Jana Lelanz skrifaði:
Hallo!! Ich habe bei dieser Anleitung Probleme und einen Vorschlag. Die Maschenzunahmen und gleichzeitig das Muster anfangen ist SEHR verwirrend und schwierig. Maschenzählen und dabei auch noch soviele Maschen gleichzeitig zunehmen. Wäre es nicht einfacher erst Zunahmen und dann erst Muster anfangen?
03.07.2012 - 09:57DROPS Design svaraði:
Siehe oben
03.07.2012 - 13:58
Jana Lelanz skrifaði:
Hallo!! Ich habe bei dieser Anleitung Probleme und einen Vorschlag. Die Maschenzunahmen und gleichzeitig das Muster anfangen ist SEHR verwirrend und schwierig. Maschenzählen und dabei auch noch soviele Maschen gleichzeitig zunehmen. Wäre es nicht einfacher erst Zunahmen und dann erst Muster anfangen?
03.07.2012 - 09:57
Jana Lelanz skrifaði:
Grösse M: 76 M in M4,dann 1x M1 und 2x M3(= 2 Zöpfe) dann weiter gleich mit 76M in M4. Wo ist der 3. Zopf der im Bild zu sehen ist???
03.07.2012 - 09:57DROPS Design svaraði:
Siehe oben
03.07.2012 - 14:00
Jana Lelanz skrifaði:
Grösse M: 76 M in M4,dann 1x M1 und 2x M3(= 2 Zöpfe) dann weiter gleich mit 76M in M4. Wo ist der 3. Zopf der im Bild zu sehen ist???
03.07.2012 - 09:56
Marion Carroll skrifaði:
What does M.l; M.2;M.3 and M.4? Do M.4 is 6 stitches confusing
14.03.2012 - 00:31DROPS Design svaraði:
These are the names of the charts that you find right next to the measure chart below the pattern text.
14.03.2012 - 17:37
DROPS 60-9 |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og stroffprjóni úr DROPS Denim
DROPS 60-9 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. STROFF: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. KÚLA: Aukið út um 4 lykkjur í 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju til skiptis aftan í og framan í lykkjuna. Prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 4 lykkjur. Eftir 4 umferðir er 3., 2. og 1. lykkjunni steypt yfir 4. lykkjuna. AFFELLING YFIR KAÐAL: Þegar lykkjum er fækkað yfir kaðal breytist lykkjufjöldinn frá 6 til 3 lykkjur. Prjónið kaðlalykkjur slétt saman tvær og tvær, síðan er fellt af eins og venjulega. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 216-228 (240-252) lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum denim og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT er aukið út um 2-2 (2-2) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð. Prjónið mynstur yfir umferðina JAFNFRAMT er aukið út um 9-9 (9-9) lykkjur jafnt yfir fyrstu 38-38 (38-38) lykkjur, 10-10 (10-10) lykkjur yfir miðju 15-15 (15-15) lykkjur að aftan, 9-9 (9-9) lykkjur jafnt yfir síðustu 38-38 (38-38) lykkjur= 246-258 (270-282) lykkjur – prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja, M.1, 3 lykkjur sléttprjón með rönguna út, M.2, M.3 2 sinnum, 64-70 (76-82) lykkjur af M.4, M.1, M.3 2 sinnum, 64-70 (76-82) lykkjur af M.4, M.1, M.3, 3 lykkjur sléttprjón með rönguna út, M.2, M.3, 1 kantlykkja. Prjónið mynstur uppúr. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 42-46 (49-52) cm prjónið næstu umferð þannig: prjónið 62-65 (68-71) lykkjur á framstykki eins og áður, fellið af 4 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 114-120 (126-132) lykkjur á bakstykki eins og áður, fellið af fyrir handvegi, prjónið 62-65 (68-71) lykkjur á framstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 62-65 (68-71) lykkjur. Fellið nú af fyrir handvegi í annarri hverri umferð 3 lykkjur 0-1 (1-2) sinnum, 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 3-2 (3-3) sinnum = 57-58 (60-60) lykkja (meðtalin 1 lykkja í hlið fyrir saum). Þegar stykkið mælist 58-62 (66-69) cm fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð: 10-10 (11-11) lykkjur 1 sinni (eru 7-7 (8-8) affellingar – sjá AFFELLING YFIR KAÐAL), 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 2 sinnum. Í umferð áður en stykki mælist 66-70 (74-77) cm er fækkað um 6-6 (6-6) lykkjur jafnt yfir. Fellið af. BAKSTYKKI: = 114-120 (126-132) lykkjur. Fellið af fyrir handvegi á sama hátt og á framstykki = 104-106 (110-110) lykkjur (meðtalin 1 lykkja í hvorri hlið fyrir saum). Þegar stykkið mælist 64-68 (72-75) cm fellið af miðju 36-36 (38-38) lykkjur fyrir hálsmáli (það eru 27-27 (29-29) affellingar – sjá AFFELLING YFIR KAÐAL). Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð við hálsmál. Fellið af þegar stykkið mælist 66-70 (74-77) cm. ERMI: Fitjið upp 48-48 (54-54) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með litnum denim og prjónið stroff í 4 cm. Prjónið síðan M.4 uppúr JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi 24-24 (23-23) sinnum í 4. hverri umferð = 96-96 (100-100) lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-45 (43-43) cm fellið af 4 lykkjur mitt undir ermi og prjónið til loka fram og til baka. Fellið síðan af 4-4 (3-3) lykkjur í hvorri hlið fyrir öxl í annarri hverri umferð 7-8 (11-12) sinnum, fellið af. Stykkið mælist ca 51-51 (51-52) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Prjónið upp ca 130-140 (150-160) lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 3,5 með litnum denim og prjónið stroff í 3 cm fram og til baka, fellið af. Endurtakið meðfram hægra framstykki, en eftir 1 cm eru prjónuð 8 hnappagöt jafnt yfir – 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. KRAGI: Prjónið upp ca 92-96 lykkjur (deilanlegt með 4) frá röngu í kringum hálsmál á hringprjón 4,5 með litnum denim og prjónið 2 umferðir garðaprjón, prjónið síðan áfram með stroff með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar kraginn mælist 3 cm er aukið út frá réttu þannig: 2 lykkjur brugðið eru auknar til 3 lykkjur brugðið meðfram allri umferðinni. Þegar kraginn mælist 5 cm er aukið út frá réttu þannig: 3 lykkjur brugðið eru auknar út til 4 lykkjur brugðið meðfram allri umferðinn. Þegar kraginn mælist 9 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón, fellið af. Saumið ermar í og tölur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 60-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.