DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 170-21
DROPS Design: Mynstur nr w-606
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stykkið mælist ca 20 cm að þvermáli.

Efni (í 2 pottaleppa):
DROPS PARIS frá Garnstudio
100 g litur nr 17, natur
100 g litur nr 12, rauður
50 g litur nr 43, grænn
Afgangur í lit nr 44, brúnn

Einn pottaleppur er 78 g.

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, endið á 1 kl í þriðju ll.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

POTTALEPPAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

POTTALEPPUR:
Heklið 4 ll með heklunál nr 3,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið * 1 hst, 2 st * endurtakið frá *-* alls 4 sinnum um ll-hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! = 4 hst og 8 st.
UMFERÐ 2: Heklið 2 hst í hvern hst og 2 st í hvern st = 8 hst og 16 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 3: Heklið * 1 hst í fyrsta hst, 2 hst í næsta hst, 1 st í næsta st, 2 st í næsta st, 1 st í næsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 12 hst og 24 st.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 hst í hvorn af 2 fyrstu hst, 2 hst í næsta hst, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st í næsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 16 hst og 32 st.
UMFERÐ 5-8: Haldið áfram með útaukningu eins og áður, fyrir hverja umf er heklaður 1 hst/st fleiri á milli útaukninga 32 hst og 64 st.
UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 tvíbrugðinn stuðull í næstu lykkju, 2 tvíbrugðnir stuðlar í næstu lykkjju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastsalykkja í hverja af næstu 7 lykkjum *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum hringinn, en endið með 1 fastalykkju í næstu lykkju og 2 fastalykkjur í síðustu lykkju = 108 lykkjur.
UMFERÐ 10: Skiptið yfir í litinn rauður, heklið 1 fl í hverja fl og 1 hst í hvern hst, 1 st í hvern st og heklið 2 tbst í hvern tbst og 2 st í hvern st hvoru megin við tbst.

Saumið út tvo kjarna fyrir miðju á framhlið á pottaleppnum með litnum brúnn – sjá mynd.

Heklið annan pottalepp til viðbótar á sama hátt, nema nú er allur pottaleppurinn heklaður með litnum rauður.

HEKLAÐ SAMAN:
Leggið 2 pottaleppana ofan á hvorn annan með röngu á móti röngu og heklið þá saman með litnum rauður þannig: Heklið í gegnum bæði lögin: Heklið 1 fl í hverja l, en í hvern af miðju 4 tbst í hverju horni eru heklaðar 2 fl.

BLAÐ:
Heklið 14 ll með litnum grænn, snúið við og heklið 1 fl í aðra ll frá heklunálinni, 1 fl í næstu ll, 1 hst í hvora af næstu 2 ll, 1 st í hvora af næstu 2 ll, 1 tbst í næstu ll, 1 st í hvora af næstu 2 ll, 1 hst í hvora af næstu 2 ll, 1 fl í næstu ll, 2 fl í næstu ll, heklið síðan neðan á ll þannig:
1 fl í næstu ll,
1 hst í hvora af næstu 2 ll,
1 st í hvora af næstu 2 ll,
1 tbst í næstu ll,
1 st í hvora af næstu 2 ll,
1 hst í hvora af næstu 2 ll,
1 fl í hvora af síðustu 2 ll, klippið frá og festið enda. Heklið 2 blöð.

LYKKJA OG STILKUR:
Heklið 27 ll með litnum brúnn, 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hvora af næstu 2 ll, heklið 1 blað fast á stilkinn með 1 fl í gegnum 1 ll á blaði og 1 ll á stilk, endurtakið einu sinni til viðbótar. Gerið það saman með næsta blað, heklið 1 fl í hverja af þeim loftlykkjum sem eftir eru, leggið stilkinn í hring og festið með 1 kl í gegnum öll lögin (bæði pottalepp og lykkju). Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.02.2023
Nýr texti undir UMFERÐ 9.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag S Strandberg wrote:

I’m not an expert in crochet but usually get by and apologies if this question comes across as silly or amateurish but I’m having trouble understanding the Crochet Tip. On every dc round replace first dc with ch3 but every round starts with hdc so do you replace the first hdc with ch3? Is there a diagram available for this pattern?

02.03.2024 - 08:39

DROPS Design answered:

Dear S Strandberg, the only version of the pattern available is the one shown online; there are no extra charts or written explanations. You start all rounds with ch3 and substitute the 1st stitch, regardless of the type of stitch used. Happy crochetting!

03.03.2024 - 18:51

country flag Wicki Hansen wrote:

Kan i prøve at skrive omg. 9 op? Altså hvordan man får flettet udtagningerne ind i den omgang? Jeg har helt styr på de andre omgange op til, men omg. 9 giver mig hovedbrud. Kan se på kommentarerne ovenfor at andre heller ikke kan forstå den omgang.

06.02.2023 - 15:48

DROPS Design answered:

Hei Wicki Her må man strikke slik det står i beskrivelsen, samtidig som det økes som tidligere og da kan det fort gå litt i surr, men jeg ser også at det er et par tall som er feil. Et sted står det "1 fm i hver av de 2 neste m". Det skal være 12 masker, ikke 2. Og det skal være 1 fastmaske i hver av de 2 siste masken (2 fastmasker i den siste masken = 3 fastmasker). Vi skal få skrevet om 9.omgang slik at det blir lettere å forstå + rette feilene. mvh DROPS Design

13.02.2023 - 14:29

country flag Herma Wielinga wrote:

Ronde 9 is eigenlijk ronde 8/ round 9 is actually round 8 Als je goed op het plaatje kijkt, bestaat het lichte deel van de appel uit 8 toeren. De achtste is welke beschreven staat bij negen. Als je dan de beschrijving volgt, klopt het precies. Crochet rounds 1-7 according to the pattern description. Then skip round 8, and start with 9 right after.

26.04.2022 - 21:06

country flag Marie Marchal wrote:

Eine Freundin hat diese Topflappen bei mir bestellt. Das Material erscheint mir aber sehr dünn. Können Sie mir bestätigen, dass man sieh damit die Finger nicht verbrennt, wenn man sehr heiße Töpfe anfassen muss ... ! Vielen Dank.

15.01.2022 - 22:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Marchal, diese Topflappen bestehen aus 2 Teilen (1 mit dem Apfel, das 2. mit nur rot) die zusammengehäkelt wurden, dh es werden 2 Stofflagen. Viel Spaß beim häkeln!

17.01.2022 - 08:48

country flag Marie Diamond wrote:

I’m totally failing. Looking at the questions people are sending it seems that round 9 is creating a big problem. Please confirm the following: first I have 96 stitches where the increase are in the 7th stich of every section. Please explain which stitch I have to add in the 7th stitch prior to increasing. If you have a document showing all the stitches I have to follow it would be great otherwise I’m abandonning and will have to find another pattern to use all the yarn I ordered.

16.12.2020 - 00:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Diamond, you started to increase on round 4 with always 1 more stitch between each increase as on round 5 to 8: there were 1 stitch between 2 increases on round 4, there were 5 sts between 2 increases on round 8 and now you will have 6 sts between 2 increases on round 9, but at the same time, you will work all stitches as decribed under round 9, and not only with hdc and dc as before. Happy crocheting!

16.12.2020 - 07:07

country flag Marie Diamond wrote:

Round 9-can you give me the correct way to do it: the inc should be as follows: 7 sc 2 sc in eight stitch, 3 hdc 4 dc 2 tr in same stitch 1tr, 3 dc 3 hdc 2 sc in same stitch 7 sc 2 sc in same stitch 1 sc 3 hdc 3 dc etc.

15.12.2020 - 02:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Diamond, continue to increase on same places as before (in the corners = 1 stitch more between each increase), but instead of working only hdc and dc you will crochet also sc and trebles, ie as explained under row 9. Happy crocheting!

15.12.2020 - 08:43

country flag Gabriela Lomelín wrote:

Hola, se teje en espiral o en círculo? Y si es en círculo se cierra con punto enano?

22.11.2020 - 02:57

DROPS Design answered:

Hola Gabriela, se trabaja en círculo y se termina con 1 punto enano en el 1º/2º/3º punto de cadeneta, dependiendo del punto de inicio de la vuelta.

22.11.2020 - 11:23

country flag Gwenaël wrote:

Juste pour dire que j'ai compris en crochettant; souvenirs de granny. 😉 Merci. 🙂

14.08.2020 - 16:05

DROPS Design answered:

Bonjour Gwenaël et merci :) N'hésitez pas à partager vos photos avec nous via notre groupe DROPS Workshop ou bien notre galerie #dropsfan - Bonne continuation!

17.08.2020 - 07:53

country flag Gwenaël wrote:

J'ai beau retourner le problème dans tous les sens; je ne vois pas d'augmentation/où les mettre, ou intercaler de nouvelles mailles...; dommage que ce ne soit pas plus précis pour celles qui ne sont pas habituées au crochet ou qu'il n'y ait pas une grille, cela aurait été plus clair. 😉

14.08.2020 - 13:09

DROPS Design answered:

Bonjour Gwenaël, vous continuez les augmentations commencées au tour 4, avec toujours 1 maille en plus entre chaque augmentation comme aux tours 5 à 8, autrement dit, quand vous aviez 1 maille entre 2 augmentations au tour 4, vous en aviez 5 au tour 8 et donc maintenant vous en aurez 6 au tour 9, en même temps, vous crochetez les mailles comme décrit au rang 9 et donc pas en dB et B uniquement comme avant. Bonne continuation!

14.08.2020 - 13:33

country flag Gwenaël wrote:

Bonjour, comme beaucoup je coince au rang 9; doit-on rajouter des augmentations 2dB et 2B à intervalle régulier (12 au total)? Merci. 🙂

14.08.2020 - 10:16

DROPS Design answered:

Bonjour Gwenaël, les augmentations se font comme avant (vous avez 1 maille en plus entre chaque augmentation du tour précédent), mais au lieu de ne crocheter que des demi-brides et des brides, vous allez également crocheter des mailles serrées et des double-brides. Alignez les augmentations comme avant tout simplement, et crochetez les mailles comme indiqué sur le 9ème tour pour former le carré. Bon crochet!

14.08.2020 - 11:12