Martha skrifaði:
Yoke section 4th par.: it say what to do on the 1st 2 rows; then it says “Now repeat A7...” & refers to another inc row. But the pattern at that point is the v-st row. Are there increases in that row (& the next one too) as well as in the dc rows? Thx.
28.03.2019 - 00:15DROPS Design svaraði:
Dear Martha, The 2nd row in A.7 = row where you have to increase, and it is a row with only dc = the row with the star in the diagram. After you have worked this row, there are enough stitches to repeat A.7 a total of 40-52 times (see size) in width. Happy crocheting!
01.04.2019 - 09:21
Fatema skrifaði:
So i've done 1st row of inc in A.5 diagram and i count sts exactly 271. Next row ask to do 43 times A.7. I've done the row and i count them and there is 45 times A.7. I can't figured it out where is the problem.
19.03.2019 - 12:52DROPS Design svaraði:
Dear Fatena, in size M you have 271 sts in total after A.5/A-A.7, and work the 271 sts as follows: A.5 (= 6 sts), A.6 (= 1 st), repeat A.7 a total of 43 times (not 45 times) (6 sts x 43), A.8 (= 6 sts) = 6 + 1 + 6x43 + 6 = 271 sts. Happy crocheting!
19.03.2019 - 16:00
Fatema skrifaði:
Thanks for reply. In diagram shows 4tr on each ch space, now in pattern says 42tr,( 10 ch space=40+ 2tr in any ch space=42) and 4tr inc 4tr( 8tr in one ch space)? And it says inc addition 3 on entire row so i can inc in any part(36,42,56,42,36)?
18.03.2019 - 10:49DROPS Design svaraði:
Dear Fatema, work the last row in A.1-A.4 as shown in diagram (= row with tr in tr and tr around ch-spaces), ie if you have to work 4 tr around a ch-space and at the same inc 4 tr, you will then work 8 tr around this ch-space (= increase 4 tr). The 3 extra inc will have to be worked in any ot the other parts that's right - make sure they are coming quite evenly. Happy crocheting!
18.03.2019 - 11:50
Fatema skrifaði:
Hi, i try to work out the increase section at last row of A.1-A-4 for M size. Could you please explain it to me dear.
17.03.2019 - 03:35DROPS Design svaraði:
Dear Fatema, work last row in A.1-A.4 size M increasing evenly 3 extra trebles (UK-EN) (not described below) as follows: Work 36tr, insert 1 marker, work 4 tr and inc 4 tr evenly (= right front piece), insert 1 marker, work 42 tr, insert 1 marker, work 4 tr and inc 4 tr evenly, insert 1 marker (= sleeve), work 56 tr, insert 1 marker, work 4 tr and inc 4 tr evenly, insert 1 marker (= back piece), work 42 tr, insert 1 marker, work 4 tr and inc 4 tr evenly, insert 1 marker (= sleeve), work 36 tr (= left front piece) = 247 tr on row. Happy crocheting!
18.03.2019 - 09:07
Pearl Teller skrifaði:
What is the gauge?
12.03.2019 - 14:24DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Teller, you will find gauge as well as sizes and materials required under the header - you need here 21 dc x 12 rows = 4'' x 4'' . Happy crocheting!
12.03.2019 - 14:44
Silvia skrifaði:
Al finalizar A1-A4 por primera vez, en la última vuelta se realizan los aumentos, para mi talla (s) son 36 (delantero der), 42 (manga), 56 (espalda), 42 (manga) y 36 ( delantero izquierdo). Sin embargo esa suma da 212 puntos y según el patrón debería tener 235 p.a en la fila... cómo debo resolver el problema?
23.09.2018 - 01:49DROPS Design svaraði:
Hola Silvia, parece que no estás teniendo en cuenta todos los puntos. Después de los 36 puntos del delantero derecho y antes de los 42 puntos de la manga, hay que trabajar 4 p.a y aumentar 2 puntos repartidos; entre la manga y la espalda y la espalda y la otra manga igual; y entre la manga y el delantero izquierdo son 4 p.a y 1 aumento en el caso de tu talla. En total son 235 puntos, eso está correcto.
29.09.2018 - 20:22Shimrit skrifaði:
Hi, in the body it says 'work pattern -1... and dec.. evenly in first row of dc'. What first row? In a.5- a.8 or at the first from the 6 dc rows thst after that? Thanks again.
28.01.2018 - 20:57DROPS Design svaraði:
Dear Shimrit, pattern-1= 6-8-10 dc-rows, then work A.5-A.8, then work 6-8-10 rows with dc. You will dec on first row with dc, ie on first row worked with dc (the first of the 6-8-10 dc-rows worked before A.5-A.8). Happy crocheting!
29.01.2018 - 10:01
Shimrit skrifaði:
Hi, in the yoke, after finishing a.5- a.7, it says 'work 1row with dc and inc 18 dc evenly'. that means not according to the markers? Thanks!
27.01.2018 - 19:42DROPS Design svaraði:
Hi Shimrit, Yes that is right, when increasing evenly you are not using the markers but spreading the increases evenly on the row. Happy crocheting!
28.01.2018 - 06:58
Anna skrifaði:
Buon pomeriggio la ringrazio tantissimo ora è molto più chiaro quindi si devono aumentare 24 maglie solo.una volta Le auguro una buona giornata
06.11.2017 - 13:27DROPS Design svaraði:
Buongiorno Anna. Ripeterà questi aumenti durante l'ultimo giro dei diagrammi A.5-A.8, come trova indicato nel testo. Buon lavoro!
06.11.2017 - 14:54
Anna skrifaði:
Quando inizio a lavorare il secondo giro di A5-A7 mi dice di aumentare per una xl 24 m.a. da distribuire uniformemente poi di lavorare A7 per 46 volte e poi di rifare i 24 aumenti vorrei essere segato che significa e come vanno distribuiti gli aumenti e qusati ne sono effettivamente in questo secondo giro
06.11.2017 - 01:12DROPS Design svaraði:
Buongiorno Anna. Quando inizia i diagrammi A.5 – A.7 lei ha 265 maglie alte. Alla 2a riga deve aumentare 2 m.alte all’altezza di ogni segnapunti, come indicato nel paragrafo : SUGGERIMENTO PER GLI AUMENTI-2. I segnapunti sono 8, quindi aumenta 16 maglie alte. Inoltre deve aumentare 8 m.a in modo uniforme su tutta la riga. Per questi 8 aumenti può aumentare come segue: sottrae dalle 265 maglie le maglie dei bordi davanti: 265 – 12 = 253 e divide per il numero degli aumenti da fare: 253 : 8 = 31,6. Quindi aumenta una maglia ogni 31 e ogni 32 maglie in modo alternato. In tutto deve aumentare 24 maglie alte sulla riga. Buon lavoro!
06.11.2017 - 12:40
Sweet Mint Cardigan#sweetmintcardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Safran með gatamynstri og hringlaga berustykki. Hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 169-32 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka: Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Í hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Þegar heklað er í hring: Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Í hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll, umf endar á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l. ÚTAUKNING-2: Heklið þar til 2 st/ll eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 st í/um næsta st/ll (= 1 st fleiri), heklið 1 st í/um hvorn af næstu 2 st/ll, prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa st/ll, heklið 2 st í/um næsta st/ll (= 1 st fleiri). Endurtakið útaukningu við hvert prjónamerki. MYNSTUR-1 (á við um fram- og bakstykki): Heklið 1 st í hvern st þar til heklaðar hafa verið alls 6-8-10-10-10-10 umf, * heklið frá réttu: Heklið A.5 yfir fyrstu 6 st, A.6 yfir næstu st, endurtakið A.7 þar til 6 st eru eftir, A.8 yfir síðustu 6 st. Þegar A.5 til A.8 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru heklaðar 6-8-10-10-10-10 umf með 1 st í hvern st *, endurtakið frá *-* til loka. MYNSTUR-2 (á við um ermi): * Heklið A.7 yfir alla st. Þegar A.7 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað áfram þannig: Heklið 6-8-10-10-10-10 umf með 1 st í hvern st *, endurtakið frá *-* til loka. ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = skiptið út fjórða st frá kanti með 1 ll. Í næstu umf er kantlykkjan að framan hekluð eins og áður (1 st er heklaður um ll). Heklið hnappagat þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm. STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm. STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 55 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 55 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Heklið 163-163-172-172-180-180 ll með heklunál nr 3,5 með Safran. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 5-5-0-0-1-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 139-139-146-146-153-153 st. Heklið síðan næstu umf frá röngu þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 7 st (= hægri kantur að framan), A.3 yfir næstu 6 st, endurtakið A.2 þar til 7 st eru eftir (= 17-17-18-18-19-19 sinnum á breiddina), endið á A.1 yfir síðustu 7 st (= vinstri kantur að framan). Haldið svona áfram, þ.e.a.s. frá réttu er heklað þannig: A.1, A.2 alls 17-17-18-18-19-19 sinnum, A.3 og A.4. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í síðustu umf í A.1-A.4 (= frá röngu) eru sett 8 prjónamerki og aukið út þannig: ATH: Heklið síðan eins og útskýrt er í mynstri A.1-A.4. Heklið og aukið út JAFNFRAMT að auki eru auknar út 0-3-3-9-3-3 st jafnt yfir í allri umf – LESIÐ ÚTAUKNING-1: Heklið 36-36-38-38-40-40 st, setjið 1 prjónamerki í stykkið, heklið 4 st og aukið út um 2-4-4-4-4-4 st jafnt yfir (= hægra framstykki), setjið 1 prjónamerki, heklið 42-42-44-44-46-46 st, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 st og aukið út um 2-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= ermi), heklið 56-56-60-60-64-64 st, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 st og aukið út um 2-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= bakstykki), heklið 42-42-44-44-46-46 st, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 st og aukið út um 1-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= ermi), heklið 36-36-38-38-40-40 st (= vinstra framstykki) = 235-247-259-265-271-271 st í umf. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Stykkið mælist ca 9 cm. Heklið 0-0-0-0-2-2 umf með 1 st í hvern st og aukið út um 0-0-0-0-12-15 st jafnt yfir í hverri umf (= 0-0-0-0-24-30 st alls) = 235-247-259-265-295-301 st. Heklið A.5 til A.7 þannig (fyrsta umf er frá réttu): Heklið A.5 yfir fyrstu 6 st (= vinstri kantur að framan), A.6 yfir næsta st, endurtakið A.7 þar til 6 st eru eftir (= 37-39-41-42-47-48 sinnum á breiddina), endið á A.8 yfir síðustu 6 st (= hægri kantur að framan). Í umf 2 (þ.e.a.s. st-umferð) er aukið út við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2 og aukið út um 2-8-8-8-8-8 st jafnt yfir í umf (= 2 st fleiri við hvert prjónamerki og 2-8-8-8-8-8 st fleiri jafnt yfir = alls 18-24-24-24-24-24 st fleiri í umf) = 253-271-283-289-319-325 st. A.7 er nú endurtekið 40-43-45-46-51-52 sinnum á breiddina. Endurtakið útaukningu (þ.e.a.s. 2 st fleiri við hvert prjónamerki og 2-8-8-8-8-8 st fleiri jafnt yfir = alls 18-24-24-24-24-24 st fleiri í umf) í síðustu umf í A.5 til A.8 = 271-295-307-313-343-349 st. * Heklið 1 umf með 1 st í hvern st. Heklið 1 umf með st og aukið út um 18-18-16-17-24-26 st jafnt yfir *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-3-2-3 sinnum = 289-313-339-364-391-427 st. Heklið 0-1-1-0-1-0 umf með 1 st í hvern st. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm. Í næstu umf (= frá réttu) er heklað þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 46-50-54-58-64-70 st (= vinstra framstykki), heklið 8 ll, hoppið yfir 60-64-69-73-75-79 st frá fyrri umf (= ermi), 1 st í hvern af næstu 77-85-93-102-113-129 st (= bakstykki), 8 ll, hoppið yfir 60-64-69-73-75-79 st frá fyrri umf (= ermi), 1 st í hvern af síðustu 46-50-54-58-64-70 st (= hægra framstykki) = 185-201-217-234-257-285 st/ll í umf. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið 1 umf frá röngu með 1 st í hvern st/ll. Heklið síðan MYNSTUR-1 frá réttu – sjá útskýringu að ofan og fækkið um 4-2-0-5-4-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 181-199-217-229-253-283 st. Þegar stykkið mælist 12 cm, passið að næsta umf sé umf með st, fækkið um 6-12-12-6-6-6 st jafnt yfir = 175-187-205-223-247-277 st. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm, passið að næsta umf sé umf með st, aukið út um 12 st jafnt yfir. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili 5-5-5-5-6-6 sinnum til viðbótar = 247-259-277-295-331-361 st. Heklið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm frá prjónamerki. Klippið frá og festið enda. ERMI: Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hverja af næstu 3 ll, heklið 1 st í hvern st yfir ermi, heklið 1 st í hverja af þeim 4 ll sem eftir eru undir ermi = 68-72-77-81-83-87 st. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Látið annað prjónamerkið vera eftir í stykkinu, látið hitt prjónamerkið fylgja með í stykkinu. STÆRÐ-M: Heklið 1 st í hvern st og fækkið um 2-0 st jafnt yfir = 66-72 st. STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL: Heklið 1 st í hvern st og aukið út um 1-3-1-3 st jafnt yfir = 78-84-84-90 st. ALLAR STÆRÐIR: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM. MYNSTUR ER HEKLAÐ OG ÚRTAKA HEFST: MYNSTUR: Heklið 1 st í hvern st þar til heklaðar hafa verið alls 5-7-9-9-9-9 umf með st. Heklið MYNSTUR-2 – sjá útskýringu að ofan. ÚRTAKA: Þegar stykkið mælist 4 cm, passið uppá að næsta umf er 1 umf með st, fækkið um 6 st jafnt yfir, endurtakið úrtöku með 15-10-8-8-8-6 cm millibili 2-3-4-4-4-5 sinnum til viðbótar = 48-48-48-54-54-54 st. Klippið frá og festið enda þegar ermin mælist 46-45-45-44-44-43 cm. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að aftan. Heklið í ll þar sem st voru heklaðir (þ.e.a.s. þær ll sem hoppað var yfir er ekki heklað í = 139-139-146-146-153-153 st). Heklið 1 fl í hvern af fyrstu 22-22-24-24-26-26 st, * 1 hst í hverja af næstu 3 ll, 1 st í hverja af næstu 3 ll, 1 tbst í hverja af næstu 19 ll, 1 st í hverja af næstu 3 ll, 1 hst í hverja af næstu 3 ll *, 1 fl í hverja af næstu 33-33-36-36-39-39 ll, endurtakið frá *-* 1 sinni, 1 fl í hverja af síðustu 22-22-24-24-26-26 ll. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 26-26-28-28-30-30 l, ** 1 hst í hverja af næstu 3 l, 1 st í hverja af næstu 3 l, * heklið næstu 2 tbst saman *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, 1 st í hverja af næstu 3 l, 1 hst í hverja af næstu 3 l **, 1 fl í hverja af næstu 39-39-42-42-45-45 l, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, endið á 1 fl í hverja af síðustu 26-26-28-28-30-30 l = 127-127-134-134-141-141 l. Heklið 1 umf með 1 fl í hverja l. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetmintcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.