Suisse M skrifaði:
Je ne comprends pas comment faire le rang 22 J'ai 96 mailles et si je fais une fleur toutes les 6 brides j'aurai plus que 8 fleurs Merci pour votre aide M
28.07.2019 - 13:59DROPS Design svaraði:
Bonjour! Le diagramme A.1 est travaille sur 12 brides, la ou vous avez 2 brides travailles ensemble sera une fleur. Le rapport sera repete 8 fois (12x8=96 mailles), dans chaque rapport est une fleur, dont vous avez 8 fleur au total. Bon crochet!
29.07.2019 - 17:59
Elvira Halicki skrifaði:
Gibt es die Anleitungen auch als Pdf
15.07.2019 - 10:21DROPS Design svaraði:
Liebe Halicki, die Anleitung können Sie einfach ausdrücken, und einer virtuellen Drucker wählen, um als PDF zu speichern. Viel Spaß beim häkeln!
15.07.2019 - 11:28
Flower Market Bag#flowermarketbag |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska fyrir börn úr DROPS Paris. Stykkið er heklað í hring frá botni og upp með röndum og blómum.
DROPS Children 35-6 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju. Þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan hekluð í umferð þannig: Stingið heklunálinni í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í 1 LYKKJU: Heklið einn stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni). Heklið einn stuðul til viðbótar í sömu lykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 stuðlar heklaðir saman í 1 lykkju). RENDUR: Loftlykkjuhringurinn í byrjun á umferð + UMFERÐ 1-4: turkos UMFERÐ 5-7: ljós turkos UMFERÐ 8-10: fjólublár UMFERÐ 11-13: kirsuberjarauður UMFERÐ 14-16: appelsínugulur UMFERÐ 17-19: sinnep UMFERÐ 20-22: wasabi UMFERÐ 23-25: ópalgrænn UMFERÐ 26: turkos ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, frá miðju á botni og upp. TASKA: Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum turkos, tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan og stuðla þannig: UMFERÐ 1: Heklið 11 stuðla um hringinn – sjá HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 22 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 33 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 44 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5-8: Haldið áfram með útaukningu og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. í hverri umferð er heklaður 1 stuðull fleiri á milli útaukninga = 88 stuðlar. UMFERÐ 9: Heklið stuðla og aukið út um 9 stuðla jafnt yfir í umferð = 97 stuðlar. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul þar til heklaðir hafa verið alls 21 umferð frá byrjun og heklið næstu umferð þannig: UMFERÐ 22: Heklið 2. umferð í A.1 + A.2 (blóm) þannig: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, ** Heklið 1 stuðul í hvern af næstu 5 stuðlum, heklið 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í 1 LYKKJU – sjá útskýringu að ofan og um þessa stuðla er heklað A.2 (= blóm) þannig (sjá ör í A.2, hér byrjar blómið): Um síðasta stuðul sem er heklaður í A.1 er heklað þannig: * Heklið 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, síðan er heklað um næst síðasta stuðul sem er heklaður í A.1 þannig: ** Heklið 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, heklið 1 loftlykkju, heklið síðan A.1 þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af næstu 6 stuðlum **. Heklið frá **-** í kringum alla umferðina = 8 blóm. (Það á að hekla síðar utan um lykkjubogana á blómunum með mismunandi litum (= A.3). UMFERÐ 23: Heklið 3. umferð í A.1 þannig: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul. ** Heklið 1 stuðul í hvern af næstu 5 stuðlum, heklið 1 stuðul um loftlykkju sem var hekluð eftir blóm, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 6 stuðlum **, heklið frá **-** umferðina hringinn. Heklið nú áfram og það eru gerðar 2 axlarólar þannig: UMFERÐ 24: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, * Heklið 24 stuðla, heklið loftlykkjur þar til loftlykkjuröðin mælist ca 40 cm (= axlaról), hoppið yfir 24 stuðla *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul. UMFERÐ 25: * Heklið 1 stuðul í hvern af 22 stuðlum, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju á axlarólinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul. UMFERÐ 26: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul umferðina hringinn. Klippið frá og festið enda. BLÓM: Um hvern loftlykkjuboga sem er heklaður í A.2 (= 4 loftlykkjur) er heklað A.3 í mismunandi litum – sjá útskýringu að neðan. Þegar A.3 hefur verið heklað utan um alla 5 loftlykkjubogana í 1 blómi, klippið frá, hnýtið endana saman og festið þráðinn. Blómin eru hekluð í mismunandi litum, í sömu röð og á töskunni. Það er að segja: BLÓM 1 = turkos BLÓM 2 = ljós turkos BLÓM 3 = fjólublár BLÓM 4 = kirsuberjarauður BLÓM 5 = appelsínugulur BLÓM 6 = sinnep BLÓM 7 = wasabi BLÓM 8 = ópalgrænn LAUS BLÓM: Heklið laus blóm þannig: Heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 og í eftirfarandi litum: 1. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + 1. umferð: turkos. 2. umferð: ljós turkos. 2. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + 1. umferð: ljós turkos. 2. umferð: fjólublár. 3. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + 1. umferð: fjólublár. 2. umferð: kirsuberjarauður. 4. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + 1. umferð: kirsuberjarauður. 2. umferð: appelsínugulur. 5. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + 1. umferð: appelsínugulur. 2. umferð: sinnep. 6. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + 1. umferð: sinnep. 2. umferð: wasabi. 7. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + 1. umferð: wasabi. 2. umferð: ópalgrænn. 8. blóm: Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + 1. umferð: ópalgrænn. 2. umferð: turkos. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #flowermarketbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 35-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.