Johana skrifaði:
Dobrý den, na jaké velikosti jehlic se plete zkušební vzorek? (konkrétně u této čepice i obecně - nikde to není napsané a tak pletu zkušební vzorky na těch hlavních jehlicích (ne velikost pro lemy) a jednou mi to vychází, že moc utahuji, podruhé, že pletu moc volně... Děkuji
28.01.2023 - 19:36DROPS Design svaraði:
Milá Johano, postupujete naprosto správně! Zkušební vzorek pleteme vždy na těch "hlavních" jehlicích (pokud není výslovně uvedeno jinak). To, že se hustota vašeho vzorku zcela neshoduje s tím v návodu, je zcela normální - každý plete jinak, i jednotliví návrháři, i vy. Proto je dobré vždy vzorek udělat a míry si srovnat. Mohl by se vám také hodit náš článek Jak změřit hustotu úpletu . Hodně zdaru! Hana
30.01.2023 - 06:36
Lydia Lee Cain skrifaði:
Hi , I would like to knit this set. Confused about how many balls of Drops Air to purchase. As stated: 100-100-100 g colour 14, heather 50-50-50 g colour 02, wheat Is that six balls of Heather and three balls of wheat? Thank you in advance for any help. Please take care.
05.07.2021 - 21:14DROPS Design svaraði:
Dear Lydia, the set (hat and mittens) is knitted from DROPS Air yarn that comes in 50 gramms ball, so you will need 100 gramms (2 balls) of the heather color, and 50 grams (1 ball) od the wheat color. Happy Knitting!
05.07.2021 - 21:46
Lera skrifaði:
Hello! I am knitting this hat and after decreasing 16 stitches (XL size) it is very small for me. What can I do now to make a proper hat?
12.07.2020 - 13:02DROPS Design svaraði:
Dear Lera, did you check your tension? You should have 18 sts = 10 cm in width - read more about tension here. Happy knitting!
13.07.2020 - 09:08
Hetty Stok skrifaði:
When I do the gusset increase I have one line up which is the stitch with the marker. It doesn’t look like your tutorial. I can’t interpret the instructions to come out the same as the tutorial because it seems to me that I’m doing exactly what it says. However it looks different. Do you have any clearer diagrams or photos of it. Totally confused!
30.03.2020 - 14:24DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Stok, when working gousset for thumb you have to increase on each side of the stitch with the marker. This means there will be always more stitches between each increase, first time you will have: Inc 1, K1 (=marker), Inc 1. Then you will have: Inc 1, K3 (marker is in the middle st), Inc 1. Then: inc 1, K5 (marker is in the middle st), inc 1 and so on until you have increased all sts (5-6-7 sts on each side of the stitch with marker). Happy knitting!
30.03.2020 - 15:11
Patricia A skrifaði:
Bonjour Merci pour vos merveilleux modèles et vos très belles laines. Je tricote le pull et le bonnet ci dessus en brushed alpaca silk et j observe je pense une erreur sur les 2 derniers rangs de la grille du bonnet A1. En effet si je respecte la grille , je termine avec la couleur opposée. Vous pouvez vérifier s il vous plaît ? Merci beaucoup.
22.11.2019 - 10:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Patricia, je ne suis pas sûre de bien comprendre, à l'avant-dernier rang de A.1, vous tricotez: *2 m bruyère, 3 m blé, 1 m bruyère* et répétez de *-* (vous aurez ainsi 3 m bruyère, 3 m blé tout le tour. Puis, vous tricotez: *3 m bruyère, 1 m blé, 2 m bruyère*, vous aurez ainsi 5 m bruyère, 1 m blé tout le tour. Bon tricot!
22.11.2019 - 10:59
Diamond Delight Accessories#diamonddelightset |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð húfa og vettlingar úr DROPS Air með norrænu mynstri.
DROPS 196-14 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA-2 (á við um húfu): Fækkið um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um þumal á vettlingi): Allur þumallinn er prjónaður með hveiti. Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Í næsta skipti sem aukið er út er það gert þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningar í annarri hverri umferð svona, þ.e.a.s. aukið er út allan tímann utanverðu við útauknar lykkjur. ÚRTAKA-3 (á við um efst á vettlingi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96-104-112 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljung. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 84-90-96 lykkjur. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, hringinn eftir mynsturteikningu A.1 (= 14-15-16 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 er lokið á hæðina, prjónið áfram með litnum ljung og sléttprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 19-20½-22 cm setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett í byrjun á umferð, síðan eru 5 næstu prjónamerki sett með 14-15-16 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3-4-4 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-3-4 sinnum = 48-48-48 lykkjur eftir. Prjónið 2 sléttar umferðir þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 12-12-12 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist alls ca 24-26-28 cm ofan frá og alveg niður. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 40-40-44 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum ljung. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-4-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 36-36-42 lykkjur. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, hringinn eftir mynsturteikningu A.2 (= 6-6-7 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 er lokið á hæðina, prjónið áfram með litnum hveiti og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 9 cm er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkjuna í umferð. Nú er aukið út fyrir opi fyrir þumal með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir opi fyrir þumal í annarri hverri umferð alls 5-6-7 sinnum = 46-48-56 lykkjur. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 14-15-16 cm. Í næstu umferð eru 11-13-15 lykkjur fyrir þumal settar á þráð, haldið áfram hringinn með litnum hveiti og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 36-36-42 lykkjur. Prjónið síðan A.6 (= 6-6-7 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.3 er lokið á hæðina, prjónið áfram með litnum hveiti og sléttprjóni til loka. Prjónið síðan áfram þar til vettlingurinn mælist 22-23-24 cm (nú eru eftir ca 4 cm til loka, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 18-18-21 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-3 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-3-3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2-2-2 sinnum = 16-16-22 lykkjur eftir. Prjónið 2 umferðir slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar saman 2 og 2 í báðum umferðum = 4-4-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26-27-28 cm ofan frá og niður. ÞUMALL: Sejtið til baka 11-13-15 þumal lykkjurnar af þræði á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 4-4-4 lykkjur aftan við þumal með litnum hveiti = 15-17-19 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5-5½-6 cm (nú eru eftir ca ½ cm til loka, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 2 umferðir slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 4-5-5 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en þegar auka á út fyrir opi á þumli er prjónamerkið sett í síðustu lykkju í umferð. Afgangur á vettlingi er prjónaður á sama hátt og á hægri vettlingi. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamonddelightset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.