Dea skrifaði:
Scusate intendevo ...(51-52). Ho digitato male dal cellulare. :(
14.06.2025 - 17:18
Dea skrifaði:
Ciao, nell'ultima frase della spiegazione del davanti manca un numero della lunghezza finale. C'è scritto ". .il lavoro misura (51-42)" , manca il numero 50 che è la lunghezza della taglia più piccola.
14.06.2025 - 17:16
CHARLES Sylvie skrifaði:
Bonjour. Je ne vois pas le nombre de pelotes qu'il me faut pour la taille L ?
20.05.2025 - 15:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Charles, vous trouverez les quantités requises pour chaque taille, au poids, dans l'entête, sous l'onglet "Explications"; autrement dit, il faut ici en L: 350 g DROPS Muskat/50 g la pelote= 7 pelotes Muskat en taille L. Bon tricot!
20.05.2025 - 15:55
Gosset skrifaði:
Très beau modèle
30.04.2025 - 11:10
Gosset skrifaði:
Très beau modèle
30.04.2025 - 11:09
Guylaine Belzile skrifaði:
Je voulais faire une commande et j'ai vu que le site nous amène à un lien qui se trouve au Royaume-Uni. Y a t il un site Drops au Canada?
26.04.2025 - 22:36DROPS Design svaraði:
Bonjour, vous pouvez trouver ici tous les magasins qui vendent ou envoient au Canada. Bon tricot!
27.04.2025 - 12:35
Cinzia skrifaði:
Buongiorno, potrei cortesemente sapere la modella che taglia indossa ? Sono in dubbio se lavorare la M o la L perché non lo vorrei troppo aderente
26.04.2025 - 15:24DROPS Design svaraði:
Buonasera Cinzia, solitamente le modelle indossano la taglia M: in ogni caso può trovare le misure del capo finito alla fine della pagina. Buon lavoro!
27.04.2025 - 23:57
Con Hilo Y Agujas skrifaði:
Qué significa disminuir 1 pto x 5 cada 2da fila: 1 pto x 4?
03.10.2024 - 16:28
Carol skrifaði:
I’m viewing this pattern in English (American) but cannot read all comments because they are numerous languages. Isn’t there a way to translate for each country the user selects? It would make questions & answered easier for all.
04.09.2024 - 13:29
Carol skrifaði:
I printed this pattern in April 2018 and now would like to make it. My question, I do not see any updated corrections to the pattern online, are there any corrections? Thank you for your assistance. Carol from Michigan, USA.
24.08.2024 - 15:47DROPS Design svaraði:
Dear Carol, if there are any corrections, there will be a notification in red, right above the DIAGRAM. In this pattern, there have been no corrections. If you have any doubts while you work, you can always check the online version, which shows the corrected version already. Happy knitting!
25.08.2024 - 22:40
Summer Charm |
|||||||
|
|||||||
Stuttur toppur úr DROPS Muskat. Stærð S-L.
DROPS 60-13 |
|||||||
GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚRTAKA: Fellið af frá réttu þannig: Á undan 3 kantlykkjum: 2 lykkjur slétt saman. Á eftir 3 kantlykkjum: Takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fellið af frá röngu þannig: Á undan 3 kantlykkjum: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðnar saman. Á eftir 3 kantlykkjum: Prjónið 2 lykkjur brugðnar saman. ---------------------------------------------------------- TOPPUR: Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 176 (192-208) lykkjur á hringprjón 4 með hvítu og prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan 3 umferðir PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, framstykki = 87 (95-103) lykkjur, bakstykki = 89 (97-105) lykkjur. Prjónið mynstur og byrjið við ör í mynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT á eftir perluprjóni í kanti er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin 4 sinnum í 5. hverjum cm = 192 (208-224) lykkjur, framstykki = 95 (103-111) lykkjur, bakstykki = 97 (105-113) lykkjur. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar inn í mynstur jafnóðum. Þegar stykkið mælist 27 (28-28) cm eru prjónaðar 3 umferðir með perluprjóni yfir 6 (6-7) lykkjur hvoru megin við prjónamerkin, fellið síðan af 3 (3-4) lykkjur fyrir handveg hvoru megin við prjónamerkin og prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka – framstykki = 89 (97-103) lykkjur, bakstykki = 91 (99-105) lykkjur. FRAMSTYKKI: = 89 (97-103) lykkjur. Fellið nú af fyrir handveg – sjá ÚRTAKA! – innan við 3 kantlykkjum (þessar lykkjur eru prjónaðar upp úr með perluprjóni) á hvorri hlið í hverri umferð: 1 lykkja 5 (5-8) sinnum, í annarri hverri umferð: 1 lykkja 4 sinnum og í 4. hverri umferð: 1 lykkja 2 sinnum = 67 (75-75) lykkjur. Þegar stykkið mælist 37 (37-37) cm prjónið 3 umferðir með perluprjóni yfir miðju 15 (23-23) lykkjur, fellið síðan af miðju 9 (17-17) lykkjurnar fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við háls – sjá ÚRTAKA! – innan við 3 kantlykkjur (þessar lykkjur með perluprjóni eru prjónaðar allan tímann upp úr) í hverri umferð: 1 lykkja 6 sinnum, í annarri hverri umferð: 1 lykkja 2 sinnum og í 4. hverri umferð: 1 lykkja 2 sinnum. Fellið af þegar stykkið mælist 50 (51-52) cm. BAKSTYKKI: = 91 (99-105) lykkjur. Fellið af fyrir handveg innan við 3 kantlykkjum eins og á framstykki = 69 (77-77) lykkjur. Þegar stykkið mælist 47 (48-49) cm prjónið 3 umferðir með perluprjóni yfir miðju 33 (41-41) lykkjurnar, fellið síðan af miðju 27 (35-35) lykkjurnar af fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við háls – sjá ÚRTAKA! – innan við 3 kantlykkjur (þessar lykkjur með perluprjóni eru prjónaðar allan tímann upp úr) í hverri umferð: 1 lykkja 2 sinnum. Fellið af þegar stykkið mælist 50 (51-52) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. HEKLAÐUR KANTUR Í HÁLSI: Heklið kant í kringum hálsmál frá réttu með heklunál 2 og hvítu þannig: UMFERÐ 1: 1 fastalykkja, * 4 loftlykkjur yfir 2 prjónaðar lykkjur, 1 keðjulykkja í gegnum 3 prjónaðar lykkjur *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: * 4 fastalykkjur í kringum loftlykkjuboga, 1 keðjulykkja í keðjulykkju frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-*. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 60-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.