Doris skrifaði:
Hallo, ich arbeite gerade den Baum nach und dabei ist mir aufgefallen, dass in Runde 17 ein Rechenfehler vorliegt. Die Anzahl Stäbchen sind 49 und nicht wie angegeben 45. Somit fehlen in jeder Angabe 4 Maschen.
01.10.2018 - 20:10DROPS Design svaraði:
Liebe Doris, bei der 17. Runde sollen Sie 45 Stb haben = Es sind 10 Luftmaschen-Bogen und Sie werden alternativ 4 Stb und 5 Stb in jedem Lm-bogen häkeln = 5 x 4 Stb + 5 x 5 Stb = 45 Stb. Viel Spaß beim häkeln!
02.10.2018 - 10:03
Rita Wittoeck skrifaði:
Ik kan de gratis patronen van de kalender ( de kerstboompjes) niet downloaden, moet ik ergens inloggen ? groetjes rita
07.12.2017 - 15:57
The Christmas Forest#dropsthechristmasforest |
|
![]() |
![]() |
Hekluð jólatré úr DROPS Merino Extra Fine. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1398 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fastalykkja í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLATRÉ - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tréð er heklað ofan frá og niður. Heklið botn á tré, síðan snjó í kringum tréð. Að lokum er tréð fyllt upp með vatti og botninn er heklaður saman við tréð. STÓRT JÓLATRÉ: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum eplagrænn og tengið saman í hring með keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 8 fastalykkjur um hringinn – lesið LEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: * 1 stuðull í fyrstu fastalykkju, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 12 stuðlar. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í hvorn af næstu 2 stuðlum, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 stuðull í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 20 stuðlar. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * Heklið 4 loftlykkjur, hoppið yfir 3 fastalykkjur, heklið 1 keðjulykkju í aftari lykkjubogann á næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 5 loftlykkjubogar. UMFERÐ 7: Heklið keðjulykkjur að fyrsta boga, heklið 4 stuðla um fyrsta boga, heklið síðan 5 stuðla um næstu 4 boga = 24 stuðlar. UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 9: * 1 stuðul í hverja af 5 fastalykkjum, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 28 stuðlar. UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 11: * Heklið 4 loftlykkjur, hoppið yfir 3 fastalykkjur, heklið 1 keðjulykkju í aftari lykkjubogann á næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 7 loftlykkjubogar. UMFERÐ 12: Heklið keðjulykkjur að fyrsta boga, heklið 5 stuðla um fyrsta boga, heklið síðan 5 stuðla um næstu 6 boga = 35 stuðlar. UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 35 fastalykkjur. UMFERÐ 14: * 1 stuðull í hverja af fyrstu 6 fastalykkjum, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 40 stuðlar. UMFERÐ 15: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 40 fastalykkjur. UMFERÐ 16: * Heklið 4 loftlykkjur, hoppið yfir 3 fastalykkjur, heklið 1 keðjulykkju í aftari lykkjubogann á næstu fastalykkju * heklið frá *-* umferðina hringinn = 10 loftlykkjubogar. UMFERÐ 17: Heklið keðjulykkjur að fyrsta boga, * heklið 4 stuðla um fyrsta bogann, heklið síðan 5 stuðla um næsta boga *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 45 stuðlar. UMFERÐ 18: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 45 fastalykkjur. UMFERÐ 19: * 1 stuðull í hverja af fyrstu 14 fastalykkjum, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. UMFERÐ 20: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 21: * Heklið 4 loftlykkjur, hoppið yfir 3 fastalykkjur, heklið 1 keðjulykkju í aftari lykkjubogann á næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 12 loftlykkjubogar. UMFERÐ 22: Heklið keðjulykkjur að fyrsta loftlykkjuboga, heklið 5 stuðla um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 5 stuðla um næstu 11 loftlykkjuboga = 60 stuðlar. UMFERÐ 23: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 24: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju = 60 stuðlar. UMFERÐ 25: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðu = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 26: * Heklið 4 loftlykkjur, hoppið yfir 3 fastalykkjur, heklið 1 keðjulykkju í aftari lykkjubogann á næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 15 loftlykkjubogar. UMFERÐ 27: Heklið keðjulykkjur að fyrsta loftlykkjuboga, * heklið 5 stuðla um hvern af fyrstu 4 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar. UMFERÐ 28: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 72 fastalykkjur. UMFERÐ 29: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju = 72 stuðlar. Klippið frá og festið enda. BOTN: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum eplagrænn og tengið saman í hring með keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 12 fastalykkjur um hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hverja fastalykkju = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrsta stuðul, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 stuðul í hvora af 2 fyrstu fastalykkjum, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hvern af fyrstu 7 stuðlum, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 54 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 stuðull í hverja af fyrstu 8 fastalykkjum, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 60 stuðlar. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hvern af fyrstu 4 stuðlum, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. SNJÓR: Snjórinn er heklaður í síðustu umferð með fastalykkjum á undan bogum á tré (umferð 5, 10, 15, 20 og 25). Heklað er með litnum natur með heklunál 3,5 þannig: Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, * hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 3 stuðla, 3 loftlykkjur, 3 stuðla í næstu fastalykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 1 keðjulykkju í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu keðjulykkju í umferð. Klippið frá og festið enda. Fyllið tréð með vatti og leggið botninn að trénu. Heklið saman með 1 fastalykkju í gegnum lykkju á báðum stykkjum. Klippið frá og festið enda. LÍTIÐ JÓLATRÉ: Heklið á sama hátt og stórt jólatré, nema með litnum skógargrænn. Endið jólatréð eftir 24. umferð á jóltré, og 6. umferð á botni. Heklið snjó í 5.-10.-15. og 20. umferð á jólatré. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsthechristmasforest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1398
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.