Glagau Angelika skrifaði:
Werden im diagramm nur die hinreihen angezeigt
13.05.2019 - 20:28DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Glagau, alle Reihen werden im Diagram gezeigt, dh die Hin- sowie die Rückreihen. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!
14.05.2019 - 08:15
Josette DARNIS skrifaði:
Bonjour Dans les fournitures il est indiqué aiguilles n°7 alors que dans es explications du tricots il est indiqué prendre les aiguillez n° 5,5. Quel numéro prendre ? Merci pour vos précisions.
09.05.2019 - 12:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Darnis, merci pour votre retour, nos stylistes vont vérifier et une correction sera faite. Bon tricot!
09.05.2019 - 14:16
Rossier skrifaði:
Peut on utiliser des aiguilles à une seule pointe pour vos modeles
07.05.2019 - 12:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Rossier, certains de nos modèles se tricotent en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour toutes les mailles, comme c'est le cas ici du dos et du devant, dans ce modèle, seules les manches se tricotent en rond. Vous trouverez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
07.05.2019 - 13:28
Cheryl Casamassa skrifaði:
I tried to print the Freedom Found sweater pattern. Only page one will print. Any help is appreciated.
06.05.2019 - 22:43DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Casamassa, check out your printer settings, so that all pages will be printed, printer might have saved previously only page 1. Happy knitting!
07.05.2019 - 09:20
MARINELLA skrifaði:
BELLISSIMO!!! ADATTO A TUTTE LE ETA' E TUTTE LE TAGLIE...COMPLIMENTI!
28.02.2019 - 08:35
Christine skrifaði:
Beau modèle, intéressant, nouveau, beau chandail facile à porter
31.01.2019 - 14:40
Luja skrifaði:
Sowas habe ich gerade diese Woche gesucht... Ich finde den Pulli Klasse
19.01.2019 - 21:01
Eva skrifaði:
Den likte jeg - flott sommergenser
11.01.2019 - 16:40
Eva Almstrand skrifaði:
Swing
11.01.2019 - 12:22
Sylke skrifaði:
Veldig moderne
05.01.2019 - 18:37
Freedom Found#freedomfoundsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með áferð í vinkil, með V-hálsmáli, ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-23 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚRTAKA (á við um bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja garðaprjón. ÚTAUKNING (á við um hliðar á bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í hlutum og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAMSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 33-35-39-43-45-49 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.1a (= 3 lykkjur), endurtakið A.1b þar til 1 lykkja er eftir (= 14-15-17-19-20-22 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir er haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT í næstu umferð eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 25-27-31-31-35-37 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu. Prjónið yfir fyrstu 17-19-21-21-23-25 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu. Prjónið yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu. Prjónið síðan yfir allar 33-35-39-43-45-49 lykkjur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm mælt meðfram stystu hliðinni, þ.e.a.s. að hálsi (= ca 19-20-21-22-23-24 cm að handveg), endið eftir eina umferð prjónuð frá röngu. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 33-35-39-43-45-49 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.1a (= 3 lykkjur), endurtakið A.1b þar til 1 lykkja er eftir (= 14-15-17-19-20-22 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir er haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT í næstu umferð eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá röngu: Prjónið yfir fyrstu 25-27-31-31-35-37 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu. Prjónið yfir fyrstu 17-19-21-21-23-25 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu. Prjónið yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu. Prjónið síðan yfir allar 33-35-39-43-45-49 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm mælt meðfram stystu hliðinni, þ.e.a.s. að hálsi (= ca 19-20-21-22-23-24 cm að handveg) – stillið af eftir hægri öxl, endið eftir eina umferð prjónuð frá röngu. Klippið frá. FRAMSTYKKI: Setjið hægri öxl á sama hringprjón 5,5 og vinstri öxl – passið uppá að stuttu umferðirnar séu í hvorri hlið á stykki og að stystu hliðarnar snúi að hálsmáli = 66-70-78-86-90-98 lykkjur. Prjónið nú hægri öxl saman við vinstri öxl þannig – frá réttu: Fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir handveg, prjónið A.1b yfir næstu 32-34-38-42-44-48 lykkjur (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið 1 lykkju í sléttprjóni (= hægri öxl), fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= miðju stykki), haldið áfram yfir vinstri öxl þannig: Prjónið A.1b yfir fyrstu 32-34-38-42-44-48 lykkjurnar (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið 1 lykkju í garðaprjóni og endið með að fitja upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir handveg (= vinstri öxl) = 79-83-91-99-107-115 nýjar lykkjur. Prjónið umferð til baka frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.2a yfir næstu 2 lykkjur, prjónið A.1b yfir næstu 24-26-30-34-38-42 lykkjur (= 12-13-15-17-19-21 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.2c yfir næstu 9 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 7 lykkjur (= miðju stykki), prjónið A.4a yfir næstu 9 lykkjur, prjónið A.4b yfir næstu 24-26-30-34-38-42 lykkjur (= 12-13-15-17-19-21 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.4c yfir næstu 2 lykkjur og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur verið aukið út um 4 lykkjur = 83-87-95-103-111-119 lykkjur í umferð. Endurtakið þetta mynstur, fyrir hvert skipti sem A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð 1 mynstureining fleiri af A.2b og A.4b á breiddina. Prjónið þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm beint upp frá miðju stykki, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur frá réttu. BAKSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 33-35-39-43-45-49 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca +1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.1b yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum). Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir er haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT í næstu umferð eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá röngu þannig: Prjónið yfir fyrstu 25-27-31-31-35-37 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu. Prjónið yfir fyrstu 17-19-21-21-23-25 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu. Prjónið yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu. Prjónið yfir allar 33-35-39-43-45-49 lykkjur, snúið og prjónið til baka frá réttu. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 33-35-39-43-45-49 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca +1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið A.1b þar til 1 lykkja er eftir (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 1 lykkju garðaprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir er haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT í næstu umferð eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 25-27-31-31-35-37 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu. Prjónið yfir fyrstu 17-19-21-21-23-25 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu. Prjónið yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu. Prjónið yfir allar 33-35-39-43-45-49 lykkjur, snúið og prjónið til baka frá röngu. Klippið ekki frá! BAKSTYKKI: Setjið hægri öxl á sama hringprjón 5,5 og vinstri öxl – passið uppá að stuttar umferðir séu í hvorri hlið á stykki og að stystu hliðarnar snúi að hálsmáli = 66-70-78-86-90-98 lykkjur. Prjónið nú vinstri öxl saman við hægri öxl þannig – frá réttu: Prjónið A.1b þar til 1 lykkja er eftir á vinstri öxl (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið 1 lykkju garðaprjón, fitjið upp 17-17-17-19-19-19 nýjar lykkjur á prjóninn (= hálsmál), prjónið A.1b þar til 1 lykkja er eftir á hægri öxl (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 1 lykkju garðaprjón. Í næstu umferð eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. Haldið áfram með þetta mynstur, jafnframt er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 1-1-2-2-4-4 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 5-4-4-5-3-3 sinnum = 71-77-83-91-95-103 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm meðfram öðrum handveg eru fitjaðar upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir handveg = 79-85-91-99-107-115 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6-5½-6-6-9-12 cm millibili alls 7-8-7-7-5-4 sinnum = 93-101-105-113-117-123 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl (að hálsi) og niður. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Fitjið upp 32-34-36-36-38-40 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið A.1b (= 2 þræðir) umferðina hringinn. Prjónið alls 4 umferðir. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón hringinn – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-9-8-8-8-9 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undirermi – sjá ÚTAUKNING að ofan. Aukið svona út með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 12-13-13-15-15-16 sinnum = 56-60-62-66-68-72 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón án úrtöku þar til stykkið mælist 42-41-40-37-36-34 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkið merkir hvar ermin er saumuð í handveg. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-44-43-41-39-38 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaum innan við uppfitjunarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Prjónamerkin á ermum á að passa við botn í handvegi. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freedomfoundsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.