Sweet Indigo |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Viscose með laskalínu, gatamynstri og kanti með tölum fyrir miðju aftan á berustykki, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1295 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Í byrjun á hverri umf með fl er byrjað með 1 ll, þessi ll kemur EKKI í stað fyrstu fl. Í lok hverrar umf með fl eða st er síðasta fl/st hekluð í 1. fl eða í 3. ll frá byrjun fyrri umf (eftir því hvort fyrri umf var fl eða st. Þegar heklað er í hring: Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, umf endar með 1 kl í 3. ll. Í byrjun hverrar umf með fl byrjar með 1 ll (þessi ll kemur EKKI í stað fyrstu fl), umf endar með 1 kl í 1. ll. MYNSTUR Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Þegar umf 1-5 hefur verið heklað 1 sinni, endurtakið umf 2-5 áfram. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að hekla 2 fl/st í sömu l. ÚRTAKA: Heklið 1 fl/st, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan. BERUSTYKKI: Heklið 134-134-147-147-158-158 ll með heklunál nr 3,5 með Cotton Viscose. Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af 3 næstu ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-0-1-1-0-0 ll og endið með 1 fl í hverja af 0-0-1-1-0-0 síðustu ll = 100-100-110-110-118-118 fl (meðtaldar 4 fl í hvorri hlið við miðju að aftan fyrir kant). Heklið 2 umf fram og til baka með 1 fl í hverja l frá fyrri umf. Heklið 1 umf fl frá röngu þar sem auknar eru út 24-24-22-22-22-22 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 124-124-132-132-140-140 fl í umf – ATH: Ekki er aukið út yfir síðustu 4 fl í hvorri hlið. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM OG ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 17-17-19-19-21-21 fl (þær 4 fyrstu l í byrjun umf = kantur fyrir tölur), heklið 2 fl í hvora af 2 næstu fl (= laskaútaukning), heklið A.2 yfir næstu 6 l (þ.e.a.s. 1 fl í fyrstu fl, 6 ll, hoppið yfir 4 fl, 1 fl í næstu fl) (= hálft bakstykki), heklið 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af næstu 14 fl, 2 fl í næstu fl (= ermi), A.2 yfir næstu 6 fl, 2 fl í hvora af 2 næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 26-26-30-30-34-34 fl, 2 fl í hvora af 2 næstu fl (= framstykki), A.2 yfir næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14 fl, 2 fl í næstu fl (= ermi), A.2 yfir næstu 6 l, 2 fl í hvora af 2 næstu fl, 1 fl í hverja af síðustu 17-17-19-19-21-21 fl (= hálft bakstykki, 4 síðustu fl í lok umf = kantur fyrir tölur), snúið stykkinu – ATH: Útaukning í þessari umf eru taldar með í loka fjölda laskaútaukninga. Haldið áfram fram og til baka með A.1 yfir ermar, fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 2 umf st, 2 umf fl) og A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (þegar umf 1-5 hafa verið heklaðar 1 sinni, endurtakið umf 2-5 áfram). JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í hverri umf – ATH: Aukið er mismunandi út á fram- og bakstykki og á ermum þannig: LASKAÚTAUKNING Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 2 l á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki með því að hekla 2 st/fl í hvora af 2 fl/st á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 2 st á undan/á eftir A.2 (= 8 l fleiri) í hverri umf alls 3-6-6-11-13-18 sinnum (meðtalin fyrsta laskaútaukning). Aukið síðan út um 1 l á undan/á eftir A.2 með því að hekla 2 st/fl í fl/st á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 1 l á undan/á eftir A.2 (= 4 l fleiri) í hverri umf alls 16-15-17-13-13-10 sinnum. LASKAÚTAUKNING Á ERMUM: Aukið út um 1 l á undan/á eftir A.2 í hvorri hlið á ermum með því að hekla 2 st/fl í fl/st á undan/á eftir A.2 á ermum. Endurtakið útaukningu með 1 l í hverri umf alls 19-21-23-24-26-28 sinnum (meðtalin fyrsta laskaútaukning). SKIPTING FRÁ A.2 TIL FL/ST: JAFNFRAMT í síðustu umf með útaukningu eru nú heklaðar 6 fl/st yfir A.2 í stað A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (stillið af eftir mynstri A.1). Eftir síðustu útaukningu eru 288-316-340-368-400-436 l í umf. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 fl/st eins og áður í hverja af fyrstu 44-49-53-59-65-72 l (= hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 60-64-68-70-74-78 m (= ermi), heklið 12 ll, heklið 1 fl/st eins og áður í hverja af næstu 80-90-98-110-122-136 l (= framstykki), hoppið yfir næstu 60-64-68-70-74-78 l (= ermi), heklið 12 ll og heklið 1 fl/st eins og áður í hverja af síðustu 44-49-53-59-65-72 l (= hálft bakstykki) = 192-212-228-252-276-304 l í umf. Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar áfram hvort fyrir sig. Klippið frá og festið enda. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í umf – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Stykkið er síðan heklað í hring. Byrjið 4 l inn frá annarri hliðinni. Nú er ekki lengur heklað yfir 4 fyrstu st-l. Heklið 1 umf fl/st eins og áður með 1 fl/st í hverja l og 12 fl/st um ll-bogann undir hvorri ermi JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-20-22-22-22-24 l jafnt yfir, þar til 4 l eru eftir, hoppið yfir þessar l = 210-228-246-270-294-324 l í umf. Heklið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið * 1 fl í hvora af 2 fyrstu/næstu l, 6 ll, hoppið yfir 4 l *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf. UMFERÐ 2: Heklið * 1 st í hvora af fyrstu/næstu 2 fl, 2 ll, 1 fl um ll-bogann, 2 ll *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf. UMFERÐ 3: Heklið * 1 st í hvorn af 2 fyrstu/næstu st, 3 ll, 1 kl í fl, 3 ll *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf. UMFERÐ 4: Heklið * 1 fl í hvorn af 2 fyrstu/næstu st, 4 ll *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í hvoraaf 2 fyrstu/næstu fl, 6 ll *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf. Haldið svona áfram með mynstur eftir A.3 (endurtakið umf 2-5 í mynstri). Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-37-38 cm frá prjónamerki undir ermi – endið eftir umf 4 eða 5 í mynstri, heklið 1 umf með st, þ.e.a.s. heklið 1 st í hverja fl frá fyrri umf og 4 st um hvern ll-boga. Heklið 1 umf fl með 1 fl í hvern st. Klippið frá, stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: = 60-64-68-70-74-78 l. Stykkið er heklað í hring. Setjið 1 prjónamerki í umf – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Látið þetta prjónamerki fylgja með í stykkinu. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 6 lausar ll, heklið 1 fl/st í hverja l á ermi eins og áður og endið umf með 6 ll, endið með 1 kl í fyrstu ll í umf. Heklið 1 st í hverja af fyrstu 6 ll, 1 st í hvern st frá fyrri umf JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-0-4-4 st jafnt yfri og heklið 1 st í hverja af síðustu 6 ll = 72-76-80-82-90-94 st í umf. Heklið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.3 þannig: (fl er hekluð eins og fyrsta l í A.3B), heklið 11-13-12-13-14-16 fl, heklið A.3A þar til eftir eru 13-15-14-15-16-18 l í umf, heklið A.3B og endið með 1 fl í hverja og eina af síðustu 11-13-12-13-14-16 l. Haldið svona áfram með mynstur eftir A.3 (endurtakið umf 2-5). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! JAFNFRAMT í 2. umf er fækkað um 1 l í hvorri hlið með því að hekla 2 fyrstu st í umf saman 2 og 2 og 2 síðustu st í umf saman 2 og 2 – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku alls 11-13-12-13-14-16 sinnum og í hvorri hlið til skiptis í 4. og 5. hverri umf = 50-50-56-56-62-62 st. Heklið A.3 þar til ermin mælist ca 46-46-45-45-43-43 cm frá prjónamerki – endið eftir umf 4 eða 5 í mynstri (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri berustykkis). Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna til að fá rétta ermalengd. Heklið síðan st hringinn yfir allar l – ATH: Heklið 1 st í hverja fl og 4 st um hvern ll-boga. Þegar kanturinn með st mælist 5 cm og ermin mælist ca 51-51-50-50-48-48 cm frá handveg, klippið frá. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Byrjið fyrir miðju að aftan. Heklið 1 fl í hverja fl frá ll-umf. ATH: Ekki er heklað í ll sem ekki var heklað í fyrstu umf = 100-100-110-110-118-118 fl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í, efsta talan er saumuð ca 2 cm frá hálsmáli, staðsetjið hinar tölurnar jafnt yfir niður yfir kant fyrir tölur (tölum er hneppt á milli st í kanti). Leggið vinstri kant aftan við hægri kant og saumið niður. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Desiree Barhorst-Weller wrote:
Ik heb een heupomtrek van 142 cm. Zal ik maat XXXL nog wel passen dan of ben ik genoodzaakt nog groter te haken/een grotere haaknaald te nemen?
13.03.2022 - 20:54DROPS Design answered:
Dag Desiree,
Je zou inderdaad een grotere haaknaald kunnen nemen voor het onderste deel. Misschien eerst even een proeflapje maken om te kijken op welke afmetingen je dan uitkomt.
14.03.2022 - 12:29Solfrid Løkke wrote:
Hei, Jeg forstår ikke dette med stolpemaskene når jeg starter med bolen. Det står at jeg ikke skal hekle over de 4 første stolpemaskene og heller ikke de fire maskene når jeg er nesten rundt igjen. For meg blir det da et hull på 8 masker og det tror jeg ikke skal stemme. Jeg lurer også litt på om jeg skal hekle rundt og rundt på bolen og ikke fram og tilbake. Mvh Solfrid Løkke
27.04.2020 - 21:39DROPS Design answered:
Hej Solfrid, jo du hekler over alle masker også stolpemaskerne, men når du øger, skal du ikke øge over de yderste 4 masker i hver side. Du hekler frem og tilbage til du er færdig med raglanøkningen, efter det fortsætter du rundt ifølge opskriften. God fornøjelse!
29.04.2020 - 09:07Heidi wrote:
Bei dem Abschnitt PASSE steht in der 4. Zeile: "(einschl. je 4 fM beidseitig für die Blenden)". Bei der Anleitung vom gleichen Model als Jacke steht das auch. Da es beim Pulli keine Blende gibt, müsste dann die Maschenzahl nicht 4 M. weniger sein, da die Blenden der Jacke übereinander liegen? Vielen Dank im Voraus.
29.03.2019 - 11:43DROPS Design answered:
Liebe Heidi, dieses Modell ha hinten im Rücken Knöpfen, dh bis Ende der Passe. Viel Spaß beim häkeln!
01.04.2019 - 10:33Centientje wrote:
Voor de afwerking van de onderkant mouw en lijf moeten volgens de patroonbeschrijving 4 stk in de lossenboogjes worden gehaakt, maar bij mij gaan de onderkanten dan golven. Als ik echter 3 stk in de lossenboogjes haak, ziet het werk er veel rechter en strakker uit.
06.08.2018 - 09:01Centientje wrote:
Ik heb de beschrijving van het patroon precies gevolgd en nu de trui gereed is valt deze niet recht maar zit er een flinke draai in. Wat ging er mis? Hoe los ik het probleem op?
30.07.2018 - 17:00DROPS Design answered:
Dag Centientje, Het is denk ik het beste om het werk wat te bevochten en tussen 2 handdoeken te leggen om op vorm te brengen. Dus na het bevochtigen leg je het werk in de juiste afmetingen tussen de handdoeken en dan laat je het drogen.
31.07.2018 - 11:46Centientje wrote:
Ik ga beginnen aan de mouw, maar, waar moet ik na de 6 lossen insteken? (Haak de eerste toer als volgt aan de verkeerde kant: Haak 6 losse l, haak 1 v/stk in elke st op de mouw als hiervoor en eindig toer met 8 l, keer het werk.)
21.07.2018 - 15:24DROPS Design answered:
Dag Centientje, De 6 lossen komen onder de mouw, dus onder de oksel, zeg maar. Na de 6 lossen begin je de eerste steek aan het begin van de mouw, dus in de overgang tussen mouw en lijf.
22.07.2018 - 11:55Van Staden wrote:
Thank you
22.05.2017 - 15:09Van Staden wrote:
I'm assuming the size worked in the picture on this pattern is a small size which i'm noticing more or less 5 A2 patterns worked. Would like to know if my calculations are correct? Is it possible to also attach a picture of the back part. Thank you Nina
22.05.2017 - 13:27DROPS Design answered:
Dear Mrs Van Staden, back piece looks as front piece - you should have also 23 rows worked in A.2 (as for the raglan inc), ie 1 time rows 1-5 + 4 times rows 2-5 + 1 time rows 2-3. Happy crocheting!
22.05.2017 - 15:06Van Staden wrote:
Halo. I'm starting with my increases and i'm crocheting Large size. Will I increase 8sts before/after A2. in the first 6 rows, then increase only 4sts before/after A2 in the next 17 rows and then increase 4sts before/after A2. on the sleeves for the next 23 rows? Total of rows worked 46? When calculating the sts I'm getting 340 stitches and there will be a total of 11 A2 patterns worked on the top part. Part1 of question
22.05.2017 - 13:26DROPS Design answered:
Dear Mrs Van Staden, on the body you will inc 2 sts before/after A.2 (= 8 sts inc) every row 6 times in total then 1 st before/after A.2 (= 4 sts inc) every row 17 times in total (= 23 rows) - at the same time, you will inc on the sleeves after/before A.2 2 sts every row a total of 23 times. You will work a total of 23 rows. Happy crocheting!
22.05.2017 - 15:03Kathrin wrote:
Ich fange gerade mit den Zunahmen an (1. Reihe mit stäbchen) ich verstehe nicht, wie ich bei den Zunahmen so viele wiederholungen pro Reihe machen kann wie angegeben. 11 in meinem Fall. Oder ist hier gemeint, so lange reihen häkeln bis ich 11 mal zugenommen habe? Das geht sich ja auch nicht aus :( Bitte Hilfe
08.03.2017 - 21:15DROPS Design answered:
Liebe Kathrin, in der 4. Größe sollen Sie für den Raglan so zunehmen: Rumpfteil: 2 M x 11 in jeder Reihe + 1 M x 13 in jeder Reihe nach und vor A.2 am Vorder- und Rückenteil, gleichzeitig wird bei den Ärmel so zugenommen: 1 M x 24 nach und vor A.2 an beiden Ärmel. Viel Spaß beim häkeln!
09.03.2017 - 08:53