Patricia Rodrigues skrifaði:
Ola. Boa tarde. Onde está o A1? Parabéns pelo lindo modelo. Obrigada
19.03.2019 - 17:59DROPS Design svaraði:
Boa tarde, O diagrama A.1 encontra-se ao lado do esquema do pulôver. Bons tricôs!
22.03.2019 - 15:43
Mette skrifaði:
Hvor er diagram A1? Ser bare A2-A4 i oppskriften.
19.03.2019 - 10:46DROPS Design svaraði:
Hei Mette. Det har du rett i, vi skal få lastet opp diagram A.1 snarest. Takk for beskjed, og god fornøyelse
19.03.2019 - 13:34
Elfriede skrifaði:
Heel mooi hemels
27.01.2019 - 15:42
La Relaxeraie skrifaði:
J'adore cette douceur nordique
24.01.2019 - 16:42
Caticlam skrifaði:
La laine est déjà achetée, j'attends les explications avec impatience! Il renouvelle l'esprit irlandais
19.01.2019 - 14:39
Nicole GUTH skrifaði:
Mon préféré!
11.01.2019 - 17:30
Mariapaola skrifaði:
Semplice e raffinato, ispira leggerezza!
03.01.2019 - 15:50
Emma skrifaði:
Pull très sympa mais sans les grosses au milieu
03.01.2019 - 13:25
Barbara skrifaði:
Hab mal wieder Lust auf Muster; Warte auf die Anleitung!!
03.01.2019 - 11:50
My skrifaði:
Superbe modèle. Spring Snow
16.12.2018 - 18:32
Mountain Holiday#mountainholidaysweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað með gatamynstri, kúlum, köðlum og perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-28 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 102-120-120-132-144-156 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * A.1 (= 3 lykkjur), 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið stroff svona í 6 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 45-45-45-45-51-51 lykkjur) og stroff eins og áður yfir þær 57-75-75-87-93-105 lykkjur sem eftir eru. Prjónið þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 104-122-124-136-148-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið A.3 (= 47-47-49-49-55-55 lykkjur), prjónið 57-75-75-87-93-105 lykkjur sléttprjón – fækkið um 4-8-4-8-6-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 100-114-120-128-142-156 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 50-54-56-58-64-68 lykkjur, setjið 1 prjónamerki eftir næstu 47-53-57-61-69-75 lykkjur, nú eru 3-7-7-9-9-13 lykkjur fram að byrjun á umferð. Prjónamerkin merkja hliðar, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan eftir A.3 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm (stillið af þannig að næsta umferð sem er prjónuð sé umferð með gati í A.3) skiptist stykkið við prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 53-61-63-67-73-81 lykkjur. Byrjið í hlið frá réttu og prjónið fram og til baka með A.3 og sléttprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 41-45-47-49-53-57 lykkjur eins og áður og setjið síðustu 29-29-31-31-33-33 lykkjur eru prjónaðar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið þær 12-16-16-18-20-24 lykkjur eins og áður. Prjónið 1 umferð frá réttu yfir fyrstu 12-16-16-18-20-24 lykkjur eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið frá og setjið lykkjur á þráð. Prjónið 1 umferð frá réttu yfir síðustu 12-16-16-18-20-24 lykkjur í umferð eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið frá. Setjið til baka allar lykkjur á sama prjón = 53-61-63-67-73-81 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3-7-7-9-9-13 lykkjur sléttprjón – fækkið um 0-1-1-0-0-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.4 (= 47-47-49-49-55-55 lykkjur), endið með 3-7-7-9-9-13 lykkjur sléttprjón – fækkið um 0-1-1-0-0-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Prjónið þar til A.4 er lokið á hæðina = 51-57-57-63-69-75 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff þannig – frá réttu: * A.1 (= 3 lykkjur), 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með A.1 (= 3 lykkjur). Prjónið stroff svona í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (fellið e.t.v. af með grófari prjónum). Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm. BAKSTYKKI: = 47-53-57-61-69-75 lykkjur. Byrjið í hlið og prjónið fram og til baka í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 38-41-44-46-51-54 lykkjur eins og áður og setjið síðustu 29-29-31-31-33-33 lykkjur sem prjónaðar voru á þráð fyrir hálsmáli, prjónið þær 9-12-13-15-18-21 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir fyrstu 9-12-13-15-18-21 lykkjur eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið frá. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið 1 umferð frá réttu yfir síðustu 9-12-13-15-18-21 lykkjur í umferð eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið frá. Setjið allar lykkjur á hringprjón 8 = 47-53-57-61-69-75 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 4-4-0-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 51-57-57-63-69-75 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff þannig – frá réttu: * A.1 (= 3 lykkjur), 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með A.1 (= 3 lykkjur). Prjónið stroff svona í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (fellið e.t.v. af með grófari prjónum). Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm. ERMI: Fitjið upp 24-24-24-30-30-30 lykkjur á sokkaprjón 7 með 2 þráðum Air. Prjónið * 3 lykkjur slétt, A.1 (= 3 lykkjur) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið stroff svona í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-2-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 24-26-26-30-30-30 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjón 8. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6½-6½-5½-6-5-4 cm millibili alls 7-7-8-7-8-9 sinnum = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-50-50-48-46-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (fellið e.t.v. af með grófari prjónum). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, skiljið eftir 26-27-28-29-30-31 cm fyrir hálsmáli. Saumið ermar í. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mountainholidaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.