Kamy skrifaði:
Impatiente de le commencer...
26.01.2016 - 15:41
Ellis Arklint skrifaði:
Jeg er så vild med denne model, fordi den er så let og yndefuld at se på. Hvis man er "lidt for rund" er den super til at skjule det. Jeg kan næsten ikke vente på opskriften mere, er "inde" hver dag for at se om den er kommet :-)
25.01.2016 - 17:37
Valérie skrifaði:
Très beau et très élégant!
15.01.2016 - 14:06
Jolanda Philippo skrifaði:
Super leuk patroon, deze zal ik zeker gaan maken suggested name: Blue belle
15.01.2016 - 13:27
Sophia skrifaði:
Very nice pattern.
03.01.2016 - 13:09
Petra Kaiser skrifaði:
Gibt viel Flexibilität. Gefaellt mir gut.
27.12.2015 - 23:45
Monika skrifaði:
Klasse, endlich ein Modell auch für Kundinnen mit einer größeren Konfektionsgröße!
13.12.2015 - 12:29
Venezia#veneziasweater |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri í hliðum og a-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.
DROPS 168-34 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig og til baka niður fyrir handveg. Síðan er prjónað áfram í hring. BAKSTYKKI: Prjónið hægri öxl þannig: Fitjið upp 17-18-19-21-21-22 l á hringprjóna nr 4,5 með Belle. Prjónið þannig (1. umf = rétta): 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að hálsmáli), prjónið 13-14-15-17-17-18 l sléttprjón, 1 kantlykkja með garðaprjóni (= að handveg). Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umf. Í næstu umf er aukið út um 1 l innan við 3 l garðaprjón við háls – LESIÐ ÚTAUKNING = 18-19-20-22-22-23 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu og geymið stykkið. Prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið út um 1 l á undan 3 l garðaprjón við hálsmál í 5. umf með sléttprjóni = 18-19-20-22-22-23 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Snúið stykkinu við og prjónið eins og áður yfir allar l. Í lok umf eru fitjaðar upp 35-35-37-37-39-39 nýjar l fyrir hálsmáli, síðan eru prjónaðar 18-19-20-22-22-23 l frá hægri öxl inn á prjóninn = 71-73-77-81-83-85 l. Nýjar l sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru prjónaðar í garðaprjóni = 41-41-43-43-45-45 l garðaprjón mitt á bakstykki (meðtaldar 3 l garðaprjón sem prjónaðar voru í hvorri hlið við hálsmál). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir þessar l er haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm í öllum stærðum eru fitjaðar upp nýjar l fyrir handveg í lok hverrar umf þannig: Fitjið upp 1 l 1-2-3-3-2-2 sinnum, 2 l 0-1-1-1-2-3 sinnum og 3 l 0-0-0-1-2-3 sinnum = 73-81-87-97-107-119 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu og geymið stykkið. Stykkið mælist nú 16-17-18-19-20-21 cm frá öxl. FRAMSTYKKI: Prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp 17-18-19-21-21-22 l á hringprjóna nr 4,5 með Belle. Prjónið þannig (1. umf = rétta): Prjónið 3 l garðaprjón (= að hálsmáli), prjónið 13-14-15-17-17-18 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= að handveg). Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7-8-7-8-8-8 cm aukið út um 1 l fyrir hálsmáli innan við 3 l garðaprjón við háls. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 4-4-5-5-6-6 sinnum til viðbótar = 22-23-25-27-28-29 l. Þegar öll útaukning hefur verið gerð er prjónuð 1 umf til baka frá röngu. Geymið stykkið. Prjónið hægri öxl þannig: Fitjið upp og prjóni eins og vinstri öxl, nema spegilmynd. Þegar öll útaukning hefur verið ger fyrir hálsmáli eru 22-23-25-27-28-29 l á prjóni. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l. Í lok umf eru fitjaðar upp 27 nýjar l í öllum stærðum fyrir hálsmáli, prjónið síðan allar l frá vinstri öxl inn á prjóninn = 71-73-77-81-83-85 l. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið garðaprjón yfir miðju 33 l í öllum stærðum (= þær 27 nýju l sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli + 3 l hvoru megin við þær). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir miðju 33 l í öllum stærðum er haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 15 cm í öllum stærðum eru fitjaðar upp nýjar l fyrir handveg í lok hverrar umf við handveg alveg eins og á bakstykki, prjónið síðan 1 umf til baka frá röngu = 73-81-87-97-107-119 l. Stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá öxl. Prjónið nú þannig: Prjónið sléttprjón yfir allar l á framstykki. Fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar l fyrir handveg, haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l á bakstykki, fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar l fyrir handveg. Nú eru 156-172-188-208-232-256 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið prjónamerki í hvora hlið á stykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið síðan stykkið í hring á hringprjóna. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið 1 umf í sléttprjóni, en endið 12-13-14-15-16-17 l á undan byrjun umf. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 10 l), A.2 (= 11 l), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið sléttprjón yfir næstu 57-65-73-83-95-107 l, setjið eitt prjónamerki hér, A.1, A.2, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið sléttprjón yfir þær 57-65-73-83-95-107 l sem eftir eru. ATH: Látið 4 prjónamerkin fylgja með í stykkinu svo auðveldara sé að skilja mynstureininguna með gatamynstri og sléttprjóni frá hvort öðru. Lykkjufjöldinn í sléttprjóni á fram- og bakstykki er haldið stöðugur og aukið er út l í mynstureiningu með gatamynstri í hliðum. Haldið svona áfram með mynstur þar til allt mynstrið A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Nú eru 200-216-232-252-276-300 l í umf og stykkið mælist ca 19 cm í öllum stærðum. Endurtakið síðan A.X á hæðina, JAFNFRAMT þar sem útaukning í mynstri heldur áfram eins og áður: Þ.e.a.s. gatamynstur á hvorri hlið er aukið út með 12 l og það verða 2 gataumferðir (1 gataröð = 1 úrtaka + 1 uppsláttur) fleiri í A.1 og A.2 í hvorri hlið í hvert skipti sem A.X. er prjónað til loka 1 sinni á hæðina. Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm nú eru ca 320-336-352-376-404-432 l í umf. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið síðan 4 umf garðaprjón. Fellið af. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna upp að ermakúpu, síðan er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 53-55-57-59-61-63 l á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (1. l í umf er mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3-4-5-5-3-5 cm aukið út um 1 l hvoru megin við l mitt undir ermi (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 5½-4½-3½-3-2½-2 cm millibili alls 5-6-7-8-9-10 sinnum til viðbótar = 65-69-73-77-81-85 l. Þegar stykkið mælist 34-34-33-32-29-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), fellið af 5-5-7-7-9-9 l mitt undir ermi og ermin er prjónuð til loka fram og til baka. Fellið síðan af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 2 l 4-4-4-4-3-3 sinnum og 1 l 2-3-3-3-3-8 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 42-43-43-43-43-44 cm. Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #veneziasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.