DROPS Super Sale - 6 vinsælar garntegundir á afslætti allan mánuðinn!
Product image DROPS Muskat yarn
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 60-13
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: Small (Medium - Large)

Efni:
DROPS Muskat frá Garnstudio
300 (300-350) gr litur nr 18, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 2 – fyrir kant í hálsimáli

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum frá réttu þannig:
Á undan 3 kantlykkjum: 2 lykkjur slétt saman.
Á eftir 3 kantlykkjum: Lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum frá röngu þannig:
Á undan 3 kantlykkjum: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman.
Á eftir 3 kantlykkjum: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 176 (192-208) lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat og prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan 3 umferðir PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 merki í hvora hlið, framstykki = 87 (95-103) lykkjur, bakstykki = 89 (97-105) lykkjur. Prjónið mynstur og byrjið við ör í mynstri.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT á eftir perluprjóni í kanti er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki 4 sinnum í 5. hverjum cm = 192 (208-224) lykkjur, framstykki = 95 (103-111) lykkjur, bakstykki = 97 (105-113) lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar stykkið mælist 27 (28-28) cm eru prjónaðar 3 umferðir perluprjóni yfir 6 (6-7) lykkjur hvoru megin við merki, fellið síðan af 3 (3-4) lykkjur fyrir handveg hvoru megin við merkin og prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka – framstykki = 89 (97-103) lykkjur, bakstykki = 91 (99-105) lykkjur.

FRAMSTYKKI:
= 89 (97-103) lykkjur. Fellið nú af fyrir handveg – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! – innan við 3 kantlykkjur (þessar lykkjur eru prjónaðar upp úr í perluprjóni) í hvorri hlið í hverri umferð: 1 lykkja 5 (5-8) sinnum, í annarri hverri umferð: 1 lykkja 4 sinnum og í 4. hverri umferð: 1 lykkja 2 sinnum = 67 (75-75) lykkjur. Þegar stykkið mælist 37 (37-37) cm prjónið 3 umferðir í perluprjóni yfir 15 (23-23) miðjulykkjur, fellið síðan af 9 (17-17) miðjulykkjur fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum við hálsmál – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! – innan við 3 kantlykkjur (þessar lykkjur í perluprjóni eru prjónaðar allan tímann upp úr) í hverri umferð: 1 lykkja 6 sinnum, í annarri hverri umferð: 1 lykkja 2 sinnum og í 4. hverri umferð: 1 lykkja 2 sinnum. Fellið af þegar stykkið mælist 50 (51-52) cm.

BAKSTYKKI:
= 91 (99-105) lykkjur. Fellið af fyrir handveg innan við 3 kantlykkjur á sama hátt og á framstykki = 69 (77-77) lykkjur. Þegar stykkið mælist 47 (48-49) cm prjónið 3 umferðir perluprjóni yfir 33 (41-41) miðjulykkjur, fellið síðan af 27 (35-35) miðjulykkjur fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum við hálsmál – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! – innan við 3 kantlykkjur (þessar lykkjur í perluprjóni eru prjónaðar allan tímann upp úr) í hverri umferð: 1 lykkja 2 sinnum. Fellið af þegar stykkið mælist 50 (51-52) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HEKLAÐUR KANTUR Í HÁLSIMÁLI:
Heklið kant í kringum hálsmál frá réttu með heklunál 2 DROPS Muskat þannig:
UMFERÐ 1: 1 fastalykkja, * 4 loftlykkjur yfir 2 prjónaðar lykkjur, 1 keðjulykkja í gegnum 3 prjónaðar lykkjur *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: * 4 fastalykkjur í kringum loftlykkjuboga, 1 keðjulykkja í keðjulykkju frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-*.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
Diagram for DROPS 60-13
Diagram for DROPS 60-13
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 60-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (92)

country flag Katharina skrifaði:

Hallo! Mir ist leider nicht ganz klar wo die beiden Markierungen zu setzen sind, die Vorder- und Rückseite trennen. Normalerweise ist der Rundenbeginn ja in der Mitte am Rücken. So wie ich diese Beschreibung jedoch verstehe, ist der Rundenbeginn in an der Seite. Stimmt das? Nach 3 R Perlmuster, fang ich ab Rundenbeginn an 87 M abzuzählen und danach die restlichen 89 M (ich stricke Gr S). Herzlichen Dank im voraus für die Hilfe. Ich bin ein großer Fan von den Drops Anleitungen!

15.07.2020 - 01:08

DROPS Design svaraði:

Liebe Katharina, ja genau so stimmt es, in S haben Sie 87 M fûr Vorderteil und 89 M für Rückenteil. Sie stricken Diagram vom Pfeil = 7 Maschen, dann wiederholen Sie 10 Mal die 8 M im Diagram = 87 M, und jetzt stricken Sie 11 Mal die 8 M im Diagram + die erste Masche im Diagram = 89 M für Rückenteil. Viel Spaß beim stricken!

15.07.2020 - 07:44

country flag Rita skrifaði:

Buonasera vorrei per cortesia sapere se fosse possibile usare i ferri normali per questo modello di top equanti punti avviare per una taglia 42/44. Grazie

07.07.2020 - 17:33

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Rita. Può lavorare con i ferri dritti e in parti separate, avviando, a seconda della taglia, 87 (95-103) m per il davanti e 89 (97-105) m per il dietro. Per individuare la taglia corretta, può fare riferimento allo schema con le misure in fondo alle spiegazioni. Buon lavoro!

07.07.2020 - 21:36

country flag Nancy Danbury skrifaði:

I’m confused with how to proceed with a pattern after the beginning 3 seed stitch rows. Using the M arrow on the chart, do I (knit 2, p1, k1, p1) and repeat? Wish I could have a translation of what the other questions/answers were. Love this design! Thank you for any help.

26.06.2020 - 04:41

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Danbury, in size M you start at the arrow (= K2, P1, K1, P1, K2) then repeat the whole diagram from the right towards the left (= K3, P1, K1, P1, K2) to the end of the round and end round with the first stitch (= K1) of A.1. There will be the first repeat over 7 sts + 11 repeats = 95 sts for front piece and 12 repeats +1 stitch for back piece = 97 sts. Happy knitting!

26.06.2020 - 07:34

country flag Ribault Martine skrifaði:

Bonjour, je reviens sur les 1ère augmentations. Si j\'ai bien compris les explications, en tout il faut faire 4 augment sur un même tour, après la bordure des 3 rang au point de riz, 2+2= devant & dos en début et fin de chaque côté près des marqueurs et ce tous les 5 cm. Ce qui fait au total 8 augment et 8 m en +. Est-ce exact ? Dans ce cas, est-ce que je fais la 1ère augment avant la 2ème m du diagramme Taille M? C\'est-à-dire la 2ème m du diagramme ? Merci pour votre réponse.

24.06.2020 - 20:19

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ribault, vous augmentez effectivement 4 m à chaque fois (2 pour le devant/2 pour le dos) - en taille M vous commencez à la flèche = vous tricotez la 1ère augmentation au début du tour en jersey (= comme la 1ère maille du diagramme - la 2ème sera comme la dernière m du diagramme, la 3ème comme l'avant-dernière m du diagramme etc...) - avant le marqueur à la fin du devant/dos, tricotez la 1ère augmentation comme la 1ère m du diagramme, la 2ème comme la 2ème et ainsi de suite. Le nombre de motif augmente de chaque côté - mais au milieu du côté, les motifs ne se suivent plus. Bon tricot!

25.06.2020 - 08:59

country flag Ribault Martine skrifaði:

Bonjour, Je ne vois pas comment réaliser ce modèle tricoté en rond, en respectant les explications du diagramme (Taille M) que vous m'avez adressés dernièrement. Sachant qu'après les 3 rangs de la bordure en point de riz, il faut commencer les 1ère augmentations, 4 x 1m tous les 5 cm, tout en continuant le point fantaisie. Ces augmentations me bloque pour poursuive. Est-ce qu'il est possible de réaliser ce modèle avec des aiguilles traditionnelles et comment faire ? Cdlt

21.06.2020 - 19:23

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ribault, vous trouverez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

22.06.2020 - 08:36

country flag Ribault Martine skrifaði:

Bonjour, désolé 🙏 de vous inonder de questions pour la réalisation de ce modèle. J\'ai une dernière question concernant les augmentations. Est ce qu\'il faut utiliser la technique de la vidéo \"Comment augmenter avec le fil du rang précédent\"? Merci pour l\'ensemble des réponses que vous voudrez bien apporter aux questions que je vous ai posées depuis le 18 juin et restées sans réponses pour l\'instant. Cdlt Ribault

20.06.2020 - 18:31

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ribault, vous pouvez également augmenter de cette façon, tout à fait, essayez si elle vous convient mieux ainsi. Rappelez-vous que pour toute assistance personnalisée (et plus rapide), vous pouvez directement vous adresser à votre magasin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

22.06.2020 - 08:20

country flag Ribault Martine skrifaði:

Bonjour, Je rencontre des difficultés pour les augmentations après la bordure des 3 rang au point de riz. Tout de suite après continuer avec le point fantaisie & de suite faire les 1ère augmentations : 1 m de chaque côté de chaque marqueur, 4 fois tous les 5 cm (208 m Taille M). A partir de quelle m JERSEY je fais la 1ère, 2ème 3ème & 4ème augmentation d'après le détail de vos dernières explications du diagramme Taille M ? Merci pour votre réponse. Cdlt Ribault

20.06.2020 - 18:23

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ribault, placez un marqueur de chaque côté = 1 au début du tour + 1 après la moitié des mailles, et tricotez vos augmentations ainsi: 1 augmentation, marqueur, maille du début du tour/moitié du tour, 1 augmentation. Tricotez ensuite vos augmentations de sorte que le motif soit toujours une alternance de 5 m jersey/3 m point de riz. - gardez la maille sur le côté en jersey. Bon tricot!

22.06.2020 - 08:19

country flag Ribault Martine skrifaði:

Bonjour, au vu des difficultés rencontrées pour faire les augmentations et tout en continuant le point fantaisie, est-ce qu'il serait possible de m'envoyer par mail l'ensemble du diagramme Taille M avec augmentations de chaque côté, de chaque marqueur ? Ce serait plus facile de visualiser l'emplacement des augmentations tous les 5 cm. Je rappelle que je n'ai jamais tricoté en rond et donc pour les augmentations ça quoince ! Merci pour votre réponse. Cdlt Ribault

20.06.2020 - 18:18

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ribault, nous n'avons pas d'autre diagramme que celui que vous avez à votre disposition. Mesurez 5 cm sur votre ouvrage pour compter le nombre de tours/rangs correspondant et prenez ce nombre en base pour vos augmentations. Tricotez les augmentations de sorte que le motif soit en continu sur le devant/le dos - sur les côtés, le motif ne pourra plus tomber juste, c'est normal. Bon tricot!

22.06.2020 - 08:17

country flag Ribault Martine skrifaði:

Bonjour, Je rencontre des difficultés pour les augmentations après la bordure des 3 rang au point de riz. Tout de suite après continuer avec le point fantaisie & de suite faire les 1ère augmentations : 1 m de chaque côté de chaque marqueur, 4 fois tous les 5 cm (208 m Taille M). A partir de quelle m JERSEY je fais la 1ère, 2ème 3ème & 4ème augmentation d'après le détail de vos dernières explications du diagramme Taille M ? Merci pour votre réponse. Cdlt Ribault

20.06.2020 - 18:05

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ribault, vous pouvez augmenter de chaque côté d'une maille sur les côtés par ex: 1 augm, 1 m, 1 augm. Tricotez les nouvelles mailles côté devant et dos de sorte que le motif continue sur le devant/le dos, mais ils ne se suivront naturellement plus sur les côtés. Bon tricot!

22.06.2020 - 08:14

country flag Ribault Martine skrifaði:

Bonjour, j'ai reproduit dans son ensemble le diagramme sur une feuille quadrillée pour la taille M, d'après vos dernières explications. J'ai constaté qu'il y avait x11 motif complet et 1 motif sur les 7 1ères m du 1er rang. Est-ce exact ? Donc 12 motif du point fantaisie pour le devant (95 m) en tout. Et x12 motif complet pour le dos (=97 m). Je vous remercie de bien vouloir me confirmer si j'ai compris vos explications. Cdlt Ribault

20.06.2020 - 01:37

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ribault, tout à fait, vous avez obtenu la description de la réponse du 18.06. Bon tricot!

22.06.2020 - 07:35