DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nougat

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.

DROPS 191-12
DROPS Design: Mynstur ai-115
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-250-300-350-350 g litur 02, hveiti
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 18, ljós grágrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 15, fjólublá þoka

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Air 04, 03, 16, 10.
B) DROPS Air 03, 01, 15, 14.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 26,7.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 26. og 27. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert til skiptis ca eftir 26. og 27. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

ÚTAUKNING:
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verður aðeins hærra aftan í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum hveiti.
Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-4-4-5-5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-5-5-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-79-83-88-92-96 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram með að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð = miðja að aftan.
Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur A.1 í hring í umferð – lesið LEIÐBEININGAR og aukið út um lykkjur jafnt yfir, í hverri umferð merktri með ör þannig:
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð merktri með ör 1 er aukið út um 31-41-37-44-40-48 lykkjur jafnt yfir = 108-120-120-132-132-144 lykkjur.
Í umferð merktri með ör 2 er aukið út um 36-36-48-48-48-60 lykkjur jafnt yfir = 144-156-168-180-180-204 lykkjur.
Í umferð merktri með ör 3 er aukið út um 36-36-48-48-48-60 lykkjur jafnt yfir = 180-192-216-228-228-264 lykkjur.
Í umferð merktri með ör 4 er aukið út um 36-36-36-36-48-48 lykkjur jafnt yfir = 216-228-252-264-276-312 lykkjur.
Í umferð merktri með ör 5 er aukið út um 0-12-12-16-28-16 lykkjur jafnt yfir = 216-240-264-280-304-328 lykkjur.
Skiptið yfir í hveiti. Haldið síðan áfram með hveiti og sléttprjón þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður (ef prjónfestan passar á hæðina hefur þetta mál náð stærð S þegar A.1 hefur verið prjónað til loka).

Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 30-34-38-41-46-50 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 61-68-76-83-92-101 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 31-34-38-42-46-51 lykkjur (= hálft bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 138-152-168-186-204-222 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og hveiti. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-6-6 cm millibili alls 3 sinnum = 126-140-156-174-192-210 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-15-17-17-19-19 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 5 sinnum = 146-160-176-194-212-230 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm er aukið út um 14-16-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 160-176-192-212-232-252 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkju.
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
= 47-52-56-57-60-63 lykkjur. Setjið 47-52-56-57-60-63 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum hveiti = 55-60-64-67-70-73 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn með litnum hveiti. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR.
Fækkið lykkjum svona í 4.-3.-3.-3.-3.-3. hverri umferð 10-12-13-13-14-14 sinnum = 35-36-38-41-42-45 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-23-23-23-23 cm er aukið út um 1-4-2-3-2-3 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Prjónið A.2 (= 4 lykkjur) hringinn. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og litnum natur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir í litinn hveiti, prjónið 1 umferð stroff eins og áður og fellið laust af með litnum hveiti með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Ermin mælist 35-35-34-34-34-34-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = natur
symbols = hveiti
symbols = fjólublá þoka
symbols = ljós grágrænn
symbols = útaukningsumferð - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

191-12 Nougat

Theresa, Slovakia

Nougat

Sophie, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Jenny Douglas wrote:

Please can you tell me what the alternative colour combinations are. You only list the ones for the main pattern and not the two other examples. Thank you.

20.11.2022 - 18:30

DROPS Design answered:

Dear Jenny, the other colour combinations are indicated in the materials section, just after the needles and gauges. The letter for each combination is shown in the photos for the combination. "Colour combinations shown are: A) DROPS Air 04, 03, 16, 10. (blue combination) B) DROPS Air 03, 01, 15, 14."(red combination) Happy knitting!

21.11.2022 - 00:58

country flag Anne-Ly wrote:

Kas kehaosas enne soonikut tuleb kahandada või kasvatada silmuseid? Vastuoluline juhis on. Juhise järgi kahandada, aga kui vaadata uut silmuste arvu, siis pigem kasvatada. Kumb on õige?

27.10.2022 - 11:35

DROPS Design answered:

Tere Anne-Ly! Vahetult enne soonikut kasvatatakse silmuseid, et soonik ei kisuks liialt kokku. Seda ei pea tegema, kui tahetakse tihedalt ümberhoidvat soonikut. Viga parandatud. Tänan!

27.10.2022 - 15:29

country flag Alexandra Strnadová wrote:

Chci plést pulover Nougat v jiné barevnosti než je v návodu , ale je ve vaší nabídce, jak zjistím, která čísla přízí použít ? Děkuji\r\nStrnadová Alexandra

21.08.2022 - 20:16

DROPS Design answered:

Dobrý den, čísla použitých odstínů jsme doplnili přímo do návodu - najdete je vypsané pod hlavičkou návodu; pořadí odpovídá pořadí v odstavci Materiál. Hodně zdaru! Hana

10.09.2022 - 15:57

country flag Wilhelmien Van Rixtel wrote:

Hallo ik ben met telpatroon 191-12 bezig. Na de tweede meerdering klopt het telpatroon niet meer. Hoe kan ik dit oplossen Met vriendelijke groet.

28.02.2022 - 16:39

DROPS Design answered:

Dag Wilhelmien,

Je meerdert steeds een meervoud van 12 steken en 1 patroonherhaling in de breedte is ook 12 steken. Het totaal aantal steken op de toer is dus een meervoud van 12 steken. Op deze manier zou je precies uit moeten komen. Je hoeft verder niet te kijken naar of bijvoorbeeld de steek in paarse mist boven de steek onder de meerdering van pijl 2 komt. Hier zit natuurlijk een verschuiving in door het meerderen, maar dat maakt niet uit.

02.03.2022 - 11:47

country flag Carolina Dagevos Millin wrote:

Ik ga beginnen met dit patroon. Heeft het blonde meisje op de foto een verhoging in de achterkant van de hals? Met vriendelijke groet, Carolina

22.03.2021 - 21:22

DROPS Design answered:

Dag Caroline

Eerlijk gezegd weet ik dat niet. Maar of je al dan niet een verhoging maakt op de achterkant, heeft geen invloed op hoe het patroon er aan de voorkant uitziet.

02.04.2021 - 11:39

country flag Yvonne wrote:

Kann mann die Strickanleitung auch in Papier zur Wolle bekommen ?

13.01.2021 - 18:23

DROPS Design answered:

Liebe Yvonne, klicken Sie auf dem Icon "Drucken" um die Anleitung zu drücken - hier finden Sie die Liste von den DROPS Händlern in Deutschland. Viel Spaß beim stricken!

14.01.2021 - 07:20

country flag MARTIN Marie José wrote:

Je reviens vers vous car c’est la 1er fois que je tricote un top down En ce qui concerne le modèle nougat n°ai 115 après la réhausse de l’encolure dois je faire les 1er Augmentations sur le 1er rang en totalité ? Et ainsi de suite en face des flèches ? Merci

14.11.2020 - 20:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martin, après la réhausse, vous tricotez A.1 à partir du milieu dos et augmentez le nombre de mailles indiqué pour chaque taille à chacun des rangs avec une flèche, par ex. au rang avec la flèche-1 dans A.1, vous augmente 31 à 48 m selon la taille sur ce tour - cette leçon explique comment procéder. Au tour suivant, tricotez A.1 comme avant (= vous répétez les 12 m du diagramme) et augmentez de nouveau au tour avec la flèche-2, au tour suivant, répétez A. 1 comme avant (le motif ne sera plus aligné en raison des augmentations, répétez-le simplement en largeur), et ainsi de suite. Bon tricot!

16.11.2020 - 08:40

country flag Martin MJosé wrote:

Bonjour Je voudrais savoir s’il est possible de tricoter les manches avec les aiguilles circulaires Plutôt que les doubles pointes Je viens de commencer le modèle Nougat n°ai 115 Merci

09.11.2020 - 16:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martin, tout à fait, vous pouvez utiliser soit une petite aiguille circulaire de 40 cm au début, soit dès le début tricoter en magic loop avec une longue aiguille circulaire comme on le montre dans cette vidéo. Bon tricot!

10.11.2020 - 08:50

country flag Sylvie SABAU wrote:

Bonjour, Comment procéder pour commander la laine et les aiguilles pour réaliser ce modèle? Où trouver la laine correspondante? Merci pour votre aide Cordialement Sylvie Sabau

18.11.2019 - 11:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sabau, vous trouverez ici la liste des magasins DROPS en France, si vous n'avez pas la chance d'avoir une boutique près de chez vous, vous pouvez vous commander dans l'une des boutiques en ligne. Bon tricot!

18.11.2019 - 12:16

country flag Mariaana wrote:

Hei. Voinko vaihtaa ohjeen langan suoraan perusvahvuiseen villalankaan? En ole aikasemmin kutonut ohjeen langalla ja koko villainen paita olisi ihana. Esim islantilaisesta villasta tai sitten ohuemmasta alpacasta.

31.07.2019 - 08:26

DROPS Design answered:

Kun vaihdat toiseen lankaan, voit valita jonkun lankaryhmään C kuuluvan langan. Voit myös valita langan lankaryhmästä A ja tällöin neulot puseron kaksinkertaisella langalla. Lankaryhmät löytyvät sivun yläreunan Langat-linkin alta.

19.12.2019 - 14:05