DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8736.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Freedom Found

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með áferð í vinkil, með V-hálsmáli, ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 201-23

#freedomfoundsweater

DROPS Design: Mynstur z-844
Garnflokkur A + C eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 2110, ljós gulur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-175-175-200-225 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með áferðamynstri og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
15 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 og 80 cm fyrir sléttprjón/áferð.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8736.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚRTAKA (á við um bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja garðaprjón.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í hlutum og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAMSTYKKI:
HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp 33-35-39-43-45-49 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.1a (= 3 lykkjur), endurtakið A.1b þar til 1 lykkja er eftir (= 14-15-17-19-20-22 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 1 lykkju í garðaprjóni.
Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir er haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT í næstu umferð eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig:
Prjónið yfir fyrstu 25-27-31-31-35-37 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu.
Prjónið yfir fyrstu 17-19-21-21-23-25 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu.
Prjónið yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu.
Prjónið síðan yfir allar 33-35-39-43-45-49 lykkjur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm mælt meðfram stystu hliðinni, þ.e.a.s. að hálsi (= ca 19-20-21-22-23-24 cm að handveg), endið eftir eina umferð prjónuð frá röngu. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl.

VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp 33-35-39-43-45-49 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.1a (= 3 lykkjur), endurtakið A.1b þar til 1 lykkja er eftir (= 14-15-17-19-20-22 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 1 lykkju í garðaprjóni.
Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir er haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT í næstu umferð eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá röngu:
Prjónið yfir fyrstu 25-27-31-31-35-37 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu.
Prjónið yfir fyrstu 17-19-21-21-23-25 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu.
Prjónið yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu.
Prjónið síðan yfir allar 33-35-39-43-45-49 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm mælt meðfram stystu hliðinni, þ.e.a.s. að hálsi (= ca 19-20-21-22-23-24 cm að handveg) – stillið af eftir hægri öxl, endið eftir eina umferð prjónuð frá röngu. Klippið frá.

FRAMSTYKKI:
Setjið hægri öxl á sama hringprjón 5,5 og vinstri öxl – passið uppá að stuttu umferðirnar séu í hvorri hlið á stykki og að stystu hliðarnar snúi að hálsmáli = 66-70-78-86-90-98 lykkjur.
Prjónið nú hægri öxl saman við vinstri öxl þannig – frá réttu:
Fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir handveg, prjónið A.1b yfir næstu 32-34-38-42-44-48 lykkjur (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið 1 lykkju í sléttprjóni (= hægri öxl), fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= miðju stykki), haldið áfram yfir vinstri öxl þannig: Prjónið A.1b yfir fyrstu 32-34-38-42-44-48 lykkjurnar (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið 1 lykkju í garðaprjóni og endið með að fitja upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir handveg (= vinstri öxl) = 79-83-91-99-107-115 nýjar lykkjur. Prjónið umferð til baka frá röngu.
Prjónið síðan þannig – frá réttu:
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.2a yfir næstu 2 lykkjur, prjónið A.1b yfir næstu 24-26-30-34-38-42 lykkjur (= 12-13-15-17-19-21 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.2c yfir næstu 9 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 7 lykkjur (= miðju stykki), prjónið A.4a yfir næstu 9 lykkjur, prjónið A.4b yfir næstu 24-26-30-34-38-42 lykkjur (= 12-13-15-17-19-21 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.4c yfir næstu 2 lykkjur og endið með 1 lykkju í garðaprjóni.
Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur verið aukið út um 4 lykkjur = 83-87-95-103-111-119 lykkjur í umferð.
Endurtakið þetta mynstur, fyrir hvert skipti sem A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð 1 mynstureining fleiri af A.2b og A.4b á breiddina. Prjónið þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm beint upp frá miðju stykki, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur frá réttu.

BAKSTYKKI:
HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp 33-35-39-43-45-49 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca +1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.1b yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum).
Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir er haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT í næstu umferð eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá röngu þannig:
Prjónið yfir fyrstu 25-27-31-31-35-37 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu.
Prjónið yfir fyrstu 17-19-21-21-23-25 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu.
Prjónið yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu.
Prjónið yfir allar 33-35-39-43-45-49 lykkjur, snúið og prjónið til baka frá réttu. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl.

VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp 33-35-39-43-45-49 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca +1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið A.1b þar til 1 lykkja er eftir (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 1 lykkju garðaprjón.
Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir er haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT í næstu umferð eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig:
Prjónið yfir fyrstu 25-27-31-31-35-37 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu.
Prjónið yfir fyrstu 17-19-21-21-23-25 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu.
Prjónið yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu.
Prjónið yfir allar 33-35-39-43-45-49 lykkjur, snúið og prjónið til baka frá röngu.
Klippið ekki frá!

BAKSTYKKI:
Setjið hægri öxl á sama hringprjón 5,5 og vinstri öxl – passið uppá að stuttar umferðir séu í hvorri hlið á stykki og að stystu hliðarnar snúi að hálsmáli = 66-70-78-86-90-98 lykkjur.
Prjónið nú vinstri öxl saman við hægri öxl þannig – frá réttu:
Prjónið A.1b þar til 1 lykkja er eftir á vinstri öxl (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið 1 lykkju garðaprjón, fitjið upp 17-17-17-19-19-19 nýjar lykkjur á prjóninn (= hálsmál), prjónið A.1b þar til 1 lykkja er eftir á hægri öxl (= 16-17-19-21-22-24 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 1 lykkju garðaprjón. Í næstu umferð eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. Haldið áfram með þetta mynstur, jafnframt er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 1-1-2-2-4-4 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 5-4-4-5-3-3 sinnum = 71-77-83-91-95-103 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm meðfram öðrum handveg eru fitjaðar upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir handveg = 79-85-91-99-107-115 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6-5½-6-6-9-12 cm millibili alls 7-8-7-7-5-4 sinnum = 93-101-105-113-117-123 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl (að hálsi) og niður. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ERMI:
Fitjið upp 32-34-36-36-38-40 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið A.1b (= 2 þræðir) umferðina hringinn. Prjónið alls 4 umferðir. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón hringinn – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-9-8-8-8-9 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undirermi – sjá ÚTAUKNING að ofan. Aukið svona út með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 12-13-13-15-15-16 sinnum = 56-60-62-66-68-72 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón án úrtöku þar til stykkið mælist 42-41-40-37-36-34 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkið merkir hvar ermin er saumuð í handveg. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-44-43-41-39-38 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaum innan við uppfitjunarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Prjónamerkin á ermum á að passa við botn í handvegi.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.06.2019
Leiðrétting - BAKSTYKKI, HÆGRI ÖXL: Prjónið yfir allar 33-35-39-43-45-49 lykkjurnar, snúið og prjónið til baka frá réttu. Leiðrétting - FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn.
Yfirfarið á vefsvæði: 02.03.2021
ERMI: ... Aukið svona út 3.-2½.-2½.-2.-2.-1½ hverjum cm alls 12-13-13-15-15-16 sinnum = 56-60-62-66-68-72 lykkjur...

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
brugðið frá réttu, slétt frá röngu = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
Diagram for DROPS 201-23
Diagram for DROPS 201-23
Diagram for DROPS 201-23

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freedomfoundsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Lydia skrifaði:

Hallonochmal, die Hin- und Rückreihen sind hier etwas unklar. ich habe die Hin und Rückreihen entweder vertauscht oder sie sind bei a.4a und a.4c vertauscht worden,habe ich jetzt geändert, die Hinreihen bei a.4a und a.4c sind nicht rechts gestrickt sondern Muster a.1b, ansonsten kommt es nicht hin. Nund hebt sih auch der Mittelteil heraus. Grüße

27.07.2020 - 08:13

DROPS Design svaraði:

Liebe Lydia, Sie stricken beim Zusammensetzen der Teile 2 Reihen von A.1b, also 1 Hin-Reihe und 1 Rück-Reihe. Mit A.2, A.3 und A.4 beginnen Sie dann wieder mit der Hin-Reihe, daher sollte das eigentlich passen. Alle Diagramme beginnen dabei mit 1 Reihe glatt rechts ohne Strukurmusterung. A.2a und A.4c haben in der ersten Reihe einen Zunahme-Umschlag zwischen den beiden Maschen, vielleicht haben Sie das falsch interpretiert? Gutes Gelingen!

27.07.2020 - 10:30

country flag Lydia skrifaði:

Hallo, leider gleicht der mittlere Teil unterm Halsausschnitt nicht dem auf dem Foto. (7 m rechts, 9 m r, 7 r) auf dem Foto wirkt es strukturrell,bei mir eben/glatt. Könnte es sein,dass der Pulli auf dem Foto nicht 1:1 der aus der Strickanleitung ist; denn der Mittelteil hebt sich bei mir nicht heraus. Vielen Dank für eine Antwort,Grüße

26.07.2020 - 18:04

DROPS Design svaraði:

Liebe Lydia, den mittleren Teil des Vorderteils stricken Sie wie folgt: A.2c über 9 Maschen, A.3 über 7 Maschen (= Halsausschnitt) A.4a über 9 Maschen. A.3 wird dabei nicht glatt rechts gestrickt, sondern ist auch das Strukturmuster, d.h. abwechselnd wird 1 Reihe rechts und 1 Reihe mit 1 Masche rechts + 1 Masche links gestrickt. Gutes Gelingen weiterhin!

27.07.2020 - 10:05

country flag Valerie Deyde skrifaði:

Bonjour comment peux t on avoir un fond en v alors que les rangs raccourci c au niveau des épaules merci

20.01.2020 - 16:00

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Deyde, c'est en tricotant le bas du pull, après l'encolure (jeu d'augmentations et de diminutions) que l'on va former cette échancrure en bas du devant du pull. Bon tricot!

20.01.2020 - 16:16

country flag Carina skrifaði:

Hej! I mönstret på nätet står det stickor nr. 7 men jag har gjort tröjan tidigare och på min utskrift står det 5,5 och den blev ju bra. Är det fel på nätet?

05.01.2020 - 19:59

DROPS Design svaraði:

Hej Carina, det som är viktigt för att få måttet i måttskissen är att du får 15 maskor i bredden, om du stickar löst kan du göra det på stickor 5,5. Lycka till :)

15.01.2020 - 12:00

country flag Tantavan skrifaði:

Hei. Jeg har strikket forstykket og økt etter mønster til 95m. Skal jeg stoppe å øke nå, eller skal jeg forsette å øke? Slik at jeg får lik m antall som bakstykket?

26.11.2019 - 11:13

DROPS Design svaraði:

Hei Tantavan! På grunn av økning og felling i mønsteret på forstykket vil det være flere masker på forstykket enn på bakstykket. Det viktigste er at forstykket og bakstykket strikkes til den lengden som blir oppgitt i oppskriften. Lykke til!

27.11.2019 - 08:49

country flag Gundi skrifaði:

Welche Nadelstärke ist die richtige? Hab jetzt mit 7 mm gestrickt und es wird wahnsinnig riesig. Kann man das in der Anleitung ausbessern?

08.11.2019 - 13:37

DROPS Design svaraði:

Liebe Gundi, Sie brauchen eine Rundnadel Nr 7 oder die benötigte Größe um die Maschenprobe zu bekommen, hier lesen Sie mehr über Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!

08.11.2019 - 14:19

country flag Elisabeth skrifaði:

Bonjour, je débute et voudrais m'assurer avoir bien compris, le premier rang après avoir monter les mailles est l'envers du travail et pour le 1er rang endroit la succession de motifs A1a et A1b équivaut à un rang endroit? Par avance merci

04.10.2019 - 13:47

DROPS Design svaraði:

Bonjour Elisabeth, après avoir monté les mailles, vous tricotez 1 rangs en mailles envers = c'est l'envers de l'ouvrage. Vous tricotez ensuite sur l'endroit en suivant les diagrammes A.1a et b comme expliqué, le 1er rang de ces diagrammes se tricote sur l'endroit. plus d'infos sur les diagrammes ici. Bon tricot!

04.10.2019 - 14:31

country flag Annette skrifaði:

Hei! Ohjeessa mainitaan kahta eri puikkokokoa, ensin koko 7 ja sitten itse ohjeessa lukee puikkokokona 5.5. Kumpi mahtaa olla oikea?

20.09.2019 - 17:05

DROPS Design svaraði:

Hei! 7 mm ole oikea! Hyvää neuloa!

08.10.2019 - 21:18

country flag Henriette Gadeberg skrifaði:

Jeg er nået til forstykket, og har lige strikket første pind fra retten og fra vrangen. Nu skal jeg i gang med mønster A.2a osv skal jeg nu vende om på hvilken side jeg strikker mønster på? Umiddelbart ser det sådan ud, jeg har strikket ret/vrang på retsiden af de to forstykker, men første pind af A.2a ser ud til enten at være vrangsiden eller ren ret fra retsiden. Jeg er forvirret, kan I hjælpe?

23.08.2019 - 17:34

DROPS Design svaraði:

Hej Henriette, hvis du har strikket ret og vrang mønsteret på retpinden så skal du fortsætte med det, så må du hellere strikke en pind mere inden du starter med ind og udtagningerne. God fornøjelse!

30.09.2019 - 12:03

country flag Jost skrifaði:

Dann sind bei der Rückseite zwischen A.1a und A.1b 2 li. Maschen. Ist das dann richtig.

21.08.2019 - 15:33

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Jost, bei A.1a, A.1b (x 1 in der Breite) stricken Sie: Hinreihe: 3 M re (= A.1a), 2 M re (= A.1b) - bei der Rückreihe stricken Sie: 1 M li, 1 M re (= A.1b), 1 M li, 1 M re, 1 M li (= A.1a). Viel Spaß beim stricken!

21.08.2019 - 15:47