Lena skrifaði:
Om jag vill sticka denna enfärgad, hur mycket garn går det åt då?
04.02.2019 - 18:32DROPS Design svaraði:
Hej Lena, det har vi ikke kalkuleret, men du kan nok spare et par nystan. Lycka till!
06.02.2019 - 10:43
Jytte skrifaði:
Super cool forårssweater i smukke farver.
31.01.2019 - 22:52
Ute Kohns skrifaði:
Wunderschöne Farbauswahl. Bitte unbedingt als Anleitung aufnehmen!!
09.01.2019 - 13:22
Barbara skrifaði:
Diese Farben begeistern. Mein Favorit!!
03.01.2019 - 11:45
Nap4ever skrifaði:
Awesome! I would love to knit it!
15.12.2018 - 13:17
Anneli skrifaði:
Nii ilus triipude värvikombinatisoon!
14.12.2018 - 12:25
Roberta skrifaði:
Maglia modello sportivo con un delicato gioco di colori in strisce
11.12.2018 - 22:58
Water Lines#waterlinessweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 18. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 17. og 18. hverja lykkju saman. RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. A.1 sýnir rendur fyrir fram- og bakstykki og A.2 sýnir rendur fyrir ermar. Allar umferðir eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, en skiptið yfir á hringprjón eftir þörf. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-156-172-184-204-224 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós kamel. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA = 136-148-164-176-196-216 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 13-15-16-18-19-21 cm frá uppfitjunarkanti. Héðan eru prjónaðar RENDUR – sjá mynsturteikningu A.1, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig: Fækkið um 1 lykkju, prjónið 67-73-81-87-97-107 lykkjur (= framstykki), fækkið um 1 lykkju og prjónið síðustu 67-73-81-87-97-107 lykkjur (= bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið lykkjur frá framstykki á þráð. Héðan eru stykkin síðan prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 67-73-81-87-97-107 lykkjur. Haldið áfram að prjóna eftir mynsturteikningu A.1, en að auki er fitjuð upp 1 kantlykkja í lok næstu 2 umferða (prjónið kantlykkjur í garðaprjóni) = 69-75-83-89-99-109 lykkjur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, prjónið með 2 þráðum natur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af 27-27-29-29-31-31 miðju lykkjurnar fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 20-23-26-29-33-38 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 67-73-81-87-97-107 lykkjur. Haldið áfram að prjóna eftir mynsturteikningu A.1 og fitja á upp 1 kantlykkju í lok næstu 2 umferða (prjónið kantlykkjur í garðaprjóni) = 69-75-83-89-99-109 lykkjur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, prjónið síðan með 2 þráðum í litnum natur. Prjónið þar til stykkið mælist 51-53-54-56-57-59 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af 15 miðju lykkjur fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar hvor fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-4-4-5-5 sinnum = 20-23-26-29-33-38 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 40-40-40-44-44-48 lykkjur á sokkaprjón 5 með 1 þræði í litnum ljós kamel og 1 þræði í litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið þar til stroffið mælist 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 6-4-4-4-2-2 lykkjur jafnt yfir í umferð = 34-36-36-40-42-46 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og prjónið síðan sléttprjón. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 15-16-17-17-17-17 sinnum = 64-68-70-74-76-80 lykkjur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 28-27-25-24-22-20 cm, prjónið RENDUR – sjá mynsturteikningu A.2. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, prjónið áfram með 2 þráðum í litnum natur þar til stykkið mælist 52-51-49-48-46-44 cm í öllum stærðum. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handveg. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 5 og 2 þræði í litnum natur, prjónið upp ca 76-76-80-80-84-84 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 til að stroffið gangi jafnt upp). Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til kantur í hálsmáli mælist 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waterlinessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.