Ruth CDowell skrifaði:
Starting right front piece. It says increase 1 stitch for neck at the end of every 4th row. Then increase 1 st 2 times then every other row. Does this mean every 4th row twice and then every other row 18 times
27.08.2024 - 17:41DROPS Design svaraði:
Dear Mrs CDowell, you increase for neck first 2 times on every 4th row (on every other row from RS) then 18 times on every other row (on every row from RS). Happy knitting!
28.08.2024 - 08:51
Ruth McDowell skrifaði:
I’ve reached the point in the back where I increase for the sleeves but I can’t understand that if I add stitches (12) at the end of 2 rows and then 12 at the end of next row I should only have140 stitches and not the 176 it says in the pattern. Please explain
18.03.2024 - 15:54DROPS Design svaraði:
Dear Ruth, supposing from the 12 stitches that we are talking about size XL, the pattern says that you should "at the end of every row as follows: Cast on 14-14-13-12-11-9 sts 2 times and 15-14-14-12-13-11 sts 1 time = 168-171-173-176-181-182 sts. ", so you actually cast on that 12 stitches 6 times in total (3 times each side), which is 72 stitches increased in total, adding that to the 104 you already had, the result is 176. I hope that helps. Happy Knitting!
18.03.2024 - 20:37
Carolyn Schwartz skrifaði:
Can you tell me what measurement units the schematic measures are using? cm or inches? I am trying to figure out what size to make. Thank you.
14.08.2023 - 16:44DROPS Design svaraði:
Hi Carolyn Schwartz! It uses centimetres. Happy knitting!
14.08.2023 - 23:04
Marion Schuhmann-Ränsch skrifaði:
Ist es möglich, daß Model nur mit Alpaka-Wolle zu stricken? Warum haben Sie noch Kid Silk mit dazu genommen.? Ich würde gern einfädig stricken
25.02.2018 - 10:13DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schuhmann-Ränsch, Kid-Silk bringt etwas Mohair & Seide zum Modell, aber gerne können Sie 2 Fäden Alpaca anstatt benutzen, mehr über Garnalternativen lesen Sie hier. Viel Spaß beim stricken!
26.02.2018 - 09:20
Laura skrifaði:
Per realizzare questo modello con il cotone Paris quanto filato occorre?
05.03.2016 - 14:24DROPS Design svaraði:
Buongiorno Laura, questo modello è realizzato con due filati del gruppo A o 1 del gruppo C. Ad esempio per la taglia S servono 300 g totali di Alpaca (167 m x 6 gom = 1002 m) e 100 g di Kid-Silk (200 m x 4 gom = 800 m), per cui facendo riferimento ad Alpaca servono circa 14 gomitoli di Paris (1000/75 = 13.3 gomitoli) Può leggere anche questa lezione sulla sostituzione dei filati. Buon lavoro!
06.03.2016 - 09:51
Ellen skrifaði:
Bitte berichtigen Sie die Anleitung: Statt "Rückenteil" als Anleitungsüberschrift steht dort "Vorderteil" ...
06.02.2016 - 10:04DROPS Design svaraði:
Ja, Sie haben Recht, das wird gleich korrigiert, danke für den Hinweis!
06.02.2016 - 13:22
Anidy29 skrifaði:
J'adore !!!
16.01.2016 - 09:27
Katharina skrifaði:
Diese Jacke hat das Zeug zum "Allrounder" - und kann in vielen Farben und Wollarten ganz unterschiedlich wirken. Ein großartiges Modell - ich freue mich darauf!
12.12.2015 - 11:41
Irish Sea Cardigan#irishseacardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk í garðaprjóni og með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 168-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: Prjónið rendur með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði Kid-Silk þannig: BAKSTYKKI: Prjónið garðaprjón með litnum ljós grágrænn þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm. Prjónið síðan * 2 umf garðaprjón í litnum natur og 2 umf garðaprjón í litnum ljós grágrænn *, endurtakið frá *-* í 16-16-17-17-18-18 cm (passið uppá að þráðurinn verði ekki of stífur við litaskipti). Prjónið garðaprjón í litnum natur þar til stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm (= mitt ofan á öxl). FRAMSTYKKI: Haldið áfram með garðaprjón í litnum natur þar til stykkið mælist 19-20-20-21-21-22 cm. Prjónið síðan * 2 umf garðaprjón í litnum ljós grágrænn og 2 umf garðaprjón í litnum natur *, endurtakið frá *-* í 16-16-17-17-18-18 cm (passið uppá að þráðurinn verði ekki of stífur við litaskipti). Prjónið garðaprjón í litnum natur þar til stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út innan við 1 kantlykkju. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægra framstykki. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Mælið frá kant í hálsmáli og fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 9, 16 og 23 cm. STÆRÐ M: 2, 9, 16 og 23 cm. STÆRÐ L: 2, 10, 18 og 26 cm. STÆRÐ XL: 2, 10, 18 og 26 cm. STÆRÐ XXL: 2, 11, 20 og 29 cm STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20 og 29 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í etti stykki yfir axlirnar og niður á aðra hliðina. Öll peysan er prjónuð með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk. BAKSTYKKI: Fitjið upp 70-77-83-94-101-114 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði í litnum ljós grágrænn Kid-Silk og 1 þræði í litnum ljós grágrænn Alpaca. Prjónið GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið úrtöku með 6-5-5-5-5-5 cm millibili 3-4-4-4-4-4 sinnum til viðbótar = 62-67-73-84-91-104 l. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-36-36 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 39-39-41-41-43-43 cm = 66-71-77-88-95-108 l. Haldið áfram í garðaprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist alls 43-44-45-46-47-48 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki fyrir ermar = 68-73-79-90-97-110 l. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 82-87-93-104-111-124 l. Fitjið síðan upp nýjar l í hvorri hlið fyrir ermar í lok hverrar umf þannig: 14-14-13-12-11-9 l 2 sinnum og 15-14-14-12-13-11 l 1 sinni = 168-171-173-176-181-182 l. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm fellið af fyrir hálsmáli þannig: Passið að næsta umf sé frá réttu, prjónið yfir fyrstu 71-72-73-74-76-76 l (= vinstri öxl/ermi) og setjið þessar l á þráð, fellið af næstu 26-27-27-28-29-30 l fyrir hálsmáli og prjónið út umf (= 71-72-73-74-76-76 l á hægri öxl/ermi). HÆGRA FRAMSTYKKI: Fækkið um 1 l í lok næstu 2 umf frá réttu = 70-71-72-73-75-75 l. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm er sett eitt prjónamerki í stykkið (= mitt ofan á öxl). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í garðaprjóni og röndum eins og áður. Þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki mitt ofan á öxl (passið að næsta umf sé frá réttu) aukið út um 1 l fyrir hálsmáli í lok 4. hverrar umf (þ.e.a.s. aukið út innan við 1 kantlykkju í lok umf frá réttu) þannig: Aukið út um 1 l 2 sinnum og síðan í annarri hverri umf: 1 l 17-18-18-18-19-19 sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm fækkið lykkjum fyrir ermi í byrjun á hverri umf frá réttu þannig: Fellið af 15-14-14-12-13-11 l 1 sinni, 14-14-13-12-11-9 l 2 sinnum = 46-49-52-57-61-67 l. Í byrjun á næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hlið, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 38-41-44-49-53-59 l. Passið uppá að prjóna rendur á sama stað á framstykki eins og á bakstykki. Fækkið nú um 1 l í hlið (þ.e.a.s. í byrjun umf frá réttu) þegar stykkið mælist 24-26-26-28-28-30 cm og 29-31-32-34-35-37 cm = 36-39-42-47-51-57 l. Þegar stykkið mælist 35-35-37-39-41-43 cm aukið út um 1 l í hlið, endurtakið útaukningu með 6-5-5-5-5-5 cm millibili 3-4-4-4-4-4 sinnum til viðbótar = 40-44-47-52-56-62 l. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm frá prjónamerki mitt ofan á öxl, fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka l af þræði á prjóninn = 71-72-73-74-76-76 l. Fækkið síðan um 1 l í byrju frá næstu umf frá réttu (frá hálsmáli) = 70-71-72-73-75-75 l. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm og setjið eitt prjónamerki í stykkið (= mitt ofan á öxl). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram i garðaprjóni og röndum eins og áður. Þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki mitt ofan á öxl (passið að næsta umf sé frá réttu) er aukið út um 1 nýja l fyrir hálsmáli í byrjun á 4. hverri umf (þ.e.a.s. aukið út innan við 1 kantlykkju í byrjun á umf frá réttu) þannig: Aukið út um 1 l 2 sinnum og síðan í annarri hverri umf: 1 l 17-18-18-18-19-19 sinnum JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm fækkið l fyrir ermi í byrjun á hverri umf frá röngu þannig: Fellið af 15-14-14-12-13-11 l 1 sinni og 14-14-13-12-11-9 l 2 sinnum = 46-49-52-57-61-67 l. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í lok umf í hlið, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 38-41-44-49-53-59 l. Passið uppá að prjóna rendur á sama stað og á framstykki eins og á bakstykki. Fækkið síðan um 1 l í hlið þegar stykkið mælist 24-26-26-28-28-30 cm og 29-31-32-34-35-37 cm = 36-39-42-47-51-57 l. Þegar stykkið mælist 35-35-37-39-41-43 cm er aukið út um 1 l í hlið. Endurtakið útaukningu með 6-5-5-5-5-5 cm millibili 3-4-4-4-4-4 sinnum til viðbótar = 40-44-47-52-56-62 l. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm frá prjónamerki mitt ofan á öxl er fellt laust af. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt, í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #irishseacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.