Georgiana skrifaði:
Hi I hope you can help me. I've reached the point where you attach the shawl colour and continue stitching the right front piece but I'm finding the pattern hard to understand. At what point do I turn to continue the front right part of the garment? Is it after I attach the shawl collar ? I feel like the pattern is telling me to continue the entire garment (185 stitches) but obviously this is not correct as it splits to left and right side of the cardigan.
27.02.2017 - 19:52DROPS Design svaraði:
Dear Georgiana, when collar is done, work right shoulder on back piece from RS beg from sleeve (=in larger size): Work the first 14 sts like the first st in the pattern as before, A.6 as before (= 6 sts), repeat A.5 over the next 60 sts (= in total 5 times in width) (= sleeve/shoulder on back piece is now done), work now the first 12 tr from the shawl collar, A.4 over the next 7 tr, and finish with 9 sts like the first st in the pattern (= front band) = repeat A.5 in total 6 times in width (= 108 sts). Happy crocheting!
28.02.2017 - 08:53
Loretta Morandin skrifaði:
I tried to comment but each time it was too long and then it said I was a spammer so now I dont care about drawing the mistake to your attention.
20.02.2017 - 08:41DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Morandin, you can try again to shorten your comment or then send your feedback to your Drops store, who will forward us. Thank you. Happy crocheting!
20.02.2017 - 11:01
Mrs Yearick skrifaði:
Im having trouble doing the back of this pattern. The crochet tips say to crochet stitches not shown in pattern as is the first stitch in pattern, however the sides of the back keep growing on the diagonal. I've gone from 6 stitches to over 10 in less than 6 rows. If I do as the pattern shows I would then have hanging left over stitches on each side. How is the correct way to work the beginning and ending 6 stitches?
12.02.2017 - 17:56DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Yearick, you should always have the same number of sts and repeat in width, and it should be "straight". Sarting from WS work: A.1 (= over the first 8 chains/sts), repeat A.2 a total of 8-12 times (see size), and finish with A.3 (= over the last 6 chains/sts). From RS work: A.3, repeat A.2 and finish with A.1. Then repeat the last 4 rows in diagram (= A.z). Happy crocheting!
13.02.2017 - 11:32
Susan Schünemann skrifaði:
Hallo, ich habe Probleme, den Kragen und das Vorderteil zusammen zu bekommen. Ist es richtig, dass die Blende nur über den Kragen gehäkelt wird und nicht über das Rückenteil? Und wie wird dann zu Schluss der Kragen an den Halsausschnitt genäht? Da sind doch nur 24 Maschen "frei". Bis hierhin bin ich super klargekommen, aber dieser Schritt will mir nicht gelingen. Vielen Dank für die Hilfe!
23.01.2017 - 07:24DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schünemann, wenn Sie das rechte Vorderteil häkeln, wird der 1. Reihe von dem Ärmel anfangen, dann mit A.5 über die ersten Stb des Schalkragens, A.4 häkeln, und mit den Blendemasschen enden, so werden alle M von dem Kragen gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!
23.01.2017 - 11:08
Silver Rain |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Merino Extra Fine með öldumynstri. Stærð S/M - XXXL.
DROPS Extra 0-1310 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umf frá réttu er heklað í aftari lykkjubogann í l frá fyrri umf og í hverja umf frá röngu er heklað í fremri lykkjubogann í l frá fyrri umf. Hver umf með fl er hekluð frá röngu. Lykkjur sem ekki eru heklaðar eftir mynsturteikningu eru heklaðar eins og fyrsta l í mynstri, þ.e.a.s. í umf með fl eru l heklaðar með fl o.s.frv. ATH: Þessar l eru einnig heklaðar í aftari og fremri lykkjubogann miðað við réttu og röngu. LEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Í byrjun á hverri umf með þbst er fyrsta þbst skipt út fyrir 5 ll. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá bakstykki og upp að hnakka, skiptið síðan stykkinu og haldið er áfram niður á við á hvoru framstykki. BAKSTYKKI: Heklið 110-122-134-146-158 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Merino Extra Fine. Fyrsta umf í A.1 til A.3 (með fl) er hekluð frá röngu) þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 8 ll (meðtalin ll til að snúa við með), síðan A.2 yfir næstu 96-108-120-132-144 ll (= alls 8-9-10-11-12 sinnum á breidd), endið með A.3 yfir síðustu 6 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið svona áfram með mynstur. Endurtakið A.z á hæð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 50-51-52-53-54 cm – passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st (= frá réttu) – klippið frá. Heklið síðan ermar þannig: Heklið 25-22-20-17-14 LAUSAR ll, heklið síðan yfir bakstykki frá réttu þannig: Heklið A.6 yfir A.3, A.5 yfir A.2 og A.4 yfir A.1 (ATH: Passið uppá hvaða umf í mynstri A.6 og A.4 er byrjað á þannig að mynstrið haldi áfram á hæðina eins og áður) og endið með 25-22-20-17-14 LAUSAR ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) – LESIÐ LEIÐBEININGAR, snúið við. Heklið frá röngu þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), 1 fl í hverja af næstu 23-20-18-15-12 ll, heklið A.4, A.5 og A.6 eins og áður, heklið 1 fl í hverja af síðustu 25-22-20-17-14 ll = 25-22-20-17-14 fl í hvorri hlið á stykki og A.4 til A.6 (= alls 159-165-173-179-185 l). Fyrstu og síðustu 25-22-20-17-14 l eru ekki heklaðar eftir mynsturteikningu, heldur eins og fyrstu l í mynstri, þ.e.a.s. ef þbst eru heklaðir í mynstri þá eru ermarnar heklaðar eins og þbst – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið svona áfram þar til stykkið mælist alls 70-72-74-76-78 cm, passið uppá að næsta umf sé frá réttu, geymið stykkið og heklið sjalkraga. HÆGRI SJALKRAGI: Heklið 34-39-34-39-34 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Merion Extra Fine. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 2-0-2-0-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 28-32-28-32-28 st. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 5 fl, 5 hst, 18-22-18-22-18 st. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 st í hverja af 28-32-28-32-28 l. Endurtakið umf 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 6-6-7-7-8 cm þar sem stykkið er styst – stillið af að endað sé með umf 2 (= ranga). Klippið frá og festið enda. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið síðan hægra framstykki saman við hægri sjalkraga frá réttu þannig: Byrjið yst á ermi: Heklið fyrstu 25-22-20-17-14 l eins og fyrstu l í mynstri eins og áður, A.6 eins og áður (= 6 l), endurtakið A.5 yfir næstu 36-36-48-48-60 l (= alls 3-3-4-4-5 sinnum á breiddina), næsta A.5 er heklað yfir næstu 0-6-0-6-0 l á bakstykki og fyrstu 12-6-12-6-12 st frá sjalkraga, endurtakið A.5 alls 0-1-0-1-0 sinnum til viðbótar, A.4 yfir næstu 7 st, endið með 9-7-9-7-9 l eins og fyrstu l í mynstri (= kantur að framan) = A.5 er endurtakið alls 4-5-5-6-6 sinnum á breiddina (= 95-102-102-109-108 l). Haldið svona áfram með mynstrið. Þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48 cm frá þar sem ll voru heklaðar fyrir ermi (stykkið mælist alls 90-93-96-99-102 cm), passið uppá að næsta umf sé frá réttu. Klippið frá. Hoppið yfir fyrstu 25-22-20-17-14 l (= fyrir ermi), heklið A.3 yfir A.6 (passið uppá mynstur hringinn) og A.5 og A.4 eins og áður og 9-7-9-7-9 l eins og fyrsta l í mynstri (= 70-80-82-92-94 l). Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54 cm frá þar sem hoppað var yfir l fyrir ermi (stykkið mælist alls 140-144-148-152-156 cm), passið uppá að endað sem á 1 heilli mynstureiningu af A.x (passið að það séu jafn margar mynstureiningar á hæðina eins og á bakstykki). Klippið frá og festið enda. VINSTRI SJALKRAGI: Heklið 33-37-33-37-33 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Merino Extra Fine. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 1-5-1-5-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 27-31-27-31-27 st. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 17-21-17-21-17 st, 5 hst og 5 fl. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 st í hverja af 27-31-27-31-27 l. Endurtakið umf 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 6-6-7-7-8 cm þar sem það er styst – stillið af að endað sé með umf 2 (= ranga). VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið ekki lengur yfir miðju 24 l (= 2 mynstureiningar af A.5) = hálsmál. Heklið vinstra framstykki saman við vinstra sjalkraga frá réttu þannig: Heklið fyrstu 9-7-9-7-9 l frá sjalkraga eins og fyrsta l í mynstri, A.6 yfir næstu 6 st frá sjalkraga, A.5 alls 0-1-0-1-0 sinnum yfir sjalkraga, endurtakið A.5 yfir næstu 12-6-12-6-12 st frá sjalkraga, hoppið yfir 24 l fyrir hálsmál á milli hægra og vinstra framstykkis (= 2 mynstureiningar af A.5), heklið þær 0-6-0-6-0 l sem eftir eru, A.5 yfir fyrstu 0-6-0-6-0 st frá framstykki, endurtakið A.5 yfir næstu 36-36-48-48-60 l, A.4 yfir næstu 7 l, næstu 25-22-20-17-14 l eru heklaðar eins og fyrstu l í mynstri eins og áður = A.5 er endurtekið alls 4-5-5-6-6 sinnum á breiddina (= 95-102-102-109-108 l) Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48 cm frá þar sem ll voru heklaðar fyrir ermi (stykkið mælist alls 90-93-96-99-102 cm), passið að næsta umf sé frá réttu. Heklið frá réttu þannig: Heklið 9-7-9-7-9 l eins og fyrsta l í mynstri eins og áður, A.6 eins og áður, endurtakið A.5 eins og áður, heklið A.1 yfir A.4, snúið við og heklið til baka (= 70-80-82-92-94 l). Þ.e.a.s. ekki er lengur heklað yfir síðustu 25-22-20-17-14 l (= ermi). Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54 cm frá þar sem hoppað var yfir l fyrir ermi (stykkið mælist alls 140-144-148-152-156 cm), passið að endað sé á 1 heilli mynstureiningu af A.z (stillið mynstrið af eftir hægra framstykki). Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Byrjið neðst niðri á peysunni og heklið hliðarnar saman frá röngu í gegnum bæði stykkin þannig: 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir 1 cm, 1 fl um næstu umf *, endurtakið frá *-* meðfram allri hliðinni og endið með 1 fl. Haldið síðan áfram undir ermi í gegnum bæði stykkin þannig: * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og passið að endað sé á 1 fl. Heklið kragann saman við miðju að aftan þannig: 1 fl, * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. Saumið kragann við hálsmál. Brjótið smá kant uppá ermarnar og saumið eitt spor svo að kanturinn haldist uppi. Saumið tölur í. Tölum er hneppt í gegnum þbst umf í kanti að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1310
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.