Milla Lindström skrifaði:
Hej, jag stickar stl M och får inte maskantalet rätt efter uppläggning av de 46 m och vidare till framkantsmaskorna. Jag har 133 m och sticka 5 +18 + 22+ 18 (omslagen inte med här) och ska så hamna mitt bak. Det är 3 maskor kvar till mitt bak. Vad gör jag för fel?
14.03.2019 - 18:51DROPS Design svaraði:
hei Milla. Du skal sette alle merkene i hver siden maske (altså de settes IKKE mellom 2 masker). Du strikker altså slik: 5 kantmasker, strikk 1 maske og sett merke i denne, 18 masker, strikk 1 maske og sett merke i denne, 22 masker, strikk 1 maske og sett merke i denne, 18 masker. Neste maske er nå midt bak, og du skal sette 1 merke i denne masken. God fornøyelse
25.03.2019 - 11:57
Bernadette skrifaði:
Thank you for desiging this delious cardigan love it cany wait to knit it big pile of before it but it may slip to the top of the pile Many thanks again Bernadette
28.02.2019 - 22:31
Helena Markström skrifaði:
Hur ser bakstycket ut? Skulle vilja ha en bild!
29.12.2018 - 13:05DROPS Design svaraði:
Hei Helena. Vi har desverre ikke noe bilde av hele jakken fra baksiden, men bilde nummer 2 viser toppen av ryggen, og halskanten bak i nakken. Med unntak av åpningen blir jakken tilsvarende foran og bak. God fornøyelse
04.01.2019 - 09:23
LAURA MARIA skrifaði:
Buonasera. Ho un problema con il quadrato domino: il ferro 2 (e anche il 6) non prevede maglie gettate per le maniche e quindi tutti gli aumenti sono solo sul dietro e sui due davanti. Ma alla fine, dopo aver lavorato il quadrato domino per 8 volte (taglia L) nelle istruzioni si dice che il numero delle maglie delle maniche sarà aumentato (76 maglie) e coinciderà con quello dei due davanti e delle due metà del dietro. Come può essere?
06.11.2018 - 01:18
Fre skrifaði:
Wilt u aub een videao maken hoe ik de overgang maak van de v-punt voor en dan die vertikale strepen maken?. Want deze beschrijving is zo vreemde zinsbouw.
22.09.2018 - 20:59
Fre skrifaði:
Wilt u aub een videao maken hoe ik de overgang maak van de v-punt voor en dan die vertikale strepen maken?. Want deze beschrijving is zo vreemde zinsbouw.
22.09.2018 - 20:58
Caroline skrifaði:
Pourriez-vous mettre une video ou des images sur le rattachement de la bordure du bas au domino. Merci
22.01.2018 - 16:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Caroline, nous n'avons pas encore de telle vidéo, n'hésitez pas à indiquer à quel niveau vous coincez pour que nous puissions vous aider. Bon tricot!
22.01.2018 - 18:04
Sabine Specht skrifaði:
In der Anleitung wird nach der Passe in den Grössen S, M, L noch ein Stück gestrickt, in den grösseren Grössen nur eine Rückreihe! Da ist der Abschnitt noch nicht lang genug! Fehlt da etwas? Sonst ist das eine super Jacke und eine tolle Anleitung! Viele Grüsse Sabine Specht
20.10.2017 - 16:24
Jutta Meteling skrifaði:
Drops 167-35 Wird das Dominoquadrat unmittelbar an die Passe gestrickt? Oder wie viele Reihen müssen bei der Passe gestrickt werden. Mein Ergebnis sieht anders aus als das Detailfoto. Bei mir sind seitlich von der Mittel-Loch-Reihe am Rückenteil, 2 kurze Lochreihen in 45° - Neigung entstanden.
17.03.2017 - 17:59DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Meteling, die Zunhamen im Dominoquadrat werden die Passe machen, dh Dominoquadrat von Reihe 3 bis 10-12 (siehe Größe) insg. 7-8 x arbeiten, dann die ersten 0-6-0-4-4-8 R noch 1 x stricken, dann haben Sie die gewünschte Maschenanzahl für Ärmel, Vorder- bzw Rückenteile. Die Raglanlinien an den Ärmel sind mit Lochreihen. Viel Spaß beim stricken!
20.03.2017 - 08:31
Concha Orleans skrifaði:
Hola, me estaba volviendo loca de deshacer y volver a hacer la chaqueta, hasta que me he decidido a mirar las instrucciones en ingles y son distintas a las españolas, en el momento que dice: FILA 2 (= LD) : Aum trabajando 1 HEB (lazada) después del 1º-3º-4º-6º MP (marcapuntos) y 1 HEB antes del 2º-4º-5º-7º MP (= 8 pts aum en la fila) es diferente el orden y los puntos donde hay que echar las hebras. Podríais cambiarlo, por favor?
09.03.2017 - 21:05
Crayons Cardigan#crayonscardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel með röndum, prjónuð í vinkil í garðaprjóni og dominoferningum. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 167-35 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- FABEL: Fitjað er upp með mismunandi litum svo að rendurnar passi á hæðina. Í stærð S-M-L-XXXL er fitjað upp með litnum natur. Í stærð XL-XXL er fitjað upp með litnum bleik þoka. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. RENDUR: Rendur eru prjónaðar mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S-M-L-XXXL: 2 umf garðaprjón (fyrsta umf = rétta) með litnum natur. 2 umf með garðaprjóni (fyrsta umf= rétta) með litnum bleik þoka. STÆRÐ XL-XXL: 2 umf garðaprjón (fyrsta umf = rétta) með litnum bleik þoka. 2 umf garðaprjón (fyrsta umf = rétta) með litnum natur. DOMINOFERNINGUR: STÆRÐ S-M-L-XL: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.-2.-4.-5. Prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 3.-4.-6.-7. prjónamerki (= 8 l fleiri í umf). UMFERÐ 3 (og allar umf frá röngu): Prjónið slétt, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 4: Aukið út með 2 uppsláttum á eftir 1. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið til og með l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn á undan 4. og 7. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 l fleiri á bakstykki og á framstykki). UMFERÐ 6: Prjónið eins og umf 2. UMFERÐ 8: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 4. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 4. og 7. prjónamerki (= 4 l fleiri á bakstykki og á framstykki). UMFERÐ 10: Prjónið eins og umf 2. STÆRÐ XXL-XXXL: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1.-3.-4.-6. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.-2.-4.-5. prjónamerki (= 8 l fleiri í umf). UMFERÐ 3 (og allar umf frá röngu): Prjónið slétt, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 4: Aukið út með 2 uppsláttum á eftir 1. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið til og með l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út með því að slá 2 uppá prjóninn á undan 4. og 7. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 l fleiri á bakstykki og á framstykki). UMFERÐ 6: Prjónið eins og umf 2. UMFERÐ 8: Prjónið eins og umf 4. UMFERÐ 10: Prjónið eins og umf 2. UMFERÐ 12: Prjónið eins og umf 2. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Fækkið l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist meðfram kanti þannig: STÆRÐ S: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm STÆRÐ M: 2, 8, 14, 20, 26, 32 og 38 cm STÆRÐ L: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 38 og 44 cm. STÆRÐ XL: 2, 8, 14, 20, 26, 33, 40 og 47 cm. STÆRÐ XXL: 2, 8, 14, 20, 26, 33, 40 og 47 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 38, 44 og 50 cm. MÆLING: Öll mæling á ermum er gerð þegar stykkinu er haldið uppi, ermarnar koma til með að teygjast á lengdina við notkun og þetta er gert svo að ermarnar verði ekki of langar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og tilbaka í RENDUR – sjá skýringu að ofan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3,5 með FABEL – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið frá réttu þannig: 2 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (= miðju-l, setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l garðaprjón (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu hvoru megin við miðju-l og innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í hverri umf frá réttu alls 6-8-8-9-9-10 sinnum = 31-39-39-43-43-47 l (= 13-17-17-19-19-21 l á milli miðju-l og prjónamerkja í hvorri hlið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Klippið frá. Næsta rönd er með litnum bleik þoka og frá réttu. Fitjið upp 42-46-46-49-49-51 lausar l á hringprjóna nr 3,5 (= vinstri ermi og framstykki), prjónið garðaprjón að miðju-l JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-1-1-1 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (miðju-l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón út umf JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-1-1-1 l, fitjið upp 42-46-46-49-49-51 lausar l (= hægri ermi og framstykki) í lok umf (= 2-2-2-4-4-4 l fleiri) = 117-133-133-145-145-153 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, setjið 1. prjónamerki í næstu l (= kantur að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 l garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki í næstu l, prjónið 22 l garðaprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 l jafnt yfir, setjið 3. prjónamerki í næstu l (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 l garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki í næstu l (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 l garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= bakstykki), sláið uppá prjóninn, setjið 5. prjónamerki í næstu l, prjónið 22 l garðaprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 l jafnt yfir, setjið 6. prjónamerki í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), prjónið 14-18-18-21-21-23 l garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 7. prjónamerki í næstu l, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki) 125-141-161-157-161-189 l. Prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan, byrjið að prjóna umf 3 (þ.e.a.s. fyrsta umf er frá röngu). ATH: Fyrsta umf í dominoferningi er prjónaður með sama lit og fyrri umf. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Fyrsta umf í hverjum lit er alltaf frá réttu. Prjónið 3. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umf 1 sinni, síðan er endurtekin 1. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umf alls 7-7-8-8-7-7 sinnum. Prjónið síðan fyrstu 0-6-0-4-4-8 umf 1 sinni til viðbótar = 62-70-76-78-90-100 l á milli 1. og 2. prjónamerkis/3. og 4. prjónamerkis/4. og 5. prjónamerkis/6. og 7. prjónamerkis (= framstykki/bakstykki), 1 l við hvert prjónamerki (= 7 l), 70-74-76-78-88-90 l á milli 2. og 3. prjónamerkis/5. og 6. prjónamerkis (= ermar) og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki = 405-445-473-485-553-597 l alls. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm mælt meðfram öxl. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram í garðaprjóni og rendur eins og áður. Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (meðtaldar l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 2 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), setjið næstu 72-76-78-80-90-92 l (meðtaldar l með 2. og 3. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l), 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið að 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 2 l eru eftir á undan 5. prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), setjið næstu 72-76-78-80-90-92 l (meðtaldar l með 5. og 6. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l), 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið að 7. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (meðtaldar l með prjónamerki) = 277-309-333-349-397-437 l. STÆRÐ S-M-L: UMFERÐ 1 (= allar umf frá röngu): Prjónið br til baka frá röngu, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn það eiga að myndast göt. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Haldið áfram með rendur og garðaprjón eins og áður, prjónið 6 kantlykkjur að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið að 4. prjónamerki (miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, prjónið næstu 2 l slét saman (= 1 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), prjónið næstu 2 l slétt saman, (= 1 l færri), prjónið að 7. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), endið með 6 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 4: Prjónið eins og umf 2. UMFERÐ 6: Haldið áfram með rendur og garðaprjón eins og áður, prjónið 6 kantlykkjur að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, * prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), * prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* (= 2 l færri), prjónið að 4. prjónamerki (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 6 l eru á undan prjónamerki undir ermi, * prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), * prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l fleiri), prjónið að 7. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), endið með 6 kantlykkjum að framan (= alls 4 l færri í umf). Endurtakið umf 1-6 alls 4 sinnum = 261-293-317 l. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Prjónið 1 umf slétt frá röngu. ALLAR STÆRÐIR: = 261-293-317-349-397-437 l. Látið l sitja á prjóninum. Þær eiga að prjónast saman við kant prjónaðan frá hlið að hlið. PRJÓNAÐ SAMAN: Prjónið nú frá hægra framstykki, að hægra bakstykki, að vinstra bakstykki, að vinstra framstykki. Fitjið upp 34-28-20-20-20-20 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum natur. HÆGRA FRAMSTYKKI (neðri kantur): Stykkið á nú að prjóna saman með l af prjóni (þ.e.a.s. berustykki) frá miðju að framan á horni á domino að hlið. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 1 l fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í þessari umf, það eiga að myndast göt, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman. Skiptið yfir í litinn bleik þoka. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 1 l fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 6 l eru eftir á prjóni, snúið við. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 4 l eru eftir á prjóni, snúið við. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman. Skiptið yfir í litinn natur. Endurtakið umf 1-8 þar til allar l á undan prjónamerki á hlið (= frá hægra framstykki) hafa verið prjónaðar saman með kanti. HÆGRA BAKSTYKKI (neðri kantur): Stykkið er prjónað saman við l af bakstykki, þ.e.a.s. frá hlið og niður að horni á dominu fyrir miðju að aftan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, prjónið sl út umf (= 1 l færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í þessari umf, það eiga að myndast göt, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman. Skiptið yfir í litinn bleik þoka. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og umf 1. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 6 l eru eftir á prjóni, snúið við. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 4 l eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman. Skiptið yfir í litinn natur. Endurtakið umf 1-8 niður að horni við miðju að aftan, í síðustu endurtekningu á 8. eða 2. umf eru fyrstu 3 l af bandið settar til baka á prjóninn, prjónið 4 l slétt saman. VINSTRA BAKSTYKKI (neðri kantur): Stykkið er prjónað saman við l frá miðju að aftan frá horni á domino og að hlið. Prjónið vinstra bakstykki á sama hátt og hægra framstykki (þ.e.a.s. að prjónamerki). VINSTRA FRAMSTYKKI (neðri kantur): Stykkið er prjónað saman við l frá hlið og niður að horni á domino fyrir miðju að framan. Prjónið á sama hátt og hægra bakstykki. Fellið af þegar allar l frá berustykki hafa verið prjónaðar saman við kant. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og rendur. Setjið l af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 3,5 = 72-76-80-82-90-92 l. Fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l í lok fyrstu umf = 80-84-88-94-102-104 l. Prjónið síðan áfram með röndum. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýja l (= miðja undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT – LESIÐ MÆLING! Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 2 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 1 cm millibili alls 6-6-10-12-17-17 sinnum, síðan með 2 cm millibili 4-5-2-2-0-0 sinnum = 60-62-64-66-68-70 l. Fellið af þegar stykkið mælist 23 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermi. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman uppfitjunarkant (þ.e.a.s. fyrstu 7 l). |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crayonscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.