Erling Andersen skrifaði:
Har i mulighed for at vise mig hvordan man hækler en vest str.54 med løkker
17.01.2019 - 18:01
Anni Andersen skrifaði:
Kan i hjælpe mig med en hæklet vest med løkker, str. 54
17.01.2019 - 17:47DROPS Design svaraði:
Hei Anni. Nederst ser du en målskisse med alle plaggets mål i de forskjellige størrelsene. Dette skal hjelpe deg med å velge riktig størrelse. God fornøyelse
23.01.2019 - 15:11
Sweet Indigo Vest |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hekluð peysa með stuttum ermum úr DROPS Cotton Viscose með laskalínu og gatamynstri, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1293 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐIBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út með 3 ll. Í byrjun á hverri umf með fl byrjar umf með 1 ll, þessi ll kemur EKKI í stað fyrstu fl. Í lok hverrar umf með fl eða st er síðasta fl/st heklað í fyrstu fl eða í 3. ll frá byrjun fyrri umf (eftir því hvort fyrri umf sé með fl eða st). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Þegar umf 1-5 hefur verið heklað 1 sinni, endurtakið síðan umf 2-5. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að hekla 2 fl/st í sömu l. ÚRTAKA: Heklið 1 fl/st, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður, fram og til baka frá miðju að framan. BERUSTYKKI: Heklið 134-134-147-147-158-158 ll með heklunál nr 3,5 með Cotton Viscose. Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 3 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-0-1-1-0-0 ll og endið með 1 fl í hverja af síðustu 0-0-1-1-0-0 ll = 100-100-110-110-118-118 fl (meðtaldar 4 fl í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant). Heklið 1 umf fram og til baka með 1 fl í hverja l frá fyrri umf. Heklið 1 umf fl frá röngu þar sem auknar eru út 24-24-22-22-22-22 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 124-124-132-132-140-140 fl í umf – ATH: Ekki er aukið út yfir síðustu 4 l í hvorri hlið. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM OG ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Næsta umf er hekluð frá réttu ÞANNIG: Heklið A.1 yfir fyrstu 17-17-19-19-21-21 fl (4 fyrstu l í byrjun umf = kantur að framan), heklið 2 fl í hvora af næstu 2 fl (= laskalína), heklið A.2 yfir næstu 6 l (þ.e.a.s. 1 fl í fyrstu fl, 6 ll, hoppið yfir 4 fl, 1 fl í næstu fl) (= vinstra framstykki), heklið 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af næstu 14 fl, 2 fl í næstu fl (= ermi), A.2 yfir næstu 6 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af næstu 26-26-30-30-34-34 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl (= bakstykki), A.2 yfir næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14 fl, 2 fl í næstu fl (= ermi), A.2 yfir næstu 6 l, 2 fl í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af síðustu 17-17-19-19-21-21 fl (= hægra framstykki, 4 síðustu fl í lok umf = kantur að framan), snúið stykkinu við – ATH: Útaukning í þessari umf er talin með í samanlögðum fjölda laskaútaukninga. Haldið áfram fram og til baka með A.1 yfir ermar, fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 2 umf st, 2 umf fl) og A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma (þegar umf 1-5 hefur verið heklað 1 sinni, endurtakið síðan umf 2-5). JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í hverri umf – ATH: Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum þannig: LASKAÚTAUKNING Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 2 l á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki með því að hekla 2 st/fl í hvora af 2 fl/st á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 1 l á undan/á eftir A.2 (= 8 l fleiri) í hverri umf alls 3-6-6-11-13-18 sinnum (meðtalin fyrsta laskaútaukning). Aukið síðan út um 1 l á eftir/á undan A.2 með því að hekla 2 st/fl í fl/st á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 1 l á undan/á eftir A.2 (= 4 l fleiri) í hverri umf alls 16-15-17-13-13-10 sinnum. LASKAÚTAUKNING Á ERMUM: Aukið út um 1 l á eftir/á undan A.2 í hvorri hlið á ermum með því að hekla 2 st/fl í fl/st á undan/á eftir A.2 á ermum. Endurtakið útaukningu með 1 l í hverri umf alls 19-21-23-24-26-28 sinnum (meðtalin fyrsta laskaútaukning). SKIPTING FRÁ A.2 AÐ FL/ST: JAFNFRAMT í síðustu umf með útaukningu eru nú heklaðar 6 fl/st yfir A.2 í stað A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (stillið af eftir mynstri A.1). Eftir síðustu útaukningu eru 288-316-340-368-400-436 l í umf. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 fl/st eins og áður í hverja af fyrstu 44-49-53-59-65-72 l (= vinstra framstykki), hoppið yfir næstu 60-64-68-70-74-78 m (= ermi), heklið 12 ll, heklið 1 fl/st eins og áður í hverja af næstu 80-90-98-110-122-136 l (= bakstykki), hoppið yfir næstu 60-64-68-70-74-78 l (= ermi), heklið 12 ll og heklið 1 fl/st eins og áður í hverja af síðustu 44-49-53-59-65-72 l (= hægra framstykki) = 192-212-228-252-276-304 l í umf. Heklið síðan áfram fram- og bakstykki og ermar áfram hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í umf – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 umf fl/st eins og áður með 1 fl/st í hverja l og 12 fl/st um ll-bogann undir hvorri ermi JAFNFRAMT er aukið út um 22-20-22-22-22-24 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 4 síðustu l í hvorri hlið (= kantur að framan) = 214-232-250-274-298-328 l í umf. Heklið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.3 með 4 fl/st í hvorri hlið fyrir kant að framan, þ.e.a.s. heklið þannig (umf 1 = fl frá réttu – ef næsta umf er frá röngu er klippt frá og byrjað frá réttu): UMFERÐ 1: 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 l (= kantur að framan), * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 6 ll, hoppið yfir 4 l *, endurtakið frá *-* þar til 6 fl eru eftir í umf og endið með 1 fl í hverja af síðustu 6 fl (síðustu 4 l = kantur að framan), snúið stykkinu. UMFERÐ 2: 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st í hverja af næstu 5 l, * 2 ll, 1 fl um ll-boga, 2 ll, 1 st í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir í umf og endið með 1 st í hverja af síðustu 4 l, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hvern af næstu 3 st, * 1 st í hvorn af næstu 2 st, 3 ll, 1 kl í fl, 3 ll *, endurtakið frá *-* þar til 6 st eru eftir og endið með 1 st í hvern af síðustu 6 st, snúið stykkinu. UMFERÐ 4: 1 ll, 1 fl í hvern af fyrstu 6 st, * 4 ll, 1 fl í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* þar til 4 st eru eftir í umf, 1 fl í hvern af síðustu 4 st, snúið stykkinu. UMFERÐ 5: 1 ll, 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 6 ll *, endurtakið frá *-* þar til 6 fl eru eftir í umf, endið með 1 fl í hverja af næstu 6 fl. Haldið svona áfram með mynstur eftir teikningu A.3 (endurtakið umf 2-5 í mynstri). Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-37-38 cm frá prjónamerki undir ermi – endið eftir umf 4 eða 5 í mynstri, heklið 1 umf með st, þ.e.a.s. heklið 1 st í hverja fl frá fyrri umf og 4 st um hvern ll-boga, snúið stykkinu og heklið 1 umf fl til baka með 1 fl í hvern st. Klippið frá, stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: = 60-64-68-70-74-78 l. Heklið 6 lausar ll, heklið 1 fl/st í hverja l á ermi eins og áður og endið umf með 8 ll, snúið stykkinu. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), heklið 1 st í hverja af næstu 4 ll, 1 st í hvern st frá fyrri umf JAFNFRAMT er fækkað um 12 st jafnt yfir og 1 st í hverja af 6 ll frá byrjun fyrri umf = 60-64-68-70-74-78 st í umf. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Heklið 1 fl í hverja fl frá ll-umf. ATH: Ekki er heklað í ll sem ekki var heklað í fyrstu umf = 100-100-110-110-118-118 fl. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma kant í kant í ystu lykkjubogana. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í, efsta talan er saumuð ca 2 cm frá hálsmáli, síðan er saumað með ca 8 cm millibili (tölum er hneppt á milli st í kanti að framan). |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1293
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.