Christina wrote:
In der deutschen Angabe ist ein weiterer Fehler: Bei den Ärmeln steht: "Diese Abnahmen insgesamt 11-13-12-13-14-16 x beidseitig arb, abwechselnd in jeder 4. und 5. R = 50-50-56-56-56-62 M" Das kann nicht ganz stimmen, da ich bei Größe XXL mit 90 Maschen nach den Zunahmen starte und 14 Abnahmen á 2M sind am Ende 62 Maschen. In der englischen Anleitung stehen wohl die korrekten Maschenzahlen am Ende Abnahmen: "50-50-56-56-62-62"
28.04.2019 - 12:07DROPS Design answered:
Liebe Christina, stimmt, danke für den Hinweis, deutsche Anleitung wird angepasst. Viel Spaß beim häkeln!
29.04.2019 - 10:17Christina wrote:
Oben unter "MUSTER" steht: "Wenn die 1.-5. R 1 x gehäkelt wurde, die 2.-5. R fortlaufend wdh.", während weiter unten ("PASSE") steht: "wenn die 1 -5. R 1 x gehäkelt wurde, die 2.-4. R wdh". Ich nehme an die obere Angabe stimmt, da sonst das Muster nicht mehr passt. Korrekt?
19.03.2019 - 08:36DROPS Design answered:
Liebe Christina, hier sollen Sie die Reihen 2 - 5 wiederholen, deutsche Anleitung wird korrigiert, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim häkeln!
19.03.2019 - 11:12Ingrid Stenholm wrote:
Hej! Har garnet Cotton Viscose utgått? Varför? det är ju det finaste garnet som finns.
25.04.2018 - 09:57DROPS Design answered:
Hej Ingrid, ja desværre men vi har DROPS Safran som er et lidt blankere bomuldsgarn :)
26.04.2018 - 09:18Titi wrote:
Bonjour, A la fin des augmentations raglans manches et dos+devant+ 6 mailles au dessus de A2, j'ai + de 316 mailles ( taille M) Pouvez vous être plus claire pour cette explication : Merci par avance pour votre aide
14.09.2017 - 14:50DROPS Design answered:
Bonjour Titi, vous augmentez pour les devants et le dos: 6 x 8 m + 15 x 4 m (= 108 m au total) et pour les manches: 21 x 4 m (= 84 m au total). Vous aviez 124 m + 108 + 84 = 316 m. Bon crochet!
14.09.2017 - 16:45Coco wrote:
Bonjour concernant les augmentations raglan j'ai bien fait celles des devants et du dos mais je ne vois pas comment faire celle des manches merci de votre réponse
09.07.2017 - 16:06DROPS Design answered:
Bonjour Coco, en fonction de la taille, les augmentations des manches se font plus ou moins en même temps que celles du dos et des devants, c'est-à-dire ainsi: Dos et devants: 3-18 x 2B tous les rangs et 16-30 x 1B tous les rangs Manche: 19-28 x 1 B tous les rangs. Augmentez avant A.2 (= fin du devant gauche, des manches et du dos), et/ou après A.2 (= fin des manches, début du dos et du devant droit). Bon crochet!
10.07.2017 - 09:43Kine wrote:
Hi! What does the "0 0 1 1 0 0" mean?
24.10.2016 - 15:14DROPS Design answered:
Dear Kine, each number refers to a size, ie when you have to work until 0-0-1-1-0-0 ch remains, no chain will remain in 1st, 2nd, 5th and 6th size, only in 3rd and 4th size. Happy crocheting!
24.10.2016 - 15:58Dea wrote:
All'inizio del lavoro dice di fare la prima riga di m.b. sul rovescio del lavoro, poi due righe a maglie basse avanti e indietro e poi un'altra riga con aumenti dal rovescio del lavoro...seguendo questa successione mi ritrovo con quattro righe e quindi R, D, R , D e non rovescio...o sto sbagliando qualcosa e la riga con aumenti è la seconda delle due avanti e indietro? Spero di essermi spiegata bene. Grazie.
03.08.2016 - 15:39DROPS Design answered:
Buongiorno Dea. Chiediamo una verifica alla casa madre. L'eventuale correzione verrà inserita nella spiegazione online. Grazie e buon lavoro!
03.08.2016 - 15:48
Sweet Indigo Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Viscose með laskalínu og gatamynstri, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1294 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐIBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út með 3 ll. Í byrjun á hverri umf með fl byrjar umf með 1 ll, þessi ll kemur EKKI í stað fyrstu fl. Í lok hverrar umf með fl eða st er síðasta fl/st heklað í fyrstu fl eða í 3. ll frá byrjun fyrri umf (eftir því hvort fyrri umf sé með fl eða st). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Þegar umf 1-5 hefur verið heklað 1 sinni, endurtakið síðan umf 2-5. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að hekla 2 fl/st í sömu l. ÚRTAKA: Heklið 1 fl/st, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður, fram og til baka frá miðju að framan. BERUSTYKKI: Heklið 134-134-147-147-158-158 ll með heklunál nr 3,5 með Cotton Viscose. Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 3 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-0-1-1-0-0 ll og endið með 1 fl í hverja af síðustu 0-0-1-1-0-0 ll = 100-100-110-110-118-118 fl (meðtaldar 4 fl í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant). Heklið 1 umf með fl í hverja l frá fyrri umf. Heklið 1 umf fl frá röngu þar sem auknar eru út 24-24-22-22-22-22 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 124-124-132-132-140-140 fl í umf – ATH: Ekki er aukið út yfir síðustu 4 l í hvorri hlið. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM OG ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 17-17-19-19-21-21 fl (4 fyrstu l í byrjun umf = kantur að framan), heklið 2 fl í hvora af næstu 2 fl (= laskalína), heklið A.2 yfir næstu 6 l (þ.e.a.s. 1 fl í fyrstu fl, 6 ll, hoppið yfir 4 fl, 1 fl í næstu fl) (= vinstra framstykki), heklið 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af næstu 14 fl, 2 fl í næstu fl (= ermi), A.2 yfir næstu 6 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af næstu 26-26-30-30-34-34 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl (= bakstykki), A.2 yfir næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14 fl, 2 fl í næstu fl (= ermi), A.2 yfir næstu 6 l, 2 fl í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af síðustu 17-17-19-19-21-21 fl (= hægra framstykki, 4 síðustu fl í lok umf = kantur að framan), snúið stykkinu við – ATH: Útaukning í þessari umf er talin með í samanlögðum fjölda laskaútaukninga. Haldið áfram fram og til baka með A.1 yfir ermar, fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 2 umf st, 2 umf fl) og A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma (þegar umf 1-5 hefur verið heklað 1 sinni, endurtakið síðan umf 2-5). JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í hverri umf – ATH: Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum þannig: LASKAÚTAUKNING Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 2 l á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki með því að hekla 2 st/fl í hvora af 2 fl/st á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 2 st á undan/á eftir A.2 (= 8 l fleiri) í hverri umf alls 3-6-6-11-13-18 sinnum (meðtalin fyrsta laskaútaukning). Aukið síðan út um 1 l á undan/á eftir A.2 (= 4 l fleiri) með því að hekla 2 st/fl í fl/st á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 1 l í hverri umf alls 16-15-17-13-13-10 sinnum. LASKAÚTAUKNING Á ERMUM: Aukið út um 1 l á undan/á eftir A.2 í hvorri hlið á ermum með því að hekla 2 st/fl í fl/st á undan/á eftir A.2 á ermum. Endurtakið útaukningu með 1 l í hverri umf alls 19-21-23-24-26-28 sinnum (meðtalin fyrsta laskaútaukning). SKIPTING FRÁ A.2 AÐ FL/ST: JAFNFRAMT í síðustu umf með útaukningu eru nú heklaðar 6 fl/st yfir A.2 í stað A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (stillið af eftir mynstri A.1). Eftir síðustu útaukningu eru 288-316-340-368-400-436 l í umf. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 fl/st eins og áður í hverja af fyrstu 44-49-53-59-65-72 l (= vinstra framstykki), hoppið yfir næstu 60-64-68-70-74-78 m (= ermi), heklið 12 ll, heklið 1 fl/st eins og áður í hverja af næstu 80-90-98-110-122-136 l (= bakstykki), hoppið yfir næstu 60-64-68-70-74-78 l (= ermi), heklið 12 ll og heklið 1 fl/st eins og áður í hverja af síðustu 44-49-53-59-65-72 l (= hægra framstykki) = 192-212-228-252-276-304 l í umf. Heklið síðan áfram fram- og bakstykki og ermar áfram hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í umf – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 umf fl/st eins og áður með 1 fl/st í hverja l og 12 fl/st um ll-bogann undir hvorri ermi JAFNFRAMT er aukið út um 22-20-22-22-22-24 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 4 síðustu l í hvorri hlið (= kantur að framan) = 214-232-250-274-298-328 l í umf. Heklið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.3 með 4 fl/st í hvorri hlið fyrir kant að framan, þ.e.a.s. heklið þannig (umf 1 = fl frá réttu – ef næsta umf er frá röngu er klippt frá og byrjað frá réttu): UMFERÐ 1: 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 l (= kantur að framan), * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 6 ll, hoppið yfir 4 l *, endurtakið frá *-* þar til 6 fl eru eftir í umf og endið með 1 fl í hverja af síðustu 6 fl (síðustu 4 l = kantur að framan), snúið stykkinu. UMFERÐ 2: 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st í hverja af næstu 5 l, * 2 ll, 1 fl um ll-boga, 2 ll, 1 st í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir í umf og endið með 1 st í hverja af síðustu 4 l, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hvern af næstu 3 st, * 1 st í hvorn af næstu 2 st, 3 ll, 1 kl í fl, 3 ll *, endurtakið frá *-* þar til 6 st eru eftir og endið með 1 st í hvern af síðustu 6 st, snúið stykkinu. UMFERÐ 4: 1 ll, 1 fl í hvern af fyrstu 6 st, * 4 ll, 1 fl í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* þar til 4 st eru eftir í umf, 1 fl í hvern af síðustu 4 st, snúið stykkinu. UMFERÐ 5: 1 ll, 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 6 ll *, endurtakið frá *-* þar til 6 fl eru eftir í umf, endið með 1 fl í hverja af næstu 6 fl. Haldið svona áfram með mynstur eftir mynsturteikningu A.3 (endurtakið umf 2-5 í mynstri). Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-37-38 cm frá prjónamerki undir ermi – endið eftir umf 4 eða 5 í mynstri, heklið 1 umf með st, þ.e.a.s. heklið 1 st í hverja fl frá fyrri umf og 4 st um hvern ll-boga, snúið stykkinu og heklið 1 umf fl til baka með 1 fl í hvern st. Klippið frá, stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: = 60-64-68-70-74-78 l. Stykkið er heklað fram og til baka. Setjið 1 prjónamerki í umf – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 6 lausar ll, heklið 1 fl/st í hverja l á ermi eins og áður og endið umf með 8 ll, snúið stykkinu. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), heklið 1 st í hverja af næstu 4 ll, 1 st í hvern st frá fyrri umf JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-0-4-4 st jafnt yfir og 1 st í hverja af 6 ll frá byrjun fyrri umf = 72-76-80-82-90-94 st í umf. Klippið frá og byrjið aftur frá réttu. Heklið síðan mynstur eftir A.3 þannig (umf 1 = fl frá réttu): Heklið 11-13-12-13-14-16 fl, heklið A.3A þar til eftir eru 13-15-14-15-16-18 l í umf, heklið A.3B og endið með 1 fl í hverja af síðustu 11-13-12-13-14-16 l, snúið stykkinu. Haldið svona áfram með mynstur eftir A.3 (endurtakið umf 2-5). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! JAFNFRAMT í umf 2 er fækkað um 1 l á hvorri hlið með því að hekla 2 fyrstu st í umf saman 2 og 2 og 2 síðustu st í umf saman 2 og 2 – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku alls 11-13-12-13-14-16 sinnum í hvorri hlið til skiptis í 4. hverri og 5. hverri umf = 50-50-56-56-62-62 l. Haldið áfram með A.3 fram og til baka þar til ermin mælist ca 46-46-45-45-43-43 cm frá prjónamerki – endið eftir umf 4 eða 5 í mynstri (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna til að fá rétta lengd á ermum. Heklið nú st fram og til baka yfir allar l – ATH: Heklið nú 1 st í hverja fl og 4 st um hvern ll-boga. Þegar kanturinn með st mælist 5 cm og ermin mælist ca 51-51-50-50-48-48 cm frá handveg, klippið frá. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Heklið 1 fl í hverja fl frá ll-umf. ATH: Ekki er heklað í ll sem ekki var heklað í fyrstu umf = 100-100-110-110-118-118 fl. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma kant í kant í ystu lykkjubogana. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í, efsta talan er saumuð ca 2 cm frá hálsmáli, síðan er saumað með ca 8 cm millibili (tölum er hneppt á milli st í kanti að framan). |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Kritzer Róberzné wrote:
Érdeklődnék, hogy a PAPATYA Batik fonal jó- e, és hogy hogyan tudom behelyettesíteni. Köszönöm váladzod!
29.05.2022 - 15:23