-21) sinnum í stærð S: Í 4. hverri umf, M+L: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf = 106 (110-110) l (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í M.2, síðan inn í M.3 útauknar lykkjur eru fyrst prjónaðar inn í M.2, síðan inn í M.3). Þegar stykkið mælist 46 (45-44) cm (+ 5 cm stroff) fellið af 4 l mitt undir ermi og prjónað er til loka fram og til baka. Fellið síðan af í hvorri hlið fyrir öxl í annarri hverri umf: 4 (3-3) l 6 (8-10) sinnum og síðan 11 (13-7) l 1 sinni í hvorri hlið = 32 (32-32) l eftir á prjóni, stykkið mælist ca 53 (54-55) cm – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Aukið út um 1 l hvoru megin fyrir saum = 34 (34-34) l (kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni). Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju, 1 l sléttprjón, 2 l br, M.1, M.6, 2 l br, 2 l sléttprjón, 1 kantlykkja. Í umf áður en stykkið mælist 16 (16-16) cm er fækkað um 6 l jafnt yfir síðustu 20 l í hægri hlið (séð frá réttu). Í næstu umf eru felldar af síðustu 14 l í hægri hlið = 14 l á prjóni. Fellið síðan af 2 l jafnt yfir næstu 4 l. Í næstu umf eru felldar af að auki 2 l í hægri hlið = 10 l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 24,5 (25-25) cm. Prjónið saman síðustu l í M.1 og fyrstu í M.6 = 9 l á prjóni. Setjið þessar 9 l á þráð. Stykkið mælist alls ca 77,5 (79-80) cm (+ 5 cm stroff). VINSTRI ERMI: Prjónið á sama hátt og hægri ermi, nema fellið af í gangstæðri hlið. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Saumið niður axlarlykkjur frá fram- og baskstykki að hvorri hlið á ermi í ystu lykkju (garðaprjón). Saumið saman lykkjur af þræði efst á báðum ermum mitt aftan í hnakka á fram- og bakstykki með lykkjuspori. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 88-96 l (deilanlegt með 4) í kringum hálsmál á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði DROP Karisma + 1 þræði DROPS Cotton Viscose eða 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk og prjónið 4 umf garðaprjón, 8 cm stroff 2 l sl, 2 l br, 4 umf garðaprjón, fellið af. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 58-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.