DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21846.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Gold Jacket

Hekluð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað með hringlaga berustykki, ofan frá og niður með pufflykkjum á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-20
DROPS Design: Mynstur sk-057
Garnflokkur B + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur 17, karrí
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-175-175-200-225-250 g litur 30, karrí

HEKLFESTA:
13 tvíbrugðnir stuðlar/fastalykkjur á breidd með 1 þræði í hvorri tegund = 10 cm.
Mynstur A.2 = 3 umferðir mælast ca 3,25 cm á hæðina.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21846.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðll/tvíbrugðinn stuðull.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 66 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 5,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í til skiptis 5. og 6. hverja lykkju frá fyrri umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

1 PUFFLYKKJA:
Heklið í sömu lykkju þannig (það er mikilvægt að hekla í lykkjuna, ekki um lykkjuna): * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, dragið báða uppslættina langa (til að koma í veg fyrir að pufflykkjurnar verði of smáar og saman pakkaðar er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn eins langt og hægt er, þ.e.a.s. ca 2 cm) *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 11 lykkjur á heklunálinni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju.
Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig:
Heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju, heklið 6 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð).

ÚRTAKA (á við um hvora hlið á ermi):
Fækkið lykkjum í umferð með fastalykkjum með því að hekla 2 ystu lykkjur í umferð saman þannig: Stingið heklunálinni í gegnum næst ystu lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum á ný um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er heklað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist í fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður (ermar eru heklaðar fram og til baka til að fá sömu áferð og fram- og bakstykki).

BERUSTYKKI:
Heklið 68-70-74-76-78-80 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 66-68-72-74-76-78 fastalykkjur í umferð.
Heklið 1 umferð fastalykkjur frá réttu með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið jafnframt út um 12 fastalykkjur jafnt yfir í þessari umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 78-80-84-86-88-90 fastalykkjur.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, heklið A.2 yfir næstu 2 lykkjur, heklið A.3 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (= 35-36-38-39-40-41 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með A.4 yfir síðustu 3 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.4 eru auknar út fastalykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1:

Ör-1: Aukið út 36-36-38-40-40-42 fastalykkjur jafnt yfir = 114-116-122-126-128-132 lykkjur (nú er pláss fyrir 53-54-57-59-60-62 mynstureiningar A.2 á breidd).
Ör-2: Aukið út 16-20-24-24-26-30 fastalykkjur jafnt yfir = 130-136-146-150-154-162 lykkjur (nú er pláss fyrir 61-64-69-71-73-77 mynstureiningar A.2 á breidd).
Ör-3: Aukið út 16-20-24-24-26-30 fastalykkjur jafnt yfir = 146-156-170-174-180-192 lykkjur (nú er pláss fyrir 69-74-81-83-86-92 mynstureiningar A.2 á breidd).
Ör-4: Aukið út 16-20-24-22-24-30 fastalykkjur jafnt yfir = 162-176-194-196-204-222 lykkjur (nú er pláss fyrir 77-84-93-94-98-107 mynstureiningar A.2 á breidd).
Heklið A.1 til A.4 til og með umferð merktri með þinni stærð, þ.e.a.s. stærð S-M-L er nú lokið. Haldið áfram í stærð XL-XXL-XXXL og aukið út í síðustu umferð þannig:
Ör-5: ATH: Ekki snúa stykkinu í þessari umferð, en klippið þráðinn frá og heklið þessa umferð frá réttu þannig að næsta umferð sé hekluð frá röngu - aukið út 12-24-28 fastalykkjur jafnt yfir = 208-228-250 lykkjur.
Þegar A.1 til A.4 hefur verið heklað til loka í þinni stærð, mælist stykkið ca 14-14-14-17-17-17 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
Heklið A.5 yfir fyrstu lykkju, endurtakið A.6 (= 1 lykkja) þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með A.7 yfir síðustu lykkju. Haldið svona áfram með mynstur, A.5 til A.7 er endurtekið núna á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist ca 17-18-20-21-22-24 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan – stillið af þannig að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum, aukið út 4-10-12-6-14-12 fastalykkjur jafnt yfir = 166-186-206-214-242-262 lykkjur.
Heklið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð frá réttu þannig:
Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af fyrstu 26-29-31-33-37-41 lykkjum (= framstykki), heklið 6-6-6-8-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 34-38-44-44-50-52 lykkjur (= ermi), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 46-52-56-60-68-76 lykkjum (= bakstykki), heklið 6-6-6-8-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 34-38-44-44-50-52 lykkjur (= ermi) og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 26-29-31-33-37-41 lykkjum (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 110-122-130-142-158-174 lykkjur (meðtaldar 6-6-6-8-8-8 loftlykkjur undir hvorri ermi). Setjið 1 prjónamerki 29-32-34-37-41-45 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 52-58-62-68-76-84 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar auka á út lykkjum í hliðum.
Haldið áfram fram og til baka með mynstri A.5 til A.7 eins og áður. Þegar fram- og bakstykki mælist 8 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 9 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 122-134-142-154-170-186 lykkjur. Heklið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 35 cm frá skiptingu, en endið eftir 1 umferð með fastalykkjum frá réttu. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Ermin er hekluð fram og til baka frá miðju mitt undir ermi (til að áferðin verði eins á fram- og bakstykki og ermum).
Byrjið frá röngu mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjum undir ermi og heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af 3-3-3-4-4-4 lykkjum frá miðju og út, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af 34-38-44-44-50-52 lykkjum sem hoppað var yfir og endið með 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern og einn af síðustu 3-3-3-4-4-4 lykkjum mitt undir ermi = 40-44-50-52-58-60 lykkjur, snúið stykkinu.
Haldið áfram fram og til baka með mynstri A.5 til A.7 eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 3-4-6-6-8-8 sinnum i hvorri hlið = 34-36-38-40-42-44 lykkjur.
Þegar ermin mælist 16-16-16-15-15-15 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að hekla 2 lykkjur í næst ystu lykkju í hvorri hlið. Aukið svona út með 9-9-8-8-6-5 ½ cm millibili alls 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 40-42-44-46-50-52 lykkjur. Heklið áfram þar til ermin mælist 45-44-42-41-39-38 cm frá skiptingu, en endið eftir 1 umferð með fastalykkjum (mátið e.t.v. peysuna og heklið að óskaðri lengd). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum – saumið í ystu lykkjubogana.
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Fyrsta talan er saumuð í ca 1½-2 cm niður frá hálsmáli, síðan eru 6-6-6-7-7-7 næstu saumaðar ca 6½-7-7½-6½-7-7 cm millibili.
Tölum er hneppt á milli 2. og 3. stuðuls/tvíbrugðinn stuðull í hægri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.10.2019
Og notið: DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)125-175-175-200-225-250 g litur 30, karrí
Yfirfarið á vefsvæði: 13.01.2023
Leiðrétting í útskýringu í mynsturteikningu

Mynstur

symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir eingöngu hvernig hekla á næstu umferð í lykkjurnar
symbols = 1 loftlykkja (jafngildir 1 fastalykkju) - þar sem þú heklar yst á heklunálinni þá verður loftlykkjan oft of stíf. 1 loftlykkja á að vera jafn löng og breiddin á 1 fastalykkju
symbols = 1 fastalykkja í stuðul/pufflykkju/tvíbrugðinn stuðul
symbols = 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli)
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = hoppaðu yfir 1 lykkju, heklið 1 stuðul í næstu lykkju, heklið 1 loftlykkju, heklið 1 PUFFLYKKJU - sjá útskýringu í uppskrift - í lykkjuna sem var hoppað yfir (pufflykkjan á að fara yfir/krossa yfir stuðulinn þannig að stuðullinn liggi aftan við pufflykkjuna)
symbols = hoppið yfir 1 pufflykkju + 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, heklið 1 loftlykkju, heklið 1 pufflykkju í loftlykkjuna sem var hoppað yfir (pufflykkjan á að fara yfir/krossa yfir stuðulinn þannig að stuðullinn liggi aftan við pufflykkjuna)
symbols = útaukningsumferð
symbols = 4 loftlykkjur (jafngilda 1 tvíbrugðnum stuðli)
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Steinunn Benna Hreiðarsdóttir wrote:

Hæ aftur og afsakið las leiðbeiningar ekki nógu vel. En á að gera eins og mér fannst rökrétt🙂 Takk fyrir aðstoð.

30.01.2023 - 22:03

country flag Steinunn Benna Hreiðarsdóttir wrote:

Sæl aftur. Mun ekki pufflykkjur munstrum fjolga mjög mikið?

30.01.2023 - 13:12

DROPS Design answered:

Sæl Steinunn Það er engin útaukning í sjálfri pufflykkjunni. Pufflykkjan er hekluð með því að hekla saman nokkrar lykkjur í 1 lykkju – lykkjan blæs út vegan þess að lykkjurnar/uppslættirnir eru dregnir langt út og lykkjan stækkar. Skoðaðu myndböndin sem eru neðst á síðunni í uppskriftinni og þar fylgja útskýringar. Gangi þér vel.

06.02.2023 - 10:48

country flag Steinunn Benna Hreiðarsdóttir wrote:

Vantar útskýringu á munsturteikningu A2 og A3 í 6. umferð? Hvort er í byrjun og svo til loka 3 lykkja?

28.01.2023 - 23:35

country flag Steinunn Benna wrote:

Sk-057 Hvernig á að nota munsturteikningu? Lesið er til skiptis frá hæ - vinstri Það á að byrja í 2. umferð hægra megin en í útskýringum er sagt að hekla A1 A2 og svo A3 uns 3 l eru eftir. Þá er A2 heklað og svo A3 alla leið er það ekki? Í 6. umferð snýst þetta við þá virðist eiga að hekla krossinn A3 alla leið?

28.01.2023 - 23:29

country flag Steinunn Benna wrote:

Blessuð. Blessuð Steinunn. Pufflykkjan á að fara yfir stuðulinn þannig að stuðullinn sjáist á röngu á peysunni. Gangi þér vel. Spurningin er hvernig er það gert?

03.01.2023 - 13:07

DROPS Design answered:

heklið 1 pufflykkju í loftlykkju sem hoppað var yfir (pufflykkjan á að krossa yfir stuðul þannig að stuðullinn kemur til með að verða aftan við pufflykkju/ á bakvið pufflykkju)

06.01.2023 - 11:47

country flag Steinunn wrote:

Hoppið yfir 1 pufflykkju + 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, heklið 1 loftlykkju, heklið 1 pufflykkju í loftlykkju sem hoppað var yfir (pufflykkjan á að krossa yfir stuðul þannig að stuðullinn kemur á röngu á peysunni) Hvernig á að krossa svo starfsemi komi á röngu? Á að fara framan í eða aftan í lykkju eða í báðar? Komin í öngþveiti eftir að prófa og rekja upp.

01.01.2023 - 23:50

DROPS Design answered:

Blessuð Steinunn. Pufflykkjan á að fara yfir stuðulinn þannig að stuðullinn sjáist á röngu á peysunni. Gangi þér vel.

02.01.2023 - 14:49

country flag Steinunn Benna wrote:

Leiðbeiningar segja að mikilvægt sé að hekla í lykkjuna ekki um lykkjuna. Á þá að fara framan í hana eða aftan í hana eða skiptir það ekki máli upp á að stuðull sjáist á röngu? Hvernig lætur kona stuðul sjást á röngu með að krossa yfir með kúlu?

20.12.2022 - 21:54

DROPS Design answered:

Blessuð Steinunn. Þú heklar í sjálfa lykkjuna og þú stingur heklunálinni inn í lykkjuna að framan.

30.01.2023 - 11:30

country flag Steinunn Benna wrote:

Er með SK-057. Skil ekki leiðbeiningar á púff lykkju. Í myndbandi er henni lokað með ll en leiðbeiningar segja 1 stuðul og loftlykkja svo púff. Í 2. Umferð í A3 er þá líka farið í hálfa lykkju? Fór aftaní lykkju í 1. umferð munstur.

18.12.2022 - 22:51

DROPS Design answered:

Blessuð Steinunn. Fylgdu útskýringu í uppskrift. Myndbandið er til hliðsjónar hvernig hægt er að gera pufflykkjur en er ekki merkt með þessu mynstri. Veit ekki alveg hvað þú átt við með að fara í hálfa lykkju. Vona að þetta hjálpi. Gangi þér vel.

20.12.2022 - 10:57

country flag Isi wrote:

Hallo, ich habe bei der Passe den teil mit den Puffmaschen jetzt abgeschlossen und beginne mit A5-A7. Dort steht, dass man so lange häkeln soll bis die Höhe des entsprechenden Maßes erreicht ist. Wo kann ich diese Höhe denn ablesen. Und wo sollen dann die festen Maschen zugenommen werden? Vielen Dank im Voraus!

06.04.2021 - 09:19

DROPS Design answered:

Liebe Isi, die Angabe "bis zum fertigen Maß" bedeutet an dieser Stelle, dass Sie die Muster bis zum Ende häkeln, d.h. es geht in diesen Mustern stets weiter. Die Maße finden Sie dann im weiteren Verlauf der Anleitung, d.h. die festen Maschen nehmen Sie bei der nächsten cm-Angabe zu. Viel Spaß beim Weiterhäkeln!

06.04.2021 - 11:49

country flag Natalia wrote:

La foto no coincide con el patrón de puntos puff, estoy realizando la talla L y ya con la tercera flecha de aumentos y sus correspondientes 81 repeticiones de puntos puff me da el tamaño de 14 cm recomendado. Voy a continuar el patrón desde allí salteando la indicación del aumento de la cuarta flecha y sus puntos puff. Espero poder contarles que pude realizar el patrón.

20.05.2020 - 16:44