DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 171-35
DROPS Design: Mynstur nr ne-215
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
400-500-600 g nr 0501, grár
150-200-200 g nr 0300, beige
100-100-100 g nr 0618, camel
50-100-100 g nr 0500, ljós grár

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 tbst/þbst verði 10 cm á breiddina. Mynstur A.5 (= 2 umf) mælist ca 5 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9.

LITUR-1 (fram-/bakst):
UMFERÐ 1-3: grár
UMFERÐ 4: camel
UMFERÐ 5-6: beige
UMFERÐ 7: ljós grár
UMFERÐ 8: beige
UMFERÐ 9: camel
UMFERÐ 10: grár
Heklið síðan með grár.

LITUR-2 (ermar):
Heklið með grár til og með 5.-3.-3. umf. Síðan 1 umf beige, 1 umf camel, 3 umf grár, 1 umf ljós grár, 1 umf beige og 1 umf camel. Haldið áfram með grár.

HEKLLEIÐBEININGAR-1
Í byrjun hverrar umf með tbst er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll. Umf endar með 1 kl í 4. ll.
Í byrjun hverrar umf með þbst er fyrsta þbst skipt út fyrir 5 ll. Umf endar með 1 kl í 5. ll, heklið kl að byrjun næsta tbst.

HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við um öxl):
Í byrjun hverrar umf með tbst heklið 4 ll, endið umf með 1 tbst í síðasta þbst í umf.
Byrjið hverja umf með þbst með 5 ll, endið umf með 1 þbst í síðasta tbst í umf.

ÚRTAKA:
Heklið 1 þbst, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta þbst, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 st.

TVÍBRUGÐINN STUÐULL (TBST) SAMAN:
3 tbst heklaðir saman í 1 tbst þannig: Heklið 1 tbst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tbst til viðbótar alveg eins, heklið 1 tbst til viðbótar, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL (ÞBST) SAMAN:
3 þbst heklaðir saman í 1 þbst þannig: Heklið 1 þbst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 þbst til viðbótar alveg eins, heklið 1 þbst til viðbótar, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

FIMMBRUGÐINN STUÐULL:
Bregðið þræðinum 5 sinnum um heklunálina, sækið þráðinn undir ll-bogann, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar = 1 l á heklunálinni.

FJÓRBRUGÐINN STUÐULL:
Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, sækið þráðinn undir ll-bogann, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 1 l á heklunálinni.

FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (FBST) SAMAN:
3 fbst heklaðir saman að 1 fbst þannig: ** Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, sækið þráðinn undir ll-bogann, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, **, endurtakið frá **-** 2 sinnum til viðbótar (= 4 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum allar l = 1 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklið fyrst einn ferning alveg eins í öllum stærðum. Heklið síðan áfram hringinn og fram og til baka á ferningnum (mismunandi eftir stærðum).

FERNINGUR:
Heklið 6 ll með heklunál nr 5,5 með litnum grár og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Haldið áfram hringinn eftir A.1 – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1 og LITUR-1. Heklið síðan A.2, A.3 alls 3 sinnum á breiddina, endið með A.4. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.2-A.4 er lokið eru 55 þbst meðfram hverri hlið og 4 hornbogar. Ferningurinn mælist ca 48 x 48 cm.

STÆRÐ S/M:
Heklið síðan hringinn eftir A.5 yfir þbst meðfram hverri hlið, um hvern hornboga er heklað A.6. Þegar A.5/A.6 er lokið hafa aukist út 10 þbst meðfram hverri hlið (= 65 þbst). Klippið frá.
Heklið nú vinstri öxl meðfram hlið-1 (sjá mynsturteikningu) með byrjun frá röngu þannig: Ekki er lengur heklað yfir miðju 9 þbst (= hálsmál). Byrjið að hekla næstu þbst þannig: Heklið A.8 yfir fyrstu 13 þbst, A.5 út umf eins og áður, um hornbogann er heklað A.5 (þ.e.a.s. í umf 1 í A.5 er heklað um ll-bogann). Þegar A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina er 1 umf hekluð þannig: Heklið 1 tbst í hvern þbst. Klippið frá.
Heklið nú hægri öxl meðfram enda á hlið 1, með byrjun frá horni frá röngu: - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið A.5 yfir ll-bogann, A.5 þar til eftir eru 13 þbst á undan hálsmáli (= 9 þbst), heklið A.7 yfir næstu 13 þbst. Þegar A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina er hekluð 1 umf með 1 tbst í hvern þbst. Klippið frá og festið enda.

STÆRÐ L/XL - XXL/XXXL:
Heklið síðan í hring eftir A.5 yfir þbst meðfram hverri hlið, um hvern hornboga er heklað A.6. Þegar A.5/A.6 hefur verið heklað til loka hafa verið auknir út 10 þbst meðfram hverri hlið (= 65 þbst). Klippið frá.
Heklið nú fram og til baka meðfram enda í hlið 1 (sjá mynsturteikningu), síðan meðfram hlið 2,3,4 og byrjun í hlið 1 með byrjun frá röngu þannig: Ekki er lengur heklað yfir miðju 9 þbst (= háls).
Byrjið að hekla í næstu þbst þannig: Heklið A.8 yfir fyrstu 13 þbst, A.5 út umf eins og áður, síðan er heklað A.6 um hornin og A.5 meðfram hliðum eins og áður – heklað er svona fram til og með síðasta horni (þ.e.a.s. meðfram hlið 2,3 og 4), síðan er heklað meðfram byrjun í hlið 1 þannig: A.5 þar til 13 þbst eru eftir á undan hálsi (= 9 þbst), heklið A.7 yfir næstu 13 þbst. Þegar A.7/A.8 er lokið á hæðina eru 75 þbst meðfram hlið, 2,3 og 4 og 25 þbst í hvorri hlið við hálsmál. Heklið nú mismunandi eftir stærðum.

STÆRÐ L/XL (axlir):
Heklið nú vinstri öxl, frá röngu þannig: - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 1 tbst í hvern þbst til loka umf á hlið 1, um fyrsta ll-bogann í hornboganum er heklaður fimmbrugðinn stuðull. Klippið frá og festið enda. Heklið hægri öxl á sama hátt, en byrjið um hornbogann í byrjun frá hlið 1 frá röngu.

STÆRÐ XXL/XXXL: Næsta umf byrjar frá röngu. Heklið A.5 yfir A.8, haldið áfram með A.5 meðfram hlið 1,2,3,4 og 1 og A.6 umf hornin eins og áður, endið með A.5 yfir A.7. Þegar A.5/A.6 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru axlirnar heklaðar á sama hátt og í stærð L/XL, klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI:
Heklið á sama hátt og framstykki, en án þess að fækka l við hálsmál, þ.e.a.s. heklið A.5 yfir allar l meðfram hlið 1 (í stað A.7/háls/A.8).

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma – saumið í ysta lykkjubogann. Saumið hliðarsauma þannig: Byrjið ca 8 cm frá neðri kanti (= klauf) og saumið upp þar til eftir eru ca 19-21-23 cm að öxl (= handvegur).

ERMI:
Stykkið er heklað í hring frá handveg og út. Byrjið frá miðju undir ermi á hlið. Heklið 50-55-60 tbst með heklunál nr 5,5 með litnum grár jafnt yfir hringinn í handveg (heklið í/um þbst/ll-bogann) – LESIÐ LITUR-2 og munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
Heklið nú þannig: Heklið A.5 (= 10-11-12 mynstureiningar á breiddina). Haldið áfram hringinn þar til heklaðar hafa verið 5-4-4 mynstureiningar á hæðina, heklið síðan A.9 yfir A.5 alls 1 sinni á hæðina og A.5 yfir A.9 alls 2 sinnum á hæðina, síðan í stærð L/XL er hekluð 1 umf með 1 tbst í hvern þbst.
JAFNFRAMT er fækkað um 5 þbst jafnt yfir í umf með þbst (= 1 mynstureining færri í hverri umf með úrtöku) þannig:
STÆRÐ S/M: 5., 7. og 13. umf.
STÆRÐ L/XL-XXL/XXXL: 5., 7., 11. og 13. umf.
Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 35-35-40 tbst í umf (= 7-7-8 mynstureiningar á breiddina).
Klippið frá og festið enda, ermin mælist ca 43-40-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmálið með litnum grár. Byrjið á öxl og heklið þannig: * 1 fl um ystu l, 2 ll, hoppið ca 1½ cm áfram *, endurtakið frá *-* í kringum allt opið, endið með 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = ll
symbols = kl
symbols = fl um ll-boga
symbols = tbst í tbst
symbols = tbst um ll-boga
symbols = þbst um ll/ll-boga
symbols = þbst í l
symbols = fbst um ll-boga/á milli 2 tbst í horni - sjá skýringu í uppskrift
symbols = ÞBST SAMAN (um ll/ll-boga) - sjá skýringu í uppskrift
symbols = ÞBST SAMAN (í l) - sjá skýringu í uppskrift
symbols = ÞBST SAMAN (um ll-boga) - sjá skýringu í uppskrift
symbols = 3 FBST SAMAN (um ll-boga) - sjá skýringu í uppskrift
symbols = FIMMFALDUR STUÐULL um ll-boga
symbols = sýnir síðustu umf/röð frá fyrri umf, umf/röð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = í næstu endurtekningu á þessari umf/röð á hæðina eru heklaðir 2 st-hópar um hvern ll-boga (hvoru megin við fbst)
symbols = 6 ll, 1 kl í fyrstu ll (sjá punkt í hring, umf byrjar og endar hér)
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

171-35 Harvest Love

margswaff, United States

171-35 Harvest Love

Tiggerkeogh, Ireland

Harvest Love

Sonja, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Linda Mortis wrote:

I am attempting to do the sleeves now it’s going well but I don’t understand how to decrease from the written instructions, a video on how to do this would be very helpful, the other videos for this top have been so good. Please can you do a video for the decrease of the sleeve or talk me through it please. Thank you

19.07.2022 - 20:23

DROPS Design answered:

Dear Linda, there is no video for the sleeves. To decrease, you can see the video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=27&lang=en. This explains how to work decrease. The rows with decreases are the rows that include triple treble crochets. So, at the beginning and end of these rows, you work 2 triple treble crochets together. Happy crocheting!

20.07.2022 - 17:04

country flag Karin wrote:

Hallo, ik ben nu met de 5e toer bezig in een andere kleur.. Volgens mij is het patroon anders bij het filmpje.. Ik heb losse opgezet, 5 dubbele stokjes 1 losse.. dan moet je 6 dubbele stokjes doen in de grote lus.. volgens mij staan er op het patroon losse tussen de steken.. op het filmpje zie ik dit niet terug

29.11.2021 - 12:33

DROPS Design answered:

Dag Karin,

Aan het begin van de toer haak je inderdaad 5 lossen en daarna dubbele stokjes met lossen ertussen. Als je goed kijkt is dit ook op het filmpje te zien dat er lossen tussen worden gehaakt.

01.12.2021 - 11:59

country flag Angela wrote:

Hallo, ich bin problemlos durch die Beschreibung bis zum dem Teil gekommen, an dem sich die Größen trennen. Ich versuche den Teil zu verstehen, der jetzt nicht mehr als Video zur Verfügung steht, sondern als Beschreibung der Größen L/XL - XXL/XXXL Vorderteil. Bis zum Punkt den Faden abschneiden ist alles i.o. Aber dann?? Was ist bei einem in Runden gearbeiteten Quadrat eine Rückreihe? Ich verstehe den Beginn absolut nicht. Kann mir bitte jemand helfen? Danke und Gruß Angla

04.06.2021 - 13:10

DROPS Design answered:

Liebe Angela, dieses Video zeigt wie man die Schulter häkelt, dh die mittleren Maschen werden markiert (= Halsausschnitt = 9 Maschen wie im Video) und mit einer Rückreihe jetzt von der Halsauschnitt (nach diesen 9 Maschen) bis zur Ecke dann an jeder anderen Seite bis zur letzten Ecke vor diesen 9 Maschen wieder). Könnte das Ihnen weiterhelfen?

04.06.2021 - 13:53

country flag Berryl Vogelezang wrote:

Moet ik bij het achterpand van maat L-XL, ook de rij dubbelestokjes voor de schouder haken? Als ik naar de tekenin met de afmetingen kijk lijkt het van wel. Als ik de beschrijving lees zie ik het niet terug. Daarom de twijfel én de vraag. Dank alvast.

08.06.2020 - 22:07

DROPS Design answered:

Dag Berryl,

Als je klaar bent met A.7/A8, dan ga je verder met; 'MAAT L/XL (schouder)' en haak je inderdaad 1 dubbel stokje in ieder stokje van de vorige toer.

11.06.2020 - 14:16

country flag Eva wrote:

Porqué hace ondas el cuadrado? No esta estirado como en vuestro video. Estoy utilizando Nepal y aguja del 5. Gracias!!

22.09.2018 - 10:32

DROPS Design answered:

Hola Eva, ya he respondido a tu anterior comentario, puedes ver la respuesta debajo.

29.09.2018 - 20:41

country flag Eva wrote:

Porque me hace ondas el cuadrado?? Estoy utilizando nepal y aguja del 5

22.09.2018 - 10:28

DROPS Design answered:

Hola Eva, el cuadrado te forma ondas cuando la tensión no es correcta. Es muy importante mantener la tensión del tejido uniforme en el patrón. Si tienes problemas con la tensión de la labor, puedes probar con diferentes agujas hasta encontrar la adecuada para tu tensión personal.

29.09.2018 - 20:36

country flag Paula wrote:

Is er ook een video van de mouwen, kom er helaas niet uit

27.08.2018 - 22:56

DROPS Design answered:

Dag Paula, Nee er is geen video voor de mouw, maar als je aangeeft waar je precies tegenaan loopt kunnen we je beter helpen. Je begint midden onder de mouw en je vervangt het eerste dubbel stokje door 4 lossen.

29.08.2018 - 11:12

country flag Paula wrote:

Is er ook een video van de mouwen, kom er helaas niet uit

27.08.2018 - 22:54

country flag Christelle Lavoine wrote:

Bonjour, je souhaiterais faire ce pull avec 1 coton qui se crochete en 2. Une taille 46/48 nécessiterait combien de pelotes sachant qu'elles font 100g et environ 560 mètres? Cordialement et bonne journée

06.05.2018 - 08:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lavoine, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuellement. Pour toute assistance complémentaire, merci de bien vouloir contacter le magasin où vous avez acheté votre coton. Bon crochet!

07.05.2018 - 09:08

Julie wrote:

Hi I am really struggling to follow the chart as I am not used to this format. Do you have a written version (UK English)? Or any advice? Thanks

25.03.2018 - 20:44

DROPS Design answered:

Dear Julie, we are sorry, but we don't have written out description of the charted pattern. If you get stuck you can always ask for help in person in the store you bought your DROPS yarn from. Happy crafting!

25.03.2018 - 23:03