Agneta Östman-Wenger skrifaði:
Vad menas med "rapporter"? Varv??
06.01.2025 - 15:55DROPS Design svaraði:
Hei Agneta. Når det står: Avslut A.1 efter en hel rapport på höjden innan minskningarna börjar... Betyr det hele diagrammet i høyden. Diagrammet har 12 varv = 1 rapport i høyden. mvh DROPS Design
07.01.2025 - 16:26
Lili skrifaði:
Tere palju ma silmuseod teen peaümbermõõt 59 cm . Kudumistihedus lõtv ka , mütsi jaoks nagu silmused vaja Lili
30.01.2024 - 15:18DROPS Design svaraði:
Tere Lili! Peaümbermõõdu 59 cm jaoks võite luua L suurusele antud 132 silmust. See muster on väga veniv ka. Head kudumist!
01.02.2024 - 22:13
Birthe Stevns skrifaði:
Hvor meget garn skal man bruge til halsvarmeren alene?
18.09.2021 - 17:56DROPS Design svaraði:
Hej Birthe. Du ska ha 100 g till storlek S/M och 150 g till storlek M/L av DROPS Babymerino. Mvh DROPS Design
22.09.2021 - 09:43
Anna skrifaði:
Bardzo ładny wzór na czapkę, ALE nie jestem pewna czy wzięto pod uwagę fakt, że włóczka baby merino niemiłosiernie się rozciąga po blokowaniu. Zablokowałam czapkę w chłodnej wodzie, i mimo to zwiększyła swój rozmiar o dobrych kilka centymetrów. Nie wiem co by się stało po upraniu czapki w pralce w 40 st jak zaleca producent. Postaram się jakoś ją odratować blokując ponownie gorącą parą :(
29.11.2020 - 12:09
Sofia skrifaði:
I am knitting the neck warmer and I don't really understand how to increase in the round. Do I have to do yarn over or use some other technique? If I use yarn over, does it mean that there will be holes in the round? Thank you.
13.01.2020 - 14:41DROPS Design svaraði:
Dear Sofia, you increase with yarn overs and work yarn over twisted on next round - see DECREASE/INCREASE TIP (evenly spaced): video here and how to increase evenly here. Happy knitting!
13.01.2020 - 16:00
Tina Lythe skrifaði:
I am unable to download patterns can I get physical patterns.
29.10.2019 - 13:43DROPS Design svaraði:
Dear Tina, you can save the pattern printing it as a .pdf. Unfprtunately there are no catalogues. Happy crafting!
29.10.2019 - 19:17
Millie skrifaði:
Skal luen strikkes men enkelt eller dobbelt garn?
16.10.2019 - 12:02DROPS Design svaraði:
Hej Millie, Huen strikkes med enkelt DROPS Baby Merino og du skal få 26 masker på 10 cm i bredden. God fornøjelse!
16.10.2019 - 15:23
Grelu skrifaði:
Bonjour, Ou trouver les explications du pull assorti à ces accessoires (Référence bm-071) , Par avance merci.
17.08.2019 - 15:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Grelu, tous les modèles retenus pour la collection automne-hiver seront publiés d'ici au printemps 2020. Revenez régulièrement! Bon tricot!
19.08.2019 - 09:35
Follow the Sun#followthesunset |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð húfa, hálsskjól og handstúkur úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og stroff kanti.
DROPS 204-6 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 132 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 64) = 2,1. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna hverja og aðra hverja lykkju slétt saman (þ.e.a.s. 2 og 2 lykkjur slétt saman). Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 128-132 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið A.1 hringinn (= 32-33 mynstureiningar með 4 lykkjum).Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 22-23 cm byrjar úrtaka, en stilltu af endað sé á A.1 eftir heila mynstureiningu á hæðina áður en úrtakan byrjar. Prjónið nú A.2 hringinn – JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.2 er lykkjum fækkað jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Ör-1 = Fækkið um 64-64 lykkjur = 64-68 lykkjur eftir (nú er pláss fyrir 16-17 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-2 = Fækkið um 32-32 lykkjur = 32-36 lykkjur eftir (nú er pláss fyrir 8-9 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-3 = Fækkið um 16-16 lykkjur = 16-20 lykkjur eftir (nú er pláss fyrir 4-5 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-4 = Fækkið um 8-8 lykkjur = 8-12 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 26-27 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 192-224 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-44 lykkjur jafnt yfri – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 156-180 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið A.1 hringinn (= 39-45 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 22-27 cm, en endið eftir 6. eða 12. umferð í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 3 umferðir sléttprjón – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 36-44 lykkjur jafnt yfir = 192-224 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 25-30 cm frá affellingarkanti og niður. ------------------------------------------------------ HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. HANDSTÚKUR: Fitjið upp 60-64 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2½ cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið A.1 hringinn (= 12-13 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 15½-17½ cm, en endið eftir 6. eða 12. umferð í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 3 umferðir sléttprjón – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir = 60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2½ cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Handstúkan mælist ca 18-20 cm frá affellingarkanti og niður. Prjónið hina handstúkuna á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #followthesunset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.