Fading Circles#fadingcirclessweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni, röndum og stuttum umferðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 106 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 7,57. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. RENDUR: Prjónið 1 umferð slétt með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt með litnum vetur. Endurtakið þessar 2 umferðir. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjón. Síðan er prjónað áfram i garðaprjóni með stuttum umferðum fram og til baka í stykkjum, aukið er út á eftir hverju stykki. Prjónið 2 umferðir garðaprjón hringinn með litnum natur á milli allra stykkja. Aukið er út um alls 6 stykki. Berustykki deilist við ermar og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-110-115-122-127-134 lykkjur á hringprjón 3 með litnum svartur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón hringinn með litnum natur og aukið út um 14-15-15-8-13-16 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð (= umferð í garðaprjóni) – sjá ÚTAUKNING-1= 120-125-130-130-140-150 lykkjur. BERUSTYKKI: Berustykkið er síðan prjónað í stykkjum, fram og til baka með stuttum umferðum í hring í garðaprjóni þannig: STYKKI 1: Prjónið áfram með litnum vetur þannig: Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið nú 1. stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 115-120-125-125-135-145 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 110-115-120-120-130-140 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 105-110-115-115-125-135 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 100-105-110-110-120-130 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 95-100-105-105-115-125 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 90-95-100-100-110-120 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 5 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 10-15-10-10-10-10 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferð í garðaprjóni). Klippið frá. Prjónið síðan í hring með litnum natur þannig: Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þegar stuttu umferðinni er snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 144-150-156-156-168-180 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! STYKKI 2: Færið prjónamerkið 72-75-78-78-84-90 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 72-75-78-78-84-90 lykkjum, 2. stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki). Prjónið með litnum svartur þannig: Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= umferð með sléttum lykkjum) aukið út um 24-25-52-52-56-60 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6.-6.-3.-3.-3.-3. hverja lykkju). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 168-175-208-208-224-240 lykkjur. Prjónið nú 2. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 7-7-8-8-8-8 lykkjur á undan prjónamerki (= 161-168-200-200-216-232 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 7-7-8-8-8-8 lykkjur á undan prjónamerki (= 154-161-192-192-208-224 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 14-14-16-16-16-16 lykkjur á undan prjónamerki (= 147-154-184-184-200-216 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 14-14-16-16-16-16 lykkjur á undan prjónamerki (= 140-147-176-176-192-208 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 21-21-24-24-24-24 lykkjur á undan prjónamerki (= 133-140-168-168-184-200 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 21-21-24-24-24-24 lykkjur á undan prjónamerki (= 126-133-160-160-176-192 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 7-7-8-8-8-8 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 14-21-16-16-16-16 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Prjónið síðan áfram hringinn með litnum natur þannig: Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 7-7-8-8-8-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þegar stuttu umferðinni er snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 192-200-234-234-252-270 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). STYKKI 3: Færið prjónamerkið 96-100-117-117-126-135 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 96-100-117-117-126-135 lykkjur, 3. stykki er prjónað með byrjun frá prjónamerki). Prjónið nú með litnum vetur þannig: Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferð garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= umferð með sléttum lykkjum) aukið út um 24-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8.-8.-9.-9.-9.-9. hverja lykkju). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 216-225-260-260-280-300 lykkjur. Prjónið nú 3. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 9-9-10-10-10-10 lykkjur á undan prjónamerki (= 207-216-250-250-270-290 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 9-9-10-10-10-10 lykkjur á undan prjónamerki (= 198-207-240-240-260-280 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 18-18-20-20-20-20 lykkjur á undan prjónamerki (= 189-198-230-230-250-270 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 18-18-20-20-20-20 lykkjur á undan prjónamerki (= 180-189-220-220-240-260 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 27-27-30-30-30-30 lykkjur á undan prjónamerki (= 171-180-210-210-230-250 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 27-27-30-30-30-30 lykkjur á undan prjónamerki (= 162-171-200-200-220-240 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-10-10-10-10 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 18-27-20-20-20-20 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Prjónið síðan áfram hringinn með litnum natur þannig: Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 9-9-10-10-10-10 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þegar stuttu umferðinni er snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 240-250-286-286-308-330 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). STYKKI 4. Færið prjónamerkið 120-125-143-143-154-165 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 120-125-143-143-154-165 lykkjur, 4. stykki er prjónað með byrjun frá prjónamerki). Prjónið nú með litnum svartur þannig: Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferð garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= umferð með sléttum lykkjum) aukið út um 24-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 10.-10.-11.-11.-11.-11. hverja lykkju). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 264-275-312-312-336-360 lykkjur. Prjónið nú 4. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 11-11-12-12-12-12 lykkjur á undan prjónamerki (= 253-264-300-300-324-348 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 11-11-12-12-12-12 lykkjur á undan prjónamerki (= 242-253-288-288-312-336 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 22-22-24-24-24-24 lykkjur á undan prjónamerki (= 231-242-276-276-300-324 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 22-22-24-24-24-24 lykkjur á undan prjónamerki (= 220-231-264-264-288-312 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 33-33-36-36-36-36 lykkjur á undan prjónamerki (= 209-220-252-252-276-300 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 33-33-36-36-36-36 lykkjur á undan prjónamerki (= 198-209-240-240-264-288 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 11-11-12-12-12-12 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 22-33-24-24-24-24 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Prjónið síðan áfram hringinn með litnum natur þannig: Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 11-11-12-12-12-12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þegar stuttu umferðinni er snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 288-300-338-338-364-390 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). STYKKI 5: Færið prjónamerkið 144-150-169-169-182-195 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 144-150-169-169-182-195 lykkjur, 5. stykki er prjónað með byrjun frá prjónamerki). Prjónið nú með litnum vetur þannig: Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferð garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= umferð með sléttum lykkjum) aukið út um 0-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 0.-12.-13.-13.-13.-13. hverja lykkju). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 288-325-364-364-392-420 lykkjur. Prjónið nú 5. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-14-14-14 lykkjur á undan prjónamerki (= 276-312-350-350-378-406 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-14-14-14 lykkjur á undan prjónamerki (= 264-299-336-336-364-392 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 24-26-28-28-28-28 lykkjur á undan prjónamerki (= 252-286-322-322-350-378 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 24-26-28-28-28-28 lykkjur á undan prjónamerki (= 240-273-308-308-336-364 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 36-39-42-42-42-42 lykkjur á undan prjónamerki (= 228-260-294-294-322-350 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 36-39-42-42-42-42 lykkjur á undan prjónamerki (= 216-247-280-280-308-336 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 12-13-14-14-14-14 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 24-39-28-28-28-28 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Prjónið síðan áfram hringinn með litnum natur þannig: Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 12-13-14-14-14-14 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þegar stuttu umferðinni er snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 312-350-390-390-420-450 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). STYKKI 6: Færið prjónamerkið 156-175-195-195-210-225 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 156-175-195-195-210-225 lykkjur, 6. stykki er prjónað með byrjun frá prjónamerki). Prjónið nú með litnum svartur þannig: Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferð garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= umferð með sléttum lykkjum) aukið út um 0-0-0-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 0-0-0-15.-15.-15. hverja lykkju). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 312-350-390-416-448-480 lykkjur. Prjónið nú 6. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 13-14-15-16-16-16 lykkjur á undan prjónamerki (= 299-336-375-400-432-464 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 13-14-15-16-16-16 lykkjur á undan prjónamerki (= 286-322-360-384-416-448 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 26-28-30-32-32-32 lykkjur á undan prjónamerki (= 273-308-345-368-400-432 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 26-28-30-32-32-32 lykkjur á undan prjónamerki (= 260-294-330-352-384-416 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 39-42-45-48-48-48 lykkjur á undan prjónamerki (= 247-280-315-336-368-400 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 39-42-45-48-48-48 lykkjur á undan prjónamerki (= 234-266-300-320-352-384 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 13-14-15-16-16-16 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 26-42-30-32-32-32 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Prjónið síðan áfram hringinn með litnum natur þannig: Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið. Klippið frá. Nú eru 312-350-390-416-448-480 lykkjur í umferð. Færið umferðina til 33-37-41-43-44-46 lykkjur fram (þ.e.a.s. farið yfir fyrstu 33-37-41-43-44-46 lykkjur (= hálfa ermin) á hægriprjóni, setjið 1 prjónamerki hér = byrjun á umferð). Prjónið nú stykkið í hring í RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti deilist stykkið hér: Prjónið yfir fyrstu 90-101-113-122-136-148 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 66-74-82-86-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 90-101-113-122-136-148 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-74-82-86-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi = 196-218-246-264-296-320 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi og færið umferðina til að einu af prjónamerkinu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram hringinn með rendur. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4-4-8-6-8-6 cm millibili alls 6-6-3-4-3-4 sinnum = 220-242-258-280-308-336 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum þar til fram- og bakstykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú í garðaprjóni með litnum svartur þar til stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist við ermar. Fellið af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. ERMI: Setjið 66-74-82-86-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og takið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-82-92-96-100-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið nú áfram sléttprjón og rendur. Þegar stykkið mælist 1 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 13-16-20-20-21-22 sinnum = 48-50-52-56-58-60 lykkjur. Þegar ermin mælist 39-38-37-36-35-33 cm frá þar sem stykkið skipti fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 3. Nú er prjónað áfram í garðaprjóni með litnum svartur þar til ermin mælist 42-41-40-39-38-36 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki. Fellið af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fadingcirclessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.