Frederrikke skrifaði:
Svarer garnforbruget med de 100g farve nr. 01, 50g farve nr. 17, 50g farve nr. 27 og 50g farve nr. 38 til en eller to grydelapper?
19.06.2022 - 14:29DROPS Design svaraði:
Hei Frederrikke. Til 1 gryteklut, men husk at den hekles dobbelt for den hekles sammen til 1 gryteklut. mvh DROPS Design
20.06.2022 - 08:21
Arianna skrifaði:
Nel giro 3 della spirale a tinta unita gli aumenti non dovrebbero essere 12? Se si aumenta solo 7 volte in tutto, aggiungendo una maglia doppia ad ogni aumento, vengono alla fine 31 maglie, di conseguenza anche nel giro 4 non si arriva a 48 maglie
23.10.2021 - 12:36DROPS Design svaraði:
Buonasera Arianna, al giro 3 si aumentano 12 maglie. Buon lavoro!
28.12.2021 - 16:33
Anni Møller skrifaði:
Hej med 300 g garn får man så to dobbelte grydelapper
30.08.2019 - 16:43DROPS Design svaraði:
Hej Anne, der går 250 g til én dobbelt grydelap i de 3 farver. God fornøjelse!
02.09.2019 - 15:34
Lone Christiansen skrifaði:
Billede og opskrift passer ikke sammen på de nye hæklede håndklæder i Paris. Det er de hæklede grydelapper, der er sqat på som billede! Jeg venter spændt på at i snart får lagt opskrift ud på grydelapperne!
20.01.2016 - 08:15DROPS Design svaraði:
Hej Lone. Ja, det var en lille fejl, grydelapperne er ny tilföjet i stedet!
20.01.2016 - 14:11
Katrin skrifaði:
Squirl
14.01.2016 - 12:44
Lauren McRoberts skrifaði:
Love these! Great use of color!
23.12.2015 - 17:56
Candy Daze#candydazepotholders |
|
|
|
Heklaðir pottaleppar úr DROPS Paris með röndum og spíral.
DROPS 170-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR Í POTTALEPP 1: Litur 1: natur Litur 2: ferskja Litur 3: apríkósa Litur 4: kórall RENDUR Í POTTALEPP 2: Litur 1: natu Litur 2: ljós gulur Litur 3: vanillugulur Litur 4: skærgulur ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- POTTALEPPAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklið einn pottalepp í hvorri litasamsetningu. Hvor pottaleppur samanstendur af 2 spírölum sem heklaðir eru saman í lokin. POTTALEPPUR: Þegar hekla á stykkið í hring er byrjað með þessari aðferð til að sleppa við gati í miðju (í stað þess að gera ll-hring) – notið lit 1: Notið heklunál nr 3,5 og haldið í endan á þræðinum, vefjið þræðinum einu sinni utan um vinstri vísifingur til þess að búa til lykkju. Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og löngutöng, endinn liggur nú yfir vinstri vísifingur. Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna, heklið 1 ll, heklið síðan í kringum lykkjuna þannig: UMFERÐ 1: 1 fl, 1 hst, 1 st. Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Skiptið yfir í lit 2 og heklið síðan um lykkjuna þannig: 1 fl, 1 hst, 1 st. Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Skiptið yfir í lit 3 og heklið um lykkjuna þannig: 1 fl, 1 hst, 1 st. Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Skiptið yfir í lit 4 og heklið síðan um lykkjuna þannig: 1 fl, 1 hst, 1 st. Dragðu í garnendann (lit nr 1) þannig að þú dragir lykkjuna saman. Festið endana á bakhlið. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 2: Haldið áfram með lit 4. Heklið 2 st í hverja af næstu 3 l (= 1 fl, 1 hst + 1 st sem heklaður var með lit 1). Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með lit 1. Heklið 2 st í hverja af næstu 3 l (= 1 fl, 1 hst + 1 st sem heklað var með lit 2). Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með lit 2. Heklið 2 st í hverja af næstu 3 l (= 1 fl, 1 hst + 1 st sem heklaður var með lit 3). Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með lit 3. Heklið 2 st í hverja af næstu 3 l (= 1 fl, 1 hst + 1 st sem heklaður var með lit 4) = 24 st. UMFERÐ 3: Haldið áfram með lit 3. * Heklið 1 st í næsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með lit 4. * Heklið 1 st í næsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með lit 1. * Heklið 1 st í næsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með lit 2. * Heklið 1 st í næsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar = 36 st. UMFERÐ 4: Haldið áfram með lit 2. * Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með lit 3. * Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með lit 4. * Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, setjið 1 prjónamerki í lykkjuna á síðasta st svo að hún rakni ekki upp og leggið þráðinn til hliðar. Haldið áfram með lit 1. * Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar = 48 st. Haldið áfram eins og UMFERÐ 4 í framhaldinu, þ.e.a.s. heklið 1 st fleira á milli hverra útaukningar í hverri umf og skiptið um lit eins og áður. Haldið áfram þar til hringurinn mælist ca 20 cm að þvermáli. Nú endar hringurinn þannig (þetta er gert með hvern lit): Heklið 1 st, 1 hst, 1 fl, 1 kl, klippið frá og festið enda. SPÍRALL Í EINUM LIT: Þegar hekla á stykkið í hring er byrjað með þessari aðferð til þess að sleppa við gati í miðju (í stað þess að gera ll-hring) – notið lit 3: Notið heklunál nr 3,5 og haldið í þráðar endann, vefjið þræðinum einu sinni utan um vinstri vísifingur til þess að búa til lykkju. Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og löngutöng, endinn liggur nú yfir vinstri vísifingur. Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna, heklið 1 ll, heklið síðan í kringum lykkjuna þannig: UMFERÐ 1: 1 fl, 1 hst, 10 st = 12 l. Hver umf heldur nú áfram án þess að enda, heklað er í hring. UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hverja l = 24 l. UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 6 sinnum = 36 l. UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 6 sinnum = 48 l. Haldið áfram eins og UMFERÐ 4 í framhaldinu, þ.e.a.s. heklið 1 st fleiri á milli hverra útaukningar í hverri umf. Haldið áfram þar til hringurinn mælist ca 20 cm að þvermáli. Nú endar hringurinn þannig: Heklið 1 st, 1 hst, 1 fl, 1 kl, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Leggið rönguna á spíralnum með mörgum litum að réttu á spíral með einum lit og heklið þá saman með lit nr 3 þannig: Heklið 1 fl í gegnum bæði lögin, heklið 25 ll (= lykkja), síðan er hekluð 1 fl í hverja fl umf hringinn, heklið 25 fl um lykkjuna og endið á 1 kl í fyrstu fl í umf. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candydazepotholders eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.