Sokhnamaggi skrifaði:
Fast fertig...in knallpink. Sieht klasse aus. Anleitung ist auch allerbest - bis auf eins: Zunahmetipp beachten- ich sehe nur einen Abnahmetipp...oder spinne ich😜?
24.08.2016 - 16:47
Christina Mellberg skrifaði:
Diagram A1 och måttangivelserna syns här på internetsidan men kommer inte med på utskriften
15.08.2016 - 09:28DROPS Design svaraði:
Hej. Om du trycker på knappen "Skriv ut mönster" så kommer de med på den fjärde sidan. Mvh DROPS Design
17.08.2016 - 10:19
Christina Mellberg skrifaði:
Saknar diagram A1 som texten hänvisar till. Ser bara teckenflrklaringen.
15.08.2016 - 09:23DROPS Design svaraði:
Hej. Diagram A1 finns längst ner på mönstret, till höger om måttskissen. Lycka till!
16.08.2016 - 11:27
Jutta skrifaði:
Eine sehr schöne Jacke, ich freue mich schon auf die Anleitung.
06.07.2016 - 17:19
Shannon Furnish skrifaði:
Love the design. Practical fit. Beautiful model.
20.06.2016 - 06:57
CorinneF skrifaði:
I like the shawl collar and set-in sleeves. Looks cosy.
14.06.2016 - 19:16Laura skrifaði:
A classic design - I want to knit & wear this one👍
11.06.2016 - 05:52
Ellis skrifaði:
Easy, fast, elegant, non-expensive, ♡, 4 reasons to make this.
08.06.2016 - 22:09
Annwe skrifaði:
This one is a favourite, quick and easy knitted!!🐝🐝
07.06.2016 - 10:22
Karin skrifaði:
Sehr aparte Jacke! wunderschöne Farbe und bezauberndes Model!
06.06.2016 - 08:41
Winter Hues#winterhuescardigan |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Wish með tvöföldu perluprjóni í kant að framan og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-2 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan/á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið í aftari hluta á lykkju í stað fremri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 17 og 26 cm. STÆRÐ M: 18 og 27 cm. STÆRÐ L: 19 og 28 cm. STÆRÐ XL: 20 og 29 cm. STÆRÐ XXL: 21 og 30 cm. STÆRÐ XXXL: 22 og 31 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 62-66-70-78-82-86 l á hringprjóna nr 7 með Snow eða Wish. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið sléttprjón með 3 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 8 cm er fitjuð upp 1 ný l í lok 2 næstu umf = 64-68-72-80-84-88 l. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11 cm er fækkað um 1 l hvoru megin á stykki – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona með 3-3-4-3-4-4 cm millibili alls 8-8-7-8-7-7 sinnum = 48-52-58-64-70-74 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið á stykki í annarri hverri umf: 3 l 0-1-1-1-1-1 sinnum, 2 l 1-0-1-2-3-3 sinnum og 1 l 1-1-2-2-2-3 sinnum = 42-44-44-46-48-50 l. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 10-10-12-12-14-14 l fyrir hálsmáli = 16-17-16-17-17-18 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 45-47-49-55-57-59 l (meðtaldar 14-14-14-16-16-16 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 7 með Snow. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið frá réttu þannig: 14-14-14-16-16-16 kantlykkjur að framan A.1, sléttprjón þar til 3 l eru eftir, endið með 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Fitjið upp 1 l í lok næstu umf frá réttu = 46-48-50-56-58-60 l. Prjónið frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 14-14-14-16-16-16 l, A.1 yfir kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 11 cm er l fækkað í hlið (þ.e.a.s. í lok umf frá réttu) eins og á bakstykki = 38-40-43-48-51-53 l. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 35-36-36-39-40-41 l. Þegar búið er að fella af fyrir handveg eru kantlykkjur að framan prjónaðar (= 14-14-14-16-16-16 l við miðju að framan) áfram í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af fyrstu 16-17-16-17-17-18 l fyrir öxl í næstu umf frá röngu = 19-19-20-22-23-23 l eftir fyrir sjalkraga. Haldið áfram í garðaprjóni yfir þessar l – JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf með byrjun frá hálsmáli (réttu) þannig: * Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 14-14-14-16-16-16 l sl, snúið við og prjónið sl til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá þar sem fellt var af fyrir öxl (skammhlið). Fellið laust af allar l. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-34-36-36-38-38 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Snow eða Wish. Prjónið 12 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12-13-13-12-10-11 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út með 8-6-6-5-5-4 cm millibili alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 44-46-48-50-52-54 l. Þegar stykkið mælist 48-47-47-46-44-43 cm fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 2-3-4-4-6-7 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-54-55-55-55-55 cm, að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið áður en þær l sem eru eftir eru fellar af. Stykkið mælist ca 56-56-57-57-57-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðar- og ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju niður þar sem fitjað var upp fyrir kantlykkju (= ca 8 cm klauf). Saumið saman kraga við miðju að aftan – ATH! Saumurinn á að vera á bakhlið þannig að hann sjáist ekki þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kragann meðfram hálsmáli aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterhuescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.