Hanne Lysgaard Vesterlind skrifaði:
Hvorfor står der, at jeg skal sætte de øverste 31 masker (ovenpå foden) på en tråd? Hvad skal der så ske med de 2 x 3 masker fra A4a og A4c? Skulle der ikke stå de øverste 37 masker?
22.10.2021 - 15:13
Mary Felton skrifaði:
I am stuck at the beginning of starting heel stitches . should I be starting on the wrong side when I start the heel stitches. I hope you can help. i have started this pattern atleast 5 times and I'm detrmined to finish. is there a video tutorial for this pattern. Thanks
15.01.2021 - 21:27DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Felton, yes in this pattern the first 31-37-37 sts of the round are slipped on a thread for upper foot, so that you will work the last 31 stitches on needle for heel, starting from WS. Work A.6 over A.5 (read from the left towards the right from WS). Happy knitting!
18.01.2021 - 08:01
Nagymami skrifaði:
Ez most komoly??? 35-43 évesekre? :D :D :D Tiszta szerencse, hogy olyan gondosan ellenőrzik a leírásokat, mint állítják. Tudják mit? Segítek. A "Size 35 to 43" azt jelenti, hogy '35–43-as méretben'. És a két szám közé nagykötőjelet kell tenni. Szívesen.
01.12.2018 - 12:29
Tirza skrifaði:
Ik snap niet waarom er telkens geminderd en gemeerderd wordt bij het been. Ik zou het snappen als er in het begin meer steken zijn en dan minderen, het been volgend. Maar in dit patroon ga je van veel steken naar minder en dan weer meer. Wordt dit niet 1 gigantisch golvend been?
11.03.2018 - 19:46DROPS Design svaraði:
Hallo Tirza, Er moet af en toe geminderd en gemeerderd worden zodat het patroon op het aantal steken op de sok past. Om die reden moeten er af en toe dus ook een paar steken gemeerderd worden, maar dit zal verder niet opvallen in het geheel. De pijp loopt enigszins taps toe vanaf de opzet naar de enkel.
12.03.2018 - 09:11
Frost Fighters#frostfighterssocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir sokkar með marglitu mynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35-43. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1414 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veljið mynstur fyrir rétta stærð (á við um A.4). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 13. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 12. og 13. lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert á eftir 13. hverja lykkju (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-9-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-9-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 15-15-17 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um tá): Fækkið lykkjum svona á undan A.4a/A.4c: Byrjið 2 lykkjum á undan A.4a/A.4c, prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum svona á eftir A.4a/A.4c: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 72-72-78 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum gráblár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-6 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 72-72-72 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 hringinn (= 9-9-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í síðustu umferð (sjá ör í mynsturteikningu) er lykkjufjöldinn jafnaður út til 64-64-80 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.2 hringinn (= 4-4-5 mynstureiningar með 16 lykkjum). Í síðustu umferð (sjá ör í mynsturteikningu) er fækkað um 0-0-8 lykkjur jafnt yfir = 64-64-72 lykkjur. Prjónið A.3 hringinn (= 8-8-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í síðustu umferð (sjá ör í mynsturteikningu) er lykkjufjöldinn jafnaður út til 66-72-72 lykkjur. Prjónið síðan þannig: Prjónið A.4a (= 3 lykkjur), A.4b (= 25-31-31 lykkjur), A.4c (= 3 lykkjur), A.5 (= 35 lykkjur). Prjónið þar til A.5 er lokið á hæðina, nú eru 62-68-68 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 20 cm. Setjið nú 31-37-37 lykkjur (= A.4) á þráð (= miðja ofan á fæti) = 31 lykkjur fyrir hæl. Prjónið A.6 (= 31 lykkjur) yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan – haldið áfram með mynstur eftir A.6. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið 15-15-17 lykkjur frá hæl (í mynstri A.6), prjónið upp 12-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl (prjónið upp aðra hverja lykkju með litnum gráblár og litnum natur þannig að litirnir passi inn í A.6), prjónið lykkjur af þræði (í mynstur A.4) og prjónið upp 12-13-14 lykkjur meðfram annarri hlið á hæl (prjónið upp aðra hverja lykkju með litnum gráblár og litnum natur þannig að litirnir passi inn í A.6) = 70-78-82 lykkjur. Prjónið síðan mynstur A.4 eftir 31-37-37 lykkjur ofan á fæti eins og áður (A.4 er endurtekið síðan á hæðina), þær lykkjur sem eftir eru undir fæti eru prjónaðar eftir A.6 og lykkjum er fækkað hvoru megin við 31-37-37 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan A.4a slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir A.4c snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-7 sinnum = 58-66-68 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.4 og A.6 þar til stykkið mælist 17-18-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 5-6-6 cm að loka máli). Prjónið síðan þannig: A.4a, A.6 yfir næstu 25-31-31 lykkjur, A.4c, A.6 yfir næstu 27-29-31 lykkjur og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við A.4a og A.4c – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-9-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-1-1 sinnum = 18-26-28 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 með litnum natur = 9-13-14 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostfighterssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1414
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.