Amona Elder skrifaði:
Hi. I'm currently looking for just one set of drops 3mm dpns in 40cm length but you seem to only have that size in sets. I have a lovely drops set but somehow, the 3mm set is gone! Help!!! Thanks
16.05.2024 - 10:00
Inger skrifaði:
Hei. Jeg strikker luen nå, men med 152 masker for hun som skal bruke luen har et lite hode. La først opp 164 masker og fant ut at det ble litt stort. Jeg strikker ikke det store oppbrettet, kommer til å forminske det. Glad for at jeg fant en oppskrift for Drops Alpaca. Strikker halsen senere med noen færre masker og litt høyere, kanskje med brett. Ser ut til å bli fint!
12.12.2020 - 23:47
Ellie skrifaði:
I don't understand how the marker thread works or what it does in this particular pattern. Knit 1, put marker thread, then knit the rest together - this does not make the right number of stitches. 56 - 58 -1 = 55 - 57. Divided by two this does not give 28 - 29. What should the marker thread even do here? Thank you so much!
04.05.2020 - 19:39DROPS Design svaraði:
Dear Ellie, you just have to move the marker after the first stitch of the round (which is a knitted stitch), so that next round will start with P1, on this round you will work K2 together all the round, so that you will knit the 2nd stitch on left needle (= K1) together with the 1st stitch on needle (= P1) to make the decreases nicer - at the end of the round, you will work the last P stitch together with the K stitch (= the previous first stitch of the rounds). There were 56-58 sts, working K2 tog all the round will divide the number by 2 =26-29 sts remain. Happy knitting!
05.05.2020 - 10:35
Blue Winter#bluewinterset |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa, hálsskjól og vettlingar úr DROPS Alpaca í stroffprjóni.
DROPS 204-36 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um vettlinga): Aukið 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 160-168 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Alpaca. Prjónið síðan í hring þannig: Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-27 cm byrjar úrtaka. Setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð = 1 lykkja slétt. FYRSTA ÚRTAKA: * Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt eru prjónaðar slétt saman), 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 40 sinnum í umferð (= 40-42 lykkjur færri) = 120-126 lykkjur. Prjónið síðan með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur í 3 cm. ÖNNUR ÚRTAKA: Prjónið 1 lykkju slétt, færið prjónamerkið hingað (þ.e.a.s. prjónamerkið er fært til um 1 lykkju til vinstri og nú er þetta byrjun á umferð). * Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjurnar slétt saman (1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt eru prjónaðar slétt saman) *, prjónið frá *-* alls 40-42 sinnum í umferð (= 40-42 lykkjur færri) = 80-84 lykkjur. Öllum brugðnum lykkjum hefur nú verið fækkað til loka. Prjónið sléttprjón í 2 cm. ÞRIÐJA ÚRTAKA: Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman (= 40-42 lykkjur færri) = 40-42 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 2 cm. FJÓRÐA ÚRTAKA: Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman (= 20-21 lykkjur færri) = 20-21 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel – Húfan mælist ca 33-35 cm (ca 25-27 cm með 8 cm uppábroti). ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka í 2 stykkjum, síðan eru þessi tvö stykki sett saman og prjónað er í hring á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 85-93 lykkjur á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, setjið lykkjur á þráð. Geymið stykkið og prjónið annað stykki til viðbótar á sama hátt, en haldið eftir lykkjunum á prjóninum. Prjónið nú bæði stykkin saman þannig: Prjónið eins og áður yfir lykkjurnar á prjóninum, fitjið upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið frá réttu og eins og áður yfir lykkjur frá fyrra stykkinu sem var prjónað, fitjið upp 3 lykkjur á prjóninn = 176-192 lykkjur. Haldið síðan áfram hringinn með stroffi (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 9-10 cm frá þar sem bæði stykkin voru sett saman (= alls 16-18 cm) fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 56-58 lykkjur á sokkaprjón 3 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 8 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið nú áfram hringinn í stroffprjóni og aukið út 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð (= 1 lykkja slétt) fyrir op fyrir þumal – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 7-8 sinnum (nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjóni) = 15-17 lykkjur fyrir op fyrir þumal. Setjið 15-17 lykkjur á þráð og fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við lykkjurnar á þræði = 56-58 lykkjur. Prjónið síðan í stroffprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 26-27 cm er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 1 lykkju slétt saman = 28-29 lykkjur. Öllum brugðnum lykkjum hefur nú verið fækkað til loka. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið síðan allar lykkjur slétt saman 2 og 2 þar til 14 lykkjur eru eftir í báðum stærðum. Prjónið 1 umferð slétt og prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 7 lykkjur í báðum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 15-17 þumallykkjum á sokkaprjóna 3. Prjónið upp 3 lykkjur í kanti aftan við þumal = 18-20 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar þumallinn mælist 5½-6 cm fækkið lykkjum þannig: Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til eftir eru 5 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel! HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluewinterset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.