Martine skrifaði:
Bonjour, Une question annexe: le forum est indisponible depuis un certain temps.... Est-ce général? Merci d'avance.
07.08.2019 - 13:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Martine, le forum francophone est effectivement actuellement indisponible pour des raisons techniques, si vous avez une question, vous pouvez volontiers utiliser cet espace ou contacter votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone, merci pour votre compréhension.
08.08.2019 - 09:04
Ulrike skrifaði:
Hallo Drops, ich habe das Unterteil des Schühchens gehäkelt. Am Knöchelriemen scheitert es. Ich verstehe nicht, wie ich anfangen muss, da man ja in der hinteren Mitte steht. Dann komme ich auch mit den Luftmaschen nicht zurecht. Da steht 1 Stäbchen in die 4. LM ab Nadel, dann ein stb in das nächste Stäbchen. Da sind dich erst nur LM oder. Können sie mir den Knöchelriemen bitte etwas verdeutlichen? Danke
30.04.2019 - 22:16DROPS Design svaraði:
Liebe Ulrike, das Knöchelriemchen wird über die mittleren 5-5-5-7 Maschen gehäkelt: markieren Sie die mittlere Maschen und beginnen Sie in die 2.-2.-2.3. Masche vor dieser mittelren Maschen, dann 1 Stb in den nächsten 5-5-5-7 M, (hinten am Schühchen), dann häkeln Sie 33-34-35-36 Luftmaschen (einschl. 3 Wende-Lm) und jetzt 1 Reihe Stb über diese Lm häkeln: 1 Stb in die 4. Lm ab der Nadel, 1 Stb in das nächste Stb, 1 Lm, 1 Stb für den Knopfloch überspringen und 1 Stb in jede Lm bis zur Ende der Reihe (= die 27-28-29-30 Lm + die 5-5-5-7 Stb). Viel Spaß beim häkeln!
02.05.2019 - 09:18
My Sweetie Slippers#mysweetieslippers |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hekluð tátilja fyrir skírn eða nafnagjöf úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 15-23
DROPS Baby 29-7 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun umferðar. Þegar heklað er fram og til baka endar umferðin með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Þegar heklað er fram og til baka endar umferðin með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. Heklað er í hverja lykkju (ekki á milli lykkja). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í umferð þannig: Skiptið út 1 fastalykkju/stuðli með 1 keðjulykkju. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir eru sá fjöldi fastalykkja/stuðla sem á að fækka og heklið til baka. 2 STUÐLAR SAMAN: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (nú hefur fækkað um 1 stuðul). KRABBAHEKL: Heklið fastalykkjur frá vinstri til hægri. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VINSTRI TÁTILJA: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á sólanum. Heklið 18-20-22-26 loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við) með heklunál 3 með BabyAlpaca Silk. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 16-18-20-24 loftlykkjum = 18-20-22-26 fastmalykkju, snúið stykkinu. Í næstu umferð eru heklaðar 3 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju þar til eftir er 1 fastalykkja í umferð og 3 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 22-24-26-30 fastalykkjur í umferð. Heklið síðan fastalykkjur fram og til baka (með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju) þar til 1 umferð er þar til stykkið mælist 3-4-4-5 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Fækkið nú um 2 fastalykkjur í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 18-20-22-26 fastalykkjur í umferð og stykkið mælist ca 3-4-4-5 cm. Klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki í hvert horn = 4 prjónamerki. Heklið nú stuðla í kringum sólann þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= miðja á annarri skammhlið) – Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), heklið 2-3-3-4 stuðla fram að horni, 2 stuðlar í hornið, 18-20-22-26 stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið, 5-7-7-9 stuðlar meðfram annarri skammhlið (= tá), 2 stuðlar í hornið, 18-20-22-26 stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið og 2-3-3-4 stuðlar fram að miðju að aftan, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 54-62-66-78 stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið eins og 1. umferð, en við 2 stuðlum í hverju horni að framan á tátilju (við tá) eru heklaðir 2 STUÐLAR SAMAN – sjá útskýringu að ofan = 52-60-64-76 stuðlar. Heklið nú 2-2-3-3 umferð með stuðlum (heklið 1 stuðul) án þess að fækka lykkjum. Stykkið mælist nú ca 3-3-4-4 cm á hæðina. BAND VIÐ ÖKKLA: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Byrjið frá réttu, heklið 2 umferðir með stuðlum fram og til baka yfir miðju 5-5-5-7 stuðlum frá miðju aftan á tátilju og endið með að hekla 33-34-35-36 loftlykkjur í lok síðustu umferðar, snúið stykki. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, 1 stuðull í næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul (= hnappagat), heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af 27-28-29-30 loftlykkjum sem eftir eru og 1 stuðul í hvern og einn af 5-5-5-7 síðustu stuðlum. Klippið frá og festið enda. EFRI PARTUR: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Byrjið frá réttu og heklið 1 stuðul í hvern og einn af miðju 7-9-9-11 stuðlum við miðju framan á tá. Heklið síðan mynstur fram og til baka eins og útskýrt er í A.1. Endurtakið umferð 1 og 2 í A.1 þar til efri parturinn mælist ca 4-4-5-5 cm. Klippið frá og festið enda. Saumið niður efri partinn hvoru megin á tátilju með smáu spori. KANTUR: Heklið 1 umferð með KRABBAHEKL – sjá útskýringu að ofan, meðfram öllu opinu á tátilju og í kringum allt bandið við ökla. Klippið frá og festið enda. BAND VIÐ MIÐJU: Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af miðju 5 fastalykkjum við miðju framan á tátilju (fyrsta umferð er hekluð frá bakhlið á krabbahekli). Heklið fastalykkjur fram og til baka þar til bandið mælist ca 6 cm. Brjótið bandið saman tvöfalt að röngu og saumið niður að innanverðu á tátilju með smáu spori. Saumið tölu við miðju aftan á tátilju ca 0,5 cm frá toppi. HÆGRI TÁTILJA: Heklið á sama hátt og vinstri tátilja, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. heklið alveg eins alveg að 2 fyrstu umferðum með stuðlum þar sem band við ökkla var heklað. Heklið nú 1 umferð með keðjulykkjum til baka frá réttu áður en 33-34-35-36 loftlykkjur eru heklaðar við band við ökkla. Afgangur af tátilju er heklaður eins og vinstri tátilja. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mysweetieslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.