Paula skrifaði:
Hallo.ik ben er nog niet mee begonnen ,lijk een leuke trui maar waar zitten hier de knopen?? groeten Paula.
30.03.2016 - 05:37DROPS Design svaraði:
Hoi Paula. Er zijn knopen middenachter, lees het patroon onder PAS
30.03.2016 - 12:42
Dagmar skrifaði:
Ich habe dieses Sommerpullöverchen gestrickt. Er wurde schon mehrfach bewundert. Die Anleitung ist super und sehr leicht nach zu arbeiten!
16.03.2016 - 18:56
Inger Kylestorp skrifaði:
Sorry, ser nu att det ska vara knapphål bak på oket. Glöm min tidigare fråga.. :-)
19.02.2016 - 15:45
Inger Kylestorp skrifaði:
Den är jättefin, men det måste vara fel i mönstret om att man ska göra knapphål. Modellen finns även som kofta och då ska det förstås vara knapphål. Här är topen stickad på rundsticka.
19.02.2016 - 15:15
Marianne Wijkmark skrifaði:
Är väldigt vacker. Undrar om den är svår att sticka?
27.01.2016 - 12:25
Heidi Schmidt skrifaði:
Sehr schön zeitloses Modell. Unbedingt zur Verwirklichung empfohlen !
02.01.2016 - 20:41
Heidi Schmidt skrifaði:
Super, mus unbedings ins neue Heft 2016 !
02.01.2016 - 20:33
Hanna skrifaði:
Suuuuper!
30.12.2015 - 23:21
Bea skrifaði:
Sommerpulli, der unbedingt gestrickt wird!
22.12.2015 - 17:40
Urszula skrifaði:
Prosta, skromna, a jaka kobieca!
14.12.2015 - 12:56
Summer Leaves Top#summerleavestop |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Muskat með blaðamynstri, garðaprjóni, hringlaga berustykki og stuttum ermum, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S – XXXL.
DROPS 170-27 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á kanti að framan í lok umf séð frá réttu. Prjónið þar til 4 l eru eftir. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu l slétt saman, prjónið 2 síðustu l á prjóni. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (frá uppfitjunarkanti og meðfram kanti að framan): STÆRÐ S: 2, 8, 14 og 19 cm. STÆRÐ M: 2, 8, 14 og 20 cm. STÆRÐ L: 2, 8, 14 og 21 cm. STÆRÐ XL: 2, 8, 15 og 22 cm. STÆRÐ XXL: 2, 9, 16 og 23 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 9, 16 og 24 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með tölukanti á baki, síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað í hring. BERUSTYKKI: Fitjið upp 89-95-101-113-125-131 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Fellið af fyrir HNAPPAGAT fyrir miðju að aftan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 5 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), A.1 þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón (= kantur fyrir tölur). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er nú prjónað þannig: 5 l garðaprjón, A.2 (= 6 l), endurtakið A.2 alls 13-14-15-17-19-20 sinnum, endið með fyrstu l í A.2 (svo að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið), endið á 5 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 245-263-281-317-353-371 l á prjóni. Prjónið nú þannig: 5 l garðaprjón, A.3 (= 17 l), endurtakið frá A.4 11-12-13-15-17-18 sinnum, A.5 (= 20 l) og 5 l garðaprjón. Þegar A.3-A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 284-305-326-368-410-431 l á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, í síðustu umf frá röngu er lykkjufjöldinn jafnaður út til 283-307-331-365-397-429. Prjónið síðan þannig (frá réttu): Fellið af fyrstu 5 l, prjónið fyrstu 39-43-47-53-59-65 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 61-65-69-74-78-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 78-86-94-106-118-130 l (= framstykki), setjið næstu 61-65-69-74-78-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið þær 39-43-47-53-59-65 l sem eftir eru (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 168-184-200-224-248-272 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermi (= 3 nýjar l hvoru megin við prjónamerkin). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og prjónið í hring. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónameri (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 5-5-5-6-6-6 cm millibili 5 sinnum til viðbótar = 192-208-224-248-272-296 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af. Stykkið mælist alls ca 58-60-62-64-66-68 cm. KANUR ERMI: Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 3,5 = 61-65-69-74-78-82 l. Prjónið upp 1 l í hverja af 6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-75-80-84-88 l. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið nú af. FRÁGANGUR: Leggið kant fyrir tölur undir kant með hnappagötum og saumið niður neðri kantinn að framan. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerleavestop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.