Marie Godbold skrifaði:
Love those pants, when yaj going do wedding 👗
05.09.2019 - 20:38
Silvana Cruz skrifaði:
Necesit el patrn cn medidas
03.09.2019 - 04:50DROPS Design svaraði:
Hola Silvana. Tu sugerencia se ha enviado al departamento de diseño.
08.09.2019 - 13:17
Karin skrifaði:
I materiallistan står det Karisma men när man ska lägga upp står det Merino Extra Fine. Är de utbytbara eller vilket garn ska jag använda Snygga är de
31.08.2019 - 16:39DROPS Design svaraði:
Hei Karin. Det skal være DROPS Karisma. Man kan også bruke DROPS Merino Extra Fine, men for å få en bedre formstabiliteten til en shorts, er Karisma et bedre valg. mvh Drops design
02.09.2019 - 13:27
Rosy skrifaði:
Très sympa à porter avec un joli pull XXL, original, la nouveauté à du bon. Aucune gloire de critiquer sous l'anonymat...
29.07.2019 - 08:28
Camille D skrifaði:
These would be great in winter under a dress, and could be made in different lengths. An interesting touch to leggings and feminine too.
20.07.2019 - 19:34
Gloria skrifaði:
Toujours des gens pour critiquer le travail des équipes Drops, c'est fatiguant ! J'espère qu'on juge aussi crument votre labeur ! Merci Drops pour nous proposer des vêtements qui sortent un peu de l'ordinaire et qui sont terriblement pratique. Vos shorts en laine sont miraculeux lorsqu'il fait vraiment froid !
15.07.2019 - 13:28
Margrethe Sæther skrifaði:
Bedste vinterbeskyttelse.
04.07.2019 - 00:57
Maia skrifaði:
Ja!! Precis vad jag vill ha under klänningen på vintern!
27.06.2019 - 00:00
Sandra☆ skrifaði:
Deze Hotpants lijkt mij heerlijk dragen voor de herfst/winterperiode. Ja, deze wil ik wel gaan breien.
26.06.2019 - 22:47
Soussou skrifaði:
A réserver aux pays nordiques, caché sous les vêtements surtout ! On peut difficilement faire plus laid. Ah si ! Il y a un pantalon bigarré dans les propositions qui est un chef d’œuvre de mauvais goût.
21.06.2019 - 15:29
Herring Bone Thermals#herringbonethermals |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaðar stuttbuxur úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stroffi. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-43 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um skálmar): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður. Það er prjónuð upphækkun að aftan. STUTTBUXUR: Fitjið upp 144-168-192-216 lykkjur á hringprjón 2,5 með Karisma. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan) og 1 prjónamerki eftir 72-84-96-108 lykkjur (= mitt að framan). Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) hringinn í 6 cm. Prjónið síðan upphækkun að aftan í stroffprjóni þannig: Prjónið 9 lykkjur stroffprjón, snúið, herðið á þræði, prjónið 17 lykkjur stroffprjón til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið 26 lykkjur stroffprjón. Haldið svona áfram með því að prjóna 9 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 107-125-143-161 lykkjur. Snúið við í síðasta skipti til að komast að réttunni á stykkinu. Prjónið að prjónamerki mitt að aftan = byrjun á umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur þannig: 22-28-34-40 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 14 lykkjur (aukið út um 21 lykkjur), 1 lykkja slétt, A.2 yfir næstu 14 lykkjur (aukið út til 21 lykkjur), 43-55-67-79 lykkjur, A.1 yfir næstu 14 lykkjur (aukið út til 21 lykkjur), 1 lykkja slétt, A.2 yfir næstu 14 lykkjur (aukið út til 21 lykkjur), 21-27-33-39 lykkjur slétt = 172-196-220-244 lykkjur. Prjónið síðan A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2 – prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-12-11-14 cm mitt að framan (mælt frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður), aukið út um 2 lykkjur mitt að framan og að aftan – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í 7. hverri umferð alls 7-8-10-10 sinnum = 200-228-260-284 lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 29-31-34-36 cm mitt að framan, fellið af fyrstu 6-7-8-8 lykkjur á eftir prjónamerki mitt að aftan, prjónið næstu 88-100-114-126 lykkjur og setjið síðan á þráð (= skálm), prjónið næstu 12-14-16-16 lykkjur og látið þær vera eftir á prjóni (= op), prjónið næstu 88-100-114-126 lykkjur og setjið þær síðan á þráð (= skálm), fellið af 6-7-8-8 lykkjur sem eftir eru, klippið þráðinn frá. Prjónið síðan 11-12-13-14 cm sléttprjón fram og til baka yfir 12-14-16-16 við lykkjur á prjóni, fellið af og festið opið við 12-14-16-16 lykkjur sem felldar voru mitt að aftan. HÆGRI SKÁLM: Setjið 88-100-114-126 lykkjur af þræði í hægri hlið á stuttan hringprjón 3,5 og prjónið að auki upp 25-26-28-31 lykkjur meðfram annarri hlið á opi = 113-126-142-157 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í innanverða skálm (þ.e.a.s. mitt í lykkjur sem prjónaðar voru upp meðfram opi) = byrjun á umferð. Prjónið síðan mynstur A.3, 1 lykkja slétt og A.4 eins og áður yfir 43 lykkjur í hlið, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar skálmin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6.-4.-3.-3. hverri umferð alls 3-5-6-7 sinnum = 107-116-130-143 lykkjur (skiptið yfir á sokkaprjóna þegar það eru of fáar lykkjur fyrir hringprjóninn). Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 1-1-2-1 lykkju yfir lykkjur í sléttprjóni = 108-117-132-144 lykkjur. Þegar skálmin mælist 10-11-11-12 cm, prjónið sléttar lykkjur fram að byrjun á A.3. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur, en passið uppá að stroffið nái jafn langt upp alla leiðina hringinn og að prjónaðar séu sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir 43 lykkjur í hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Stuttbuxurnar mælast ca 43-46-49-52 cm mælt frá uppfitjunarkanti mitt að framan og niður. VINSTRI SKÁLM: Setjið til baka lykkjur af hinum þræðinum á prjóninn og prjónið á sama hátt og fyrri skálm. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #herringbonethermals eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.