Barbara Hatherall skrifaði:
Cannot see how you get from 4 to 6 fans I have 5 . this is where I am in the pattern. There are now approx. 65-71-77-89-93-97 double crochets/double treble crochets and approx. 6-6-6-6-6-8 fans on each front piece/back piece and approx. 45-51-59-61-61-63 double crochets/double treble crochets on each sleeve = approx. 220-244-272-300-308-320 double crochets/double treble crochets
12.10.2018 - 13:15DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hatherall, can you please let us know which size you are working on? There should be 6 fans in the first 5 sizes. Thank you!
12.10.2018 - 14:24
Carol skrifaði:
The question was which terms are used , uk or us, the answer seems to suggest converting to uk although it does say us terms not available. Confused
03.10.2018 - 17:22DROPS Design svaraði:
Dear Carol, since the US-pattern is not available yet, the only English pattern available now is the one using UK-wording, you can then convert into US-terms or wait that the US-pattern is online - or even ask your DROPS store for any individual assistance, even per mail or telephone. Happy crocheting!
04.10.2018 - 10:34
Carol skrifaði:
Is this pattern in uk or us terms please
03.10.2018 - 15:01DROPS Design svaraði:
Dear Carol, US-crochet pattern is not available yet (coming soon) - convert into UK-terms here. Happy crocheting!
03.10.2018 - 15:16Brenda skrifaði:
Wondering about the sizes. I don’t see anything to tell me what the finished sizes are. Please help. Love the pattern. Thanks for the help
02.10.2018 - 19:48DROPS Design svaraði:
Dear Brenda, you will find all finished measurements in the chart at the bottom of the pattern. They are taken flat from side to side - in cm. Compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more about sizing here. Happy crocheting!
03.10.2018 - 07:42
Mosie skrifaði:
Sweater name suggestion: Blossom Chain
08.08.2018 - 00:24
PAM T skrifaði:
This is such a beautiful crochet design, unlike the usual ho-hum design! I would be sure to crochet this!
08.08.2018 - 00:24
Ulla skrifaði:
Super flot den glæder jeg mig til at lave
06.07.2018 - 23:41
Sylvie skrifaði:
Mon préféré dans cette collection pour ses couleur ,forme, technique.merci !
14.06.2018 - 17:38Marie skrifaði:
All beautiful, but this is the design I shall try first.
11.06.2018 - 03:49
Tanja skrifaði:
En sjeldent flott heklet topp. Denne må med!
10.06.2018 - 00:45
Flora Viola#floraviolasweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með laskalínu úr DROPS Puna. Stykkið er heklað ofan frá og niður með sólfjöðrum, gatamynstri og A-formi. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-20 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, skiptið út fyrsta tvíbrugðna stuðli út með 4 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. 1 sólfjöður = 2 loftlykkjur + 1 kúla + 4 loftlykkjur + 1 kúla + 2 loftlykkjur. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af fyrstu 2 fastalykkjum, heklið næstu 2 tvíbrugðna stuðla saman (= 1 lykkja færri), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja fastalykkju þar til 4 fastalykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 næstu tvíbrugðna stuðla saman (= 1 lykkja færri), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvora af síðustu 2 fastalykkjum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er berustykki heklað, síðan er stykkinu skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar sem heklað er síðan í hring hvort fyrir sig. BERUSTYKKI: Heklið 102-102-111-116-116-125 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Puna og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 loftlykkju (= fyrsta fastalykkjan) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, hoppið yfir fyrstu loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 3-3-5-3-3-5 loftlykkjum * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð = 88-88-96-100-100-108 fastalykkjur. Heklið síðan mynstur þannig: Umferðin byrjar í skiptingu á milli bakstykkis og ermi (þ.e.a.s. fyrst er heklað yfir ermi, framstykki, ermi og að lokum yfir bakstykki). Hægri ermi: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, A.2 yfir 1 lykkju, A.3 yfir 1 lykkju. Framstykki: Heklið A.4 yfir næstu 2-2-4-2-2-4 lykkjur, A.5 yfir 17-17-17-18-18-18 lykkjur, A.6 yfir 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.7 yfir 1 lykkju (= miðja að framan), A.8 yfir 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.9 yfir 17-17-17-18-18-18 lykkjur, A.4 yfir næstu 2-2-4-2-2-4 lykkjur. Vinstri ermi: Heklið eins og hægri ermi. Bakstykki: Heklið eins og framstykki. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! A.4, A.5 og A.9 er endurtekið á hæðina. Heklið A.2 að ör sem sýnir þína stærð, heklið síðan A.4 yfir þessar lykkjur. Þegar A.1, A.3, A.6, A.7 og A.8 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 55-55-59-63-63-67 fastalykkjur og 4 sólfjaðrir á hvoru framstykki/bakstykki og 29-31-39-37-33-31 fastalykkja á hvorri ermi = alls 168-172-196-200-192-196 fastalykkjur + 8 sólfjaðra mynstur. Stykkið mælist ca 14 cm, mælt meðfram öxl. Heklið síðan áfram þannig: Hægri ermi: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, A.4 yfir næstu 27-29-37-35-31-29 lykkjur, A.3 yfir 1 lykkju. Framstykki: Heklið A.4 yfir næstu 2-2-4-2-2-4 lykkjur, A.5 alls 2 sinnum á breidd, A.6 yfir næstu 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.7 (= 1 lykkja = miðja að framan), A.8 yfir næstu 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.9 alls 2 sinum á breidd, A.4 yfir næstu 2-2-4-2-2-4 lykkjur. Vinstri ermi: Heklið eins og hægri ermi. Bakstykki: Heklið eins og framstykki. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist alls 22-24-25-27-29-31 cm, mælt meðfram öxl (þ.e.a.s. ca 7-9-10-12-14-15 umferð eftir fyrstu endurtekningu á mynstri A.1, A.3 og A.6 til A.8). Nú eru ca 65-71-77-89-93-97 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar og ca 6-6-6-6-6-8 sólfjaðrir á hvoru framstykki/bakstykki og ca 45-51-59-61-61-63 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar á hvorri ermi = alls ca 220-244-272-300-308-320 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar + ca 12-12-12-12-12-16 sólfjaðra mynstur. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Hægri ermi: Hoppið yfir ermalykkjur (= ca 45-51-59-61-61-63 lykkjur) og heklið 6-6-6-8-10-12 loftlykkjur undir ermi. Framstykki: Heklið mynstur eins og áður. Vinstri ermi: Hoppið yfir ermalykkjur (= ca 45-51-59-61-61-63 lykkjur) og heklið 6-6-6-8-10-12 loftlykkjur undir ermi. Bakstykki: Heklið eins og framstykki. Nú eru ca 71-77-83-93-103-109 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar/loftlykkjur (meðtaldar loftlykkjur undir ermi) + ca 6-6-6-6-6-8 sólfjaðrir á hvoru framstykki/bakstykki = alls ca 142-154-166-186-206-218 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar og ca 12-12-12-12-12-16 sólfjaðra mynstur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 1 umferð með mynstri eins og áður og 1 fastalykkju/tvíbrugðna stuðla í hverja loftlykkju undir ermi. Færið umferðina til þannig að hún byrji mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt undir báðar ermar. Heklið síðan mynstur eins og áður, en fækkið lykkjum á hvorri hlið þannig: Framstykki: Heklið A.4 yfir fyrstu 2-2-4-4-5-8 lykkjurnar, A.10 yfir næstu 5 lykkjurnar + sólfjaðramynstur + 1 lykkja (stillið af hvaða umferð er byrjað með miðað við mynstur), heklið mynstur eins og áður (þ.e.a.s. haldið áfram að auka út við miðju að framan) þar til eftir eru 8-8-10-10-11-14 lykkjur og 1 sólfjöður á undan prjónamerki, heklið A.11 yfir 1 lykkju + sólfjaðra mynstur + 5 lykkjur, heklið A.4 yfir næstu 2-2-4-4-5-8 lykkjurnar. Bakstykki: Heklið eins og framstykki. Haldið svona áfram með mynstur. Þ.e.a.s. í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er aukið út um lykkjur hvoru megin við A.7 (þ.e.a.s. lykkjum er aukið út í A.6 og A.8) og lykkjum er fækkað í A.10 og A.11 (þegar fækkað/aukið er um tvíbrugðna stuðla er aukið út um 2 tvíbrugðna stuðla hvoru megin við A.7 (= alls 8 tvíbrugðnir stuðlar fleiri) og fækkað um 1 tvíbrugðinn stuðul í hverri einingu af A.10/A.11 (= alls 4 tvíbrugðnir stuðlar færri), þ.e.a.s. aukið út um alls 4 tvíbrugðna stuðla í umferð). Mynstur í hliðum fækkar og aukið er út fyrir nýtt mynstur við miðju að framan/miðja að aftan. Þegar A.10 og A.11 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina heldur úrtakan áfram í tvíbrugðnum stuðlum eins og áður (þ.e.a.s. ekki fækkar lengur í sólfjaðra mynstri). Þegar stykkið mælist 20 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, mælt meðfram hlið þar sem stykkið er minnst, aukið út um lykkjur eins og áður, en ekki lengur aukið út fyrir sólfjöðrum, þ.e.a.s. allar lykkjur sem auknar eru út eru heklaðar í fastalykkjum/tvíbrugðnum stuðlum. Þegar stykkið mælist 25-25-26-26-26-26 cm frá skiptingu, mælt meðfram hlið þar sem stykkið er minnst (þ.e.a.s. ca 11 umferðir með tvíbrugðnum stuðlum ) 11 sinnum fleiri), er heklaður 1 kantur þannig: Heklið * 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* hringinn, stillið af að endað sé með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Passið uppá að kanturinn verði ekki stífur, hoppið e.t.v. yfir færri lykkjur. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm mælt frá öxl og niður, þar sem stykkið er styst. ERMI: Festið þræði með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju undir ermi, heklið 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðul í hverja af 2-2-2-3-4-5 loftlykkjum undir ermi (passið uppá að það séu heklaðar fastalykkjur eða tvíbrugðnir stuðlar miðað við mynstur), heklið 1 fastalykkjur/tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af ca 45-51-59-61-61-63 lykkjum sem hoppað var yfir fyrir ermi og endið með 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af síðustu 3-3-3-4-5-6 loftlykkjum undir ermi = ca 51-57-65-69-71-75 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar. Haldið áfram hringinn eftir A.4. Þegar ermin mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-3-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 8-11-13-13-14-15 sinnum = ca 35-36-39-43-43-45 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 43-42-41-40-38-37 cm, heklið nú 1 kant í kringum ermi þannig: Heklið * 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum alla ermina, stillið af að endað sé með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið kant í kringum hálsmál þannig: Byrjið mitt ofan á öxl, festið enda með 1 keðjulykkju í 1 lykkju, heklið * 1 fastalykkju í næstu lykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* hringinn þannig, stillið af að umferðin endar með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Passið uppá að kanturinn verði ekki stífur í hálsmáli, hoppið e.t.v. yfir færri lykkjur. Klippið frá og festið alla enda. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #floraviolasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.