DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5830.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 204-34
DROPS Design: Mynstur z-873
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M - M/L
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 cm

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150 g litur 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100 litur 01, natur

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M - M/L
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 cm

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25-25 litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.
19 lykkjur í mynstri A.1 á að mælast 10 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
S/M - M/L
Stykkið mælist ca: Ummál = 75-80 cm. Hæð = 22-24 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100 g litur 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25-25 litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.
17 lykkjur í mynstri A.1 á að mælast 10 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 60 cm eða 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

VETTLINGAR:

STÆRÐ:
S/M - M/L

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25-25 litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5830.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 128 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 6,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 12. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um vettlinga):
Fækkið þannig (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið í hinni hliðinni.
ATH: Prjónið eins margar lykkjur af mynstri A.1 eins og pláss er fyrir á framhlið á vettlingi á milli úrtöku í hvorri hlið. Að innanverðu á vettling er prjónað sléttprjón eins og áður.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 96-104 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þráð Alpaca + 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 88-92 lykkjur. Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-19 cm – stillið af að endað sé eftir 1. eða 3. umferð í mynsturteikningu, byrjar úrtaka. Prjónið sléttar lykkjur fram að fyrstu brugðnu lykkjunni. Setjið eitt prjónamerki hér. Þetta er núna byrjun á umferð. Byrjið umferð með ör í A.2 og prjónið mynsturteikningu hringinn í umferð.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 44-46 lykkjur í umferð. Prjónið nú 2 og 2 lykkjur slétt saman = 22-23 lykkjur.
Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið síðan síðustu lykkjurnar 2 og 2 slétt saman þar til 11-12 lykkjur eru eftir í umferð. Húfan mælist ca 24-26 cm. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið að og festið vel.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 148-156 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 128-136 lykkjur. Prjónið nú mynstur A.1 hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 19-21 cm – stillið af að endað sé eftir 2. eða 4. umferð í mynsturteikningu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 148-156 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 22-24 cm. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 40-44 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 1 þræðir). Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 36-40 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á stykki. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Prjónið mynstur þannig: 2-3 lykkjur, A.1 (= 16 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynsturteikningin endurtekin á hæðina. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkjuna í umferð fyrir þumal (= 2 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknu lykkjurnar í annarri hverri umferð alls 5 sinnum = 46-50 lykkjur. Setjið nú 11 þumallykkjur á þráð. Prjónið sléttprjón og A.1 síðan hringinn JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný lykkja aftan við þumal í næstu umferð = 36-40 lykkjur.
Þegar vettlingurinn mælist ca 22 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 4-5 cm að loka máli), setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Færðu prjónamerkið í byrjun á umferð um 1 lykkju fram, þ.e.a.s. 1 lykkja frá hægri til vinstri. Settu nýtt prjónamerki eftir 18-20 nýjar lykkjur. Nú eru 18-20 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Haldið nú áfram með eins margar lykkjur af mynstri A.1 og er pláss fyrir á framhlið á stykki og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 2-3 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð 4 sinnum = 8-8 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4-4 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 4-5 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5½-6 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 umferðir slétt JAFNFRAMT eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 40-44 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 1 þræðir). Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 36-40 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á stykki. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Prjónið mynstur þannig: 18-21 lykkjur slétt, A.1 (= 16 lykkjur), 2-3 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynsturteikningin endurtekin á hæðina. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkjuna í umferð fyrir þumal (= 2 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknu lykkjurnar í annarri hverri umferð alls 5 sinnum = 46-50 lykkjur. Setjið nú 11 þumallykkjur á þráð. Prjónið sléttprjón og A.1 síðan hringinn JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný lykkja aftan við þumal í næstu umferð = 36-40 lykkjur.
Þegar vettlingurinn mælist ca 22 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 4-5 cm að loka máli), setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Færðu prjónamerkið í byrjun á umferð um 1 lykkju fram, þ.e.a.s. 1 lykkja frá vinstri til hægri. Settu nýtt prjónamerki eftir 18-20 nýjar lykkjur. Nú eru 18-20 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Haldið nú áfram með eins margar lykkjur af mynstri A.1 og er pláss fyrir á framhlið á stykki og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 2-3 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð 4 sinnum = 8-8 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4-4 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 4-5 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5½-6 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 umferðir slétt JAFNFRAMT eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = byrjið í þessari umferð
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = prjónið 2 lykkjur brugðið saman

symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Ana Ramirez wrote:

Jeg vil prøve å lage luen. Det står at man strikker fra vrangbord 88 masker. Men luen skal være 54/56 i størrelse. Bør jeg legge til mer masker?

18.12.2023 - 16:04

DROPS Design answered:

Hej Ana, nej du skal tage ind som der står - du skal have 19 masker i mønster på 10 cm, hvis du har det, vil hue sidde lidt stramt som på billedet. Vil du have den større, så skal du evt strikke efter den større størrelse :)

19.12.2023 - 14:49

country flag BrittMari wrote:

Stickar mössan var snäll förklara intagningarna tack

20.11.2023 - 22:01

DROPS Design answered:

Hej BrittMari Se svar nedan. Mvh DROPS Design

22.11.2023 - 14:09

country flag Britt-Mari wrote:

Hej,! Stickar mössan och ska börja intagningarna. Har jag förstått rätt : Börjar vid pilen med att sticka ihop två aviga sen två räta varvet ut, ska sen följande varv stickas utan intagningar och nästa två räta stickas samman ? Men sen då ? Tacksam för svar

20.11.2023 - 21:58

DROPS Design answered:

Hej. Du stickar varvet med pil i diagram A.2 såhär: "2 maskor aviga tillsammans, 2 räta maskor" - detta upprepas varvet ut. De nästa 5 varv stickas enligt diagrammet (1 avig, 2 räta) och där är det inga minskningar. Nästa varv efter det stickar du "2 räta maskor tillsammans, 1 rätmaska" - detta upprepas varvet ut. De sista 2 varv i diagrammet stickas alla maskor räta utan minskningar. Fortsätt sedan enligt beskrivningen. Mvh DROPS Design

22.11.2023 - 14:09

country flag Gabriella Gazzola wrote:

Vorrei lavorare il cappello e lo scaldacollo Modello n° z-87350. Vorrei acquistare 50 g di filatoDROPS KID-SILK di Garnstudio colore n° 06 foschia blu da lavorare insieme a 150 g di filato Alpaca. Quale colore mi consigliate di abbinare in sostituzione del grigio perla non disponibile? Vorrei che risultasse un insieme dal colore delicato ma non banale, è per una ragazzina. Le quantità vanno bene? Grazie

23.09.2023 - 17:33

DROPS Design answered:

Buonasera Gabriella, lo potrebbe abbinare al 2917 o 2918 di Alpaca: chieda al suo rivenditore DROPS di fiducia di scattarle delle foto dei diversi abbinamenti, così potrà scegliere meglio. Buon lavoro!

25.09.2023 - 23:13

country flag Lucile Lefloch wrote:

Bonjour, Concernant le tour de cou, arrivé à la hauteur souhaitée ne faut-il pas prendre l'aiguille circulaire 3,5 plutôt que 4,5 ? Merci pour votre réponse

23.10.2022 - 17:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lefloch, pour le tour de cou, on utilise une aiguille circulaire 5,5 + une aiguille circulaire 4,5 - ainsi, on va tricoter les côtes du début et de la fin avec les aiguilles 4,5 (elles seraient beaucoup trop serrées avec des 3,5). Bon tricot!

24.10.2022 - 08:44

country flag Montserrat wrote:

He hecho el conjunto con 3 ovillos Drops Baby Merino color 22 y 2 ovillos Drops Kid-Silk color 01. Resultado mut agradable i elegante.

26.12.2021 - 12:15

country flag Montserrat wrote:

Buenas , estoy haciendo la muestra para hacer el gorro con las agujas del 3'5, me salen 10 centímetros, 28 puntos. Estoy hecha un lio no se con que agujas trabajar para que me salga el trabajo bien para la talla M.

16.11.2021 - 11:32

DROPS Design answered:

Hola Montserrat, tienes que hacer tu muestra con las agujas 4,5 (2 hilos= 1 Alpaca + 1 Kid-Silk). Saludos!

17.11.2021 - 08:33

country flag Aubrey wrote:

I am interested in making this hat, but can't tell the purpose of using two types of yarn simultaneously. Is it for color variation or thickness? Can this project be made with just one strand of yarn? Or are two essential?

03.10.2021 - 07:07

DROPS Design answered:

Dear Aubrey, we are using two different yarn in this piece to combine the qualities of the two yarns (softnes, silkiness, durability, halo effect, etc). You can use different yarns or even one yarn, but the result will be different, and you will have to make sure to do a gauge swatch and check your stitch/row count. Happy Stitching!

03.10.2021 - 12:27

country flag Bernadette wrote:

Bonjour, concernant le bonnet "Lovely Weekend Wander" comment dois-je procéder pour diminuer 12 m à intervalles réguliers alors que j'ai 104 mailles ? Merci beaucoup pour votre aide. Cordialement Bernadette

10.08.2020 - 15:06

DROPS Design answered:

Bonjour Bernadette, vous pourrez trouver ici, une leçon qui explique comment répartir des diminutions. Bon tricot!

10.08.2020 - 16:46

country flag Julia wrote:

Mönstret säger "Sticka mönster så här: 2-3 rätmaskor, A.1 (= 16 maskor), sticka rätmaskor över de resterande maskorna på varvet." för vänster vante, men visst är det A.3 som menas?

02.06.2020 - 15:12

DROPS Design answered:

Hej Julia. Ja det stämmer, detta har nu rättats i texten. Mvh DROPS Design

04.06.2020 - 13:24