DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Footprints in the Sand

Prjónuð peysa með öldumynstri úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-3
DROPS Design: Mynstur as-110
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-150-175-175-200 g litur 04, ljós beige

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
Ca 18 lykkjur á breidd með öldumynstri = 10 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff/garðaprjón kant.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) mínus kanta að framan (= 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 36) = 3,38. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 124-132-140-156-172-180 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 3 cm með stroffi – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fækkað er um 36-38-40-44-50-50 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA (jafnt yfir) = 88-94-100-112-122-130 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón til baka frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur – veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð þannig: 1 kantlykkja með garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 5-8-11-13-18-22 lykkjurnar, A.1 yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, A.2 yfir næstu 57-57-57-63-63-63 lykkjur (= 3 mynstureiningar á breidd), A.3 yfir næstu 10-10-10-11-11-11 lykkjur, 5-8-11-13-18-22 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú mynstur – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 5-8-11-13-18-22 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 76-76-76-84-84-84 lykkjur (= 4 mynstureiningar á breidd), 5-8-11-13-18-22 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina er haldið áfram með mynstur þannig, þ.e.a.s. prjónað er í annað hvert skipti með A.1, A.2 og A.3 eins og útskýrt er í byrjun á stykki og í annað hvert skipti eru prjónaðar 4 mynstureiningar A.2 á breidd, þannig að öldumynstrið færist til í hvert skipti sem prjónuð er ein mynstureining á hæðina. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm frá uppfitjunarkanti (mælt frá þar sem stroff í byrjun á stykki beygist niður á við) fellið af fyrir ermum í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-2-2-3 sinnum og 1 lykkja 1-2-3-3-3-4 sinnum (= 5-8-9-11-15-18 lykkjur felldar af í hvorri hlið) = 78-78-82-90-92-94 lykkjur. Þegar handvegurinn mælist ca 13-14-15-16-17-18 cm frá þar sem affelling fyrir handveg byrjar (nú eru eftir ca 3 cm til loka) fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur af í umferð frá réttu, jafnframt eru 2 fyrstu og 2 síðustu lykkjur af þessum 26-26-28-28-30-30 lykkjum prjónaðar slétt saman áður en þær eru felldar af (= 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli) = 26-26-27-31-31-32 lykkjur fyrir öxl í hvorri hlið. Haldið áfram með eins margar mynstureiningar af mynstri og pláss er fyrir á breiddina og þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 25-25-26-30-30-31 lykkjur fyrir öxl. Þegar handvegur mælist 16-17-18-19-20-21 cm prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fækkað er um 2-2-3-3-3-2 lykkjur jafnt yfir = 23-23-23-27-27-29 lykkjur. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt.
Stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið mynstur og fellið af fyrir handveg alveg eins og á bakstykki = 78-78-82-90-92-94 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm frá uppfitjunarkanti er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 31-31-33-37-37-38 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 16-16-16-16-18-18 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir (= 14-14-14-14-16-16 lykkjur) og setjið þessar 14-14-14-14-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, prjónið mynstur eins og áður yfir þær 31-31-33-37-37-38 lykkjur sem eftir eru. Prjónið síðan hvora öxl fyrir sig. Haldið áfram með eins margar mynstureiningar af mynstri og pláss er fyrir á breiddina og þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. JAFNFRAMT eru felldar af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-1-2-2-2-2 sinnum = 25-25-26-30-30-31 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar sem fækkað er um 2-2-3-3-3-2 lykkjur jafnt yfir = 23-23-23-27-27-29 lykkjur. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.
Stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp.
Fitjið upp 54-54-58-62-66-66 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram með stroff fram og til baka svona þar til prjónaðir hafa verið 3 cm með stroffi – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar sem fækkað er um 12-10-12-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-50 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón til baka frá röngu með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM.
Prjónið mynstur – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, þannig:
1 kantlykkja garðaprjón, 1-2-3-2-3-3 lykkjur sléttprjón, A.1 – yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, A.2 yfir næstu 19-19-19-21-21-21 lykkjur, A.3 yfir næstu 10-10-10-11-11-11 lykkjur, 1-2-3-2-3-3 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 mynstureiningar á breidd af A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, yfir 38-38-38-42-42-42 lykkjur í mynstri. Þegar 2 mynstureiningar með A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið mynstur A.1, A.2 og A.3 eins og áður yfir 38-38-38-42-42-42 lykkjur með mynstri. Haldið áfram með mynstur svona, þ.e.a.s. prjónið í annað hvert skipti á hæðina með A.1, A.2 og A.3 og í annað hvert skipti með A.2 (2 mynstureiningar á breidd). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-8-7-7-6-6 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING (á við um ermar). Aukið út í mismunandi stærðum þannig:
Stærð S: Aukið út í 8. hverjum cm alls 5 sinnum.
Stærð M: Aukið út til skiptis í 5. og 6. hverjum cm alls 7 sinnum.
Stærð L: Aukið út til skiptis í 5. og 6. hverjum cm alls 7 sinnum.
Stærð XL: Aukið út til skiptis í 4. og 5. hverjum cm alls 8 sinnum.
Stærð XXL: Aukið út í 4. hverjum cm alls 9 sinnum.
Stærð XXXL: Aukið út í 3. hverjum cm alls 11 sinnum.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru = 52-58-60-64-68-72 lykkjur í umferð. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

Þegar stykkið mælist ca 45-45-44-42-41-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) heldur mynstrið áfram eins og áður og lykkjur eru felldar af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 0-2-2-2-2-4 sinnum, 2 lykkjur 2-2-4-5-6-5 sinnum og 4 lykkjur 2-2-1-1-1-1 sinnum = 12-14-16-16-16-20 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 52-53-53-52-52-52 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermum. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! Saumið saum undir ermum og hliðarsaum í eitt. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt ofan á öxl og prjónið upp 74-74-82-82-88-88 lykkjur með Brushed Alpaca Silk og hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð (frá röngu) er fyrri uppslátturinn prjónaður brugðið og seinni uppslátturinn er látinn falla niður (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Footprints in the Sand

Frau Strick Strickt, Germany

Footprints in the Sand

Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir, Iceland

Footprints

Viktoria, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (54)

country flag Merete wrote:

Kan dere lage denne oppskriften som rundstrikk?

24.02.2024 - 14:23

DROPS Design answered:

Hej Merete, vi kan ikke skrive opskriften om ;) ....men det kan du selv gøre, sørg for at rapporten i din størrelse går op i maskeantallet (de 3 mindste størrelser har 19 masker i en rapport) :)

01.03.2024 - 14:13

country flag Myriam Boyer wrote:

I made this jumper and followed the pattern and measurements to the letter. The final result was very disappointing, the body was too short whilst the width was too large. I used the right wool and needles. It is not tje first time that your patterns do not correspond to the size indicated.

08.02.2024 - 18:06

country flag Loredana Cardinale wrote:

Buongiorno, vorrei creare un cardigan con questo modello come posso fare?

27.01.2023 - 13:47

DROPS Design answered:

Buonasera Loredana, purtroppo in questa sede non possiamo adattare i modelli alle singole esigenze: per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

28.01.2023 - 23:04

country flag Ms Lucia White wrote:

When doing the twice yarn over as the symbol is on the line does this mean that you knit a stitch before the yarn overs and finish with a knit stitch at the end of the yarn overs. The symbol is on the line and this is confusing. Any help would be appreciated.

05.09.2022 - 19:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs White, work diagrams in size S,M,L for example work: (double YO, K1, double YO, K1, double YO, K1, k2 tog, k2 tog, K2 tog) - A.2 = (K2 tog, K2 tog, K2 tog, K1, double YO, K1, double YO,K1, double YO,K1, double YO,K1, double YO,K1, double YO, K1, K2 tog, K2 tog, K2 tog) repeat from (to), A.3=K2 tog, K2 tog, K2 tog, K1, double YO, K1, double YO, K1, double YO, K1, Happy knitting!

06.09.2022 - 09:20

country flag Henriette wrote:

Kan det passe at der skal bruges så lidt garn fleks 5 nøgler af 25 gr til str. s

05.04.2022 - 22:08

DROPS Design answered:

Hej Henriette, ja det stemmer, husk det er et hulmønster :)

08.04.2022 - 08:35

country flag Sab wrote:

Bonjour, J'aimerai tricoter ce pull en rond, donc en supprimant les mailles lisières au pt mousse, cela ne va t'il pas poser problème pour le motif fantaisie lors des diminutions pour les emmanchures ? Même question en ce qui concernes les manches Merci

04.02.2022 - 22:02

DROPS Design answered:

Bonjour Sab, vous pourrez probablement adapter le point fantaisie pour le tricoter en rond, puis, lors des emmanchures, vous rabattrez 2 mailles en moins de chaque côté la 1ère fois (= pas de mailles lisières). Pareil pour les manches, rabattez 2 m en moins . Bon tricot!

07.02.2022 - 08:41

country flag Anne Jolivot wrote:

Bonjour , j'aimerai savoir la taille du modéle qui est en photos pour me donner une idée . Merci d'avance et bonne journée à vous

22.11.2021 - 05:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jolivot, le modèle porte probablement soit une taille S soit une taille M, mais pour choisir votre taille, mesurez un pull similaire dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma. Retrouvez plus d'infos sur les tailles ici. Bon tricot!

22.11.2021 - 08:47

country flag Pia wrote:

Jeg er i tvivl, om jeg skal strikke en str. L eller XL. Hvordan finder jeg brystvidden i opskriftens størrelser??

18.10.2021 - 15:33

DROPS Design answered:

Hej Pia, du finder målene i måleskitsen nederst i opskriften, her finder du også en video som viser hvordan man bruger måleskitsen :)

21.10.2021 - 09:08

country flag Florence wrote:

Je ne comprends pas en quoi consiste de tricoter 4 motifs de A2 en largeur après avoir tricoté A1 A2 et A3. Doit on faire simplement les 3 diagrammes une seule fois? Que signifie les 4 motifs de A2 en largeur?

20.07.2021 - 16:15

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, vous devez tricoter A.1, A.2, A3 et ensuite 4 x A.2. Regardez la lecon DROPS ICI, a voir 'Plusieurs diagrammes tricotés consécutivement sur le rang/tour'. Bon tricot!

20.07.2021 - 21:10

country flag Laura Hansen wrote:

Hej. Er det muligt at strikke denne opskrift rundt på rundpind, istedet for at strikke for- og bagstykke hver for sig?

12.04.2021 - 08:51

DROPS Design answered:

Hej Laura, ja det kan du gøre :)

12.04.2021 - 13:33