DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Istanbul

Toppur með öldumynstri og gatamynstri, prjónaður neðan frá og upp úr DROPS Safran. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-63
DROPS Design: Mynstur e-253
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 17, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 fyrir kant með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna og ermakúpan er prjónuð fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 336-360-384-408-432-456 lykkjur á hringprjón 3 með Safran. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.1A (= 13 lykkjur), prjónið A.1B (= 24 lykkjur) 13-14-15-16-17-18 sinnum á breidd, A.1C (= 11 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 280-300-320-340-360-380 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2A (= 11 lykkjur), prjónið A.2B (= 20 lykkjur) 13-14-15-16-17-18 sinnum á breidd, A.2C (= 9 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 308-330-352-374-396-418 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig: A.3A (= 12 lykkjur), prjónið A.3B (= 22 lykkjur) 13-14-15-16-17-18 sinnum á breidd, A.3C (= 10 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 252-270-288-306-324-342 lykkjur. Stykkið mælist ca 17 cm í öllum stærðum.

Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar og eitt eftir 126-135-144-153-162-171 lykkjur (= í hliðum) – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan sléttprjón og í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í ca 3.-3.-3.-4.-6.-9. hverri umferð alls 12-12-11-10-7-5 sinnum á hvorri hlið. Eftir allar úrtökur eru 204-222-244-266-296-322 lykkjur. Prjónið eina umferð slétt þar sem fækkað er um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 202-222-242-266-294-322 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 35-37-38-40-41-43 cm. Prjónið nú A.4 yfir miðju 11 lykkjur á framstykki (ör í mynsturteikningu á að passa við miðju lykkju á framstykki), JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af miðju 8-8-10-10-12-12 lykkjur í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) fyrir handveg. Setjið 93-103-111-123-135-149 lykkjur fyrir bakstykki á þráð. Prjónið síðan fram- og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 93-103-111-123-135-149 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, A.4 og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í hvorri hlið fyrir handveg. Fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-5-7-7 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-3-4-6 sinnum = 83-87-89-91-93-97 lykkjur eftir. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm setjið miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 22-24-24-25-25-27 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni.

BAKSTYKKI:
= 93-103-111-123-135-149 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í hvorri hlið fyrir handveg alveg eins og á framstykki = 83-87-89-91-93-97 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 yfir miðju 11 lykkjur (ör í mynsturteikningu á að passa við miðju lykkju á bakstykki – aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið).
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur til loka. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 35-35-37-37-39-39 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 22-24-24-25-25-27 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni.

ERMI:
Fitjið upp 67-73-81-87-95-101 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 og prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.5 (Í 7. umferð í mynsturteikningu er síðasta lykkjan í umferð prjónuð slétt). Eftir A.5 er skipt yfir á sokkaprjón 3. Prjónið sléttprjón hringinn.
Prjónið nú mynstur og fellið af fyrir handveg og ermakúpu þannig: ATH: Í stærð S og M byrjar mynstur A.4 áður en fellt er af fyrir ermakúpu. Í stærð L, XL, XXL og XXXL byrjar mynstur A.5 eftir að affelling fyrir ermakúpu er byrjuð!

Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-15-16 cm er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.4 yfir miðju 11 lykkjur (ör í mynsturteikningu á að passa við miðju lykkju í umferð) – aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-13-13-12-11 cm fellið af miðju 8-8-10-10-12-12 lykkjur mitt undir ermi og ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjón 3. Haldið áfram í sléttprjóni og A.4 yfir miðju 11 lykkjur og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig (ATH: Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur): Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í öllum stærðum, 2 lykkjur 3-3-3-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-5-6-6 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20-21-21-22-22-22 cm, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, ermin mælist ca 21-22-22-23-23-23 cm.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermum.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 110 til 120 lykkjur í kringum hálsmál á stutta hringprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið.
Fellið síðan af með sléttum lykkjum (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur).

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = Kúla: Prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til 5 lykkjur eru á prjóni, prjónið 4 umferðir sléttprjón yfir þessar 5 lykkjur, steypið síðan annarri lykkjunni á hægri prjóni yfir síðustu lykkjuna, steypið þriðju lykkjunni yfir síðustu lykkjuna, fjórðu lykkjunni yfir síðustu lykkjuna og að lokum fimmtu lykkjuna yfir síðustu lykkjuna (= 1 lykkja eftir)
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-63

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Valeria wrote:

Salve, non capisco come intrecciare le maglie da ciascun lato per gli scalfi. C’è scritto come segue: Intrecciare 3 maglie 0-1-1-1-1-2 volte, 2 maglie 2-2-3-5-7-7 volte e 1 maglia 1-1-2-3-4-6 volte . Per la prima taglia non si capisce come si devono fare le diminuzioni. Inoltre le diminuzioni vanno fatte sul diritto solamente o sia a diritto che a rovescio? Io sono ferma dopo le prime 16 diminuzioni ( 8 e 8 da ogni lato) degli scalfi. Grazie valeria

24.04.2024 - 17:58

DROPS Design answered:

Buonasera Valeria, per la prima taglia deve intrecciare 2 maglie 2 volte e 1 maglia 1 volta = rimangono 83 maglie. Deve intrecciare le maglie all'inizio di ogni ferro a ogni lato come indicato. Buon lavoro!

01.05.2024 - 21:52

country flag Trix wrote:

Ik brei niet met rondbreinaalden maar met naalden met knop. A1 begint met 4 omslagen. Hoe doe je dat als die niet tussen steken zitten?

23.03.2023 - 22:35

DROPS Design answered:

Dag Trix,

Als je niet op de rondbreinaald breit, en de panden los van elkaar heen en weer breit, zet je aan elke zijkant 1 extra steek op als kantsteek. Deze kantsteken worden weggewerkt bij het in elkaar zetten van het werk.

24.03.2023 - 19:15

country flag Eva-Britt Gundersen wrote:

Kan jeg bruke pandora bomullsgarn til denne modellen?

26.04.2022 - 22:14

DROPS Design answered:

Hei Eva-Britt, Det er avhengig av tykkelsen på garnet og om det er likt med Drops Safran. Uansett, er det lurt å strikke en prøvelapp før du begynner og justere pinnestørrelsen hvis nødvendig. God fornøyelse!

27.04.2022 - 07:01

country flag Unni wrote:

Hei igjen, jeg strikker str.M. Jeg trenger en grundig forklaring av 11. runden ( omgangen ). Vennlig hilsen Unni.

14.06.2021 - 20:54

DROPS Design answered:

Hej Unni, 11.omgang (jeg udgår fra at du mener A.1) strikkes således: A.1A: (1r,1oms) x 3, 2 sammen x 4, A.1B: 1r, (2sammen) x 4, (1oms, 1r) x 5, 1oms, 2sammen x 4 gentag A.1B og sidst A.1C: 1r, 2sammen x 4, 1oms, 1r, 1oms, 1r, 1oms. Det vil sige du får 2 masker mindre i hver rapport af A.1B, sæt gerne et mærke imellem rapporterne :)

16.06.2021 - 12:29

country flag Miep wrote:

Als je zoals hier veel steken moet opzetten kan het handig zijn om na bv elke 50 steken een kort draadje van afstekende kleur tussen de steken te leggen. Raak je de tel kwijt hoef je niet zo ver terug . Met vriendelijke groet , Miep van de Graaf

13.06.2021 - 15:41

country flag Unni wrote:

Jeg mente den 11. runden, og da gjelder det selvfølgelig også runde nr.12. Det er for mange masker i A1B.

11.06.2021 - 16:00

country flag Unni wrote:

Jeg har spurt om hjelp til den 12. runden i dette mønsteret A1. Dere har sagt til en annen at det skal være 12m. i A1A, 22m. i A1B og 10m. i A1C i runde 7 i mønsteret. Det stemmer, og dere sier videre at det skal være 11m. i A1A, 20m. i A1B og 9 m. i A1C, men det stemmer overhodet ikke ikke. Kan dere være så snille å sjekke dette? Jeg har ventet en stund på mitt første spørsmål angående runde 12, så nå håper jeg på et raskt svar. Unni.

11.06.2021 - 15:57

DROPS Design answered:

Hei Unni. Husk å hake av for spørsmål når du sender inn et spørsmål du venter svar på. Ser at du har sendt inn 2 Kommentarer og disse blir ikke besvart. Når du sender inn et spørsmål er det fint om du oppgir hvilken størrelse du strikker, så kan vi dobbeltsjekke om det er noe feil med den størrelsen du strikker. Uten å vite hvilken str. du strikker, kan det være at du ikke strikker siste maske i A.1B sammen med første maske i A.1B når rapporten av A.1B skal gjentas? mvh DROPS design

14.06.2021 - 13:29

country flag Unni wrote:

Hei, jeg får ikke mønsteret til å stemme på rad nr.11. Slutten av A.1B er vanskelig å forstå. Jeg trenger å bli forklart hvordan jeg skal strikke hele den raden. Vennlig hilsen Unni.

07.06.2021 - 14:35

country flag Anna wrote:

Buon giorno, io ho iniziato il 3 diagramma, non capisco cosa devo fare dalla terza riga in poi alla metà di A.3B dove non ci sono caselle. Grazie

01.09.2020 - 22:10

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, deve lavorare il motivo come si presenta, nella riga 2 le maglie vengono diminuite, quindi deve semplicemente lavorare i quadratini. Buon lavoro!

01.09.2020 - 22:53

country flag Petra Meyer wrote:

Hallo ich komme mit der Runde 12 von A1 nicht klar bei mir verschiebt sich das Muster immer nach links. Ich weiß auch nicht welches die letzte Masche von A1B ist. Wäre schön wenn ich Hilfe bekommen könnte

27.08.2019 - 18:00

DROPS Design answered:

Liebe Frau Meyer, nach 7. Reihe sind es nur noch 12 M in A.1A, 22 M in jedem A.1B und 10 M in A.1C - nach 11. Reihen sind es nur noch 11 M in A.1A, 20 M in jedem A.1B und 9 M in A.1C. Viel Spaß beim stricken!

28.08.2019 - 08:32