DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Algarve

Hekluð peysa með köðlum úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri, langri klauf í hliðum og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-4
DROPS Design: Mynstur sk-036
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-400-450-500-550 g litur 03, ljós beige

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

1 PUFFLYKKJA:
Heklið í sömu loftlykkju þannig (mikilvægt er að hekla í lykkjuna, ekki um lykkjuna): * Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum loftlykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum loftlykkjuna, hafið báða uppslættina langa (til að koma í veg fyrir að pufflykkjurnar verði of smáar og saman pakkaðar er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn eins langt og hægt er, þ.e.a.s. ca 2 cm) *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar.

MÆLING:
Vegna teygjanleika á garninu eru öll mál á lengdina tekin þegar stykkinu er haldið uppi þannig að stykkið verði ekki of langt þegar það er mátað.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju innan við 2 ystu lykkjurnar í hvorri hlið. Fækkið um 1 lykkju með því að hoppa yfir 1 lykkju. Það er erfitt að segja til um hvar úrtökurnar lenda í mynstri, en prufið að stilla þær af þannig að lykkjum sé fækkað í umferð með stuðlum/loftlykkjum (ekki í pufflykkjum).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka í stykkjum og heklað er ofan frá og niður þannig: Fyrst er hægri öxl hekluð fram með útaukningu fyrir hálsmáli, síðan er vinstri öxl hekluð fram með útaukningu fyrir hálsmáli áður en stykkið er heklað saman og heklað er fram og til baka yfir allar lykkjurnar til loka. Bakstykki er heklað alveg eins.
Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman áður en í lokin er heklaður kantur í hálsi.

HÆGRI ÖXL FRAM (þegar stykkið er mátað):
Heklið frá 28-36-36-44-44-52 loftlykkjum með heklunál 4,5 með Sky. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðull í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-26-26-32-32-38 stuðlar í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1C (= 6 stuðlar), heklið A.1B yfir næstu 12-18-18-24-24-30 lykkjur (= 2-3-3-4-4-5 lykkjur með 6 stuðlum), endið með A.1A (= 2 stuðlar). Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona þar til A.1 hefur verið heklað til loka, þ.e.a.s. síðasta umferð er hekluð frá röngu og það eru 22-28-28-34-34-40 stuðlar í umferð. Klippið frá, geymið stykkið og heklið vinstri öxl fram eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar stykkið er mátað):
Heklið 28-36-36-44-44-52 loftlykkjur með heklunál 4,5. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkjur frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-26-26-32-32-38 stuðlar í umferð.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1F (= 2 stuðlar), heklið A.1E yfir næstu 12-18-18-24-24-30 lykkjur (= 2-3-3-4-4-5 mynstureiningar með 6 stuðlum), endið með A.1D (= 6 stuðlar). Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona þar til A.1 hefur verið heklað til loka, þ.e.a.s. síðasta umferð er hekluð frá röngu og það eru 22-28-28-34-34-40 stuðlar í umferð. Klippið frá, en heklið 31-25-31-25-31-31 aðeins lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar síðustu umferðar frá röngu og festið loftlykkju umferð með 1 keðjulykkju í ystu lykkjuna við háls á hægri öxl fram (frá röngu). Klippið frá. Heklið nú stykkin saman við framstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Hægri og vinstri öxl að framan eru núna fastar við hvora aðra og það hafa verið heklaðar loftlykkjur fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan (= 75-81-87-93-99-111 lykkjur). Byrjið frá réttu á hægri öxl að framan og heklið þannig: Heklið A.2A (= 2 lykkjur), heklið A.2B yfir næstu 66-72-78-84-90-102 lykkjur (= 11-12-13-14-15-17 mynstureiningar með 6 lykkjur, þ.e.a.s. heklað er yfir lykkjur á hægri öxl, síðan loftlykkjur fyrir hálsmáli (hver loftlykkja er talin sem 1 stuðull) og síðan yfir lykkjur á vinstri öxl þar til 7 lykkjur eru efir í umferð), endið með A.2C (= 7 lykkjur) = 75-81-87-93-99-111 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona. Þegar A.2 hefur verið heklað einu sinni á hæðina er A.X endurtekið til loka.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-18-20-20-22-23 cm frá uppfitjunarkanti – sjá MÆLING, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg.
Heklið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 57-59-61-63-65-67 cm.
Endið framstykki með 1 umferð stuðlum – veldu eina umferð frá einni mynsturteikningu sem passar við þar sem þú ert í mynsturteikningu þannig að það verða 75-81-87-93-99-111 stuðlar í umferð. Klippið frá og festið enda. Framstykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 28-36-36-44-44-52 loftlykkjur með heklunál 4,5. Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-26-26-32-32-38 stuðlar í umferð. Klippið frá, geymið stykkið og heklið vinstri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 28-36-36-44-44-52 loftlykkjur á heklunál 4,5. Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-26-26-32-32-38 stuðlar í umferð. Í lokin á þessari umferð eru heklaðar 35-29-35-29-35-35 aðeins lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Festið loftlykkju umferðina með 1 keðjulykkju í ystu lykkjuna við hálsmál á hægri öxl aftan (frá réttu). Klippið frá. Heklið nú stykkin saman við bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Hægri og vinstri öxl aftan eru nú fastar saman og heklaðar hafa verið loftlykkjur fyrir hálsmáli mitt að aftan (= 75-81-87-93-99-111 lykkjur).
Byrjið frá röngu á hægri öxl aftan og heklið þannig: Heklið A.1G (= 7 stuðlar), heklið A.1B yfir næstu 66-72-78-84-90-102 lykkjur (= 11-12-13-14-15-17 mynstureiningar með 6 lykkjum, þ.e.a.s. heklað er yfir lykkjur á hægri öxl, síðan í loftlykkjur fyrir hálsmáli (hver loftlykkja er talin sem 1 stuðull) og síðan yfir lykkjur á vinstri öxl þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð), endið með A.1A (= 2 stuðlar) = 75-81-87-93-99-111 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er næsta umferð hekluð frá réttu þannig: Heklið A.2A (= 2 lykkjur), heklið A.2B yfir næstu 66-72-78-84-90-102 lykkjur (= 11-12-13-14-15-17 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.2C (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar A.2 hefur verið heklað einu sinni á hæðina er A.X endurtekið alveg eins og á framstykki.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-18-20-20-22-23 cm frá uppfitjunarkanti – munið eftir MÆLING setjið 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg.
Heklið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 57-59-61-63-65-67 cm – stillið af að heklað sé jafn langt og á framstykki. Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum alveg eins og á framstykki. Klippið frá og festið enda. Bakstykki mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Heklið 77-77-85-85-93-101 loftlykkjur á heklunál 4,5. Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í næstu loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* út umferðina = 57-57-63-63-69-75 stuðlar í umferð.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 4 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli + 1 loftlykkju), hoppið yfir 2 stuðla, * 2 stuðlar í bilið sem er á milli á undan 3 næstu stuðlum, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, hoppið yfir 2 stuðla og endið með 1 stuðul í síðasta stuðul = 57-57-63-63-69-75 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.2A (= 2 stuðlar), heklið A.2B yfir næstu 48-48-54-54-60-66 lykkjur (= 8-8-9-9-10-11 mynstureiningar með 6 stuðlum) og endið með A.2C (= 7 lykkjur). Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona þar til A.X hefur verið heklað alls 2 sinnum á hæðina (eða að óskaðri lengd).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum fækkar um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 10-10-10-10-6-6 cm millibili alls 3-3-3-3-6-6 sinnum í hvorri hlið = 51-51-57-57-57-63 lykkjur í umferð. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 40 cm í allar stærðir. Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í á milli prjónamerkis á fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og hliðarsaum í eitt – byrjið neðst niðri á ermi og saumið kanti í kant í ystu lykkju, en endið sauminn þegar eftir eru ca 24 cm í hvorri hlið á fram- og bakstykki = klauf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina og heklið með heklunál 4,5 þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð/loftlykkjubogi *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmál, endið umferð með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 fastalykkju + 2 loftlykkjum), * 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3: Heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, heklið 2 loftlykkjur (jafngilda 1 fastalykkju + 1 loftlykkju), * 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.02.2019
Leiðrétting á 1 PUFF LYKKJA:...alls 5 sinnum, bregðið bandi um heklunálina og dragið bandið í gegnum allar lykkjurnar.
Yfirfarið á vefsvæði: 16.08.2021
Leiðrétting: VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN:.. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1F (= 2 stuðlar), heklið A.1E yfir næstu 12-18-18-24-24-30 lykkjur (= 2-3-3-4-4-5 mynstureiningar með 6 stuðlum), endið með A.1D (= 6 stuðlar)...+ BAKSTYKKI:..Byrjið frá röngu á hægri öxl aftan og heklið þannig: Heklið A.1G (= 7 stuðlar)...

Mynstur

symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir eingöngu hvernig á að hekla næstu umferð í lykkjurnar
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli)
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkju
symbols = 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN UM LOFTLYKKJU/STUÐUL: Heklið 1 stuðul um loftlykkju/í stuðul, en bíðið með að bregða þræðina um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul um sömu loftlykkju/í sama stuðul og dragið þráðinn í gegnum allar 3 loftlykkjurnar á heklunálinni
symbols = hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, 1 loftlykkja, heklið 1 PUFFLYKKJU – sjá útskýringu í uppskrift – í loftlykkju sem hoppað var yfir (pufflykkjan krossar yfir stuðul á réttu á stykki)
symbols = hoppið yfir 1 pufflykkju + 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, 1 loftlykkja, heklið 1 pufflykkju í loftlykkju sem hoppað var yfir (pufflykkjan krossar yfir stuðul frá röngu á stykki)
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Chantale Gilbert wrote:

Mon premier patron drop design .....ouffff très difficile à comprendre

20.03.2023 - 02:49

country flag Gisely De Souza wrote:

Linda blusa,porem nao consegui fazer porque o grafico é complicado demais.

19.04.2022 - 23:14

country flag María Gabriela Báez Montes wrote:

Muchas gracias por las explicaciones para la elaboración de éste proyecto, muy fácil de seguir las indicaciones, y quedan hermosas las prendas, saludos desde México con cariño 💗

16.03.2022 - 23:44

country flag Catherine wrote:

Bonjour, je ne comprend pas très bien l'épaule gauche. Au troisième rand, je termine avec 3 brides au lieu de 2. Pourtant, je démarre avec 3m en l'air, 1 bride, 1m en l'air, 1 bride etc. Pouvez-vous me dire où est mon erreur SVP. Merci d'avance

09.05.2021 - 08:54

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, votre question a été transmise à nos stylistes qui vont examiner les diagrammes, merci d'avance pour votre patience.

10.05.2021 - 11:14

country flag Inger wrote:

Vad betyder ”ster” som står nämnt på flera ställen?

14.09.2020 - 05:44

DROPS Design answered:

Hej Inger. Det ska vara stolpar (inte ster). Texten har nu rättats, tack för info! Mvh DROPS Design

14.09.2020 - 07:27

country flag Ruth wrote:

If you follow A.1E, A.1B, A.1D for the left shoulder you end up with 2 chains together at one end of the A1B repeat depending on which direction travelled. This is on both the (triple followed by chain) and (2triple together chain) rows.

04.02.2020 - 16:14

DROPS Design answered:

Dear Ruth, thanks for your feedback, our design team will check diagrams!

05.02.2020 - 08:42

country flag Stephanie wrote:

Ja ik zie het beter, ik had die rij stokje niet moeten halen, nu heb ik op de schouderstukken 2 rijen stokjes. Euhm, uithalen doe ik niet want dat is moeilijk met Sky want het zit steeds vast. Zal het lelijk zijn die dubbele rij stokjes?

13.12.2019 - 20:37

DROPS Design answered:

Dag Stephanie,

Ik kan me voorstellen dat je het liever niet uithaalt, maar wat je mooi vindt is natuurlijk erg persoonlijk... Misschien een idee om ergens anders ook een extra rij stokjes te verwerken...? Dan lijkt het net alsof het zo hoort...;)

16.12.2019 - 15:56

country flag Stephanie wrote:

Hoi, Dat bedoel ik niet echt. De aller eerste rij zijn stokjes en dat wordt nergens vermeld. Waarom staan de stokjes dan in het patroon? Ik heb dus wel die stokjes gehaakt en daarna 1. Mijn vraag was kom ik dan goed uit?

13.12.2019 - 20:14

country flag Stephanie wrote:

1/1 Hoi, Ik ben het aan het maken met Sky, cotton light is te dik. Maar ik heb een vraag. Het voorpand nadat de lossen zijn gehaakt voor de hals en de schouderstukken vast zitten zeggen jullie:” Begin aan de goede kant op de rechterschouder en haak dan als volgt: Haak A.2A (= 2 steken), A.2B over de”. Maar als je naar het patroon kijkt moet je met A.2C beginnen en niet net A.2B. Dat kan niet want je begint altijd met 3 keerlossen en niet direct met een stokje...

08.12.2019 - 23:15

country flag Stephanie wrote:

2/2 Dus de eerste toer allemaal stokjes zoals patroon en dat heb ik aan de goede kant gehaakt en de volgende rij waar het met 1. Waar het patroon eigenlijk begint aan de verkeerde kant. Is dit juist? Want in de tekst staat hier niks over. Of had ik de eerste toer stokjes aan de verkeerde kant moeten beginnen en waar 1. begint aan de goede kant? Ik hoop dat ik goed zit anders moet ik uithalen en dat gaat niet makkelijk met Sky.

08.12.2019 - 23:12

DROPS Design answered:

Dag Stephanie,

De eerste toer is de toer waar het getal '1' naast staat. De toer met stokjes is reeds gehaakt en staat er bij zodat je kunt zien hoe de steken van toer 1 in de vorige toer gehaakt moeten worden.

12.12.2019 - 12:52