Adeline skrifaði:
Bonjour, je suis en train de finir le châle, mais 1 pelote en littoral ne suffit pas. Ça se joue à pas grand chose, mais il va falloir que j'en commande une 2ème pour achever la bordure. A prendre en compte pour ceux qui veulent faire ce modèle. Sinon, modèle agréable à tricoter, il faut juste prendre le coup pour la bordure ! Mais le rendu est super
08.06.2016 - 00:18Carol Fetherston skrifaði:
Although I love many of your free patterns, I wish your designers would come up with more shawl patterns that have shoulder shaping. Triangle shawls just don't stay put the way crescents etc. do. Thank you
16.04.2016 - 18:00
Maria skrifaði:
Oj tak,zrobiłam szal, przy bidurze utknęłam.
16.03.2016 - 09:02
Maria skrifaði:
Czy jest filmik pokazujący jak dołanczać bidurę Czy jest filmik, który pokazuje jak dołączyć bidurę?
15.03.2016 - 00:39DROPS Design svaraði:
Niestety nie ma. Przydałby się?
16.03.2016 - 08:00
Acqua di Mare#acquadimareshawl |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Fabel eða DROPS Flora í garðaprjóni og blúndukanti.
DROPS Extra 0-1241 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. RENDUR: * 6 umf í litnum natur, 6 umf í litnum strönd *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Til þess að fá pláss fyrir allar l er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. SJAL: Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3,5 með natur Fabel eða Flora. Setjið 1 prjónamerki í 4. l í umf (= miðjulykkja), látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1A yfir 1 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.1B yfir 1 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 11 l. Haldið áfram með A.1A og A.1B hvoru megin við miðjulykkju (miðjulykkja er prjónuð í sléttprjóni til loka). Þegar mynstur hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 35 l í umf (þ.e.a.s. 17 l hvoru megin við miðjulykkju). Haldið áfram í garðaprjón og útaukningar á sama hátt þar til 275 l eru í umf (stykkið mælist nú ca 27 cm meðfram miðjulykkju og 108 cm efst meðfram kanti). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2A yfir 2 l, prjónið A.2B yfir næstu 130 l (= 10 mynstureiningar 13 l), A.2C yfir 2 l, 3 l sléttprjón (= miðjan af þessum 3 = miðjulykkja), A.2D yfir 2 l, A.2B yfir næstu 130 l (= 10 mynstureiningar 13 l). A.2E yfir 2 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar allt A.2B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 407 l í umf (þ.e.a.s. 203 hvoru megin við miðju-l). Næsta umf er prjónuð þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2A yfir 2 l, prjónið A.2F yfir næstu 187 l (= 11 mynstureiningar 17 l), haldið áfram með A.2C eins og áður (þ.e.a.s. í þessari umf eru prjónaðar 11 l sléttprjón, sláið uppá prjóninn), 3 l sléttprjón (= miðja), haldið áfram með A.2D eins og áður (þ.e.a.s.) í þessari umf er slegið uppá prjóninn, eftir það 11 l sléttprjón), prjónið A.2F yfir næstu 187 l (= 11 mynstureiningar 17 l), prjónið A.2E yfir 2 l og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar aukið hefur verið út til 17 l í A.2C/A.2D er nægilegt pláss fyrir 1 mynstureiningu til viðbótar með A.2F hvoru megin við miðju 3 l (A.2C/A.2D heldur áfram eins og áður með því að slá uppá prjóninn hvoru megin við 3 miðju-l). Þegar prjónaðar hafa verið alls 7 rendur eru 475 l í umf og síðasta röndin er með litnum natur, haldið l eftir á prjóninum. BLÚNDUKANTUR: Prjónið blúndukant meðfram kanti neðst á sjalinu. Blúndukanturinn er prjónaður beint við réttu á sjalinu með því að prjóna 2 fyrstu/næstu l á prjóni á sjalinu slétt saman með fyrstu l á blúndukanti þannig: Fitjið upp 12 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum strönd og prjónið mynstur fram og til baka á prjóni eftir mynsturteikningu A.3 – JAFNFRAMT í byrjun á hverri umf frá réttu er blúndukanturinn prjónaður í tvær fyrstu/næstu l sem eru staðsettar á prjóni á sjalinu slétt saman með fyrstu l í A.3. Haldið svona áfram meðfram öllum kantinum á sjalinu, en yfir miðju 9 l á sjali er fyrsta l prjónuð í A.3 saman við bara eina l frá sjali (þ.e.a.s. í stað tveggja l á sjali) – þetta er gert til að koma í veg fyrir að hornið fyrir miðju á sjalinu verði bogalaga. Klippið frá og festið enda. Bleytið stykkið og leggið til í form eftir máli. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #acquadimareshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1241
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.