Helene skrifaði:
The pattern was extremely difficult to read, even for an experienced crocheter. The translation to Danish added on the confusion, and I ended up only using the pattern as an inspiration and did my own thing. An example is the description of how to crochet in the puf masks where the pattern rely on two masks where there really is three masks per puf mask. It took some trials to get it right on my own. Plus the diagram was confusing. The result is beautiful but not because of this pattern.
18.11.2024 - 13:28
Cristina Villada skrifaði:
Muy confusa las explicaciones, no se entiende bien,qué lástima me encantan sus modelos! Para qué tantos tips.
02.04.2021 - 03:05
Eileen skrifaði:
Very helpful, thank you.
29.05.2020 - 17:04
Eileen O'Keeffe skrifaði:
The person that I am makin the pattern for has a rather large head, the pattern I am making is small but the 61 chain will not go over her head any suggestions would be helpful.
29.05.2020 - 16:39DROPS Design svaraði:
Dear Mrs O'Keeffe, you can try to crochet more chain stitches to start with and then adjust on first increase row (to 73 sts) but remember also to check your gauge in both width and height - we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but your DROPS store will be able to assist you and find you any solution if needed, even per mail or telephone. Happy crocheting!
29.05.2020 - 16:59
Eileen skrifaði:
Just wondering if this pattern worked in thr round. Its not stated in the pattern. Thank you!
29.05.2020 - 13:54DROPS Design svaraði:
Dear Eileen, jumper is worked top down and back and forth (i.e. alternately from the right and wrong side) from mid back; it is worked together at the end of each row with a slip stitch - see CROCHET INFORMATION. Happy crocheting!
29.05.2020 - 14:56
Cecilie skrifaði:
Hej, Hvor meget garn skal der bruges? Jeg kan ikke se dette oplyst nogle steder?
16.02.2020 - 12:46
Geoffriau skrifaði:
Comment enregistrer ce modèle dans la rubrique>Merci
14.12.2019 - 16:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Geoffriau, pour enregistrer ce modèle dans vos favoris, cliquez sur le petit coeur à côté des boutons "Besoin d'aide?" et "Imprimer" et suivez les indications. Bon crochet!
16.12.2019 - 08:03
Cidalia Vintém skrifaði:
Me encanta el diseño, pero la descripción/instrucciones son un desastre. Parece una ensalada de mandos. Super, super confuso. Es una lastima porque sus diseños son hermosos.
25.11.2019 - 22:58
Eva skrifaði:
I really like this design. I'm going to crochet it next week. But I think there should be just 125-150g Kid-Silk (size S). Is it possible?
27.10.2019 - 16:27DROPS Design svaraði:
Dear Eva. You seem to be right about the amount (150 gr) We've sent your comment to the Design Department. Happy knitting!
27.10.2019 - 17:52
Anna skrifaði:
Name Suggestion: Saffron Sky I love this pattern and am looking forward to making it.
30.07.2019 - 16:48
Autumn Gold#autumngoldsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað með hringlaga berustykki, ofan frá og niður með pufflykkjum á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-19 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðll/tvíbrugðinn stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir eru heklaðar fram og til baka og heklaðar saman í lokin/byrjun á umferð þannig: Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (kemur í stað fyrstu fastalykkju) og enda með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju, snúið stykkinu. Allar umferðir með pufflykkjum byrja á 3 loftlykkjum og enda með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykkinu. Allar umferðir með tvíbrugðnum stuðlum byrja með 4 loftlykkjum (koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykkinu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 61 lykkja) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 5,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í ca 5. hverja lykkju frá fyrri umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. 1 PUFFLYKKJA: Heklið í sömu lykkju þannig (það er mikilvægt að hekla í lykkjuna, ekki um lykkjuna): * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, dragið báða uppslættina langa (til að koma í veg fyrir að pufflykkjurnar verði of smáar og saman pakkaðar er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn eins langt og hægt er, þ.e.a.s. ca 2 cm) *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju, heklið 6 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). ÚRTAKA (á við um hvora hlið á ermi): Fækkið lykkjum í umferð með fastalykkjum með því að hekla 2 ystu lykkjur í umferð saman þannig: Stingið heklunálinni í gegnum næst ystu lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum á ný um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er heklað fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og frá röngu) frá miðju að aftan og heklað saman í lokin í hverri umferð, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist í fram- og bakstykki og ermar og er heklað fram og til baka hvert fyrir sig á sama hátt. BERUSTYKKI: Heklið 61-63-67-69-71-73 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig: Heklið 2 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 61-63-67-69-71-73 fastalykkjur í umferð. Heklið 1 fastalykkju frá réttu með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið jafnframt út 12 fastalykkjur jafnt yfir í þessari umferð – sjá ÚTAUKNING-1= 73-75-79-81-83-85 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð frá röngu og þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkjuna (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.3 yfir 2 lykkjur, endurtakið A.2 út umferðina (= 35-36-38-39-40-41 mynstureiningar með 2 lykkjum). Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, er aukið út með fastalykkjum jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1: Ör-1: Aukið út 36-36-38-40-40-42 fastalykkjur jafnt yfir = 109-111-117-121-123-127 lykkjur (nú er pláss fyrir 53-54-57-59-60-62 mynstureiningar A.2 á breidd). Ör-2: Aukið út 16-20-24-24-26-30 fastalykkjur jafnt yfir = 125-131-141-145-149-157 lykkjur (nú er pláss fyrir 61-64-69-71-73-77 mynstureiningar A.2 á breidd). Ör-3: Aukið út 16-20-24-24-26-30 fastalykkjur jafnt yfir = 141-151-165-169-175-187 lykkjur (nú er pláss fyrir 69-74-81-83-86-92 mynstureiningar A.2 á breidd). Ör-4: Aukið út 16-20-24-22-24-30 fastalykkjur jafnt yfir = 157-171-189-191-199-217 lykkjur (nú er pláss fyrir 77-84-93-94-98-107 mynstureiningar A.2 á breidd). Heklið A.1 til A.3 til og með umferð merktri í þinni stærð, þ.e.a.s. stærð S-M-L er nú lokið. Haldið áfram í stærð XL-XXL-XXXL og aukið út í síðustu umferð þannig: Ör-5: ATH: Ekki snúa stykkinu í þessari umferð, heldur heklið þessa umferð frá réttu þannig að næsta umferð sé hekluð frá röngu - aukið út 12-24-28 fastalykkjur jafnt yfir = 203-223-245 lykkjur. Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað til loka í þinni stærð, mælist stykkið ca 14-14-14-17-17-17 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu lykkjuna (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), endurtakið A.5 (= 1 lykkja) út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur, A.4 til A.5 er endurtekið núna á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist ca 17-18-20-21-22-24 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan – stillið af þannig að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum (frá réttu), aukið út 4-10-12-6-14-12 fastalykkjur jafnt yfir = 161-181-201-209-237-257 lykkjur. Heklið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 24-27-29-31-35-39 lykkjum (= hálft bakstykki), heklið 6-6-6-8-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 34-38-44-44-50-52 lykkjur (= ermi), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 46-52-56-60-68-76 lykkjum (= framstykki), heklið 6-6-6-8-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 34-38-44-44-50-52 lykkjur (= ermi) og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 23-26-28-30-34-38 lykkjum (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 105-117-125-137-153-169 lykkjur (meðtaldar 6-6-6-8-8-8 loftlykkjur undir hvorri ermi). Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 27-30-32-35-39-43 lykkjur (= hálft bakstykki) og setjið 1 prjónamerki eftir næstu 52-58-62-68-76-84 lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 26-29-31-34-38-42 lykkjur að byrjun á umferð (= hálft bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar auka á út lykkjum í hliðum. Haldið áfram fram og til baka með mynstri A.4 til A.5 eins og áður. Þegar fram- og bakstykki mælist 8 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 9 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 117-129-137-149-165-181 lykkjur. Heklið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 35 cm frá skiptingu, en endið eftir 1 umferð með fastalykkjum frá réttu. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er hekluð fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og frá röngu) frá miðju mitt undir ermi (til að áferðin verði eins á fram- og bakstykki og ermum). Byrjið frá röngu mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjum undir ermi og heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af 3-3-3-4-4-4 lykkjum frá miðju og út, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af 34-38-44-44-50-52 lykkjum sem hoppað var yfir og endið með 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern og einn af síðustu 3-3-3-4-4-4 lykkjum mitt undir ermi = 40-44-50-52-58-60 lykkjur, snúið stykkinu. Haldið áfram fram og til baka með mynstri A.4 til A.5 eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 3-4-6-6-8-8 sinnum i hvorri hlið = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 16-16-16-15-15-15 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að hekla 2 lykkjur í næst ystu lykkjuna í hvorri hlið. Aukið svona út með 9-9-8-8-6-5½ cm millibili alls 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 40-42-44-46-50-52 lykkjur. Heklið áfram þar til ermin mælist 45-44-42-41-39-38 cm frá skiptingu, en endið eftir 1 umferð með fastalykkjum (mátið e.t.v. peysuna og heklið að óskaðri lengd). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum – saumið í ystu lykkjuboga. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumngoldsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.