Broux skrifaði:
Bonjour Après les premières augmentations on a 155 mailles pour la tailles XXL ce chiffre n'est pas divisible par les 12 mailles de A1 . Ça ne tombe pas juste est-ce normal ou y-a-t-il une erreur?
16.01.2019 - 11:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Broux, tout à fait, A.1 se tricote ainsi: 5 m de bordure devant, on commence ensuite par la dernière m de A.1, on répète ensuite les 12 m de A.1 (= par ex 12 x 12 = 144 m) et on termine par 5 m de bordure devant soit: 5 + 1 + 144 + 5 = 155 m. Bon tricot!
16.01.2019 - 13:06
Kine Sørbøe skrifaði:
Hvordan legger jeg opp 8 nye masker på pinnen i siden under ermet
15.01.2019 - 16:25DROPS Design svaraði:
Hej Kine, se vores video hvordan du gør :)
How to cast on new stitches at side of work from Garnstudio Drops design on Vimeo.
17.01.2019 - 08:35
Iveta Tobolová skrifaði:
... krásny svetrík, určite si ho upletiem :)
31.12.2018 - 17:48
Laura Stel skrifaði:
Ben met dit patroon bezig maar moet mouwlengte wel veel aanpassen,veel te kort
03.10.2018 - 20:20
Åse skrifaði:
Vist jeg heller velger å strikke rundt istedet for frem og tilbake,begynner jeg da hver omgang fra høyre på mønsteret?
17.08.2018 - 08:48DROPS Design svaraði:
Hei Åse. Ja det stemmer; om du skal strikke rundt leser du mønster fra høyre på alle omganger. God fornøyelse.
17.08.2018 - 10:23
Marianne Juhler skrifaði:
Jeg skal nu starte med mønsteret på bærestykket, og starter med en retpind, hvor jeg også tager ud til 131 masker (str. L), så 1 vrangpind så en retpind, inden selve mønsteret begynder. Så langt så godt. men så når mønsteret begynder, nedefra i højre hjørne bliver det så en vrangpind, jeg skal starte på, og det bliver så fra venstre side, jeg skal starte ikke? Men skal jeg så strikke først de 5 kantmasker og så sidste maske mønsteret, inden jeg starter på selve mønsteret?
09.05.2018 - 15:26
June skrifaði:
Skjønner ikke helt hvordan det skal strikkes etter økepinne 4
06.05.2018 - 20:09DROPS Design svaraði:
Hej June, du skal bare følge diagrammet over det nye antal masker (det skal ikke stemme over det tidligere mønster). God fornøjelse!
09.05.2018 - 13:42
Nougat Cardigan#nougatcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.
DROPS 191-3 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 27) = 3,037. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til eftir eru 3 lykkjur í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagati þegar stroffið í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 6 næstu hnappagöt með ca 9-9-9-10-10-10 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og þannig að berustykki verði aðeins hærri í hnakka. Það má sleppa þessari upphækkun og þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 3-3-4-4-5-5 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Einnig er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram og prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð við miðju að aftan (= 46-48-50-52-54-56 lykkjur inn frá hvorri hlið). Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorum enda. BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur – lesið LEIÐBEININGAR, þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið síðustu lykkju í A.1, A.1 (= 12 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, JAFNFRAMT eru auknar út lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með ör í mynsturteikningu – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): ATH: Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum í berustykki, prjónið grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Í umferð merktri með ör 1 er aukið út um 27-35-31-39-35-43 lykkjur jafnt yfir = 119-131-131-143-143-155 lykkjur. Í umferð merktri með ör 2 er aukið út um 36-36-48-48-48-60 lykkjur jafnt yfir = 155-167-179-191-191-215 lykkjur. Í umferð merktri með ör 3 er aukið út um 36-36-48-48-48-60 lykkjur jafnt yfir = 191-203-227-239-239-275 lykkjur. Í umferð merktri með ör 4 er aukið út um 34-34-34-34-46-46 lykkjur jafnt yfir = 225-237-261-273-285-321 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið síðustu lykkju í A.1, A.1 (= 12 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir (í síðasta skipti sem A.1 er prjónað í umferð eru einungis prjónaðar 10 fyrstu lykkjur í mynsturteikningu), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í umferð merktri með ör 5 er aukið út um 2-14-14-18-30-18 lykkjur jafnt yfir = 227-251-275-291-315-339 lykkjur. Skiptið yfir í litinn hveiti. Haldið síðan áfram með litnum hveiti, sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan- passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (ef prjónfestan passar á hæðina hefur þetta mál náð stærð S þegar A.1 hefur verið prjónað til loka). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 36-39-43-47-51-56 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 61-69-77-83-93-101 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið næstu 36-39-43-47-51-56 lykkjur (= hægra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 149-163-179-197-215-233 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram fram og til baka með litnum hveiti, sléttprjóni, 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-6-6 cm millibili alls 3 sinnum = 137-151-167-185-203-221 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-15-17-17-19-19 cm aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 5 sinnum = 157-171-187-205-223-241 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm aukið út um 11-13-13-15-17-19 lykkjur jafnt yfir = 168-184-200-220-240-260 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 7 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til þess að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður. ERMI: = 47-52-56-57-60-63 lykkjur. Setjið 47-52-56-57-60-63 lykkjurnar af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum hveiti = 55-60-64-67-70-73 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn með litnum hveiti. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR. Fækkið lykkjum svona í 4.-3.-3.-3.-3.-3. hverri umferð 10-12-13-13-14-14 sinnum = 35-36-38-41-42-45 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-23-23-23-23 cm er aukið út um 1-4-2-3-2-3 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Prjónið A.2 (= 4 lykkjur) hringinn. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og litinn natur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir í litinn hveiti, prjónið 1 umferð stroff eins og áður og fellið laust af með litnum hveiti og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist 35-35-34-34-34-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nougatcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.