DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Crayons

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel eða DROPS Flora, prjónuð í vinkil með röndum, garðaprjóni og domino ferningum. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 167-36
DROPS Design: Mynstur nr fa-336
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 g nr 623, bleik þoka
150-150-150-200-200-200 g nr 100, natur

Eða notið:
DROPS FLORA frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 g nr 21, bleikur
150-150-150-200-200-200 g nr 100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

FABEL/FLORA:
Fitjað er upp með mismunandi litum svo að rendurnar passi á hæðina.
Í stærð S-M-L-XXXL er fitjað upp með litnum natur.
Í stærð XL-XXL er fitjað upp með litnum bleik þoka/bleikur.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

RENDUR:
Rendur eru prjónaðar mismunandi eftir stærðum þannig:
STÆRÐ S-M-L-XXXL:
2 umf garðaprjón (fyrsta umf er prjónuð slétt) með litnum natur.
2 umf með garðaprjóni með litnum bleik þoka/bleikur.
STÆRÐ XL-XXL:
2 umf garðaprjón (fyrsta umf er prjónuð slétt) með litnum bleik þoka/bleikur.
2 umf garðaprjón með litnum natur.

DOMINOFERNINGUR:
STÆRÐ S-M-L-XL:
UMFERÐ 1: Prjónið br.
UMFERÐ 2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1.-2.-4.-5. prjónamerki og með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.-3.-4.-6. prjónamerki (= 8 l fleiri í umf).
UMFERÐ 3 (og allar odda umferðir): Prjónið br, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 4: Aukið út með 2 uppsláttum hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki (= framstykki og bakstykki) þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 l fleiri á bakstykki og framstykki).
UMFERÐ 6: Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 8: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið að l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
UMFERÐ 10: Prjónið eins og umf 2.

STÆRÐ XXL-XXXL:
UMFERÐ 1: Prjónið br.
UMFERÐ 2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1.-2.-4.-5. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.-3.-4.-6. prjónamerki (= 8 l fleiri í umf).
UMFERÐ 3 (og allar odda umf): Prjónið br, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 4: Aukið út með 2 uppsláttum hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki (= framstykki og bakstykki) þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið uppá prjóninn (= 8 l fleiri á bakstykki og á framstykki).
UMFERÐ 6: Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 8: Prjónið eins og umf 4.
UMFERÐ 10: Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 12: Prjónið eins og umf 2.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Fækkið l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

MÆLING:
Öll mæling á ermum er gerð þegar stykkinu er haldið uppi, ermarnar koma til með að teygjast á lengdina við notkun og þetta er gert svo að ermarnar verði ekki of langar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað fram og tilbaka, síðan í hring ofan frá og niður. Þegar stroffið hefur verið prjónað, prjónið neðri kant fram og til baka. Allt stykkið er prjónað í RÖNDUM – sjá útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka þannig:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3,5 með FABEL/FLORA – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið frá réttu þannig: 2 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (= miðju-l, setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l garðaprjón (= 4 l fleiri) = 11 l. Endurtakið útaukningu hvoru megin við miðju-l og innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í hverri umf frá réttu 5-7-7-8-8-9 sinnum til viðbótar = 31-39-39-43-43-47 l (= 13-17-17-19-19-21 l á milli miðju-l og prjónamerkja í hvorri hlið). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón að miðju-l JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-1-1-1 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (= miðju-l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón út umf JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-1-1-1 l, fitjið upp 73-81-81-87-87-91 lausar l (= ermar og framstykki) í lok umf (= 2-2-2-4-4-4 l fleiri) = 106-122-122-134-134-142 l. Setjið stykkið saman og prjónið 2 l garðaprjón, umf færist til þannig að næsta umf byrjar hér.

Stykkið er nú prjónað í hring í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og röndum eins og áður þannig: Prjónið 1 umf br.
Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 14-18-18-21-21-23 l og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 1. prjónamerki í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki í næstu l, prjónið 22 l garðaprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 l jafnt yfir, setjið 3. prjónamerki í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 l og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= hálft framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 l og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= hálft framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 5. prjónamerki í næstu l, prjónið 22 l garðaprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 l jafnt yfir, setjið 6. prjónamerki í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 114-130-150-146-150-178 l. Prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan, byrjið að prjóna umf 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 3. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umf 1 sinni, endurtakið síðan 1. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umf alls 7-7-8-8-7-7 sinnum. Prjónið fyrstu 0-6-0-4-4-8 umf 1 sinni til viðbótar = 62-70-76-78-90-100 l á milli 1. og 2. prjónamerkis/3. og 4. prjónamerkis/4. og 5. prjónamerkis/6. og 7. prjónamerkis (= framstykki/bakstykki, 1 l fleiri með hverju prjónamerki (= 6 l) og 70-74-78-80-88-90 l á milli 2. og 3. prjónamerkis/5. og 6. prjónamerkis (= ermar) = 394-434-466-478-542-586 l alls. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm mælt meðfram öxl.

Næsta umf er prjónuð þannig: Haldið áfram í garðaprjóni og rendur eins og áður. Prjónið fyrstu 2 l saman, prjónið garðaprjón fram að 1. prjónamerki, sláið 1 sinnum uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, prjónið 2 l saman, setjið næstu 72-76-80-82-90-92 l (meðtalin l með 2. og 3. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l), prjónið 2 l saman, prjónið garðaprjón að 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan 5. prjónamerki, prjónið 2 l saman, setjið næstu 72-76-80-82-90-92 l (meðtalin l með 5. og 6. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki á milli nýrra lykkja), prjónið garðaprjón út umf = 266-298-322-338-386-426 l.

STÆRÐ S-M-L:
UMFERÐ 1 (= allar odda umf): Prjónið br, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 2: Haldið áfram með rendur og garðaprjón eins og áður, prjónið að 1. prjónamerki (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, prjónið 2 næstu l slétt saman (= 1 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið að 4. prjónamerki (= miðja að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið út umf.
UMFERÐ 4: Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 6: Prjónið að 1. prjónamerki (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, * prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), * prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið að 4. prjónamerki (= miðju að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, * prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), * prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið út umf (= alls 4 l færri í umf).
Endurtakið umf 1-6 alls 4 sinnum = 250-282-306 l.

ALLAR STÆRÐIR:
= 250-282-306-338-386-426 l. Látið l sitja á prjóninum. Þær eiga að prjónast saman við kant prjónaðan frá hlið að hlið. Færið l til þannig að l með 1. prjónamerki er byrjun umf.

PRJÓNAÐ SAMAN:
Prjónið nú frá miðju að aftan, vinstra bakstykki að hlið, vinstra framstykki að miðju, hægra framstykki að hlið og síðan hægra bakstykki. Fitjið upp 34-28-20-20-20-20 l á hringprjóna nr 3,5 með natur. Stykkið er nú prjónað fram og til baka þannig:

VINSTRA BAKSTYKKI (neðri kantur):
Stykkið á nú að prjóna saman með l af prjóni frá 1. prjónamerki og að prjónamerki undir ermi, frá miðju að aftan á horni á domino að vinstri hlið.

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 1 l fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í þessari umf, það eiga að myndast göt, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman.
Skiptið yfir í litinn bleik þoka / bleikur.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 1 l fleiri).
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 6 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 4 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman.
Skiptið yfir í litinn natur.
Endurtakið umf 1-8 þar til allar l á undan prjónamerki í hlið (= vinstra bakstykki) hafa verið prjónaðar saman með kanti.

VINSTRA FRAMSTYKKI (neðri kantur):
Stykkið er prjónað saman við l af hálfu framstykki, þ.e.a.s. frá prjónamerki í hlið og niður að horni á domino fyrir miðju að framan.

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, prjónið sl út umf (= 1 l færri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í þessari umf, það eiga að myndast göt, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman.
Skiptið yfir í litinn bleik þoka.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og umf 1.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 6 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 4 l eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman.
Skiptið yfir í litinn natur.

Endurtakið umf 1-8 niður að horni við miðju að framan, í síðustu endurtekningu á 8. eða 2. umf eru fyrstu 3 l af þræði settar til baka á prjóninn, prjónið 4 l slétt saman.

HÆGRA FRAMSTYKKI (neðri kantur):
Stykkið er prjónað saman við l frá horni á domino fyrir miðju að framan og upp að prjónamerki í hægri hlið.
Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki.

HÆGRA BAKSTYKKI (neðri kantur):
Stykkið er prjónað saman við l frá hlið þ.e.a.s. prjónamerki, að miðju að aftan þ.e.a.s. horni á domino. Prjónið eins og vinstra framstykki. Felllið af þegar allar l frá berustykki hafa verið prjónaðar saman við kant, passið uppá að síðasta röndin sé með litnum bleik þoka.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og rendur. Setjið l af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 3,5 = 72-76-80-82-90-92 l. Fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l í lok fyrstu umf = 80-84-88-94-102-104 l. Prjónið síðan áfram með röndum. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýja l (= miðja undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT – LESIÐ MÆLING! Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 2 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 1 cm millibili alls 6-6-10-12-17-17 sinnum, síðan með 2 cm millibili 4-5-2-2-0-0 sinnum = 60-62-64-66-68-70 l. Fellið af þegar stykkið mælist 23 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermi. Saumið saman uppfitjunarkant (þ.e.a.s. fyrstu 7 l).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.03.2016
LEIÐRÉTTING: Mynstrið hefur verið endurskrifað að stórum hluta.
Yfirfarið á vefsvæði: 31.03.2016
Leiðrétting: DOMINOFERNINGUR: STÆRÐ S-M-L-XL og XXL-XXXL: UMFERÐ 1: Prjónið br.
UMFERÐ 2: Aukið út með því að slá uppá prjóninn á undan 1.-3.-4.-6. prjónamerki og með því að slá uppá prjóninn á eftir 1.-2.-4.-5. prjónamerki (= 8 l fleiri í umf).

Yfirfarið á vefsvæði: 22.09.2016
LEIÐRÉTTING: Mynstrið hefur verið endurskrifað að stórum hluta.

Mynstur

symbols = þetta er aðeins áætlað mál, það fer eftir því hversu margar umf eru prjónaðar á neðri kanti
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (81)

country flag Gitte Møller wrote:

Syntes det er en utrolig flot bluse. Har købt garn men forstår overhovedet ikke opskriften desværre

14.03.2024 - 14:47

country flag Marianne Lind wrote:

Jeg har strikket denne bluse i Drops Fabel og den ligner bestemt også den på billedet dog har jeg problemer med at nederste kant ruller indad, det ser bestemt ikke godt ud, jeg har prøvet at dampe/presse den, men alligevel sker det. Rigtig ærgerligt, at have lavet et stort arbejde og så ikke at kunne bruge blusen. Jeg kan ikke se der står noget om afslutningskant - så, hvad gør jeg?

05.01.2024 - 17:24

DROPS Design answered:

Hej Marianne, er det på ærmerne? Du kan evt prøve at strikke en lille ribkant... Vi har presset den så den ikke ruller - prøv en gang til :)

11.01.2024 - 14:18

country flag Britt Bisgaard wrote:

Vær opmærksom på at der i opskriften ikke er beskrevet ryg og forstykke for de store størrelser. Jeg har strikket som en str. L de 6 omg. x4 med tilpasset indtagninger så maskeantallet bibeholdes og så yderligere de 6 omg. x2, så passer længden også til en XL. Man skal være erfaren strikker til denne opskrift.

20.08.2023 - 09:56

country flag Britt Bisgaard wrote:

Jeg har lige modtaget svar på spørgsmål om, hvordan man strikker videre under bærestykket i str. XL og hele afsnittet mangler for de store størrelser også i den norske udgave. Der kommer til at mangle adskillige omgange og cm inden man kan fortsætte med kanten... Så svaret er noget sludder!

14.08.2023 - 15:42

DROPS Design answered:

Hej Britt, opskriften stemmer, du har 338 m i XL når du starter sammenstrik som står beskrevet under alle størrelse. Du kan også se i måleskitsen at det sammenstrikkede starter tidligere i de største størrelser - MEN det er VIGTIGT at du holder strikkefastheden med 23 m og 45 pinde i højden på 10 cm ellers vil målene ikke stemme med måleskitsen !

16.08.2023 - 11:39

country flag Britt Bisgaard wrote:

På side 3 er en beskrivelse for str. S-M-L når der er delt til ærmer. Men hvordan strikker jeg videre i str. XL?

11.08.2023 - 14:47

DROPS Design answered:

Hei Britt. Da starter du på teksten: ALLE STR: mvh DROPS Design

14.08.2023 - 14:35

country flag Lone Nauta Beck wrote:

Bærestykket str M: Efter 1. om. vrang er der opdeling af maskerne til forstykker og ryg. Fordelingen af maskerne på ryk og forstykker passer ikke. 18+18+22+18+18+22= 116 masker og jeg har 122 som jeg også skal have iflg. opskriften. Med l¨om maskerne ender jeg på 124 m og ikke 130 som i opskriften.

14.08.2022 - 10:55

DROPS Design answered:

Hei Lone. Har du glemt å telle med maskene du har satt merkene i, 6 merker i 6 masker? Da blir det 18 + 21 (=1 kast + 1 maske med 1. merke + 1 kast + 18) + 44 (= 1 kast + 1 maske med 2. merke + 22 + 1 maske med 3. merke + 1 kast + 18) + 21 (= 1 kast + 1 maske med 4.merke + 1 kast + 18) + 26 (=1 kast + maske med 5. merke + 22 + maske med 6. merke i +1 kast). Litt mer oversiktelig: 18+21+44+21+26= 130 masker. mvh DROPS Design

15.08.2022 - 11:51

country flag Cynthia wrote:

Ik begrijp de uitleg niet hoe ik aan het linkerachterand moet beginnen. Kan ik daar ergens een filmpje van terugzien?

19.03.2022 - 18:46

country flag Susanne Rofner wrote:

Nach Stilllegung der Ärmel ist mein Rundenbeginn direkt nach den neu angeschlagenen Seitenmaschen. Wenn ich Rd 1-6 die Abnahmen vor und nach den mittleren Seitenmaschen mache komme ich in die nächste Runde. Ich finde keinen Hinweis dass der Rundenbeginn versetzt wird? Herzlichen Dank

22.08.2021 - 18:23

country flag Aase Jensen wrote:

I skriver jeg har fået hjælp. Men jeg forstår det stadig ikke. Har i virkelig ikke en video, som viser hvordan man gør? Det kan ikke passe jeg er den eneste der ikke kan finde ud af forklaringen.

11.03.2021 - 00:02

DROPS Design answered:

Hej Aase, jo det er samme princip som kanten på denne model- se video: Nederste kant i dominotrøjen

11.03.2021 - 09:32

country flag Aase Jensen wrote:

Jeg forstår simpelthen ikke hvordan jeg strikker det sammen. Fortsætter jeg rundt, eller vender jeg ved sidemarkeringen? Starter jeg med at strikke de ny opslåede masker? Er der ikke en video hvor jeg kan se det? Jeg dynes forklaringen er komplet uforståelig. M. V. H. Aase

09.03.2021 - 10:41

DROPS Design answered:

Hej Aase, vi kan se at du har fået hjælp i DROPS Workshop på Facebook :)

10.03.2021 - 15:50