Loly Aguilar Araujo skrifaði:
Hola ,podría ser que la hilera 9 este mal ,porque no me cuadra gracias
19.10.2019 - 21:08DROPS Design svaraði:
Hola Loly. En el original ( norsk ) la fila 9 sigue así: (= lado derecho): Hacer 1 lazada, 1 derecho, 1 lazada, TEJER 2 PUNTOS DE DERECHO, * 1 lazada, .......*. Ya está mandada la corrección al departamento de diseño.
20.10.2019 - 20:06
Andreina Dell'Acqua skrifaði:
Buongiorno inizio per ringraziarvi per i tanti bellissimi modelli. Vi seguo ormai da anni. In questo non mi tornano i conti nel quinto ferro in quanto mi risultano 26 aumenti e quindi 107 maglie invece di 108. Infatti il secondo gettato viene ammortizzato dai 2insieme a diritto che segue. In cosa sbaglio? Grazie a
03.10.2019 - 14:34DROPS Design svaraði:
Buongiorno Andreina. Segnaleremo l'errore alla casa madre. Il testo corretto è il seguente: fare 1 gettato, 1 maglia diritto, 1 gettato, 2 maglie a diritto, * 1 gettato, 2 maglie insieme a diritto, 1 gettato, 1 maglia diritto *, lavorare *-* 25 volte in totale e lavorare 3 maglie diritto (= 27 aumenti) = 108 maglie sul ferro. Buon lavoro!
03.10.2019 - 15:10
Annika skrifaði:
Tiziana,fallo normalmente prima della maglia da lavorare a diritto come un punto già lavorato sul ferro destro.
28.09.2019 - 22:38
Tiziana skrifaði:
Come faccio a fare un gettato all'inizio del ferro? non so come fare, grazie per la risposta
28.09.2019 - 21:06DROPS Design svaraði:
Buongiorno Tiziana. Può appoggiare il ferro destro sul filo, avvolge il filo intorno al ferro; in questo modo il filo si trova dietro il lavoro in posizione corretta per lavorare la prima maglia sul ferro a diritto. Oppure può lavorare la prima maglia a diritto tenendo il filo sul davanti del lavoro. Buon lavoro!
29.09.2019 - 09:00
Doris skrifaði:
Zart.
29.06.2019 - 22:10
Cheers to Spring#cheerstospringshawl |
|
![]() |
![]() |
Prjónað sjal úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni, gataumferðum og klukkuprjóni.
DROPS 203-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. SJAL: Fitjið upp 9 lykkjur á hringprjón 4,5 með Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið umferð 1-2 alls 5 sinnum = 29 lykkjur. Stykkið mælist ca 2,5 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 3 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 8 sinum og prjónið 3 lykkjur slétt (= 10 lykkjur fleiri) = 39 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 41 lykkjur í umferð. Prjónið umferð 1-2 alls 10 sinnum = 81 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 8 cm frá uppfitjunarkanti. UMFERÐ 5 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 25 sinum og prjónið 3 lykkjur slétt (= 27 lykkjur fleiri) = 108 lykkjur í umferð. UMFERÐ 6 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 110 lykkjur í umferð. Prjónið umferð 1-2 alls 15 sinnum = 170 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 16 cm frá uppfitjunarkanti. UMFERÐ 7 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 55 sinum og prjónið 3 lykkjur slétt (= 57 lykkjur fleiri) = 227 lykkjur í umferð. UMFERÐ 8 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 229 lykkjur í umferð. Prjónið umferð 1-2 alls 10 sinnum = 269 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 22 cm frá uppfitjunarkanti. UMFERÐ 9 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 88 sinum og prjónið 3 lykkjur slétt (= 90 lykkjur fleiri) = 359 lykkjur í umferð. UMFERÐ 10 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 361 lykkjur í umferð. Prjónið umferð 1-2 alls 23 sinnum = 453 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 34 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú klukkuprjón þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið * , endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 3 (= rétta): 1 lykkja garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman og 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til ca 6 cm með klukkuprjóni hefur verið prjónað. Stykkið mælist alls ca 40 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé frá réttu. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja (það verður þá 1 lykkja + 1 lykkja með uppslætti að 3 lykkjum þegar fellt er af). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu yfir allar lykkjur og uppslætti. Ef kanturinn verður enn stífur, er hægt að fella af með grófari prjónum. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cheerstospringshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.