Kristine skrifaði:
Strikkes denne med enkelt eller dobbelt garn?
07.03.2021 - 19:44DROPS Design svaraði:
Hei Kristine, Denne jakken er strikket med enkelt garn. God fornøyelse!
08.03.2021 - 07:11
Rita Brobak Sørensen skrifaði:
Jeg synes der er rigeligt med garn, skulle tro den skal strikkes med dobbelt garn????
05.08.2020 - 18:03DROPS Design svaraði:
Hej Rita, Vi skal se på garnforbruget igen. :)
06.08.2020 - 08:28
Ina skrifaði:
Liebes Drops Team, obwohl ich mich genau an die angegebene Garnmenge und an die Anleitung gehalten habe, bleibt gut die Hälfte des Garnes übrig. War es für 2- fädiges Stricken berechnet? Das ist ärgerlich, weil ich es nicht zurückgeben kann.
10.07.2020 - 16:24
Sandra Janssen skrifaði:
Dag, Ik brei liever niet in gerstekorrel maar wil wel graag dit model maken in gewone tricotsteek. Moet ik aanpassingen doen in aantal steken en hoeveelheid garen?
01.06.2020 - 16:21DROPS Design svaraði:
Dag Sandra,
Nee, tricotsteek heeft ongeveer dezelfde stekenverhouding als gerstekorrel, dus je kunt gewoon het patroon volgen.
05.06.2020 - 12:16
Malene Holm Patzer skrifaði:
Hej. Modellen er skøn, men jeg ønsker ikke at strikke den i perlestrik, vil det påvirke størrelsen meget? Tak:-)
23.03.2020 - 10:35DROPS Design svaraði:
Hei Malene. Strikkefastheten i denne oppskriften er oppgitt til 15 masker i bredden og 24 pinner i høyden med perlestrikk = 10 x 10 cm på pinne nr 6. Det er en annen strikkefasthet ved glattstrikk (færre pinner i høyden), så ja, det vil påvirke størrelsen og de oppgitte målene i oppskriften. mvh DROPS design
23.03.2020 - 16:26
Mummi skrifaði:
What is the total amount of yarn used here? Planning to make this jacket single-coloured.
19.11.2019 - 16:25DROPS Design svaraði:
Dear Mummi, depending on the size, this jacket needs 150-230 grammof Brushed Alpaca silk yarn. Forother substitution please use our yarn converter here. Happy Knitting!
20.11.2019 - 02:51
Margrethe Mogensen skrifaði:
Undrer mig over garnforbruget. Skulle den have været strikket med dobbelt garn?
15.04.2019 - 17:25DROPS Design svaraði:
Hej Margrethe, Modellen strikkes ret løst med enkelt tråd. Husk at DROPS Brushed Alpaca Silk ligger i 25 g/nøgle. God fornøjelse!
03.05.2019 - 10:25
DROPS Design skrifaði:
Colour alternatives shown are: A) DROPS Brushed Alpaca Silk 08, 01, 09, 12, 04. B) DROPS Brushed Alpaca Silk 04, 01, 14, 02, 05. C) DROPS Brushed Alpaca Silk 15, 01, 05, 13, 17.
07.03.2019 - 09:32
Sahar Taha skrifaði:
You are great and l follow you for many years so can l make a point please if l want to knit jumper on needle e .g 6can you make a category on the search where I can write'jumper on needle 6. " then all jumper made of needle 6 appear and we can choose among them . Thanks again
06.03.2019 - 08:12DROPS Design svaraði:
Dear Sahar, needles size is different for everyone as knitting tensione is different. You can search by yarn group, i.e. Knitting tension. You can make a swatch with the needles and yarn you want to use and then you can search by The tension you'll reach. Happy crafting!
06.03.2019 - 09:24
Margit skrifaði:
Liebes Drops-Team, wird für dieses Modell die Anleitung noch zur Verfügung gestellt? Man hat nur Einsicht auf den Materialbedarf und auf die Modellzeichnung. Liebe Grüße Margit
12.02.2019 - 16:50DROPS Design svaraði:
Liebe Margit, ja sicher, die deutsche Anleitung wird bald hochgeladen, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stsricken!
13.02.2019 - 08:57
Mardi Gras Jacket#mardigrasjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með blöðruermum, V-hálsmáli og röndum úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð: S-XXXL
DROPS 201-21 |
|
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 12-12,5-13-13,5-13,5-14 cm með litnum ljós grágrænn, 12-12,5-13-13-14-14,5 cm með litnum natur, 12-12,5-13-13,5-13,5-14 cm með litnum daufbleikur og prjónið síðan til loka með litnum gallabuxnablár = 12-12,5-13-13-14-14,5 cm. RENDUR ERMI: Prjónið 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí, 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí og 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí. KANTUR AÐ FRAMAN: Þær 6 lykkjur við miðju að framan = kantur að framan. Prjónið þannig: Þær ystu 5 lykkjur við miðju að framan eru prjónaðar slétt í öllum umferðum og 6. lykkjan er prjónuð í sléttprjóni séð frá réttu. ÚRTAKA-1: Lykkjum er einungis fækkað frá réttu, innan við kant við miðju að framan þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum einungis frá réttu, innan við kant við miðju að framan þannig: Prjónið perluprjón þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni. Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 7. og 6. lykkju slétt saman. Prjónið þær 5 lykkjur sem eftir eru slétt. ÚRTAKA-3: Prjónið 3 miðjulykkjur undir ermi slétt saman (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-1: Prjónið 2 lykkjur í 1 lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju, en sleppi ekki þessari lykkju yfir á vinstri prjón. Prjónið 1 lykkju til viðbótar í sömu lykkju, en hún er prjónuð í aftari lykkjubogann á lykkjunni = 1 lykkja fleiri. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir neðst á ermum): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 2,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu lykkju frá kanti. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist ca: S: 1, 10, 19 og 28 cm M: 1,5, 10,5, 19,5 og 28,5 cm L: 1, 10,5, 20 og 29,5 cm XL: 1, 11, 21 og 31 cm XXL: 1, 11, 21 og 31 cm XXXL: 1,5, 11,5, 21,5 og 31,5 cm AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Sláið e.t.v. 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón neðan frá og upp. BAKSTYKKI: Fitjið upp 66-72-78-86-94-104 lykkjur á hringprjón 4 með litnum karrí. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og ljós grágrænn og prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR- FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir ermasaum – sjá ÚTAUKNING-1= 68-74-80-88-96-106 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið garðaprjón yfir miðju 38-38-40-40-42-42 lykkjurnar, aðrar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 21-24-26-30-33-38 lykkjur á hvorri öxl. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir 6 ystu lykkjur við hálsmál og prjónið perluprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm er fellt laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur - sjá AFFELLING að ofan. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Jafnframt því sem hægra framstykki er prjónað, á einnig að prjóna HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Fitjið upp 39-42-45-49-53-58 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan) á hringprjón 4 með litnum karrí. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm jafnframt er prjónaður KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroff er skipt yfir á hringprjón 6 og litinn ljós grágrænn og prjónað PERLUPRJÓN, RENDUR-FRAM- OG BAKSTYKKI og KANTUR AÐ FRAMAN. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-31-32 cm byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli: Fækkið um 1 lykkju með 1 cm millibili alls 19-19-20-20-21-21 sinnum – sjá ÚRTAKA-1 = 20-23-25-29-32-37 lykkjur í umferð – JAFNFRAMT, þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm aukið út um 1 lykkju fyrir ermasaum yst við handveg – sjá ÚTAUKNING-1 = 21-24-26-30-33-38 lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING að ofan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki án hnappagata og með kant að framan í lok umferðar. Við V-hálsmál SJÁ ÚRTAKA-2. ERMI: Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur á sokkaprjón 4 með litnum karrí. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og litinn natur og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 24-22-22-22-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 60-60-62-64-64-66 lykkjur. Prjónið síðan PERLUPRJÓN og RENDUR-ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar RENDUR-ERMI hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litinn natur til loka. Þegar stykkið mælist 25-25-25-25-25-25 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-3, úrtakan er endurtekin með 4-6-5-5-0-0 cm millibili alls 4-3-2-2-0-0 sinnum = 52-54-58-60-64-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-52-51-49-47-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) og fellið af þær lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið stykkin saman í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur – kantlykkjur að framan á hvoru framstykki er saumaður saman með lykkjum í garðaprjóni meðfram kanti í hálsmáli á bakstykki. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mardigrasjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.